Morgunblaðið - 18.01.1991, Page 36

Morgunblaðið - 18.01.1991, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR ,!&;JANÍfftfy 1.99,1,. ____________Brids________________ Amór Ragnarsson Bridsfélag Akureyrar Sveit Grettis Frímannssonar sigraði í sveitakeppni Bridsfélags Akureyrar/ á Akureyrarmóti sem lauk í Hamri á þriðjudagskvöld. Mótið sem staðið hef- ur yfir frá því í haust var æsispennadi og úrslitin réðust ekki fyrr en í síðustu umferð. SVeit Dags leiddi mótið frá upphafi og allt fram á síðasta spila- kvöld en í lokin varð sveitin að gera sér þriðja sætið að góðu. í sigursveitinni voru auk Grettis þau Dísa Pétursdóttir, Örn Einarsson, Hörður Steinbergsson og Frímann Frímannsson. Spilaðir voru tveir leikir hvert spila- kvöld, alls 22 umferðir. alls mættu 12 sveitir til leiks og var spiluð tvöföld umferð. Keppnisstjóri var Albert Sig- urðsson. GrettirFrímannsson 423 JakobKristinsson 413 Dagur - 405 HermannTómasson 388 JonasRóbertsson 354 ÆvarÁrmannsson 347 ZariohHamadi 323 Stefán Vilhjálmsson 306 Næsta mót á vegum Bridsfélags Akureyrar er Akureyrarmótið í tvímenningi, sem hefst nk. þriðjudag í Hamri. Spilað verður eftir barómeter- fyrirkomulagi. Skráningu í mótið skal vera lokið nk. sunnudagskvöid í síma 24624. Reykjavíkurmótið í sveitakeppni Nú er aðeins þremur umerðum ólok- ið í undankeppni Reykjavíkur- og Is- landsmóts. Sveit Samvinnu- ferða/Landsýn hefir svo gott sem tryggt sér sæti í úrslitum Reykjavíkur- mótsins en keppnin um íjögur efstu sætin ér annars mjög tvísýn. Stapan er nú þessi: Samvinnuferðir 318 V.Í.B. 306 Landsbréf 301 Tryggingamiðstöðin hf. 297 S.Armann Magnússon 288 Yalur Sigurðsson 280 ÓmarJónsson 258 Mótinu lýkur á laugardaginn og hefst spilamennskan kl. 13. Bridsfélag Suðurnesja Þórður Kristjánsson og Arnór Ragnarsson sigruðu í eins kvölds tvímenningi sem spilaður var sl. mánu- dag. Mjög góð. þátttaka var eða 16 pör og einhveijir þurftu að hverfa frá þar er þeir mættu of seint. Lokastaðan: ÞórðurKristjánsson-AmórRagnarsson 282 Gunnar Guðbjömsson - Kjartan Ólason 261 Bjöm Blöndal - Sigurhans Sigurhansson 237 Meðalskor 210. Á mánudaginn kemur hefst meist- aramótið í tvímenningi, barometer. Spilað verður í Golfskálanum í Leiru og hefst keppnin kl. 20. Spilarar eru hvattir til að mæta tímanlega Framhaldsskólamót í brids á Sauðárkróki Fjöibrautaskólinn á Sauðárkróki heldur að þessu sinni framhaldsskóla- mótið í brids í fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki. Áætlað er að halda mótið 9. febrúar næstkomandi og byija kl. 9.00. Kepp- endum stendur til boða gisting og matur gegn hóflegri greiðslu. Allir framhaldsskólar eru hvattir til að taka þátt í mótinu og sækja gestrisna Sauð- krækinga heim. Spiluð verður sveita- keppni og silfurstig verða gefin á mót- inu. Allar nánari upplýsingar gefa: Ólafur Jónsson, s. 95-35798, Jón Sindri, s. 95-35417, og Jonas, s. 95-35217. Bridshátíð 1991 Hin sívinsæla Bridshátíð Bridssam- bands íslands og Flugleiða verður eins og undanfrin ár í febrúar, 15. til 18. Skráningar í tvímenninginn og sveitakeppnina eru að hefjast, allir geta verið með í sveitakeppninni, það þarf bara fjögurra manna lið! Áætlað er að hafa tvímenninginn 48 pör og þriggja manna nefnd mun velja úr umsóknum. Frestur til að sækja um að vera með í tvímenningnum er til mánudagsins 4. febrúar kl. 17.00. Sama gjald verður og síðasta ár, 10.000 í tvímenninginn og 16.000 í sveitakeppnina. Verðlaun- afé verður einnig það sama og í fyrra eða $ 12.000 samtals. Spilað verður á Hótel Loftleiðum og byijar tvímenn- ingskeppnin 15. febrúar kl. 19.00. Nýsköp- uðNikita Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Nikita (,,Nikita“). Sýnd í Há- skólabiói. Leikstjóri: Luc Bes- son. Aðalhlutverk: Anne Pa- rillaud, Jean-Hugues Anglade, Tcheky Karyo, Jeanne Moreau, Jean Reno. Franski leikstjórinn Luc Besson kann að byija bíómyndir. Fjórir dóphausar ganga eftir regnvotum strætum í átt að verslun sem þeir ætla að ræna. Einn þeirra dregur dauðann félaga sinn á eftir sér. í versluninni kemur eigandinn að þeim, þeir skjóta hann, en um leið birtist lögreglan og tryllingslegur skotbardagi hefst. Dóphausamir skríkja og falla einn af öðrum nema Nikita, sem veit ekki í þennan heim né annan þar sem hún situr undir borði. Þegar lögreglumaður ætlar að hjálpa henni, skýtur hún hann í hausinn. Hún er dæmd í 30 ára fangelsi og myndin er tæpast hafin. Þótt Besson, sem er stílisti góð- ur, hafi lag á að byija myndir þann- ig að hann nær óskiptri athyglinni hefur honum.ekki tekist neitt sér- lega vel að halda dampi. Þessi nýj- asta mynd hans, Nikita, er undan- tekning. Hún byijar sannarlega með hvelli og hún gefur aldrei eft- ir en heldur sínum hraða og harða frásagnarstíl til loka. Nikita er jafnvel bestahnynd Bessons, hörku- legur og myrkur þriller, skemmti- lega uppbyggður og leikstýrt í hvössum og alltaf pínulítið kómísk- um stíl Bessoris. Myndin hans er að vísu talsvert gloppótt í handriti (ekkert nýtt) og skilur eftir dulitla tómleikatilfinn- ingu í lokin en hún er viðburðarík og ánægjulega frábrugðin banda- rísku sakamálamyndunum, öflug og grimmileg. Hún þolir ekki vel nákvæma skoðun og vekur kannski fleiri spurningar en hún svarar. En hún er fantagóð á meðan hún gengur. Persónur Bessons eru hinar at- hyglisverðustu eins og alltaf og söguþráðurinn rétt handan við hið mögulega. Nikita, ofsafengin og tryllingsleg, er kölluð til æðri starfa fyrir franska ríkið eftir að hún er sett í fangelsi. Lát hennar er sett á svið í fangelsinu og hún fær nýtt líf, annað tækifæri, ef hún gerist leigumorðingi fyrir einhveija leynistofnunina. Ef hún fellst ekki á það bíður hennar grafreiturinn. Á nokkrum árum er hún þjálfuð í öllu því sem leigumorðingjar þurfa að kunna og síðan er henni hleypt út í lífið. Villingurinn hefur verið taminn. í staðinn fyrir að drepa stjórnlaust drepur hún eftir skipun. Það er boðskapur hér um tvöfalt siðferði sem Besson er ekkert að dvelja alltof lengi við frekar en margt annað í myndinni. Myndin er alltaf áferðarfalleg og skemmti- lega tekin en sumt er óþarflega fljótvirknislegt í handriti. Leyni- þjónustan sem hún vinnur fyrir er aldrei útskýrð; Nikita heldur dular- gervinu þar til sambýlismaður hennar veit uppúr þurru hvemig í öllu liggur og lokakaflinn þegar Victor „ræstitæknir" kemur til sög- unnar með sýmflöskurnar er full- komlega á skjön við það sem á undan er gengið, afkáralegur hryll- ingur þar sem algerlega ný persóna er kynnt til sögunnar, sem allir virðast þekkja nema áhorfendur. Það gerir endann veikari en tilefni er til. En þama era líka fyrsta flokks senur unnar af meistarahöndum. Afmælisveisla Nikita á fína veit- ingastaðnum þegar henni er í fyrsta sinn hleypt út úr fangelsinu er frábærlega sviðsett en um leið einkar sársaukafull lýsing á þeim raunveraleika sem hún á eftir að búa við. Og verkefnið í Feneyjum, þar sem Nikita er með fómarlamb í miðinu út um klósettgluggann á hótelherberginu og sambýlismað- urinn nuðar í henni hinumegin við hurðina, rambar á barmi svartrar kómedíu. Nikita er sannarlega skemmtileg mynd, ekki með öllu gallalaus, en sérstök og öflug frá leikstjóra sem kann vel að magna upp töfra kvikmyndanna. ) Ellen Siggi Maggi í áwiícC. Aldrei bt'íri Næturmatseðill. Snyrtilegur klæðnaður. Miðaverð kr. 700. DANSBARiNN Grensásvegi 7, slmar 688311 og 33311 Ath.: Matargestir á Mongolian Barbecue fá frítt inn. Laugavegi 45 - s. 21255 í kvöld: ATLANTIS • Karl Örvarsson .. og Atli Örvarsson úrStuðkompaníinu, Sigfús Óttarsson úr Rokkabillí-bandinu, Þorvaldur Þorvaldsson úrTodmobil, Friðrik Sturluson úrSálmni. Fínt band Dað FJORÐURININ DISKOTEK Frítt inn. Húsiö opnaö kl. 23. Ath. laugardagskvöld: „Stones"- kvöld, Sveitin milli sanda NILLA BAR Hilmar Sverris heldur uppi stuði Opið frá kl. 18.00—03.00. FOSTUDAG & LAUGARDAG 10-03 SUNNUDAG 10-01 |Hor0awT)Tnt»ií» VITASTIG 3 t. SÍMI623137 'J Föstud. 18. janúar Opiðkl. 20-03 íkvöld STUDHLJÓMSVEITIN Björgvin Gíslason, gítar Sveinn Guðjónsson, ^ hljómb., söngur Halldór Olgeirsson, trommur, söngur Sigurður Björgvinsson, bassi, söngur FRÍTTTIL KL. 22 Aðgangur kr. 500 HELGARSTUÐ - EINS OG ÞAÐ GERIST BEST! Laugardagskvöld: Sunnudagskvöld: hljómsveitin söngkonan Gestur kvöldins söngvarinn góðkunni Mánud. & þriðjudagskvöld: Opiðkl. 20-01 LJÚFLINGARNIR Frítt inn!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.