Morgunblaðið - 24.01.1991, Síða 16

Morgunblaðið - 24.01.1991, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1991 ísland er gluggi Lit- háa að mannúðinni - sagði Zingeris að loknum fundahöldum í gær EMANUELIS Zingeris, formaður utanríkismálanefndar þjóðþingsins í Litháen, ræddi í gær við ýmsa íslenzka sljórnmála- og ráðamenn um stuðning við sjálfstæðisbaráttu lands síns. Þegar dagur var að kveldi kominn sagði hann í samtali við Morgunblaðið: „Það er stórkostlegt hvernig allir hér spyija hvernig þeir geti hjálpað okkur. Viðbrögðin eru allt önnur en í öðrum löndum. Þar erum við jafnvel sakaðir um þjóðrembu. I raun ber íslandi engin skylda til að hjálpa og það var óvænt og gleðilegt að finna, að hér eigum við hauk í homi. Island er gluggi okkar að mannúðinni." Zingeris gekk snemma morguns á fund forseta Alþingis. Þar var rætt um samskipti þjóðþinga íslands og Litháens og hugsanleg skipti á sendi- mönnum. Hann hitti síðan utanríkis- málanefnd þingsins og bauð nefndar- mönnum formlega í heimsókn til Lit- háens. Meðal annars var rætt um að nefndin myndi koma til Litháens 9. febrúar, en það er þjóðhátíðardag- ur Litháens. Jóhann Einvarðsson, formaður utanríkismálanefndar, segir að rætt hafi verið um ýmiss konar föst sam- skipti á milli þjóðþinganna, meðal annars til þess að Litháar geti feng- ið frá íslendingum góð ráð um fram- kvæmd lýðræðis, sem þeir hafa ekki Morgunblaðið/Árni Sæberg Zingeris hittir Ólaf G. Einarsson og Pái Pétursson. í barminum ber hann litháenska fánann með áföstum svörtum borða, sem ber því vitni að hann syrgi þá félaga sína, sem fallið hafa fyrir ofbeldi Rauða hersins. kynnzt síðan land þeirra var innlimað í Sovétríkin. . „Ég tel að mikil samstaða sé í utanríkismálanefnd um að mæla með því að þingið sendi fulltrúa sína til Eystrasaltsríkjanna," sagði Jóhann. Hann sagði að Danir, Norðmenn og Svíar hefðu þegar ákveðið að senda þingmenn til þjóðþinga allra Eystra- saltsríkjanna og væru sænsku nefnd- imar þegar lagðar af stað. Finnar hafa hins vegar ekki ákveðið að senda sína fulltrúa til nágrannaríkj- anna. „Við viljum ekki vera í hópi Finna og gera ekki neitt. Formleg ákvörðun um hverjir fara og hvenær hefur ekki verið tekin, en ég mun væntanlega gera tillögur um það í lok heimsóknar Zingeris og ég tel fulla samstöðu um slíkt,“ sagði Jó- hann. Síðdegis ræddi Zingeris við Svavar Gestsson menntamálaráðherra um að efla menningartengsl landanna. Hann sagðist í samtali við Morgun- blaðið vera mikill aðdáandi íslenzkrar sögu og bókmennta, en hann er próf- essor í bókmenntum að starfi. Zingeris er einn þeirra Litháa, sem dvelja nú erlendis og eru tilbúnir að mynda útlagastjóm, ef Sovétmenn taka völdin af ríkisstjóminni og setja leppa sína á valdastóla. Hann segist ekki vita hvenær hann geti snúið aftur til föðurlands síns, en hann þrái að komast heim. „Fjölskylda mín hefur fengið hótanir í síma og henni hefur verið ógnað á ýmsan hátt. Ef þessir sovézku glæpamenn eiga að ná mér, þá vildi ég frekar að þeir tækju mig heima með fjöl- skyldu minni.“ Morgunblaðið/Sverrir Fagnaðarfundir urðu með Þorsteini Pálssyni og Zingeris, sem var einn af fylgdarmönnum Þorsteins er hann heimsótti Litháa. Tel Þorstein lýsa af- stöðu þjóðarinnar EMANUELIS Zingeris gekk eftir hádegið í gær á fund Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Zingeris sagðist að lokn- um fundi þeirra vera afar ánægður með afstöðu sjálfstæðismanna til Litháens. „Þorsteinn Pálsson segir að það verði að ítreka viður- kenningu á Litháen og gera það strax, annars geti það orðið of seint. Stuðningur Þorsteins er okkur mikils virði siðferðilega. Eg tel að afstaða hans sé afstaða íslenzku þjóðarinnar," sagði Zingeris. Meðan á fundi Zingeris og Þor- steins stóð náðu þeir símasam- bandi við Vytautas Landsbergis, forseta Litháens. Að sögn Þor- steins sagði Landsbergis: „Reynið að stofna til þessa stjómmálasam- bands í dag, geymið það ekki til morguns.“ ._______ „Landsbergis lagði eins og fyrr alla áherzlu á að árétta viðurkenn- ingu á sjálfstæði Litháens og taka ákvörðun um stofnun stjómmála- sambands,“ sagði Þorsteinn. „Hann sagði að staðan væri svo kröpp að hann myndi meta það mikils ef við ynnum hratt í mál- inu.“ Þorsteinn og Zingeris ræddu ýmsar tæknilegar hliðar á stofnun stjórnmálasambands. „Þeir tejja eðlilegt að einhver sendiherra Is- lands, jafnvel á Norðurlöndum, fari með þessi mál. Þeir gera sér ljóst að ekki er hægt að stofna sendiráð í Vilnius við þessar að- stæður, en þeir hafa þegar velt því fyrir sér og rætt sín á milli, hann og Landsbergis, með hvaða hætti þeir muni skipa sendimann hér ef af verður og hafa velt fyrir sér ýmsum nöfnum í því sam- bandi, jafnvel að Zingeris myndi framlengja dvöl sína hér,“ sagði Þorsteinn. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar: Skyriiiga krafizt frá stjórninni í Moskvu Fulltrúar íslands á alþjóðavettvangi beiti sér FORMENN ríkisstjórnarflokkanna, þeir Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra og Júlíus Sólnes umhverfisráð- herra, kynntu á blaðamannafundi í gær ákvarðanir ríkissljórnarinnar til stuðnings sjálfstæðisbaráttu Litháens og hinna Eystrasaltsríkjanna. Sendiherra íslands í Moskvu var í gær falið að krefja sljórnina í Kreml upplýsinga og skýringa á athæfi sovézkra hersveita gegn lýðræðislega kjörnum ríkisstjómum og þegnum Eystrasaltsríkjanna. Ólafur Egilsson sendiherra hefur verði um pólitíska lausn á ágreinings- málum Eystrasaltsríkjanna og Sovét- stjómarinnar, á grundvelli þjóðarétt- ar. Þá segir ríkisstjómin að verði um frekari ofbeldisaðgerðir að ræða í Eystrasaltsríkjunum muni ísland fara þess formlega á leit að Öryggis- ráð SÞ verði kallað saman. Aðspurð- ir hvort hertaka pappírsgeymslna litháenskra dagblaða í gær teldist ofbeldisaðgerð og hvort ríkisstjómin myndi framfylgja þessu í því fram- haldi, sögðu ráðherrarnir að það mál yrði rætt sérstaklega. Ólafur Ragnar Grímsson benti á að Sovétmenn hefðu neitunarvald í Öryggisráðinu og því væri mikilvægt'að ríkisstjórn- in hefði ákveðið að beita þrýstingi á öðrum vettvangi. Júlíus Sóines sagð- ist telja að það eina, sem Sovétmenn myndu skilja, væru efnahagslegar þvinganir. Fulltrúar íslands á alþjóðavettvangi tali fyrir málstaðnum Ríkisstjómin vill að fulltrúar ís- lands á alþjóðavettvangi beiti sér fyrir málstað Eystrasaltsríkjanna. Fastanefnd íslands hjá Atlantshafs- bandaiaginu hefur verið falið að vinna að því að bandalagið og aðild- arríki þess láti málefni þessara ríkja ' til~sín"'tákáT áúknum 'rnæli.' ÞVf ér þegar farið í sovézka utanríkisráðu- neytið og komið orðsendingu ríkis- stjórnarinnar til skila. Krafizt er svara innan fjögurra vikna, og ber Sovétmönnum að veita þau sam- kvæmt ákvæðum samþykkta Ráð- stefnunnar um samvinnu og öryggi í Evrópu (RÖSE), sem Sovétstjómin hefur undirritað. Jón Baldvin Hannibalsson sagði að fjórar vikur væru langur tími í pólitík, en hann legði áherzlu á að ætti að binda trún- að við hinar nýju stofnanir RÖSE, væri afar mikilvægt að stofnanir þeirra reyndust ekki dauður bókstaf- ur og því ætti að gefa Sovétstjórn- inni færi á að svara fyrir sig. Ríkisstjórnin beinir því til Alþingis að sendinefnd þingmanna fari þegar til Eystrasaltslandanna og að gengið verði frá gagnkvæmum samningi millí Alþingis og þjóðþinga Eystra- saltsríkjanna um skipti á fastafull- trúum þinganna. Aðgerðir á vettvangi SÞ Utanríkisráðherra mun formlega leita samvinnu við utanríkisráðherra Norðurlanda um sameiginlegar að- gerðir þjóðanna til styrktar Eystra- saltslöndunum á vettvangi Samein- uðu þjóðanna, meðal annars að SÞ ‘ boði'til ráðstefnu,'þar sem fjahafr- beint til fulltrúa íslands á þingi Evr- ópuráðsins að hafa frumkvæði að ályktun þingsins um málefni Eystra- saltsríkja. Mælzt er til þess að form- aður forsætisnefndar Norðurlandar- áðs, Páll Pétursson, beiti sér fyrir þvi að ráðið taki skýra afstöðu með sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsríkj- anna. Þá á að hefja undirbúning að nánara sambandi Islands við ríkin á syiði viðskipta- og menningarmála. Rætt um stjórnmálasamband Loks var frá því skýrt að ríkis- stjórnin hefði fjallað um stjómmála- samband við Litháen. Jón Baldvin Hannibalsson sagði að Alþingi og hann, fyrir hönd ríkisstjómarinnar, hefðu margítrekað afstöðu íslands til sjálfstæðis Litháens. ísland hefði aldrei viðurkennt innlimun landsins í Sovétríkin og þetta sjónarmið um réttarstöðu Litháens hefði í raun verið samþykkt á sovézka þinginu í desember 1989, er samningur Molot- ovs og Ribbentrops og fylgiskjöl hans, var lýstur ólöglegur frá upp- hafi. Þá skýrði utanríkisráðherra frá því að á ríkisstjórnarfundi hefði ver- ið staðfestur sá skilningur stjórnar- innar að með opinberri heimsókn sinni til Eýstrasaltslandanna hefði framkvæmd stjórnmálasambands við Litháen verið staðfest í verki. Ákveð- ið hefði verið í framhaldi af form,- legri bón, sem stjórninni hefði borizt í bréfi frá Landsbergis, forseta Lithá- ens, að taka upp viðræður milli ríkis- stjórna beggja landa um frekara stjórnmálasamband. „Þrátt fyrir mjög ánægjulega sam- stöðu íslendinga og milli stjórnmála- flokka' um þessi’ mál, • hafa Ttqkkuð Morgunblaðið/Emilía Zingeris á fundi með forsetum Alþingis og formanni utanríkismála- nefndar þingsins. Frá vinstri: Árni Gunnarsson forseti neðri deild- ar, Zingeris, Jörundur Hilmarsson túlkur, Guðrún Helgadóttir for- seti sameinaðs þings, Jón Helgason forseti neðri deildar og Jóhann Einvarðsson formaður utanríkismálanefndar. verið skiptar skoðanir um hvemig á þessu skuli haldið," sagði Jón Bald- vin. „Ég vil taka það skýrt fram að við viljum á engan hátt koma fram á þann veg að teljast megi bein eða tilefnislaus ögrun gagnvart sovézk- um stjómvöldum." Hann sagði að viðu'rkenning rússneska lýðveldisins á sjálfstæði Eystrasaltslanda gæfi tilefni til að endurmeta stöðuna. „I fyrsta lagi er enginn ágreining- ur um að viðurkenning Islands á sjálfstæði Litháens er í fullu gild’i og þarfnast ekki þess að við áréttum hana út af fyrir sig'með formlegum hætti. Ef við endurtækjum hana værum við í raun að viðurkenna að við hefðum hvikað frá henni,“ sagði Jón Baidvin. „Næsta mál er síðan að taka upp formlegt stjómmálasam- band, sem gerist þá með nótuskiptum ríkisstjómanna. Það kallar á samráð þeirra í milli og skoðun á lagalegum grundvelli þess. Þriðji áfangi máls- ins, sem líka þarf að byggjast á sam- komulagi ríkjanna, er að skiptast á sendifulltrúum. Það er mál, sem fer eftir Vínarsamningnum og hlýtur að verða niðurstaðan af viðræðum land- anna." Viðræður geta tekið skamman tíma Jón Baldvin sagði að viðræður um stjórnmálasamband þyrftu ekki að taka langan tíma. „Það sem um er að ræða er að þjóðréttarfræðih'gáF í “ utanríkisráðuneytum beggja ríkjanna hafi samband sín á milli og skiptist á þeim gögnum, sem þarf að skoða. Það þarf að líta á ákvæði litháensku ríkisstjórnarinnar. Ef sú skoðun leiðir enga meinbugi í ljós, er hægt að hafa þessi nótuskipti, að ósk beggja ríkisstjóma, tiltölulega fljótlega. Síðan verðum við einnig að hafa samráð við stjórnvöld í Lithá- en ef við ætlum að stíga næsta skref, sem er að skiptast á sendifull- trúum. Ég legg áherzlu á að þetta er ekki bara ákvörðunarefni einhliða fyrir annan aðilann." Jón Baldvin sagði að nótuskiptum mætti koma á innan fáeinna daga. Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra tók fram að hann teldi aðrar aðgerðir á alþjóðavettvangi miklu mikilvægari en stjórnmála- samband við Litháen. „Á stjórnmála- sambandi eru margir erfiðleikar. Það er hægt að skiptast á nótum, en það sem Litháar voru að tala um var að skiptast á sendiherrum. Við getum vitanlega ákveðið að einhver sendi- herra Islands gegni þarna störfum, en kemst -bann til landsins að af- henda skilríki? Hvaða fulltrúi Litháa erlendis er með diplómatísk réttindi og svo framvegis? Þetta er því miður miklum praktískum erfiðleikum háð, þótt við vildum undirstrika stuðning okkar með þessum hætti. Það mikil- væga er að vekja hið alþjóðlega sam- 'félag til gagnráðstafana."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.