Morgunblaðið - 19.12.1990, Side 46

Morgunblaðið - 19.12.1990, Side 46
 *<& 'e Blomberg þvottavélar. 7 gerðir. lOtt verð - greiðslukjör Farestveit&Co.hf. BOROARTÚNI28, SÍMI622901. Latð 4 stoppar við dymar /--///■///-///■ ' MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990 „Megintilgangur forlagsins með útgáfu þessarar fyrstu íslensku al- fræðiárbókar er að veita landsmönn- um aðgang að nýjum og handhægum fróðleik um sem flest svið íslensks samfélags, í nútímalegu formi og á viðráðanlegu verði,“ segir Olafur Ragnarsson, forstjóri Vöku-Helga- fells, um bók forlagsins „Islensk w samtíð 1991“. Bókin kom út í byijun desember og var á dögunum tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sem forseti íslands afhendir í flokki handbóka og fræðirita. Mörg ár eru liðin frá því forlagið hóf fyrst að huga að útgáfu alfræði- árbókar í líkingu við þekktar erlend- ar bækur, sem komiðbafa út áratug- um saman í mörgum nágrannalanda okkar. Liðlega ár er liðið frá því rit- stjóri var ráðinn til verksins, en þá þegar hafði talsverð undirbúnings- vinna farið fram. Ritstjóri verksins er Vilhelm G. Kristinsson fyrrum fréttamaður. Morgunblaðið/Emilía Vilhelm G. Kristinsson, ritstjóri, Agúst Þorgeirsson, Teikniþjónustunni sf., og Olafur Ragnarsson, útgefandi. Fyrir lesandann uppi í rúmi og hinn í vinnunni Rætt við ritstjóra og útgefanda alfræðiárbókarinnar íslensk samtíð ALÞINQISKOSNfNÖAR fífimmmwsir 0mrtwmr$r' ((VSfxXKW'.iSwai*- ím/tmnrHr ttnossmnmw llan'gmmfii HiSrtmnxmmr. mi fSjw, ^ m »;,S' /#$& fcí Míft <mm> mimitngmt’œi' sftww'Éí ÍKW'- isfcmmtm áftw mm,- iw*- pómti« f#s> mm* f tmmtmm tm ( [flisWtow fltlSWHIW cSiilljSíáfliVtíSSt'S'tSffll* j •fcé' 5i«W' j- fftíýiijWibf I; WM.tó ' iC " •i.&iS' 'ftttíW dí j ! 'iMjiðuibiud'.'Awib’- •I'ÓOH flWWSbdíHHþtVWRV ;:.3í}ö j MiwUnHwh* •1,«SC - ÚI'.OÍJS ■ Reynt að sameina gagn og gaman Vilhelm segir, að við gerð aðfræð- iárbókarinnar séu farnar nýjar leiðir. „Með alfræðistíl og myndrænni framsetningu efnisiris reynum við að koma til móts við riútímafólk sem vill átta sig fjótt á þeim fróðleik sem það leitar að um samtíma sinn. Enn- fremur leggjum við áherslu á að setja efnisatriði í nýtt samhengi, skoða og skilgreina hina fjölmörgu þætti dag- legs lífs sem lítill gaumur er gefinn í erli dagsins. I raun má segja að vinnubrögðin séu ekki ólík þeim sem notuð eru við gerð sjónvarpsefnis. Við viljum á þennan hátt sameina tvo kosti sem ákjósanlegt er að bók af þessu tagi búi yfir, það er annars vegar að vera mikilvæg upplýsinga- náma, en jafnframt skemmtileg lesn- ing. Þannig spurðum við okkur oft- sinnis að því þegar við veltum vöng- um yfir framsetningu einstakra efn- isþátta bókarinnar, hvernig við gæt- um hvort tveggja í senn þjónað le- sanda sem tekur bókina með sér upp í rúm að kvöldlagi og lesanda sem grípur bókina í önn dagsins, á vinnu- stað eða í skólanum og þarfnast skjótra upplýsinga um einhvern þátt þjóðlífsins. Þannig höfum við verið að búa til bók sem á að geta verið lesandanum bæði til gagns og gam- ans. Leitað álits hjá raörgum í íslenskri samtíð 1991 eru um 3;000 atriðisorð og þar koma um 1.100 íslendingar við sögu. Vilhelm var spurður hvernig efnið hefði verið valið í bókina. „Ritnefndin hélt reglulega fundi þar sem í byrjun var reynt að átta sig á hvernig unnt yrði að gefa sem heilsteyptasta mynd af íslensku sam- félagi. Eftir því sem efnisvinnslu miðaði áfram mátum við stöðuna með jöfnu millibili. Meðal annars leit- uðum við til fjölda fólks, á öllum aldri, úr hinum ýmsu greinum þjóðfé- lagsins og fengum áli't þess á því sem komið var og hvað það teldi á vanta í bókina. Á þennan hátt fengum við mjög dýrmætar ábendingar um hvað fólk vill sjá í bók af þessu tagi og tókum mið af þeim í frekari úr- vinnslu." Engin ákveðin forskrift til „Það skemmtilega við svona bók er, að það er í raun engin ákveðin forskrift til að henni. Hún gefur afar ríkulega möguleika á efnistökum og framsetningu. Þannig á hver ný ár- bók að geta verið efnislega gjörólík bók síðasta árs, þrátt fyrir að allar gefi þær hver um sig víðtæka yfirsýn og mynd af samfélaginu eins og það er á hvetjum tíma. Til þess að skýra þetta örlítið nánar getum við tekið dæmi. Við skulum taka fjölmiðla, sem eru jafnan ofarlega í hugum nútímafólks og gegna stóru hlutverki í lífi þess. í þessari fyrstu bók gefum við yfirlit yfir helstu ijölmiðla á ís- iandi, segjum frá því hvenær þeir voru stofnaðir, hvetjir stjórna þeim og þar fram eftir götunum. I næstu bók gætum við í stað þess að endur- taka þessar upplýsingar, skoðað aðra hlið á miðlunum. Við gætum til að mynda sýnt hvernig eitt tölublað Morgunblaðsins verður til. Eða hvað gerist frá því erlend fréttakvikmynd er tekin upp í Saudi-Arabíu og þar til hún er komin heim í stofu sjón- varpsáhorfenda á íslandi. Og hliðstætt dæmi um efnahags- mái; í bókinni núna segjum við al- mennt frá útflutningsverslun íslend- inga. Við sýnum hvernig gjaldeyris- tekjur skiptast milli einstakra greina, hvetjar eru helstu útflutningsvörur okkar, hvetjir flytja þessar vörur út og hvert þær fara. Næst gætum við sýnt hver þróunin hefur verið í út- flutningi landsmanna til dæmis frá lýðveldisstofnun og skýrt og skil- greint hvaða þættir hafa haft áhrif á hana. Þá gefum við í þessari fyrstu bók nokkrar grundvallarupplýsingar um Evrópubandalagið. Við sjáum fyrir okkur að þessi bók gæti örðið þýðingarmikill vettvangur upplýs- inga um þróun mála á þeim vett- vangi. Þannig eiga lesendur sem safna bókunum kost 'á að koma sér upp alfræðisafni um samtímann. Við höfum ákveðið til þess að auðvelda fólki að nýta bókina sem alfræði- safn, að láta atriðisorðaskrána í framtíðinni ná til næstu bóka á und- an. Þá ér mögulegt á augabragði að sjá hvað skrifað hefur verið um við- komandi atriði síðustu árin.“ Átti að verða eitt fyrsta verkefnið Þegar Ólafur Ragnarsson sagði skiiið við sjónvarps- og blaða- mennsku fyrir um áratug og sneri sér að bókaútgáfu og stofnaði bóka- útgáfuna Vöku, hafði hann í huga að eitt fyrsta útgáfuverkefnið yrði alfræðiárbók. Hann hefur allan tímann verið í sambandi við útgef- endur og ritstjóra hliðstæðra bóka á Norðurlöndum og uppiýsingahand- bóka annars staðar eriendis og fylgst með þróun mála á þessu sviði. Þá hefur á undanförnum árum vet'ið unnið að flokkunarkerfi efnis í slíka bók og gerðar tilraunir með uppsetn- ingu, brot og útlit íslenskrar alfræð- iárbókar á vegum Vöku-Helgafells. Meðgöngu- og mótunartími bókar- innat- hefur verið langur — en nú er draumurinn orðinn að veruleika og Islensk samtíð 1991 komin út. Samstarf við erlenda útgefendur „Samstarfið við norrænu starfs- bræðurna hefur verið afar lær- dómsríkt,“ segir Ólafur. „Margir kannast án efa við dönsku bækurnar „Hvem Hvad Hvor“, norskar bækur Síða úr bókinni. með sama nafni og sænsku bækurn- ar „Nát' Hvar Hur“. í Finnlandi koma út hliðstæðar bækur sem nefnast „Mitá Missá Milloin". Þetta eru bæk- ur i litlu broti og þetta brot á sér sögulegar skýringar. Þannig er mál með vexti, að þegar Politikens Forlag í Kaupmannahöfn hóf útgáfu á „Hvem Hvad Hvor“ árið 1933 hent- aði þetta. brot best prentvélum for- lagsins. Þegar bækurnar höfðu kom- ið út í nokkurn tíma og útgefendurn- ir vildu stækka brotið í takt við nýja tíma, þvertóku lesendur fyrir það. Þeir vildu einfaldlega áfram fá sína litlu bók, sem passaði við hinar sem fyrir voru í bókaskápnum. Síðan hefur enginn þorað að nefna breyt- ingu opinberlega. Ritstjórarnir sögðu hins vegar að ef þeir væru að byrja núna myndu þeir hafa brotið stærra. Við tókum því þann pól í hæðina að, gefa út mun stærri bók en þeir. Við fórum milliveg og völdum brot sem hentar vel bók sem mikið þarf að hafa milli handa, er handhæg, og ennfremur bók sem unnt er að mynd- skreyta á fjölbreytilegasta máta. Þennan milliveg teljum við okkur hafa fundið og við alla hönnun bókar- innar og uppsetningu efnis höfðum við að leiðarljósi að hún yrði eins aðgengileg fyrir notendur og lesend- ur eins og mögulegt v.æri.“ Útbreiðsla er lykilatriði „Þá er það grundvallaratriði til að svona bók þjóni tilgangi sínum að hún sé í eigu sem flestra lands- manna. Til þess að svo megi verða þarf hún að vera á viðráðanlegu verði. Við tókum því ákvörðun um að bjóða bókina á sérstöku kynning- arverði tii áramóta og miða við að bókin seldist í talsvert stóru upplagi og skilaði inn kostnaði á þann hátt. Verðlagningin, 2.986 krónur, er því ekki í neinu samræmi við það sem gerist og gengur um litprentaðar bækur í þessum gæðaflokki, heldur sambærilegt við verð algengustu jólagjafabóka, svo sem ævisagna. í þessu felst mikil áhætta, en með hlið- sjón af fróðleiksfýsn Islendinga, svo og reynslunni af útgáfu slíkra bóka í nágrannalöndunum, var þessi ákvörðun tekin.“ Samband við lesendur „Þá byggist framtíð bókarinnar og gæði hennar mjög á þvi að þeir sem að útgáfunni standa fái ábend-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.