Morgunblaðið - 31.01.1991, Blaðsíða 46
IvtöfcbÖfttíljAÐIÓ ÖlMtáftlÖÁÖíM 3ií ffANÖAK'lðÖl'
46
hLún vt'LL Lzí e/tthvað sem þú
notar e/dd."
Ég er farinn að heyra dá-
lítið illa ...
Fá dóshníf og kökukefli —
eins og skot...
HÖGNI HREKKVÍSI
/,. ALLU/Z. *CS1Tr/l/Urt7œ BU/N ■ • •
KAnnsk/ a nzú þoba einhyeizn. "
Þessir hringdu ...
Óþægilegar mjólkurumbúðir
Kona hringdi:
„Oft hefur verið bent á hversu
óþægilegar mjólkurfernurnar eru
vegna þess að mjólkin vill alltaf
sullast út þegar þær eru opnaðar
nema beitt sé serstöku lagi. Á
landsbyggðinni er hægt að fá mjólk
í rniklu betri umbúðum en
Mjólkursamsalan hér í Reykjavík
fullyrðir að þessar umbúðir séu of
dýrar. Hvers vegna er fólki ekki
gefinn kostu á að velja á milli með
því að þafa báðar umbúðirnar á
boðstólum? Ég er viss um að marg-
ir myndu sniðganga sull-fernurnar
þó þær væru lítið eitt ódýrari."
Gullhringur
Gullhringur með glærum ílöng-
um steini tapaðist í fyrri hluta
janúarmánaðar. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í síma
38492.
Læða
Læða sem er tveggja og hálfs
árs þarf af sérstökum ástæðum að
eignast nýtt heimili. Upplýsingar í
síma 23437.
Eyrnalokkur
Eyrnalokkur tapaðist í Háskóla-
bíói eða þar fyrir utan miðvikudags-
kvöldið 23. janúar. Finnandi er
vinnsamlegast beðinn að hringja í
síma 616668.
Góð hármeðferð
Ánægður viðskiptavinur
hringdi:
„Ég vil benda á góða hármeðferð
sem fæst í Heilsuvali, Barónstíg 20.
Ég var að missa hárið vegna lyfja-
meðferðar og dugði þessi meðferð
vel.“
Texti
Svandís hringdi:
„Ég heyrði skemmtilegt lag tvi-
svar sinnum í útvarpinu í haust og
var þar m.a. þessi hending: „Það
var í aftanskini ég leit þín augu
blá“. Viðlagið byijaði á þessari
setningu: „0 hve væri gaman að
eiga stund með þér.“ Lagið var leik-
ið í þættinum I háttinn en starfs-
fólk hjá Ríkisútvarpinu gat ekki
upplýst mig um hvaða lag þetta er.
Langar mig því til að spyijast fyrir
um það og eins hver söngkonan er.“
Gleraugu
Karlmannsgleraugu, með svartri
umgjörð og lituðum gleijum, töpuð-
ust við Grensásveg eða á leið þaðan
niður í Laugarnes. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í síma
34647.
Gleraugu í brúnu gleraugna-
hulstri töpðust á leið frá elliheimil-
inu Grund að Dómkirkjunni.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 13236.
Læða
Læða, svört og gráböndótt að
ofan en hvít að neðan og með græna
ól, hefur verið í óskilum síðan 20.
janúar. Upplýsingar í síma 685310.
Spara ekki bensín
Baldvin Eyjólfsson hringdi:
„Nú er talað um átak í bensín-
sparnaði. Ég hef ekki í hyggju að
spara bensín meðan vélsleðamenn
þjóta um fjöll og firnindi og nota
stóra fjallajeppa til að koma farar-
tækjum sínum þangað. Hér á ég
ekki við björgunarsveitarmenn, um
þá gegnir öðru máli. Meðan menn
eyða bensíni í svona fánýtar
skemmtanir dettur mér ekki í hug
að spara bensín. Þá vil ég benda á
að það getur verið bensínsparnaður
fyrir fjölskyldu að eiga tvo bíla því
ef reynt væri að notast við einn bíl
þýddi það mikið meiri keyrslu."
Lyklakippa
Lyklakippa í brúnu leðurhulstri
tapaðist á leiðinni frá Ármúla að
Háteigsveg aðfaranótt sunnudags.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 24680.
Víkveiji skrifar
Þau eru mörg bréfín og margvís-
, leg sem berast á ritstjórn
Morgunblaðsins. í síðustu viku
barst með póstinum þykkt, brúnt
umslag merk landbúnaðarráðuneyt-
inu. Víkveiji hélt að hann væri að
taka á móti stórmerkum tíðindum
frá ráðuneyti Steingríms J. Sigfús-
sonar, varaformanns Alþýðubanda-
lagsins. Svo reyndist þó ekki vera,
innihald umslagsins reyndist vera
tímaritið Útvörður, tímarit sam-
nefndrar byggðahreyfingar. Margt
athyglisvert efni er að finna í blað-
inu, en hvers vegna í ósköpunum
umslag merkt ráðuneytinu er notað
veit Víkveiji ekki.
Ekki er langt síðan á ritstjórn
Morgunblaðsins barst símbréf með
„viðvörun til ráðherra íslensku rík-
isstjórnarinnar“ sent frá skrifstofu
Alþýðubandalagsins.
xxx
egar virðisaukaskattur leysti
söluskatt af hólmi var mikil
áhersla lögð á löglegar sjóðvélar,
peningakassa, í verslunum. Fjár-
málaráðherra lagði svo mikla
áherslu á þetta að hann stóð sjálfur
við afgreiðslu dagspart ti) að sýna
hvernig löglega ætti að standa að
málum. Þá var einnig hamrað á því
að neytendur yrðu að halda vöku
sinni og fylgjast með því að farið
yrði eftir settum reglum.
Þetta rifjaðist upp fyrir Víkveija
þegar hann brá sér í kvikmyndahús
fyrir skömmu. Eftir að hafa reitt
fram háa fjárhæð fyrir sælgæti, sá
Víkveiji hvar afgreiðslustúlkan
stakk peningunum ofan í skúffu,
þar sem fyrir voru hrúgur af pen-
ingum. Engin sjóðvél þar.
Þar sem Víkveiji man fleiri dæmi
slíks úr kvikmyndahúsum er honum
spurn: Gilda einhverjar undanþágur
fyrir kvikmyndahúsin að þessu
leyti? Og fyrst rætt er um kvik-
myndahúsin: Hvaða rök eru fyrir
því að selja sælgæti og gosdrykki
á miklu hærra verði þar en í sölu-
turnum? Vonandi kann einhver svör
við þessu.