Morgunblaðið - 24.01.1991, Page 9
IVIQIÍG)ÍJ,N5,LA1.>IE) FIMMT.UQAGVIt 2.4, JAIýÚAR 1991
9
Vill kaupa gallsteina
úr nautgripum
BÚNAÐARFÉLAGI íslands
hefur borist bréf frá aðila í
Hong Kong, sem óskar eftir að
að fá keypta gallsteina úr naut-
gripum. Býðst hann til að borga
3,6 sterlingspund fyrir hvert
gramm af óskemmdum gall-
steinum, eða um 380 krónur,
en nokkru minna ef þeir eru
brotnir eða í mylsnu.
í bréfinu kemur fram að gall-
steinunum sé safnað í „læknis-
fræðilegum tilgangi“. Þeir eigi að
vera vel þurrkaðir áður en þeir séu
sendir til viðtakanda, en helst
megi ekki geyma þá lengur en 1-2
ár, því þá missi þeir áhrifamátt
sinn. Bréfritari segist hafa keypt
gallsteina hvaðanæva úr heimin-
um í rúmlega 40 ár, og hann
tryggi viðskiptavinum sínum fljóta
og örugga þjónustu, enda sé áreið-
anleiki honum í blóð borinn.
Flogið er frá Keflavik tii Balítmore á miðvikudegi og
þaðan áfram til Miami, þar sem dvalið er á góðu
hóteli í tvær nætur. Þá er haldið í lúxussiglínguna á
föstudegi og komið til baka á mánudegi. Dvalið í
tvær nætur á Miami og síðan haldið heim á leið.
Verdid tfyrir þessa frábæru ferð
er aðeins frá 76.530,-
Hafi fólk áhuga, er hægt
nnuMiDsmnn
lengri siglingar með
skipum Carnival Cruise.
Látið ekki happ úr hendi.
sleppa, því ótrúlega
hagstæðir samningar
okicar gera okkur kleift
að bjóða þessar ferðir á
þessu frábæra verði. Austurstrstil7 Sfmar (91)622 011 & 62 22 00
Svavar og Guðrún í efstu sætum Alþýðubandalagsins:
Staðfest bil milli verka-
lýðshreyfingar og flokks
- segir Guðmundur Þ. Jónsson
sem ekki er ákveðinn i að taka
fjórða sæti listans í Reykjavík
Flótti frá G-listanum
Þegar gengið var til borgarstjórnarkosninga
í Reykjavík á síðastliðnu vori, hafði Ólafur
Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubanda-
lagsins, ekki meiri áhuga á lista flokksins,
G-listanum, en svo, að hann studdi hann
ekki. Sömu sögu er að segja um Guðrúnu
Helgadóttur, forseta sameinaðs þings, sem
skipað hefur 2. sæti G-listans í þingkosning-
um — hún hafði einnig horn í síðu listans í
borgarstjórnarkosningunum. Um síðustu
helgi sást á dræmri þátttöku í forvali Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík að áhuginn á flokkn-
um er ákaflega lítill.
Öhagstæðnr
samanburður
Áður en gengið var til
forvalsins í Reykjavík
urðu hörð átök um það,
hveijir mættu kjósa. Nið-
urstaðan varð sú að
binda atkvæðisréttinn
við félaga í Alþýðubanda-
lagsfélagi Reykjavíkur
(ABR). Eftir þá ákvörðun
sleit Birting stjómmála-
sambandi við Alþýðu-
bandalagið. í þann mund
sem framboðsfrestur var
að renna út varð uppi
fótur og fit til að tryggja
að Olafur Ragnar
Grímsson gæti séð um
að einhver hollur sér
tæki þátt í forvalinu.
Skömmu síðar tilkyimti
ehm af pólitískum starfs-
mönnum Ólafs Ragnars
í fjármálaráðuneytinu,
Már Guðmundsson, um
framboð sitt. Minnti það
enn á, að fjármálaráðu-
neytið eða hirðin um-
hverfis flokksformaim-
inn innan þess starfar
eins og sella í Alþýðu-
bandalaginu og þaðan
sækja útsendarar for-
mannsins í mismunandi
gervum eftir því sem
hentar hveiju sinni.
Þegar ákveðið hafði
verið hveijir máttu taka
þátt í forvalinu og flokks-
fomaðurinn hafði fengið
tækifæri til að hlutast til
um málin, var gengið til
atkvæða. Alls voru 1.190
félagar í ABR á kjörskrá
eða um 10 sinnum færri
en rétt höfðu til þátttöku
í prófkjöri sjálfstæðis-
manna í Reykjavík í októ-
ber sl., þar sem um
12.000 manns voru á
kjörskrá en þátttakan
var bundin við flokks-
buiidna sjálfstæðismenn.
í Alþýðubandalaginu
var þáttteka í forvalinu
afar dræm þar sem að-
eins 456 greiddu at-
kvæði, eða 38%. í próf-
kjöri sjálfstæðismanna
tóku hins vegar 8.480
manns þátt, um 20 sinn-
um fleiri en í forvali al-
þýðubandalagsmanna,
og hlutfallslega um helm-
higi fleiri en hjá Alþýðu-
bandalaginu.
Þessar tölur staðfesta
hinn litla áhuga félaga í
ABR á forvalinu og segja
raunar meira um stöðu
Alþýðubandalagsins í
Reykjavík á þessari
stundu en það, hveijir
náðu kosningu. Ekki
varð nein breythig á
efstu sætunum, þvi að
þar sitja þau áfram Svav-
ar Gestsson með 289 at-
kvæði, 66%, í fyrsta sætið
og Guðrún Helgadóttir
með 177 atkvæði, 40%, í
annað sætið. Þættu þess-
ar atkvæðatölur fremur
lágar á sæmilega fjöl-
mennum fundi í sjálf-
stæðisfélagi í Reykjavík.
Enn ber að hafa í
huga, þegar þessar tölur
eru skoðaðar að sam-
kvæmt frétt Þjóðvi(jíuis
um forvalið nú greiddi
891 atkvæði í því fyrir
fjórum árum á móti 456
núna, eins og áður sagði.
Flokkur í
sárum
Alþýðubandalagið er
flokkur í sárum eftir
rúmlega tveggja ára setu
í ríkisstjóm Steingrims
Hermánnssonar. Fram-
ganga ráðherra flokks-
ins hefur orðið til þess
að splundra fylginu á
sama tima og mörgum
sem áður hafa lagt Al-
þýðubandalaginu lið blö-
skrar, að flokkurinn
skuli ekki hafa gert upp
við fortíðina. Innan Al-
þýðubandalagsins hafa
menn í raun forðast allar
umræður um stjórnmál
um nokkurt skeið; þar
skiptast forystumenn
andstæðra fylkinga á
skoðunum án þess að
ganga þó það langt, að
umræðumar eða afleið-
ingar þeirra ógni valda-
aðstöðu forystumann-
anna.
Helsta einkenni flokks-
forystunnar er að láta
eins og lítið fylgi við
flokkinn sé helsta styrk-
leikamerki hans. Þegar
miðstjómarmenn yfir-
gáfu fund miðstjómar
Alþýðubandalagsins á
Akureyri _ fyrr í vetur,
hrósaði Ólafur Ragnar
sér af því að hhi breiða
miðja væri eftir i flokkn-
um og hami væri betur
settur en nokkm shini
fyrr. Var það hin breiða
miðja sem fylkti sér um
flokkinn í forvalinu í
Reykjavík?
Að fela for-
tíðina
Forystumönnum Al-
þýðubandalagsins er nú
sérstakt kappsmál að
ganga fram fyrir skjöldu
í gagnrýni á Sovétstjóm-
ina vegna yfirgangsins
gagnvart Eystrasalts-
þjóðunum. Láta þeir
manna hæst á Alþhigi um
örlög þjóðamia. Hvemig
væri að þeir litu á sögu
flokks síns og skoðuðu,
hver stefna hans hefur
verið í málum þessara
þjóða?
Alkunna er að þeim
mun (jótari sem fortíðin
er því háværari em
menn, ef þeir vilja fela
hana. Getur það orðið að
einskonar áráttu að
keppast við að þvo af sér
(jóta bletti og verður
mörgum hugsað til lafði
Macbeth, þegar slíkt ber
á góma.
Með öllu er óþarft að
sleppa þeim alþýðu-
bandalagsmönnum við
umræður um fortíð
flokks þeirra og komm-
úniskan uppruna hans.
Hvorki Hjörleifur Gutt-
ormsson né aðrir mál-
svarar Alþýðubandalags-
ins geta talað af fullum
heilindum um örlög
Eystrasaltsþjóðanna án
þess að gera á afdráttar-
lausan hátt upp við fyrri
stefnu eigin flokks. Áður
en þingmenn Alþýðu-
bandalagsins hefja eins-
konar yfirboðakapp-
hlaup um stuðningsað-
gerðir við Eystrasaltsrík-
in ættu þeir að kanna
stuðnhiginn við þá stefnu
á flokksvettvangi. Með
hliðsjón af þátttökunni í
forvalinu í Reykjavík
ættí ekki að taka langan
tima fyrtí þá að hafa
samband við áhrifafólk-
ið.
I
I
I
I
I
Láttu sparifé þitt bera góðan
arð á öruggan og einfaldan hátt.
l Gengi Einingabréfa 24. janúar 1991. I
U Einingabréf 1 5,322 [
Einingabréf 2 2,880
J Einingabréf 3 3,497
1 Skammtímabréf 1,785
| Auðlind 1,018 I
Sparifjáreigendur þurfa ekki lengur
að hugsa sig urn tvisvar þegar þeir
velta fyrir sér ávöxtunarleiðum sem
í boði eru. Ef þeir kjósa að vita af
sparifé sínu í tryggum höndum og
góðri ávöxtun og njóta jafnframt
kunnáttu sérfræðinga í 'verðbréfa-
viðskiptum, festa þeit kaup á Einingabréfum Kaupþings.
Við bjóðum nú þrjár tegundir Einingabréfa:
Einingabréf 1 - fjárfest í verðtryggðum skuldabréfum, tryggðum með
fasteignaveði.
Einingabréf 2 - fjárfest í spariskírteinum ríkissjóðs, bankatryggðum
skuldabréfum og öðrum sambærilegum verðbréfum.
Einingabréf 3 - fjárfest í óverðtryggðum skuldabréfum, skammtíma-
kröfum og öðrum verðbréfum sem gefa hæstu mögulega ávöxtun.
Hafðu strax samband við sérfræðinga okkar.
Þú getur treyst á Einingabréf Kaupþings.
Sjá auglýsingu um hlutabréf í Viðskiptablaði Morgunblaðsins.
Gengi erlendra verðbréfasjóða 21. janúar 1991.
Akkumula
Eurovista
Re-Inrenta
DB Tiger Fund
sölugengi kauþgengi
295,40 281,31
79,65 76,92
201,90 196,94
211,41 201,34
KAUPÞING HF
Kringlunni 5, st'tni 689080