Morgunblaðið - 24.01.1991, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANUAR 1991
31
NEYTENDAMAL
Geiviosturinn
ÞAÐ hefur vakið furðu margra landsmanna að leyfður skyldi inn-
flutningur á gerviosti, undir því yfirskyni að hann yrði til hagræð-
is fyrir neytendur. Margir neytendur hafa eðlilega spurt, hvers-
vegna ekki hafi verið fluttir inn erlendir gæðaostar, úr því farið
var að flytja inn ost á annað borð.
Gerviostar hafa ekki átt upp á
pallborðið hjá neytendum þar sem
þeir fyrst voru settir á markað,
þ.e. í Bandaríkjunum, en það mun
hafa verið á áttunda áratugnum.
Neytendur sýndu þessum gerviost-
um svo lítinn áhuga að þeir hurfu
brátt af hinum almenna markaði.
Þar með er ekki sagt, að ekki sé
hægt að kaupa þar gerviosta í sér-
verslunum. Ostar með lágu fitu-
innihaldi eru þeir ostar sem hinn
almenni bandaríski neytandi leitar
eftir nú á dögum. Neytendur þar
í landi sem hérlendis gera auknar
kröfur um framboð á sem náttúru-
legustum afurðum og hafna í vax-
andi mæli umbreyttum matvælum.
En undir þann flokk fellur gervi-
osturinn. Af honum munu vera til
margar tegundir, sumar unnar
m.a. úr mjólkurpróteini þ.e. undan-
rennudufti o.fl. Þessi tegund sem
hingað hefur verið flutt inn inni-
heldur, að sögn innflytjenda, soja-
prótein, sojaolíur, vatn og bindiefni
sem er umbreytt sterkja (modified
starches) og er hún flokkuð hér
undir hráefní. Þessi sterkja hefur
þann hæfileika að geta bundið
betur vatn og olíur en önnur
sterkja. í þessum gerviosti eru
einnig kemisk bragðefni (artificial
fiavour) sem enginn veit hvaða
efni eru, en slík bragðefni ei'u leyfi-
leg í matvæli hér samkvæmt
íslensku aukefnareglugerðinni.
Til gamans má geta þess að í
Bandaríkjunum, þar sem einnig er
leyfð notkun kemiskra bragðefna,
eru framleiðendur að hverfa frá
notkun þeirra vegna þess að neyt-
endur kreijast náttúrulegra bragð-
efna í matvælin og framleiðendur
telja sér bæði ljúft og skylt, þó
ekki væri nema vegna samkeppn-
innar, a.ð uppfylla óskir neytenda.
Þess er að vænta að íslenskir
matvælaframleiðendur taki á sama
hátt tillit til óska íslenskra neyt-
enda. Við neytendur gerum kröfu
til þess, að sú framleiðsla sem
kemur til með að innihalda þennan
gei-viost verði sérmerkt, þannig að
innihaldslýsing verði á umbúðun-
um. Neytendur verða að geta átt
val um það hvort þeir vilji neyta
hans eða ekki.
Verðlagi verður vart að treysta
sem viðmiðun. Þeir eru ekki marg-
ir sem láta sér til hugar koma að
gervimatvæli komi til með að
lækka hið háa verðlag sem er á
matvælum hér á landi. Framleið-
endur geivimatvæla almennt ræða
yfirleitt ekki um verðið, þeir reyna
fremur að halda því að neytendum
hve þessi matvæli geti verið holl
eða megrandi eins og plast-steik-
urnar ómeltanlegu sem fundnar
voru upp fyrir nokkru. Kannski
verða þær fluttar inn næst fyrir
neytendur - í sparnaðarskyni!
M. Þorv.
Djúpsteikingarpottar
geta valdið eldsvoða
Á síðustu 10 árum hafa djúpsteikingarpottar í atvinnueldhúsum
valdið 30 eldsvoðum hér á landi, segir í fréttablaði Rafmagnseftir-
lits ríkisins 3. tbl. 1990. Ástæðan er sögð vera ófullnægjandi örygg-
isbúnaður. Djúpsteikingarpottar fyrir atvinnueldhús eru prófunar-
skyldir, en innkaupastofnanir sem sjá um innflutning þessara tækja
eru sagðar hafa sniðgengið lög um prófunarskyldu. í skrá yfir
prófunarskyld rafföng er sérstaklega tekið fram að djúpsteikingar-
pottar fyrir atvinnueldhús séu prófunarskyldir.
Eldsvoði á skyndibitastað
í upphafi síðasta árs varð bruni
á skyndibitastað í Reykjavík og
voru eldsupptök rakin að djúpsteik-
ingarpotti staðarins, öryggisbún-
aður pottsins reyndist hafa verið
ófullnægjandi. Nánari athugun á
skýrslum hjá Rafmagnseftirliti
ríkisins leiddi í ljós að 30 eldsvoðar
þessum skyldir hafa átt sér stað
hér á síðastliðnum áratug.
Prófunarskylda raftækja
ekki virt
Atvinnueldhús eru starfrækt
víða. Auk hótela og veitingahúsa
er fjöldi iðnfyrirtækja um land allt
sem reka eins konar atvinnueldhús
fyrir mötuneyti sín, einnig eru full-
komin atvinnueldhús í mötuneyt-
um skóla, vinnustaða og ýmissa
stofnana. Fjölmargir skyndibita-
staðir nota einnig djúpsteikingar-
potta fyrir starfsemi sína. I frétta-
blaðinu segir að umfangsmiklar
opinberar stofnanir eins og Inn-
kaupastofnun ríkisins og
Reykjavikurborg flytji inn djúp-
steikingarpotta og önnur rafföng
fyrir stofnanir ríkis og bæja - oft
án þess að sjá til þess að rafföng-
in fái áður gildingu Rafmagnseftir-
lits ríkisins.
Öryggisbúnaður oft
ófullnægjandi
Raftækin eru pöntuð eftir er-
lendum sölulistum, án þess að leit-
að sé umsagnar fagmanna. Raf-
verktakar fylgja síðan teikningum
við lagnir og eigandinn setur tæk-
in í samband, án þess að prófunar-
skyldu sé sinnt. Þó er í skrá yfir
prófunarskyld rafföng sérstaklega
tekið fram að djúpsteikingarpottar
fyrir atvinnueldhús séu prófunar-
skyldir. Þar sem óhöpp hafa orðið,
hafa afleiðingar orðið þær, að ör-
yggisbúnaður í djúpsteikingarpott-
um hefur verið ófullnægjandi, -
þó færa megi rök að því, að hann
hafi e.t.v. ekki verið með öllu ólög-
legur, segir í fréttabréfinu.
Varðandi fyrrgreindan eldsvoða
á skyndibitastaðnum kom í ljós,
að innflytjandi búnaðarins hafði
breytt fyrirkomulagi öryggisbún-
aðarins á þann veg að setja höfuð-
rofa fyrir pottinn sem yfirhitavar
(öryggis-thermostad) vinnur á.
Bruninn var rakinn til þess að seg-
ulrofi fyrir hitöld (hitaelement)
hafði brunnið fastur og snertur
(kontaktar) fluttu straum þrátt
fyrir að yfirhitavar hafði rofið
hann.
Efri rofarnir tveir á myndinni eru
rekstrarrofar sem stjórna hita-
stiginu á olíunni í pottinum. Ann-
ar stjórnar grunnhitastiginu og
heldur olíunni við ákveðið hita-
stig, hinn vinnur þegar skerpa
þarf á hitanum við steikingu. Þeg-
ar eldur kviknaði í pottinum á
Háaleitisbraut 68, brann annar
þessara rofa saman og varð óvirk-
ur. Þegar olían hitnaði um of,
sendi yfirhitavar boð til rofans
um að rjúfa straum. En þar sem
hann var brunninn hélt feitin
áfram að hitna þar til kviknaði
hafði í henni. Til að fyrirbyggja
að slíkt geti komið fyrir aftur,
var settur aukarofi (hægra megin
á myndinni) sem myndar tvöfalt
rof á sama streng, fari hitinn yfir
ákveðið mark.
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
Múlalundur
SÍMI: 62 84 50
Skrifstofutækni
Fyrir aðeins kr. 4750' á mánuði.
Námið kemur að góðum notum í atvinnuleit. Einungis
eru kenndar námsgreinar sem nýtast þegar út á
vinnumarkaðinn er komið. Til dcemis:
Bókfærsla
Tölvubókhald
Ritvinnsla
Tollskýrslugerð
Verslunarreikningur
VcröiB miðast viö skuldabréf til tveggja ára. ^
Tölvuskóli Islands
Sími: 67 14 66, opið til kl. 22
SKÓÚfSALA
Tölvuvetrarskóli 10-16 ára
©
<%>
Frábært 12 vikna námskeiö fyrir börn og unglinga 10 - 16 ára! v
Sæti laus 13-16 á laugardögum og 10-13 á sunnudögum!
*b
Næstu námskeið hefjast 26. og 27. janúar.
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
Grensásvegi 16 - fimm ár í forystu
Skóverslun Þóröar,
Laugavegi 41,
simi 13570
Kirkjustræti 8,
sími 14181
SKEMMTISKREPP UM HELGI TIL...
SMkHIH.MIII
HELGARPERÐ
FIMMTUDAGUR TIL SUNNUDAGS
HÓTEL MALMEN
TVEIR í HERB. KR. 44.280 Á MANN
Söluskrifstofur Flugleiöa:
Lækjarqötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir i síma é 90 300.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, I............
FLUGLEIÐIR
, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum
Þjónusta alla leið