Morgunblaðið - 18.01.1991, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUH 18. JANÚAR 1991
19
Fjármálaheiminum finnst sigur 1 höfn:
Stuttri styi'j-
öld fylgir bætt-
ur efnahagur
New York, Tokíó, London. Reuter.
EF MARKA má viðbrögð fjármálamarkaða á Vesturlöndum er sigur
í höfn í styrjöld bandamanna gegn Irak. Hlutabréf í kauphöllinni í
New York snarhækkuðu í verði þegar viðskipti með þau hófust í
gærmorgun að þarlendum tíma og endurspeglaði það vonir fjár-
festa um að velheppnuð árás flugherja bandamanna á Irak myndi
binda skjótan enda á styijöldina gégn Saddam Hussein og Iraks-
her. Dow Jones hlutabréfavísitalan rauk upp um meira en 70 stig
eða sem svarar til um 3% hækkunar og var komin í liðlega 2.580
stig áður en hálf klukkustund var liðin frá opnun kauphallarinnar.
Dragist styrjöldin á langinn hefur verið talað um að DJ-vísitalan
geti jafnvel fallið undir -1800 stig. Hlutabréf í Tókíó og London snar-
hækkuðu einnig af sömu ástæðu, en dollarinn og gullið hríðféllu í
verði. Sömu sögu er að segja af olíu sem skiptir hvað mestu máli í
þessum átökum.
Verðfall á olíu
Hráolían hríðféll í verði þegar
ljóst varð hversu vel hernaðarað-
gerðir bandamanna höfðu tekist og
á markaði framvirkra samninga í
London um hádegisbil hafði olíu-
verð á tunnu miðað við afhendingu
í mars fallið um 8. doilara niður í
um 21 dollara. Undanfarna daga
hefur verð hráolíutunnunnar verið
í kringum 28-29 dollarar. Dragist
styijöldin hins vegar á langinn er
allt eins talið að olíuverð geti farið
tímabundið yfir 50 doilara tunnan
með ófyrirsjáanlegum afleiðingum
fyrir efnahag stærstu hagkerfanna
og þar með alls heimsins.
Fjármálamarkaðirnir eru þó
hvergi bangnir þessa stundina.
Gullið, hið gamla skjóishús fjárfesta
og sparifjáreigenda á óvissutímum,
hafði t.d. fallið um 23 dollara í um
380 dollara únsan á málmmarkað-
inum í London um hádegisbilið í
gær. Dollarinn, annar gamalkunnur
griðastaður fjármagnseigenda á
stíðstímum, mátti einnig sæta því
að gengi hans á evrópskum gjald-
eyrismörkuðum fór ört fallandi og
var um miðjan dag.í gær komið í
1,5210 þýskt mark og 133,90 jap-
önsk yen eftir að hafa verið í 1,5455
mörkum og 136,75 yenum við lokun
þessara sömu markaða kvöldið áð-
ur.
Fellur dollarinn frekar?
Sérfræðingar á fjármálamörkuð-
unum segja að þetta kunni einung-
is að marka upphafið að frekara
gengisfaili dollars. Menn sjá þá fyr-
ir sér að stríðinu verði lokið með
fullnaðarsigri innan vikutíma og
athygiin muni þá aftur beinast að
versnandi efnahag Bandaríkjanna
sem verði til að grafa undan eftir-
spurn eftir dollarnum á gjaldeyris-
mörkuðum. Þar af leiðandi megi
allt eins reikna með gengisfalli doll-
ars niður undir 133 yena markið
sem þykja hafa talsverða sálræna
þýðingu, þannig að þegár því sé
náð megi allt eins búast við að doll-
arinn haldi áfram að falla og stað-
næmist ekki fyrr en í 131 japönsku
yeni.
Lágt gengi dollars styrkir sam-
keppnisstöðu bandarískra framleið-
enda gagnvart innflutningi. Gagn-
vart okkur íslendingum kemur
þetta t.d. fram í því að minna fæst
fyrir þann fisk sem fluttur er til
Bandaríkjanna í samanburði við
fiskmarkaði okkar í Evrðpu, svo að
erfiðara verður fyrir stóru íslensku
fisksölufyrirtækin að standa við
skuldbindingar sínar um afgreiðslu
á fiski til bandarískra kaupenda. Á
hinn bóginn munu erlendar skuldir
íslendinga lækka nokkuð vegna
þess hluta þeirra sem er í dollurum.
Verði stríðsgæfan bandamönn-
um jafnholl og hún hefur verið hing-
að til ætti efnahagur iðnríkjanna
að vænkast talsvert frá því sem var
eftir innrás íraka í Kúveit ágúst.
Segja má að olíuverðshækkunin
sem þá varð og óvissan henni sam-
fara hafi orðið til að fjármálamark-
aðirnir misstu fótanna og tóku
bandarískan og breskan efnahag
með sér inn í samdráttarskeið eftir
9 ára samfellt góðæri, sem reyndar
sér ekkert fyrir endann á hjá hinum
tveimur stóru hagkerfunum, Japan
og Þýskalandi.
Kreppueinkenni
Hagtölur sem birtust í gær bæði
í Bandaríkjunum og Bretlandi sýna
vel krepputilhneiginguna. Þar kem-
ur fram að nýbyggingar í Banda-
ríkjunum drógust saman um 12,4%
í desember sl. og hafa ekki verið
minni umsvif á þeim vettvangi sl.
átta og hálft ár. Nýjar atvinnuleys-
istölur í Bi-etlandi sýna einnig að
kreppan hefur haldið þar innreið
sína á vinnumarkaðinn, því að fjöldi
atvinnulausra jókst um 80.400
manns í desember og hefur ekki
mælst hærri tala þar í áratug. Veil-
urnar í efnahag þessara landa þykja
þó liggja fyrst og fremst í fjármála-
kerfinu sjálfu fremur en framleiðsl-
unni eins og oftast er á samdrátt-
artímum. Einkanlega beinist at-
hyglin að bankakerfinu bandaríska,
sem orðið hefur að afskrifa gífur-
legar fjárhæðir í töpuðum útlánum
vegna verðhruns á fasteignamark-
aðinum vestra, og einnig að ýmsum
bandarískum stórfyrirtækjum sem
voru skuldsett í botn þegar yfir-
tökuæðið á fyrirtækjamarkaðinum
vestra stóð sem hæst. Á bak við
þessar skuldsetningar standa iðu-
íega mjög áhættusöm og ótrygg
skuldabréf sém smitað hafa út frá
sér um allan fjármagnsmarkaðinn.
Þessar meinsemdir eru ekkert
úr sögunni, þótt skjótur og frækinn
sigur vinnist við Persaflóa. Sér-
fræðingar segja þó að veruleg lækk-
un olíuverðs í kjölfar sigursins skipti
sköpum um efnahagsþróunina.
Sigrinum myndi einnig fylgja veru-
lega styrkt sjálfsímynd bandarísku
þjóðarinnar með tilheyrandi auknu
sjálfstrausti og framtakssemi. Fátt
er hollara efnahagskerfinu.
Myndirnar sýna tilraun ineð Tomahawk-stýriflaug sem lendir á skotmarki á jörðu niðri og sundr-
ar því.
Flugherir banda-
mauna og Iraka
Lundúnum. The Daily Tclegraph, Reuter.
ÞÓTT fréttir hafi borist af liðsflutningum banda-
manna í Saudi-Arabíu að landamærum Kúveits
hafa fyrstu stig átakanna við Persaflóa falist í stór-
felldum ioft- og stýriflaugaárásum bandamanna á
hernaðarlega mikilvæg skotmörk í írak og Kúveit.
Hér fer á eftir yfirlit yfir helstu herþotur og vopna-
búnað bandamanna og fraka:
BANDAMENN
F117a stealth:
Orrustu- og sprengjuþota sem
ekki kemur fram á ratsjám og
hefur af þeim sökum verið nefnd
„torséða" þotan á íslensku.
Hentar vitanlega mjög vel til
skyndiárása. Flýgur undir hljóð-
hraða og hefur að geyma sér-
hæfðan miðunarbúnað til nætur-
árása. Sagt að hver þota beri
tvær 1.000 kílógramma sprengj-
ur sem stjórnað er með sjón-
varps- og leysitækni.
Tomahawk-stýriflaugar:
Tölvustýrt flugskeyti með
þotuhreyfli sem skotið er jafnt
frá skipum sem flugvélum. Eld-
flaugin fer í um 100 metra hæð
yfir jörðu að skotmarkinu á að
minnsta kosti 800 kílómetra
hraða og dregur rúma 1.200 kíló-
metra. Fylgir landslaginu á leið
sinni að skotmarkinu og leiðrétt-
ir stefnuna. Mjög nákvæm og
öflug stýriflaug. Skekkjumörk
eru talin vera 30 metrar og
næsta ómögulegt er fyrir íraka
að granda þeim á flugi. Hentar
vel til árása á skotmörk sem
hafa sérstaklega mikla hernað-
arlega þýðingu sökum mikillar
nákvæmni.
Tornado GRl:
Bresk þota, sérbúin til
sprengjuárása. Beitt í árásum á
flugvelli íraka sem sagðir eru
um 60 talsins. Ber sérhannaða
sprengju, sem tætir í sundur
flugbrautir óvinarins. Fullkomn-
ara vopn í þessum tilgangi hefur
tæpast verið smíðað. Þotan nær
tæplega 1.600 kílómetra hraða
og getur að auki borið ýmsar
sprengjur og eldflaugar.
B52G Stratofortress:
Ekki er vitað til þess að flug-
vélum þessum hafi verið beitt
fram til þessa í Persaflóastyijöld-
inni. Langdræg sprengjuvél sem
byggir á 40 ára gamalli teikn-
ingu. Hefur verið endurbætt og
hentar bæði til árása á skotmörk
á jörðu niðri úr mikilli og lítilli
hæð. Hentar vel gegn hvers kon-
ar brynvörnum, stjórn- og varn-
arstöðvum, jarðsprengjusvæðum
og þar sem þörf er á stórfelldum
loftárásum. Ber 30 tonna
sprengjufarm. Dregur rúma
11.000 kílómetra og getur því
flogið beint til átakasvæðanna
frá Bandaríkjunum án þess að
taka eldsneyti á leiðinni. Hæg-
fara, nær tæplega 800 kílómetra
hraða, og gefur frá sér mikið
endurkast. Auðveld bráð fyrir
flugmenn og loftvarnarskyttur
íraka komist þeir í færi við hana.
FlllF:
Öflugasta og nákvæmasta
sprengjuþota Bandaríkjamanna.
Þotan telst meðaldræg og getur
flogið tæpa 2.000 kílómetra.
Nær rúmlega 2.400 kílómetra
hraða og getur borið 1.000 kíló-
gramma klasasprengjur. Flll-
þotum var beitt er Bandaríkja-
menn réðust á Líbýu 1986.
F-16:
Bandarísk orrustu- og
sprengjuþota. Búin eldflaugum
jafnt gegn óvinaþotum sem og
til árása á jörðu. Dregur rúma
920 kílómetra.
F-15 Eagle:
Ein fullkomnasta orrustuþota
sem smíðuð hefur verið. Búin
fallbyssu og eldflaugum gegn
óvinaflugvélum. Getur dregið allt
að 5.700 kílómetra búin auka-
eldsneytisgeymum.
ÍRAK
Mig 29 Fulcrum:
Fullkomnasta orrustuþota ír-
aka og er talin sambærileg við
bestu þotur bandamanna. írakar
em sagðir eiga 30 sovéskar MiG
29-þotur en hermt er að fáir
flugmenn hafi fengið þjálfun í
að fljúga þeim. Dregur um 1.900
kílómetra og nær rúmlega 2.000
kílómetra hraða. Ber eldflaugar
gegn óvinaflugvélum, sprengjur
og eldflaugar til árása á skot-
mörk á jörðu niðri. F-15-þotum
bandamanna yrði beint gegn
þessum flugvélum.
Mirage Fl:
írakar eru taldir eiga um 100
Mirage-þotur, sem smíðaðar eru
í Frakklandi. Einhveijar þeirra
bera Exocet-flugskeyti sem
gætu reynst alvarleg ógnun við
flotadeildir bandamanna.
Mirage-þota hæfði bandaríska
herskipið USS Stark á Persaflóa
árið 1988 með Exocet-skeyti.
Hún getur einnig borið 14 250
kílógramma sprengjur, dregur
um 1.500 kílómetra og nær tæp-
lega 1.600 kílómetra hraða. Þyk-
ir fremur auðveld bráð fyrir orr-
ustuþotur bandamanna.
Aðrar orrustuþotur:
írakar eiga 16 langdrægar
sovéskar orrustu- og sprengju-
þotur af gerðinni Su-24 og sové-
skar þotur af gerðinni MiG-25
og MiG 21. Þá eiga þeir ótiltek-
inn íjölda úreltra flugvéla og um
160 árásarþyrlur.
SKEMMTISKREPP UM HELGI TIL...BALTIM0KE/
HINGBN
Söluskrifstofur Flugleiða: [■jj
Lækjargötu 2, Hótel Esju og Krinqlunni. Upplýsingar og farpantanir i sima 6 90 300. ■II
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskriftofum
HELGARFERÐ
FÖSTUDAGUR TIL MÁNUDAGS
LOMBARDY WASHINGTON DC
TVEIR í HERB. KR. 33.520 Á MANN
FLUGLEIÐiR
Þjónusta alla leið