Morgunblaðið - 18.01.1991, Page 12
12
MORGÚNBLÁÐÍÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1991
VÖKULT
AUGA
Sjónvarpsvöröurinn getur fylgst
meö útidyrunum, biðsalnum,
verksmiöjunni, versluninni,
vöruskemmunni eða hvar sem
aðgæsla er nauðsynleg.
Sjónvarpsvörðurinn
sofnar ekki á verðinum.
Hafið samband við sölumenn
í síma 69 1500 - TÆKNIDEILD
Heimilistæki hf
Tæknideild, Sætúni 8 SÍMI69 15 00
ÍSCUHIUKjJim
Þú svalar lestrarþörf dagsins
Bjarni L Karlsson
forstjóri — Minning
Fæddur 31. mars 1939
Dáinn 10. janúar 1991
Hann Bjarni er dáinn. Ég veit
að maður beið orðið eftir þessum
orðurn, hversu ósanngjarnt sem það
er. Ég á enn mjög erfitt að með-
taka og skilja brotthvarf Bjarna nú.
Þess vegna er gott að geta leitað
i minninganna sjóð og fundið það
er lifir af Bjarna í huga manns.
Ég man fyrst eftir honum þegar
ég var smápolli og fékk að fara í
bíltúra með honum á gömlu Cortin-
unni. Þá var hann ógiftur ungur
maður, sem hafði nægan tíma fyrir
lítinn frænda. Svo liðu árin og allt-
af kom Bjarni að sækja mig ef eitt-
hvað átti að gera með fjölskyld-
unni, enda fannst mér ég stundum
vera eitt af börnum hans. Þegar
ég fór að eldast fór ég að fá mikinn
áhuga fyrir þeirri vinnu sem Bjarni
vann við. Ég fékk að koma á laugar-
dögum í Þjónustuna, þegar amma
var að skúra, og gramsa í öllum
hans tækjum og tólum. Þegar ég
var ellefu ára spurði ég Bjarna
hvort hann vantaði ekki sendil.
Hann hélt það nú, og í mörg ár
vann ég hjá honum sem sendill.
Seinna fór ég að læra rafeindavirkj-
un, Bjarna þótti námið ekki sækj-
ast sem best og sagði við mig að
þó ég væri ágætur verkmaður,
kynni ég ekkert á bókina. Fáðu þér
hamar og lærðu smiðinn sagði
hann. Bjarni vissi sem var að svona
„pillur“ myndi ég ekki þola, enda
dreif ég mig áfram og kláraði nám-
ið. Ég hef oft hugsað um það síðan
að líkast til voru það þessi orð
Bjama, sem komu mér í gegn.
Ég hóf aftur vinnu hjá Bjarna
fyrir u.þ.b. §órum áram. Á þeim
tíma brölluðum við margt saman.
Það var ekki alltaf auðvelt að vinna
hjá Bjarna, enda var hann vinnu-
þjarkur mikill og sló aldrei af. Ég
man eftir því í haust, þegar Bjarni
virtist vera að ná sér eftir veikindin
var hann spurður að því, hvort hann
væri farinn að vinna fullan vinnu-
dag aftur. Hann sagði: „Nei, ég er
svona að gutla þetta tólf tíma á
dag.“ Þetta lýsir svolítið hvað Bjarni
gerði miklar kröfur til sjálfs sín.
Við vorum ekki alltaf sammála um
'framkvæmdir ýmissa mála, enda
hafa kappsamir menn, eins og
Bjarni var, ávallt skoðanir á hlutun-
um. Við náðum þó alltaf saman að
lokum.
Það er með miklum söknuði og
trega að ég kveð minn kæra vin
og frænda, það er þó notalegt, þeg-
ar sorgin leggst yfir að ylja sér við
minningamar um allar þær góðu
stundir sem við áttum saman. Ég
þakka Bjama fyrir allt, og blessuð
sé minning hans.
Kalli
í dag verður lagður til hinstu
hvíldar bróðir minn, Bjarni I. Karls-
son, eftir harða baráttu við þann
sjúkdóm sem að lokum hafði betur.
Bjarni fæddist á Sæbóli á Sel-
tjarnamesi 31. mars 1939, sonur
hjónanna Önnu Á. Bjarnadóttur og
Karls Sveinssonar, fyrrverandi
leigubifreiðastjóra. Hann hóf nám
í útvarpsvirkjun 1956 _ og fékk
meistararéttindi 1963. Árið 1964
stófnaði hann fyrirtæki sitt Radió-
þjónustu Bjarna, sem hann síðan
rak með miklum dugnaði til hinstu
stundar og ávann sér einstakt
traust allra þeirra mörgu sem við
hann skiptu. Bjami kvæntist 3.
september 1966 Þóranni Öddu Egg-
ertsdóttur ættaðri úr Ólafsvík, for-
eldrar hennar era Vilborg Jónsdótt-
ir og Eggert Guðmundsson, fyrrver-
andi verslunarmaður. Böm þeirra
Öddu og Bjama eru Anna Ástveig,
fædd 23. febrúar 1967, í sambúð
með Högna Guðmundssyni og eiga
þau einn son, Axel, Arnar, fæddur
12. júní 1970, nemi í húsasmíði og
tvíburana Braga Þór og Bjarna
GARÐURINN
Kringlunni
Frey, sem fæddir eru 9. júní 1974,
nemar í Verslunarskóla Islands.
Margs er að minnast á skilnaðar-
stundu, systkinahópurinn var stór
og því oft þröng á þingi meðan við
öll vorum í foreldrahúsum og
árekstrar því stundum óhjákvæmi-
legir, en öll vandamál voru leyst
og undir handleiðslu yndislegra for-
eldra komumst við öll til manns.
Bjarni endurgalt ríkulega þá elsku
sem hann varð aðnjótandi í heima-
húsum, á hveijum degi gaf hann
sér tíma þrátt fyrir miklar annir
alla tíð, að heimsækja foreldra okk-
ar og sjá til þess að þeim liði sem
best. Þau sakna nú sárt góðs sonar
og biðja honum blessunar guðs á
nýjum brautum. Ótalin era spor
þeirra að sjúkrabeði hans allt til
hinstu stundar og kom þar berlega
í ljós sú ástúð sem við systkinin öll
höfum notið frá fyrstu tíð.
Konu Bjama, Öddu, vilja þau
færa alúðarþakkir fyrir dæmafáa
fórnfýsi og umönnun á meðan á
veikindum hans stóð. Sú væntum-
þykja sem þar kom í ljós, endur-
speglar vel allt þeirra samband sem
ávallt var einstaklega gott. Ekki
er hægt að láta hjá líða að þakka
læknum og hjúkrunarfólki á deild
11E á Landspítala frábæra umönn-
un og alúð sem honum var sýnd í
veikindum hans.
Elsku Adda og börn, söknuður
ykkar er mikill, en öll él birtir upp
um síðir og eftir stendur minningin
um elskulegan eiginmann og föður,
sem mun verða ykkur ljós um
ókomna tíð.
Bjarna biðjum við blessunar
guðs. Megi hann hvíla í friði. Að
lokum vil ég ítreka kveðju og bless-
unaróskir foreldra okkar. Megi hon-
um vel farnast í landi ljóss og friðar.
Jarðarför Bjarna verður gerð frá
Seljakirkju í dag klukkan 13.30.
Palli
Kveðja frá Meistarafélagi
rafeindavirkja
Vinur okkar og félagi Bjarni I.
Karlsson, rafeindavirkjameistari er
horfínn af þessum heimi. Öllum sem
þekktu hann finnst þeir hafi misst
traustan og góðan dreng. Og félag
okkar á á bak að sjá einum af
máttarstólpum sínum.
Bjarni var sá maður sem alltaf
var með í ráðum þegar afstaða var
tekin til mála og naut hann mikils
trausts og virðingar á fundum okk-
ar og í daglegum samskiptum.
Hann var enda kjörinn til margra
trúnaðarstarfa, þannig var hann
kosinn mjög ungur, eða 23 ára, í
sveinsprófsnefnd og tveim árum
síðar, þ.e. 1965, verður hann for-
maður þeirrar nefndar og var í því
embætti allt til dauðadags. Hann
var um margra ára skeið varafor-
maður Meistarafélags rafeinda-
virkja og jafnan fulltrúi þess í samn-
inganefnd um kjaramál. Bjarni
lærði iðngrein sína hjá Viðtækja-
vinnustofunni sem Eggert Benónýs-
son rak og stjómaði. Þar ávann
hann sér mikils trausts meistara
síns og vinnufélaga. Man ég að
Eggert taldi sig aldrei hafa haft
traustari og vinnufúsari mann í
sinni þjónustu. Hann vann sér einn-
ig mikils trausts viðskiptavina Við-
tækjavinnustofunnar og setti sig
alveg einstaklega vel inn í alla liði
þjónustunnar. Menn sóttust eftir
því að fá hann sérstaklega til þess
að vinna að þeim verkefnum sem
þeir leituðu til verkstæðisins með.
Bjarni stofnaði ungur eigið fyrir-
tæki, fyrst i félagi við annan og
síðan sitt eigið fyrirtæki, Radíó-
þjónustu Bjama. Hann einbeitti sér
að sérhæfðum verkefnum og byggði
þjónustu sína upp með þeim hætti
að hann gæti veitt sem skjótustu
úrlausn hveijum viðskiptavini.
Aldrei dró hann af sér heldur leysti
hvers manns vanda svo fljótt sem
auðið var. Mikið og gott orð fór af
dugnaði hans og áreiðanleik. Það
stóð allt sem hann lofaði og bóngóð-
ur var hann með afbrigðum. Þótt
hann hafi ekki fengið lengri tíma
til starfa en til fimmtíu og eins árs
aldurs eru það ótrúlega margir sem
hann hefur veitt leiðsögn í fagi sínu.
Fjölmarga unga menn, sem voru í
iðnnámi í Iðnfræðsluskóla, tók hann
í starfsþjálfun lengri og skemmri
tíma og margir þeirra ílengdust á
verkstæðinu hjá honum. Þeir eiga
nú á bak að sjá einstaklega góðum
húsbónda og félaga.
Bjarni var stórhuga og kjarkmik-
ill maður. Um leið og hann byggði
upp fyrirtæki sitt af dugnaði og
missti aldrei sjónar af því sem hon-
um fannst aðalatriði, að veita góða
og skjóta þjónustu. Hann eignaðist
smám saman húsnæði það sem fyr-
irtæki hans þurfti til svo nægjan-
lega góð vinnuaðstaða væri fyrir
alla hans starfsmenn. Eindrægni
fjölskyldunnar og samheldni hjón-
anna, Bjarna og Þórunnar Öddu
Eggertsdóttur, var einstök og mikil
bæði á heimili og á vinnustað unnu
þau öll af alúð og sem einn maður.
Kona, börn, tengdasonur og aldrað-
ir foreldrar eiga nú minningarnar
eftir, söknuðurinn er mikill og treg-
inn sem eftir situr er sár. Um leið
og við vottum ástvinum Bjarna
okkar innilegustu samúð biðjum við
almáttugan Guð að styrkja og
hugga þá sem misst hafa ástvin
sinn sem nú hefur fengið frið og
hvíld eftir erfiða baráttu við illvígan
sjúkdóm.
Fyrir hönd Meistarafélags
rafeindavirkja,
Sigursteinn Hersveinsson.
Vinur minn og lærimeistari,
Bjarni Karlsson, hefur kvatt þetta
jarðlíf langt um aldgr fram. Stuttri,
harðri baráttu við svo óvæginn sjúk-
dóm, sem lagt hefur margan mann-
inn að velli, er lokið. Mann brestur
hins vegar skilning á tilganginum
þegar maður á besta aldri er hrifinn
jafn skyndilega frá okkur og það
verður fátt um svör.
Ég veit að ég halla ekki á neinn
þegar ég segi að atorkusamari og
duglegri mann er tæplega hægt að
finna. Bjarni hóf mjög ungur rekst-
ur fyrirtækis, fyrst í samvinnu við
annan en tók innan fárra ára rekst-
urinn í eigin hendur og hafði rekið
Radíóþjónustu Bjarna óslitið í um
ÚTSALA
Karlmannaföt verð 4.000 - 6.800,-
Stakir jakkar verð frá kr. 3.500,-
Stakar buxur verð frá kr. 500-1.900,-
Skyrtur verð frá kr. 1.000-2.000,-
Peysur verð frá kr. 1.300-1.600,-
Hattar verð frá kr. 600-1.600,- o.fl.
Andrés, Skólavördustíg 22
sími 18250