Morgunblaðið - 18.01.1991, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. 3ANÚAR 1-991
7
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkur:
Uppbyggiug- og þróttmikill
rekstur án skattahækkana
- segir Davíð Oddsson, borgarsljóri
FYRRI umræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fór fram á fundi
borgarstjórnar í gær. Samkvæmt frumvarpi að fjárhagsáætluninni
verða tekjur borgarinnar á árinu rúmir tólf milljarðar króna, rekstrar-
gjöld rúmlega átta og hálfur milljarður og fé, sem varið verður til
eignabreytinga þrír og hálfur milljarður. Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sagði við umræðuna, að síðustu átta ár hafi verið eitt mesta uppbygg-
ingarskeið í sögu borgarinnar og að það sé fagnaðarefni, að hægt
hafi verið að standa að þessari miklu uppbyggingu, án þess að íbúum
borgarinnar hafi verið íþyngt með nýjum sköttum.
Samkvæmt frumvarpi að fjár-
hagsáætlun borgarinnar verða tekjur
hennar á þessu ári 12.045.065 þús-
und krónur. Stærsti tekjuliðurinn eru
tekjuskattar eða útsvör, sem áætlað
er að skiii 5.855 milljónum króna.
Gert er ráð fyrir að aðstöðugjöld
skili 2.530 milljónum króna og fast-
eignagjöld 1.880 milljónum króna.
Alls er gert ráð fyrir að rekstrar-
gjöld borgarinnar verði 8.613.882
þúsund krónur. Stærsti einstaki út-
gjaldaliðurinn verða útgjöld til gatna
og holræsagerðar eða 2.026.900 þús-
und krónur. Næst koma félagsmál
og almannatryggingar, en til þeirra
eiga að renna 1.421.100 þúsund
krónur, 1.238.444 renna til skóla-
mála og 991.250 þúsund krónur til
dagvistarmála. Þá verður 544.145
þúsund krónum varið til æskulýðs-,
íþrótta- og tómstundamála.
Framkvæmdir á árinu
Meðal þeirra framkvæmda, sem
setja svip sinn á fjárhagsáætlunina,
er fyrsti áfangi Hamraskóla í Grafar-
vogi, sem áætlað er að tekinn verði
í notkun næsta haust, hönnun og
byrjunarframkvæmdir við Húsaskóla
og grunnskóli í Borgarholtshverfi
auk tengibyggingar á lóð Foldaskóla.
Áfram verður unnið að framkvæmd-
um við skautasvellið í Laugardal og
fyrirhugaða sundlaug í Árbæjar-
hverfi, ráðist verður í þakviðgerðir á
Kjarvalsstöðum og unnið að hönnun
og undirbúningi framkvæmda við
endurreisn húsakosts og Erró-safn á
Korpúlfsstöðum, sem vonast er til
að opnað verði 1994.
Framkvæmdir við íbúðir aldraðra
við Lindargötu halda áfram á árinu
og tekur borgin einnig þátt í fram-
kvæmdum við byggingu hjúkrunar-
heimilis fyrir aldraða í Grafarvogi.
Ráðgert er að veija 680 milljónum
til framkvæmda við Ráðhús
Reykjavíkur á árinu og verður þá
heildarkostnaður vegna þess orðinn
2.263 milljónir króna í árslok. Stefnt
er að því að unnt verði að taka húsið
í notkun í apríl á næsta ári.
Mikil uppbygging á 8 árum
Við umræður um fjárhagsáætlun-
ina í gær sagði borgarstjóri meðal
annars, að hún bæri það með sér,
að Reykjavíkurborg væri afar öflugt
fyrirtæki, sterkasta þjónustueining
landsins með afar trausta efnahags-
lega stöðu. Hann sagði að. ef litið
væri til síðustu átta ára væri ekki
ofsagt, að þau væru eitt mesta upp-
byggingarskeið í sögu hennar. Nán-
ast væri sama hvert væri skyggnst
í þeim efnum og í öllum borgarhverf-
um, jafnt nýjum sem gömlum, sæju
menn merki mikilla breytinga og
þróttmikillar vaxandi borgar.
Hann sagði að nú mætti sjá fyrir
endann á því að lokst takist að
byggja ráðhús fyrir höfuðborgina og
að útsýnishús Hitaveitunnar á
Öskjuhlíð yrði senn fullklárað. Reynt
hafi verið að gera þessar fram-
kvæmdir tortryggilegar en þær
töluðu nú fyrir sig sjálfar. Gríðarlega
mikið hefði verið gert á öðrum svið-
um, til dæmis hefði á þessum átta
árum verið byggt 21 barnaheimili,
heilsugæslustöðvar hefðu verið opn-
aðar í ftestum borgarhverfum og
hrein bylting hefði átt sér stað í
málefnum aldraðra.
íþrótta- og menningarmál
Borgarstjóri bætti við, að meiri
uppbygging hefði átt sér stað í upp-
byggingu íþróttamannvirkja en
nokkru sinni áður á jafn skömmum
tíma í sögu borgarinnar og jafnframt
hefðu stórir áfangar náðst á sviði
menningarmála. Aldrei hefði verið
meira ræktað af tijágróðri í borg-
inni, gjörbreyting væri að verða í
skólp- og útrásarmálum borgarbúa,
auk byltingar í sorphirðu.
Hann vék að stöðu fyrirtækja
borgarinnar og sagði, að þau hefðu
á þessu tímabili verið efld myndar-
lega. Nær allar skuldir Hitaveitunn-
ar, Rafmagnsveitunnar, Vatns-
veitunnar og Reykjavíkurhafnar
hefðu verið greiddar niður jafnframt
því sem staðið hefði verið að öflugum
framkvæmdum, en þrátt fyrir það
hefði gjaldskrá veitustofnana farið
lækkandi. Gjölrbylting hefði orðið í
skipulagsmálum og gríðarlegt átak
í gatnamálum.
Ekki skattahækkanir
Borgarstjóri lauk ræðu sinni með
því að segja, að það væri fagnaðar-
efni, að hægt hafi verið að standa
að hinni miklu uppbyggingu í borg-
inni á undanförnum árum án þess
að íbúum hennar hefði verið íþyngt
með nýjum sköttum. Þvert á móti
hafi verið haldið af stað fyrir átta
árum, þegar sjálfstæðismenn endur-
heimtu meirihluta sinn í borgar-
stjórn, með því að lækka vinstri-
stjórnarskattana. Borgin hafi heldur
ekki sökkt sér í skuldafen, eins og
því miður vilji stundum gerast hjá
sveitarfélögum, sem standi í miklum
framkvæmdum.
a?] 1 jL)öi\J J JJIJj
jJ-‘ ,n . I/(ij\ijjf
««1111C1I JIIli'llli 11
Tímarit Náttúrulækningatélagsins
véTðurVvnnt i Miklaoarð- v/Sund
tóstudagog laugatclag.
58Ö.- 389."
MYLLAN tjölkornabrauð
SOFTUGHTIéttiurtasmior
50%fiturhinna425g —
SMJÖ*
Léttostar, 4 teg.
10%SVy n*n' ngaratsláUur.
lÉrtNUOLK
i ítn 59.-
RYNKEBY ávaxtasafar mikið útval.
Appelsínu, sólberja, kirsubena, ^ . 99 ..
epla, grape og tomat--------
ÁVIXTO
Rautt grape kr. kg -W
199.-
Iiviuyi«r ■
Sweeties kr. kg
Pomelos kr kg
IV ~~Mcírtur kr.
Pomelos Kr-, y. _ " óó ,
Appelsinur kr. kg —--jj
Kiwi kr.kg.......
Munið'. tinmg
\M KAUPSTAÐUR
IMJÓDD /MIKIK34RDUR