Morgunblaðið - 18.01.1991, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 18. JANUAR 1991
Viðbrögð á Vesturlöndum:
hafa verið óumflvjanlegt
Bonn, Lundúnum, Lúxemborg, Mílanó, New York, Sameinuðu þjóðunum. Reuter. Bruss-
el, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FJOLMARGAR þjóðir heims lýstu í gær stuðningi við að-
gerðir Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra gegn írök-
um við Persaflóa. Ráðamenn sögðust flestir harma að stríð
væri skollið á en það hefðu engu að síður reynst óumflýjan-
legt vegna þess að Saddam Hussein, forseti íraks, hefði
ekki farið eftir samþykktum Sameinuðu þjóðanna (SÞ).
Framkvæmdastjóri SÞ, Javier Perez de Quellar, sagðist
vera mjög sorgmæddur en viðurkenndi þó að aðgerðirnar
væru innan þess ramma sem samþykktur hefði verið af
Oryggisráði SÞ. Mótmæli voru gegn aðgerðum banda-
manna á nokkrum stöðum, þ.á m. í Þýskalandi og í Banda-
ríkjunum.
Jóhannes Páll páfi II. lét í ljós
djúpa hryggð og sagði að með stríði
væri „ekki hægt að leysa deilur á
milli þjóða. Það hefur aldrei verið
hægt og mun aldrei verða. hægt.“
Hann sagði kardinálum sínum að
stríðið þýddi alvarlegan ósigur al-
þjóðalaga og samfélags þjóðanna.
Manfred Wörner, framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins
(NATO), birti yfirlýsingu eftir fund
fastafulltrúa aðíldarríkja NATO sem
haldinn var í fyrrinótt. Þar er ítrek-
aður stuðningur NATO-ríkjanna við
ályktanir Öryggisráðs SÞ og harmað
að ekki skyldi finnast friðsamleg
lausn á deilunum. Þá segir að banda-
menn voni að átökin verði skamm-
vinn og Iögð áhersla á að aðildarrík-
in standi vörð um Tyrkland sam-
kvæmt Atlantshafssáttmálanum.
Evrópubandalagið gaf út yfirlýs-
ingu í gær þar sem stríð við Persa-
flóa var harmað og írakar voru
hvattir til að draga heri sína frá
Kúveit til að forðast frekari eyði-
leggingu. Yfirlýsingin var gefin út
í Lúxemborg, sem nú er í í forsæti
bandalagsins. „Aðeins brotthvarf
íraka frá Kúveit getur komið í veg
fyrir frekari eyðileggingu og að fórn-
arlömbum fjölgi. Við vonum að átök-
in verði skammvinn og írakar geri
sér grein fyrir mistökum sínum á
næstu klukkustundum og bregðist
við í samræmi við það.“
Reuter
Breskur hermaður við brynvarinn liðsflutningabíl á Heathrow-flug-
velli í London í gær. Hópur hermanna hefur haldið uppi vörslu við
flugvöllinn síðan á miðvikudag vegna ótta við aðgerðir hryðjuverka-
manna á vegum íraka.
Viðbrögð ráðamanna á Vestur-
löndum voru flest á einn veg. írakar
voru sagðir eiga sökina á því að stríð
er skollið á, árás hefði verið óumflýj-
anleg vegna þess að þeir hefðu ekki
farið eftir samþykktum SÞ. Samein-
uðu þjóðirnar gáfu út 12 samþykkt-
ir vegna innrásar Iraka í Kúveit á
tímabilinu frá 2. ágúst til 29. nóv-
ember. Ráðamenn harma hvernig
komið er og hafa flestir látið í ljós
þá von sína að átökin breiðist ekki
út og dragist ekki á langinn.
Mótmæli brutust út víða í Banda-
ríkjunum, Þýskalandi og víðar á
Vesturlöndum þegar fréttir af árás
bandamanna á írak og Kúveit bár-
ust þangað. Nokkur hundruð manns
komu samaii í .Berlín og Hamborg
og einnig var nokkur mannsafnaður
við bandarískar herstöðvar í Þýska-
landi. Þá hefur bensínsprengjum
verið hent að skotmörkum er tengj-
as_t Bretum og Bandaríkjamönnum
á Italíu. Öryggiseftirlit vi_ð mikilvæg-
ar verksmiðjur víða á Ítalíu hefur
verið hert til muna. 65 írakar hafa
verið handteknir í Bretlandi síðustu
tvo daga, þar af 35 í gær. Þeir verða
fluttir úr landi við fyrsta tækifæri,
að sögn talsmanns breska innanrík-
isráðuneytisins.
Búa sig undir nýja
bylgju flóttafólks
Genf, Amman. Reuter.
JÓRDANIR hafa ákveðið að opna aftur landamæri sín að Irak eft-
ir að þeim var heitið stuðningi hjálparstofnana Sameinuðu þjóðanna
(SÞ). Háttsettur embættismaður SÞ sagði í gær að Jórdanir myndu
opna landamæri sín innan sólarhrings og taka við öllum flóttamönn-
um sem flýja stríðsástand í Irak og Kúveit.
Fyrstu viðbrögð
Saddams Husseins:
Stóryrtar
yfirlýs-
ingar um
lokasigur
Nikósíu. Reuter.
„MÓÐIR allra styrjalda er hafin.
Við munum sýna Bandaríkja-
mönnum í tvo heimana." Þannig
voru fyrstu viðbrögð Saddams
Husseins íraksforseta við hern-
aðaraðgerðum bandamanna en
þá voru nokkrar klukkustundir
liðnar frá því loftárásimar hófust.
Saddam sagði,
að móðir allra
styijalda væri haf-
in, Satan sjálfur
[George Bush
B andaríkj aforseti]
hefði látið verða af
glæpnum. Sagði
hann, að írakar
myndu sýna
Bandaríkjamönn-
um og svikaranum mikla [Fahd,
konungi Saudi-Arabíu] í tvo heim-
ana og frelsa Palestínu, Líbanon og
hina helgu staði íslams.
„Við trúum á réttlæti í þessari
sögulegu styijöld. írakar munu
standa fastir fyrir og bera sigur úr
býtum með guðs hjálp,“ sagði Sadd-
ara í ávarpinu.
íraska sjónvarpið birti í gær
myndir af Saddam þar sem hann
var að biðjast fyrir eða var hylltur
af fagnandi hermönnum og óbreytt-
um borgurum. Ekki er vitað hvenær
myndirnar voru teknar en líklegast
talið, að það hafi verið áður en loftár-
ásirnar hófust.
Samkvæmt upplýsingum Sam-
einuðu þjóðanna flýðu hundruð
manna til írans frá írak í gær eft-
ir árás bandamanna á Irak og
Kúveit. Neyðarhjálparstofnun
Sameinuðu þjóðanna (UNDRO)
hefur gert áætlanir um hvernig
bregðast skuli við flóttamanna-
vandamáli því sem í uppsiglingu
er en sumir embættismanna SÞ
segjast eiga von á bylgju allt að
tveggja milljóna flóttamanna frá
írak og Kúveit.
Sergio Piazzi, talsmaður
UNDRO, sagði að stofnunin hefði
yfir að ráða 2.500 tonnum af neyð-
argögnum og matvælum sem biðu
flutnings í Evrópu og Pakistan en
engar flugvélar til að flytja gögnin
til nágrannalanda íraks.
Jórdanir lokuðu landamærum
landsins að írak í síðustu viku fyr-
ir öllum nema Jórdönum og útlend-
ingum sem gátu sannað að þeir
gætu kostað heimferð sína. Nokkur
fjöldi flóttamanna, aðallega frá
Egyptalandi, Súdan, Jemen og
Bangladesh, hefur beðið við landa-
mærin eftir að verða hleypt inn í
landið. Um 850.000 útlendingar
fóru um Jórdaníu eftir innrás Iraka
í Kúveit 2. ágúst og gengu sjóðir
Jórdana fljótlega til þurrðar. Hans
Einhaus, talsmaður UNDRO, sagði
að stofnunin myndi undirrita samn-
ing við jórdönsk yfirvöld í dag eða
á morgun um greiðslu fyrir mat-
væli og skjól fyrir flóttamenn.
Flúið undan Saddam
Flóttamenn við jórdönsku landamærastöðina í Ruweished. Yfir átta hundr-
uð þúsund manns flúðu frá Kúveit og írak um Jórdaníu eftir að Saddam
Hussein réðst inn í Kúveit 2. ágúst á sl. ári.
Málaskólinn
Mímir
sími 10004
Saddam Husscin.
VERTU MEÐ - ÞAÐ ER GALDURINN
UPPLÝSINGAR: SlMSVARI: 681511 LUKKULÍNA: 991000
Stríðið harmað en talið
t) i •*» i