Morgunblaðið - 24.01.1991, Síða 17
MORGUNBLAPIÐ F.IMMTUDAGU.R 24... JANÚAR 1991.
17
Framboðsfundur í Dagsbrún:
Helst deilt um kjara-
baráttu og lýðræði
Á ÞRIÐJA hundrað Dagsbrúnarfélaga sátu sameiginlegan kosninga-
fund framboðslistanna fyrir stjórnarkosningarnar í Dagsbrún sem
haldinn var í Bióborginni í gær. Frummælendur á fundinum voru
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður og efsti maður A--listans, og
Jóhannes Guðnason formannsefni mótframboðsins, B-listans. All-
margir fundarmenn tóku til máls og hvöttu Dagsbrúnarmenn til að
taka þátt í kosningunum. Sökuðu stuðningsmenn A-listans mótfram-
bjóðendur um reynsluleysi og óábyrgan málflutning. Mótframbjóðend-
urnir ásökuðu stjórnina um ólýðræðisleg vinnubrögð og fyrirlitningu
í sinn garð.
Guðmundur J. Guðmundsson sagði
að Dagsbrúnarforystan hefði barist
gegn hækkunum til að vetja þjóðar-
sáttina, m.a. með verðgæslu. „Mót-
mæli Dagsbrúnar gegn hinum ýmsu
verðhækkunum hafa verið fleiri og
áhrifameiri en allra annarra verka-
lýðsfélaga samanlagt. Svo langt
hefur þetta gengið að nú eru tvær
verslanir að hefja málaferli gegn
Leifi Guðjónssyni, starfsmanni okk-
ar í verðgæslunni. Hann hefur unn-
ið frábært starf. Ég hef aldrei orðið
var við frambjóðendur B-listans í
stuðningi við þessa baráttu. Þeir
hafa eytt kröftum sínum til að níða
og ófrægja stjórn Dagsbrúnar,"
sagði hann.
VerkfÖll í haust?
Guðmundur sagði að framundan
væri harður slagur við að halda
verðlagi niðri út samningstímann
og að í haust verði gengið til nýrra
kjarasamninga. „Strax I næsta
mánuði förum við að undirbúa
næstu samninga. Þetta verða erfiðir
samningar en við verðum umfram
annað að hækka kaup þeirra sem
hafa 40 - 70 þúsund á mánuði. Jöfn
prósentuhækkun á öll laun kemur
ekki til greina. Við skulum meta
skattalækkanir og verðlækkanir til
aukins kaupmáttar. Við skulum
krefjast ráðstafana í húsnæðismál-
um. Ég kalla ykkur alla til starfa.
Við náum ekki fram þessum áfanga
nema hönd í hönd og við skulum
gera okkur grein fyrir að það getur
komið til verkfalls að hausti,“ sagði
Guðmundur.
Hann sagði að meirihluti fram-
bjóðenda B-listans væru óreyndir
unglingar og ekkert þýddi að tefla
slíkum mönnum fram til foiystu þó
rétt sé að veita forystunni ákveðið
aðhald.
Forystan þreytt og dofin
Jóhannes Guðnason, efsti maður
B-listans, rakti stefnuatriði mót-
framboðsins. Sagði hann að kosn-
ingarnar mörkuðu tímamót hjá fé-
laginu. „Nú er kominn tími til að
gera eitthvað til að bæta kjörin.
Eftir þá reynslu sem ég hef fengið
í þessu framboði er ég sannfærður
um að nauðsynlegt er að breyta lög-
um félagsins," sagði hann.
Sagði Jóhannes að Dagsbrún
ætti að tryggja mönnum á eldri
árum tryggingar fyrir áframhald-
andi atvinnu því framkoma sumra
fyrirtækja við gamalreynda starfs-
menn væri til skammar.
„Sitjandi forysta Dagsbrúnar er
orðin þreytt og hefur dofnað. Hún
hefur staðnað og brugðist launa-
mönnum. Óánægja og gagnrýni á
núverandi forystu og með síðustu
samninga hefur fyllt mæli okkar.
Lægsti taxti fiskverkunarfólks hjá
Dagsbrún er 40.200 krónur á mán-
uði.“
Jóhannes mótmælti því að mót-
framboðið kynni að kljúfa félagið.
Þá mótmælti hann því að aðstand-
endur listans væru flestir óreyndir.
„Við höfum flestir starfað lengi að
hinum ýmsu félagsstörfum og
margir okkar eru trúnaðarmenn á
vinnustöðum, meðal okkar eru
stjórnarmenn í Dagsbrún og sumir
hafa verið formenn verkalýðsfélaga
út á landi,“ sagði hann.
Guðfaðir
verkalýðshreyfingarinnar
Sigurður Bessason, stuðnings-
maður A-listans, sagði að kósið yrði
um trúnaðarráð í félaginu. Spurði
hann fundarmenn hvort þeir hygð-
ust fella út ýmsa þrautreynda trún-
aðarmenn á flestum vinnustöðum
Dagsbrúnarmanna með því að
Á þriðja hundrað manns sótti sameiginlegan framboðsfund frambjóð-
enda í Dagsbrún í Bíóborginni í gær en á kjörskrá eru nokkuð á
fjórða þúsund manns. Kosningar verða í Dagsbrún um helgina.
Hádegisverður á Hötel Holti l
A Hótel Holti verður áfram tilboð í hádeginu, sem
samanstendur af forrétti, aðalrétti og eftirrétti, sem
hver og einn velur af seðli dagsins.
HOLTSVA GNINN
Holtsvagninn er kominn aftur.
Úr honum bjóðum við heilsteiktan svínahrygg
með puru, ásamt forrétti og eftirrétti.
Verð kr. 995,-
Forréttur, aðalréttur og eftirréttur á
viðráðanlegu verði, án þess að slakað sé á í gæðum.
Bergstaðastræti 37, Sími 91-25700
styðja B-listann.
Þórarinn Víkingur, stuðnings-
maður B-listans, lét hörð orð falla
í garð Guðmundar og sakaði hann
um að hafa upphafið skítkast í kosn-
ingabaráttunni í viðtölum við fjöl-
miðla. Sagði hann að Guðmundur
liti á sig sem guðföður íslenskrar
verkalýðshreyfingar og liti á kosn-
ingarnar sem valdabáráttu. „Við
erum ekki í valdabaráttu. Við erum
í lífsbaráttu," sagði Þórarinn. Sagði
hann það óskiljanlega efnahags-
skekkju að launafólk á íslandi væri
meðal hinna lægst launuðu í ríkjum
OECD á sama tíma og ísland væri
annað auðugasta ríkið í heimi.
Leifur Guðjónsson sakaði mót-
framboðsmenn um að styðja ekki
brýn hagsmunamál sem félagið
væri að betjast fyrir. Einar Sigurðs-
son, sem sæti á á Iista mótframboðs-
ins, sagðist vera meðal elstu félaga
Dagsbrúnar og því væri fráleitt að
segja að mótframboðið samanstæði
eingöngu af óreyndum unglingum.
CHATDMJX.
HEV1LAUÓS í ALTURGLLIGGA
ÖRYGGISBLINAÐLR SEM BORGAR SIG
Auóveld og fljótleg ísetning. — Lestingar og leióslur fylgja meó.
SAE, DOT og E vióurkenningar. — Passar í flestar tegundir bifreióa.
Tryggöu öryggi þitt fyrir þeim, sem á eftir kemur
— kauptu þér gluggahemlaljós!
Eæst á bensínstöóvum Skeljungs.
Mjög hagstætt veró.