Morgunblaðið - 18.01.1991, Side 44
FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Eldhafið séð frá Vestmannaeyjum. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Himmháar eldsúlur og
hraunflóð í hlíðum Heklu
Sautjánda Heklugosið frá landnámi
ELDGOS hófst í Heklu síðdegis í gær. Er það sautjánda Heklugosið og
það fjórða á þessari öld. Páll Einarsson jarðfræðingur segir það umhugs-
unarefni hvað stutt er á milli gosa. I gærkvöldi gaus á þremur stöðum
og var hraunrennslið mest til vesturs úr einni sprungunni. Gosmökkurinn
lá norður hálendið, á virkjanasvæðinu við Hrauneyjafoss var allt að
þriggja sentímetra vikurlag og öskufall var einnig í Bárðardal og Mý-
vatnssveit. Bjarmi frá eldgosinu sást víða á Suður- og Vesturlandi, m.a.
frá nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Þessu gosi er talið svipa í
ýmsu til gossins 1980, en það er þó talið kröftugra.
Jarðhræringa varð fyrst vart á skjálfta-
og þenslumælum um klukkan 16.30 og
hálfri stundu síðar hófst gosið. Klukkan
17.10 hafði gosmökkurinn þegar náð 11,5
kílómetra hæð og náð norður fyrir Hofsjök-
ul. Svo virðist, sem sprungurnar þijár hafi
verið að opnast á tímanum milli kl. 17 og
18, en úr því fór að draga úr kviku-
streymi. Gossins varð vart úr tveimur flug-
vélum á þessum tíma og klukkan 16.30 var
Almannavörnum ríkisins gert viðvart um
gosið, en ekki var talin þörf á því að gefa
út opinbera viðvörun vegna þess.
Þriggja arma gígastjaki
Seint í gærkvöldi gaus á þremur stöðum
í fjallinu, mest í suðvesturhlíðinni í sprungu
niður úr Axlargíg. Þáðan rann talsvert
hraun tii vesturs. í' norðausturhlíðum fjalls-
ins gaus einnig á sprungu og rann hraun
þaðan til austurs inn á öræfin. Loks var
sprunga austan í Ijallinu við toppinn og
þaðan rann lítið hraun til suðurs. Nokkuð
dró úr gosóróa á skjálftamælum er leið á
kvöldið og benti það til minnkandi kviku-
streymis.
Undir miðnætti var Hekla eins og þriggja
arma gígastjaki og það var stórkostlegt að
sjá hraunstrókana úr sprungunum í eldfjall-
inu, Hraunið rann hægt og sígandi niður
Hekluhlíðar og sandöldurnar undir Heklu-
rótum. Hraunelfurin var um sex kílómetra
löng og 300 metra breið. Um fimm til sex
metra þykkur hraunkambur ruddist fram.
Mikil umferð var um Landsveit að Heklu
og nokkur Qöldi fólks ók vel búnum fjallabíl-
um í um það bil 200 metra fjarlægð frá
jaðri hraunsins sem rann hægt niður norð-
urhlíðar fjallsins. Vindur bar gjósku fram-
hjá fólkinu og mjöllin norðan við fjallið var
skjannahvít. Nokkurn hita lagði af hrauninu
en milli hvassra élja, sem öðru hvoru byrgðu
sýn að ijallinu, sást logandi hraunið langt
að bera við stjörnubjartan himin.
500 metra eldsúlur
Fólk í nágrenni Heklu var ekki í hættu
í gær, að mati Almannavarnanefndar Rang-
árvallasýslu. Næsti bærinn er Næfurholt,
11 km frá gígnum. Páll Siguijónsson á
Galtalæk á Landi, sem býr skammt frá eld-
fjallinu, sagði er Morgunblaðið ræddi við
hann um tíuleytið í gærkvöldi, að hraun-
rennslið væri æði mikið og væri komið nið-
ur hlíðar fjallsins. Þetta væri óvenjuhratt,
hraunið virtist þunnfljótandi og öðruvísi en
venjulega. Hann sagði að um áttaleytið í
gærkvöldi hefðu sést sprengibólstrar, sem
virtust vera að færast í suðurátt. Eldsúlurn-
ar hefðu verið feiknaháar á meðan gosið
var öflugast. „Eg giska á að eldsúlurnar
hafi verið 500-600 metra háar, en það var
aðeins stuttan tíma. Síðan hefur það verið
lágt,“ sagði hann.
„Við sáum feiknalega mikinn strók stíga
hratt upp í ioftið, gífurlega sveran stólpa.
Hann hækkaði mjög ört en síðan hægði
hann á sér þegar vindurinn beygði hann.
Það kom eins og haus á hann, og svo fór
hann fljótlega að halla í norðUr,“ sagði Sig-
rún Runólfsdóttir í Botnum í Meðallandi,
sem varð vitni að fyrstu mínútum gossins.
Heimilisfólk í Botnum varð gossins vart
klukkan fimm mínútur yfir fimm síðdegis,
og hefur það þá líkast tii verið alveg nýhaf-
ið. Botnar eru um 70 km í beina loftlínu
frá Heklu.
Sjá fréttir á bls. 2,3, 5,26, 27 og 28.
Vegnm að
Hekiu lokað
LÖGREGLAN í Rangárvallasýslu lok-
aði seint í gærkvöldi öllum vegum að
Heklu í öryggisskyni. Umferð var
gífurleg í uppsveitum Rangárvalla-
sýslu í gærkvöldi.
Eggert Pálsson, bóndi á Kirkjulæk í
Fljótshlíð og fréttaritari Morgunblaðsins,
sem staddur var í Skjólkvíum, sagði að
þjóðvegurinn upp Landsveit væri eins
og Laugavegurinn í Reykjavík að sjá.