Morgunblaðið - 18.01.1991, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.01.1991, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÖ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1991 i 10 Auðnin stækkar ár frá ári og ekki seinna vænna að stöðva gróðureyðinguna. Friðun landnáms Ingólfs fyrir lausagöngu búfjár Líf og land, Landvernd og Árnes- ingafélagið í Reykjavík, hafa sent formönnum þingflokkanna bréf ásamt áskorun um að flutt verði á Alþingi tillaga um friðun landnáms Ingólfs fyrir lausbeit búfjár. Áhersla er lögð á að hún verði sam- þykkt á þessu þingi fyrir kosningar í vor. Fer bréfið hér á eftir: Hér með fylgir áskorun til AI- þingis, þess efnis að nú þegar verði hafist handa um friðun landnáms Ingólfs fyrir lausagöngu búijar. Samin verði og samþykkt á Alþingi þingsályktun þar sem ríkisstjóm er falið að láta semja lagafrumvaip um friðun Landnáms Ingólfs fyrir lausagöngu búfjár. Frumvarp þetta verði lagt fyrir haustþing 1991. Rannsóknir hafa leitt í ljós mikla og hraðvaxandi gróðureyðingu á þessu landsvæði undanfarin ár og áratugi. Víða er gróður eyddur með öllu og jarðvegur horfinn. Annars staðar er gróður illa farinn . og í gjöreyðingarhættu ef svo heldur fram sem horfir. Þetta á einkum við um lyng, runna og tijágróður. Skjótra aðgerða er hér þörf fyrir gróðurvernd, og endurgræðslu ör- foka lands. M.a. með ræktun harð- gerðra tegunda, belgjurta, runna, skjólbelta og skóga. Slíkt mundi skila þjóðinni miklum framtíðar- vérðmætum, opna nýjar leiðir fyrir þýðingarmiklar atvinnugreinar, þar á meðal-skapa skilyrði fyrir fram- tíðar arðbæran landbúnað eftir nokkurra áratuga skeið. Hér er um tvennt að velja: að gjöreyða vissum undirstöðugróðri, eða að landsvæðið verði friðað með réttum hætti svo við getum tekið þátt í því ásamt næstu kynslóð að greiða hina miklu gróðureyðingar- skuld. Lausn þessa máls þarf ekki að koma hagsmunalega eða búsetu- lega niður á neinum einstaklingum. Málið er algjörlega ópólitískt, þann- ig að allir stjórnmálaflokkar er styðja vilja vaxandi hagsæld þjóðar- innar í þessu landi, geta staðið sam- an að þeirri lausn, sem að framan er nefnd. Okkur er full alvara að fylgja þessu máli eftir og munum beita okkur fyrir því að friðunarmál þetta verði kynnt rækilega fyrir kosningar næsta vor. Varðandi önnur efnisatriði þessa máls vísast til gagna sem bréfi þessu fylgja, sérstaklega er vakin athygli á samþykkt nr. 11 frá Nátt- úruverndarráði. Virðingarfyllst, Líf og land; Herdís Þorvalds- dóttir, 'Árnesingafélagið í Reykjavík; Arinbjörn Kolbeins- son. Önnur eftirtalin félög styðja áskorun þessa: Líffræðifélag íslands, Hið íslenska náttúrufræðifélag, Skóg- ræktarfélag íslands, Skógræktarfé- lag skáta, Skógræktarfélag Reykjavíkur, Skógræktarfélag Hafnarfjarðar, Skógræktarfélag Garðabæjar, Skógræktarfélag Kópavogs, Kiwanisumdæmið á Is- landi og Náttúruverndarsamtök Suðumesja. Auk þessa var samþykkt tillaga sama efnis á Náttúruvemdarþingi, sem haldið var í október sl. Innilegt þakklœti til allra þeirra, er glöddu mig á einn eða annan hátt á afmœli mínu þann 17. desember sl. Lifið heil. Ólafur Vilhjálmsson, Bólstað, Garðabæ. Viðtalstimi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 'f Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum í vetur f rá kl. 10-12. Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum. Allir borgarbúar velkomnir. Laugardaginn 19. janúar verða til viðtals Magnús L. Sveinsson, forseti borgarstjórnar, í borgar- ráði, formaður stjórnar Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, og Jóna Gróa Sigurðardóttir, formað- ur atvinnumálanefndar, í stjórn heilsugæslu miðbæjarumdæmis, menningarmálanefnd og bygging- arnefnd aldraðra. Hvað líður undir- búningi jarðganga á Austurlandi? eftir Þorvald Jóhannsson Nefnd sem samgönguráðherra skipaði 2.11. 1988 hefur það hlut- verk að kanna jarðgangaleiðir á Austfjörðum og gera tillögur um gangaleiðir og fjármögnun. • Hún er skipuð 3 Austfirðingum, fulltrúa frá Byggðastofnun, sam- gönguráðuneyti og Vegagerð ríkis- ins. Samkvæmt vinnuáætlun sem nefndin setti sér fyrir árið ’89 var þá unnið að áframhaldandi jarð- fræðirannsóknum, umferðarkönn- un framkvæmd og aðstæður til vega- og brúargerðar skoðaðar. Að sögn nefndarmanna tókst það eins og til var ætlast. í upphaflegri áætlun nefndarinnar ætlaði hún að skila af sér til ráðherra síðla árs 1990. En þar sem störfum hennar mið- aði hægar á sl. ári en ráð var fyrir gert í upphafi, verðum við samt að vona að tillögur samkvæmt erindis- bréfi liggi á borði ráðherra síðar á þessu ári. Urvinnslu jarðfræðirannsókna sem fyrir liggja er að mestu lokið. Úrvinnslu ferðakönnunar einnig, en umferðarspá liggur ekki fyrir. Lokið er samantekt, yfirliti og áætlun um lengdir og kostnað við vegi brýr og jarðgangagerð á öllum þeim stöðum sem hafa verið til skoðunar. . í þeim gögnum er miðað við munna jarðganga í mismunandi hæð yfir sjó, en ekki hefur enn verið ákvarðað hversu t.d. ofarlega er óhætt að fara. Það byggist m.a. á því hver endanleg niðurstaða verður á útkomu mælinga og gagnasöfnunar um m.a. úrkomu, snjóalög, snjósöfnun o.fl. á Ijallveg- um, en þær hafa verið í gangi sl. 2 vetur. Haglýsingar og þróunar- könnun er í vinnslu hjá Byggða- stofnun. Kostnaðarnytjagreining er lítt á veg komin, en varðandi hugmyndir um ijármögnun nýtist nefndinni væntanlega vel sú vinna sem fyrir liggur um Vestfjarðagöngin. Samráð og samvinna hefur verið við heimamenn, auk þess sem fund- ir hafa verið haldnir með sveitar- stjórnum. Tillögur um endanlegar jarð- gangaleiðir á Austljörðum liggja ekki fyrir enn, en ekki er ástæða til að ætla annað en að um þær náist full samstaða innan nefndar- innar. Það ánægjulegasta sem gerðist á síðasta ári fyrir jarðgangaáhuga- menn á Austurlandi er nýleg opnun Múlaganga, en framkvæmdir þar Leiðrétting ÞAU mistök urðu við vinnslu grein- ar Kristínar Gestsdóttur um mat og matgerð í þriðjudagsblaði, blað- síðu 36, að sjötti liður í uppskrift- inni Auðvelt brauð féll niður. Þar á að stpida: 6. Látið brauðið lyfta sér á volgum stað í 40 mín. eða lengur. Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessu. Þorvaldur Jóhannsson „Því þurfa Austfirðing- ar að vera tilbúnir „í borun“ ekki síðar en á árinu 1998.“ gengur mun betur en bjartsýnustu menn þorðu að vona í upphafi. Einn- ig og ekki síður hve allur undirbún- ingur hefur gengið vel á Vestfjörð- um. Hönnun jarðganga þar er lokið. Forvalsgögn framkvæmda voru send út sl. haust og verkið verður boðið út í næsta mánuði. Fram- kvæmdir eiga að heíjast í sumar, og stefnt er að því að þeim ljúki í árslok 1995. Engin ástæða er því til að ætla annað en að.því markmiði verði náð. Ég hef trú á að þeim ljúki vel fyrir tilsettan tíma. Því þurfa Austfirðingar að vera tilbúnir „í borun“ ekki síðar en á árinu 1998. Svo mun verða, því árið 2001 er skammt undan. Höfundur er bæjarstjóri á Seyðisfirði. Félagið „I Miðbæn- um“ stofnað STOFNFUNDUR samtakanna „í miðbænum" (Miðbæjarfélagið) verður haldinn laugardaginn 19. janúar 1991 á veitingahúsinu Gauki á Stöng kl. 15.00. Aðilar að þessum samtökum eru þeir sem starfrækja rekstur fyrir- tækja og/eða félagastarfssemi á svæði Kvosarinnar, sem nær frá Lækjargötu að Garðastræti ogírá Tjörninni að Tryggvagötu og öðrum sem áhuga hafa á varðveislu gamla. miðbæjarins. Á fundinum verða lög félagsins lögð fyrir fundinn, rædd og borin upp til samþykktar og stjórn félags- ins kjörin. ÚTSALAIM HEFST Á MORGUIM Opið frá kl. 10-16 DIMM ALIMM, Bankastræti 4, sími 11222.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.