Morgunblaðið - 24.01.1991, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 24.01.1991, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1991 CNN vonast til að frétta- flutningnrinn frá Bagdad færi varanlegar vinsældir Irakar biðja sjónvarpsmenn að vera áfram í landinu STRÍÐIÐ við Persaflóa gæti auðveldað bandarísku sjónvarps- stöðinni Cable News Network að ná þeim vinsældum sem hún hefur sóst eftir undanfarin ár. Lýsing CNNá sprengjuár- ásum á Bagdad aðfaranótt fimmtudags í síðustu viku gaf bandamönnum einstakt tækifæri til að fylgjast með því hvern- ig árásirnar heppnuðust. Fregnir herma að George Bush Bandaríkjaforseti hafi getað sannfærst um að fyrstu árásirn- ar væru byrjaðar með þyí að horfa á CNN í Hvíta húsinu. Ted Turner, eigandi CNN (í miðjunni), ásamt leikkonunni Jane Fonda og þáttastjórnandinn Larry King. CNN hefur nú fengið einstakt tækifæri til að auka hróður sinn. írösk stjórnvöld hafa beðið þriggja manna lið sjónvarps- stöðvarinnar að vera áfram í Bagdad á meðan allir aðrir er- lendir blaðamenn voru reknir heim. Þau rökstuddu þessa ákvörðun með því að segja að CNN hefði fjallað á sanngjarnan og nákvæman hátt um málið. Þótt Peter Arnett, fréttamaður CNN í Bagdad, sé ekki frjáls ferða sinna og sæti ritskoðun íraskra stjórnvalda hefur hann frá upphafi sent lýsingar sjónar- votts á _ sprengjuárásunum á Bagdad. í gær sagði hann frá því að honum væri ekki heimilt að skýra frá því hvaða bygging- ar yrðu fyrir sprengjum og hann mætti heldur ekki lýsa liðsflutn- ingum í borginni en annars gerðu írakar ekki miklar athugasemdir við fréttaflutning sinn. Þýtt ef þörf krefur En fréttir CNN sjást vícfar en í Bandaríkjunum. Þeim er ekki einungis sjónvarpað um allan heim heldur er þeim endurvarpað af öðrum sjónvarpsstöðum til sinna hlustenda með þýðingum ef nauðsyn krefur að sögn bandaríska dagblaðsins Wall Street Journal. BBC og fleiri stöðvar í Vestur-Evrópu eru á meðal þeirra sem nota fréttir CNN. CNN hefur miklu hlutverki að gegna í Persaflóastríðinu. Tariq Aziz, utanríkisráðherra íraks, segist fylgjast með stefnu Bandaríkjastjórnar með því að horfa á sjónvarpið. Og margir halda því fram að bæði bandarísk og írösk stjómvöld hafi skipst á yfirlýsingum og skilaboðum áður en átökin hófust með því að senda þær til CNN. Talsmenn CNN segja að nú þegar hafi orðið vart stóraukins áhuga áhorfenda. Spurningin er einungis sú hvort það varir eftir að Persaflóastríðinu lýkur. Und- anfarið Vh ár hafa stjórnendur stöðvarinnar reynt að vinna henni sess á meðal hinna þriggja stóru. Þetta hefur meðal annars verið gert með því að auka hlut rannsóknarblaðamennsku. En árangurinn hefur látið á sér standa. Einungis 0,7% banda- rískra áhorfenda horfðu á CNN að jafnaði fyrstu níu mánuði árs- ins 1990 sem er sama hlutfall og árið áður. Símasamband við Bagdad Starfsmenn 'annarra stöðva hafa enn ekki komist að því hvers vegna einungis CNN hafði not- hæft símasamband út úr Bagdad aðfaranótt fimmtudags. NBC, ABC og CBS máttu við það una að missa sambandið á miðnætti og það er óljóst hvort orsökin var tæknilegt vandamál eða íhlutun íraskra stjórnvalda. CNN naut þess að hafa fjórar símalínur til afnota sem rikis- stjómin sá þeim fyrir, að sögn Wall Street Journal. Tvær lágu inn í landið og tvær út. Stöðin hafði ennfremur afnot af ör- bylgjudiski sem sendi áfram til Amman í Jórdaníu þar sem síma- sambandið var framlengt til Bandaríkjanna. Hinar stóru bandarísku stöðvarnar þrjár höfðu beðið íraka um svipaða þjónustu en því var hafnað að sögn talsmanns NBC. Kunnáttumenn \ fjölmiðlun segja að e.t.v. hafi írakar veðjað á CNN vegna þess að stöðin njóti mikillar virðingar meðal ráða- manna víða um heim. „CNN er tengiliður Saddams við umheim- inn,“ sagði ónafngreindur frétta- stjóri. Keppinautarnir velta því fyrir sér hvort CNN hafi boðið ein- hvern greiða í skiptum fyrir símalínuna. Talsmenn CNN harðneita þvi og segjast hafa fengið leyfi til að nota símann fyrirfram. Heimild: Wall Street Journal. Kafbófum beitt gegn Irökum Bandamenn beita njj kafbátum qean skotmörkum í Irak. Nafoátamir eru á Raubahafi og skjóta Tomghawk-stýriflaugum a skotmörk í Irak. Tomahawk-stýriflaug er frá kafbátnum, en hán ar fljótlega flugið til þess að birtast ekki á ratsjá óvinarins. Stýriflaugin flýgur á 900 km hraða og nýtur leiðsagnar tölvu, sem ber saman upplýsingar um landslagið fyrir neðan við eigin Kort. Hán dregur 2.200 km leið og getur hæft skot- mark sitt frá hvaða horni sem toíei HELGARFERÐIR í JANÚAR FEBRÚAR OG MARS '& ( Skemmtiskrepp um helgi, kostar ekki mikið... ...með Flugleiðum. / Scud-flaugamar hafa mikil áhrif Stokkhólmur er horg andstæöna, þar sem skiptast á gömul hús og nýtískulegar hyggingar. Lista-, menningar-, og skemmtanalíf er mjög fjölskrúöugt i Stokkhólmi. Helstu verslunargöturnar eru í grennd við Sergels torg og Hötorget. Helgarferö til Stokkhólms meö Flugleiöum. Kaíró. Reuter. ÞÓTT Scud-eldflaugarnar, ættaðar frá Sovétríkjunum, þyki fremur klunnalegt vopn hafa þær mikið pólitískt og sálrænt gildi fyrir Sadd- am Hussein Iraksforseta. Með því að senda Scud-eldflaug- arnar á skotmörk í Israel hefur Saddam Hussein tekist að efla stuðning við sig í arabaheiminum, ergja bandamenn, greiða alþjóðleg- um fjármálamörkuðum þungt högg og gera lítið úr flugheijum fjöl- þjóðaliðsins. „Hernaðarlega eru Scud-eldiiaugarnar gagnslausar," sagði ónefndur hermálafulltrúi í Kaíró. „Þær eru of ónákvæmar til þess að þeim sé hægt að miða ná- kvæmlega á skotmörk. En sem stjórnmálalegt og sálrænt vopn eiga þær vart sinn líka.“ En Scud-eldflaugarnar hafa komið bandamönnum á óvart. T.d. hélt herforingi úr liði bandamanna því fram áður en átök brutust út að ef írakar skytu á ísrael væri eins líklegt að flaugin hafnaði í Jórdaníu. En raunin hefur orðið önnur og óstaðfestar fregnir sem bárust áður én ísraelar hertu rit- skoðun sína herma að ein Scud-eld- flaug hafi lent nærri ísarelska varn- armálaráðuneytinu í Tel Aviv. 5 FIMMTUDAGUR TIL SUNNUDAGS HÓTEL MALMEN TVEIR í HERB. KR. 44.280 Á MANN FLUGLEIÐIR Þjónusta alla leið Söluskrifstofur Flugleiða: Laekjarqötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir í síma 6 90 300. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum FÍugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.