Morgunblaðið - 31.01.1991, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 31.01.1991, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1991 Minning: Ágúst Flygenring framkvæmdastjóri Fæddur 15. janúar 1923 Dáinn 21. janúar 1991 Kveðja frá stjórn og for- stöðumanni Lífeyrissjóðs Hlífar og Framtíðarinnar A grundvelli samkomulags er gert var milli Vinnuveitendasam- bands íslands og Alþýðusambands íslands vorið 1969 vona lífeyrissjóð- ir verkalýðsfélaganna stofnaðir. Lífeyrissjóður Hlífar og Framtíðar- innar var stofnaður 1. janúar 1970 og kom stjórn sjóðsins saman til síns fyrsta fundar í maímánuði það ár. í stofnskrá sjóðsins var ákveðið að Vinnuveit.endasambandið skipaði 2 menn i stjórn sjóðsins og verka- lýðsfélögin aðra 2. Ágúst var þegar við stofnun skipaður annar fulltrúi Vinnuveitendasambandsins og sat hann í stjóminni æ síðan, þar til hann ,Iét af störfum um síðustu áramót vegna veikinda. Lífeyrssjóð- urinn naut þannig starfskrafta og glöggskyggni Ágústar öll sín mót- unarár og var það sjóðnum mikils virði. Ágúst var tillögu- og úrræða- góður enda setti hann sig vel inn í öll þau mái, sem fyrir iágu hveiju sinni. Það er samdóma álit félaga hans í stjórninni að sæti hans hafði verið einkar vel skipað og forstöðu- maður sjóðsins telur reynslu hans og þekkingu, einnig starf hans í þágu sjóðsins vera ómetanlega. Það er því stórt skarð fyrir skildi í stjórn lífeyrissjóðsins og mun hans verða sárt saknað. Við stofnun Sambands almennra lífeyrissjóða árið 1973 var Ágúst kjörinn í varastjóm sambandsins og átti hann sæti þar til dauða- dags. Mun hann hafa tekið mikinn þátt í störfum sambandsins og oft setið fundi þess. Á þessu sést að Ágúst var búinn að afla sér stað- góðrar þekkingar á lífeyrismálum, sem að sjálsögðu kom að góðu haldi við stjórnunarstörf í Lífeyrissjóði Hlífar og Framtíðarinnar. Forstöðumaður og stjórn lífeyris- sjóðsins vilja að leiðarlokum þakka störf hans öll fyrir sjóðinn og þá ekki síður ánægjuleg kynni og sam- starf bæði fyrr og síðar. Jafnframt em eiginkonu hans frú Guðbjörgu Magnúsdóttur og flölskyldu hans allri sendar einlægar samúðarkveð- ur. Eggert ísaksson Fyrir rétt um 30 ámm komum við bræður með útgerð okkar til Hafnarfjarðar. Þar vom þá fyrir nokkur umsvifamikil fyrirtæki í útgerð og fiskvinnslu. Eitt af þeim var íshús Hafnarfjarðar. Þar réðu ríkjum feðgamir Ingólfur, fyrrver- andi alþingismaður Flygenring og Ágúst. Fljótlega tókust kynni milli okkar og feðganna, þó sérstaklega Ágústar. Á þessum árum frá 1960 og fram yfir 1980 vom bátar miklu meira áberandi en togarar, þótt þeir hafí löngum skipað veglegan sess í at- vinnusögu Hafnarfjarðar. Þeir feðgar voru með báta ðg fyrirmynd- ar fískverkun. Ágúst sinnti mikið störfum út á við og fórst það eink- ar vel úr hendi. Framkoma til fyrir- myndar. Rólegur og yfírvegaður. Glöggur á kjarna málsins. Hóflega ræðinn og skýr. Náið samstarf okkar hófst í mars 1963, þegar sex útgerðarfyrirtæki ákváðu að stofna netaverkstæðið Hf. Hringnót til þess að sjá um allt, er snerti veiðar með nót. Ágúst var kjörinn stjómarformaður og ég varð framkvæmdastjóri. Þetta sam- starf varði í átján ár. Aldrei kom til vandrttða, þótt oft væri um erf- ið mál að ræða í þessum rekstri. ÍGóðir menn 'vom með okkur og málin leyst eins og aðstæður frek- ast leyfðu. Ágúst Flygenring var valinn til margvíslegra trúnaðarstarfa á sviði sjávarútvegsins og félagsmála. Öll störf leysti hann- af hendi vel og farsællega. Auðvitað varð hann að þola súrt og sætt sem aðrir, er velja sér starf við sjávarútveg og fisk- vinnslu. Mikill áhugi hans á vel- gengni atvinnugreinarinnar hvatti hann til dáða. Eftir að í'shús Hafnarfjarðar var selt árið 1985 ásamt togara og bátum nokkru áður, gat hann notið meiri hvíldar og áhugamála. Hann gekk ásamt konu sinni, frú Guð- björgu Magnúsdóttur, um hafnar- svæðið og hafði yndi af því að fylgj- ast með. Það er mikið lán að kynnast góð- um mönnum og fá að starfa með þeim um langa hríð. Ég votta fjöl- skyldu hans samúð mína og bræðra. Jón Ármann Héðinsson Kveðja frá stjórn Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna í dag, fimmtudaginn 31. janúar, verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju útför Ágústar Flygenrings, fram- kvæmdastjóra í Hafnarfírði. Ágúst fæddist í Hafnarfírði 15. janúar 1923 og því rétt 68 ára að aldri, er hann lést 21. janúar sl. Hann hafði átt við vanheilsu að stríða sl. tvö ár. Ágúst var sonur Ingólfs Flygen- ring alþingismanns og fram- kvæmdastjóra í Hafnarfirði og konu hans Kristínar Pálsdóttur Flygen- ring. Faðir Ingólfs var Ágúst Flyg- enring útgerðarmaður og síðar al- þingismaður í Hafnarfirði Þórðar- sonar bónda frá Fiskilæk í Mela- sveit, en meðal bræðra Ágústar voru Albert Landsbankabókari, fað- ir Kristjáns, bókmenntafræðings og sendiráðunauts og Matthías Þórðar- son þjóðminjavörður. Að loknu gagnfræðaprófi frá Flensborg 1939 innritaðist Ágúst í Verslunarskóla Íslands og lauk það- an verslunarprófi árið 1943. Árið 1945 réðst hann til starfa við fyrir- tæki föður síns íshús Hafnarfjarðar og tók við starfí framkvæmdastjóra fyrirtækisins árið 1966. Gegndi Ágúst því starfi til ársins 1985 er rekstri félagsins Var hætt og eignir þess seldar. Eftirlifandi eiginkona Ágústar er Guðbjörg Magnúsdóttir bónda í Krísuvík Ólafssonar og konu hans Þóru Þorvarðardóttur frá Jófríðar- stöðum í Hafnarfírði. Þau hjón eign- uðust fjögur börn, sem öll eru á lífi. Ágústi voru falin margvísleg trúnaðarstörf í atvinnu- og félags- málum. Hann sat m.a. í stjórn Landssambands ísl. útvegsmanna frá 1962-1981, í stjórn Lífeyrissjóðs Hlífar og Framtíðarinnar 1970- 1990, í stjórn Sparisjóðs Hafnar- fjarðar frá 1983 til dauðadags. Þá sat hann um árabil í stjórn Sam- ábyrgðar íslands á fískiskipum. Ágúst var drengur góðui'; hæg- látur að eðlisfari og hið mesta ljúf- menni. Hann var ekki gefínn fyrir að hafa sig mikið í frammi en vegna mannkosta og haldgóðrar þekking- ar á málefnum útgerðar og fisk- vinnslu var hann oft kallaður til forystu á þeim vettvangi. Við úr- lausn hinna ýmsu vandamála lagði hann ætíð gott eitt til og átti gott með að greina kjarna hvers máls. Við minnumst með þakklæti far- sælla starfa hans í stjórn Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna, en þar sat hann í stjórn frá 1974-1984 og sem stjórnarformaður samtakanna frá 1982-1984. Hann átti ennfrem- ur sæti í dótturfélagi SH í Banda- ríkjunum, Coldwater Seafood Corp- oration frá 1982-1984. Þá sat hann um árabil í stjóm Umbúðamiðstöðv- arinnar hf. og sem stjórnarformað- ur þess félags 1978-1984. Hvar- vetna kom Ágúst í störfum sínum fram af stakri prúðmennsku og lip- urð og ávann sér traust og virðingu samferðamanna sinna. Hann var ávallt einn af traustustu félags- mönnum innan Sölumiðstöðvarinn- ar og gerði sér öðrum betur grein fyrir þeirri staðreynd, að samstillt átak framleiðenda í sölu- og mark- aðsmálum íslendinga skilaði best- um árangri. Við stamstarfsmenn hans í stjóm SH þökkum Ágústi heillaríkt sam- starf á löngum starfsferli og vottum eiginkonu hans, börnum og öðrum aðstandendum dýpstu samúð. Jón Ingvarsson Ágúst Flygenring fyrrv. forstjóri íshúss Hafnarfjarðar hf. er látinn. Þeir sem til þekktu og með honum sförfuðu var orðið ljóst hvert stefndi, en æðmleysi og samvisku- semi þessa dagfarsprúða manns var með þeim hætti að uppgjöf var síst á dagskrá hjá honum. Ágúst var fæddur í Hafnarfirði 15. janúar 1923 og ól þar allan sinn- aldur, eitt þriggja barna þeirra heið- urshjóna Kristínar Pálsdóttur Þor- steinssonar bónda frá Tungu í Fá- skrúðsfirði og Ingólfs Ágústssonar Flygenring forstj., bæjarflltr. og alþm. í Hafnarfirði. Ungur stundaði Ágúst nám við Flensborgarskóla og síðan Verzlun- arskóla Islands og brautskráðist þaðan 1943. Störf hóf hann snemma við fyrirtæki föður síns, íshús Hafnarfjarðar hf., og frá 1966 til T985 þar til eigendaskipti urðu, veitti hann því forstöðu. Ágúst Flygenring naut mikils trausts samferðamanna sinna. Hann var víða til forystu valinn í samtökum sjávarútvégsmanna, m.a. formaður Sölumiðstöðvar Hraðfrystihúsanna um tíma og varaformaður Landssambands ísl. útvegsmanna. Árið 1983 var Ágýst kjörinn í stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar og gegndi þar stjómarstörfum til ævi- loka. Hann bar hag Sparisjóðsins mjög fyrir brjósti og vann þar sem annarsstaðar af kostgæfni, þýðing- armikil og vandasöm trúnaðarstörf sem honum eru sérstaklega þökkuð að leiðarlokum. Ágúst Flygenring eignaðist traustan og umhyggjusaman lífsförunaut, Guðbjörgu Magnús- dóttur, bónda í Krísuvík Ólafssonar og konu hans Þóru Þorvarðardóttur frá -Jófríðarstöðum. Eignuðust þau hjón Qögur börn, sem öll eru upp- komið fjöiskyldufólk. Þégar vinur minn Ágúst Flygenr- ing er genginn, er horfinn úr hópn- um traustur samferðamaður og góður drengur. Við biðjum honum Guðs blessunar og sendum eigin- konu hans og fjölskyldu samúðar- kveðjur. Matthías Á. Mathiesen Þegar ég nú kveð frænda minn og vin, Ágúst Flygenring, leitar hugurinn aftur í tímann. Kynni okkar hófust í fjölskylduboðum, sem Flygenring systkinin voru svo iðin við að halda, en við erum systk- inasynir. Ágúst var elstur okkar strákanna í hópnum, og hafði frá mörgu að segja, enda hafði hann alla tíð ríkan frásagnaranda. Nærri hálf öld er liðin frá því Ágúst sagði okkur frá hinum mörgu ævintýrum við að keyra á vörubíl sínum efni í Reykjavíkurflugvöll eða mjólkur- brúsa á snjóþungum vegaslóðum. Við vorum heillaðir því við fengum þannig að kynnast bílum, sem við höfðum svo mikinn áhuga á að fræðast um. Og Ágúst gat alltaf sagt eitthvað nýtt um bíla alla ævi. Tekjurnar af akstrinum léttu honum skólagönguna í Verslunar- skólann. Ég hafði alltaf tengsl við Ágúst og fylgdist með því er börn- in hans og Guðbjargar uxu úr grasi og urðu dugmikið fólk. Oft leit ég við hjá honum á skrifstofu íshúss Hafnarfjarðar eða heim til þeirra hjóna. Fylgdist ég þannig með út- gerðinni á skipum ishússins, fram- leiðslunni á frystum físki og með skreið og í reynd ástandi og hag landsins, því Ágúst var einmitt einn þeirra, sem héldu um púlsinn á at- hafnalífi þjóðarinnar. Ágúst Flygenring var greindur vel, athugull, vinnusamur og útsjón- arsamur. Það fór ekki mikið fyrir honum. Allt vannst honum með hægðinni og hávaðalaust enda ein- kenndist öll hans framkoma af hóg- værð og ljúfmennsku. Hvarvetna vann hann sér traust svo sem starf hans innan Sölumiðstöðvarinnar, formennsku þar í stjórn og seta hans í stjórn Sparisjóðs Hafnar- fjarðar vitna um, auk margra ann- arra trúnaðarstarfa á ýmsum vett- vangi. Veikindi hægðu mjög starf Ágústar undanfarin ár og var sárt að vita af því hve þessi indæli mað- ur mátti þola. Nú hefur hann lagt upp í ferð á nýjar slóðir þar sem við hittumst .vonandi einhvern tíma því með slíkum ágætismanni er gott að ferðast. Við hjónin sendum Guðbjörgu og börnunum innilegar samúðarkveðjur. Ragnar Borg „Hann afí Ágúst er dáinn." Þann- ig hljómuðu orð dóttur minnar í símann að kvöldi 21. janúar. Mer varð svarafátt. Hún hélt áfram í sinni bamslegu einlægni: „Nú er afí kominn upp til Guðs og þá líður honum vel.“ Já, nú líður afa Ágústi vel. Hann háði hetjulega baráttu við illkynja sjúkdóm síðustu mán- uði, sem nú er lokið. Kallið er kpmið. Komið er að kveðjustund. Ég kveð minn kæra fyrrverandi tengdaföður öðru sinni og nú í hinsta sinn. Vinarskilnaður er viðkvæm stund, þá koma minn- ingamar upp í hugann, góðar minn- ingar liðinna ára. í vestri sígur dagur að dimmum ósi, deyrroðin skíma fellur af sólarljósi líkt og hiynji á lifsins síðasta kveldi lýsandi sindur: minning hert á eldi. (Úr kvæðinu Nyársdagur e. Matthías Jo- hannessen skáld og ritstjóra.) Hún er dýr þessi perla! Og svo er um þessa sem aðrar slíkar að hún hefur vitjað skáldsins úr djúp- um myrkursins sem leiftur um nótt sem ljósbrot úr myrkviði dag- anna og í dýrleika sínum horfíð út i nóttina að eilífu glötuð. Svo er um liljur vallarins að sú fegursta og dýrasta er ofrausn og því ekki von til og ekki ráð fyrir því gert að menn fái slíku haldið gegn ákalli himinsins. Og þegar skáldið gengur einn horfínn dag fram á ljóð sitt spyr það í undrun hvaðan það hafí komið og hvert farið til þess eins að vera minnt á það að sú perlan var einungis ætluð til varðveislu, skynjun sem vegna dýrleika síns gat aldrei orðið eða verið, en er það ljós í myrkrinu 'ærtj'áiaféí'Vé’WdFWtín'dír'ffifeli- noerJlögiöþl iiiönO 16 ára gömul, er ég kynntist Ágústi og kom inn í hans fjölskyldu. Hann tók mér vel frá upphafi. Hann hafði ekki mörg orð um hlutina, var frek- ar fámáll og fastur fyrir, en lét verkin tala. Hann reyndist mér traustur og góður tengdafaðir og á ég honum mikið að þakka. Hann hafði alltaf kærleikann að leiðarljósi. Eins og segir í 1. Kor. 13,3-8: — Kærleikurinn er lang- lyndur, hann er góðviljaður, kær- leikurinn öfundar ekki, kærleikurm er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp; hann hegðar sér ekki ósæmi- lega, leitar ekki síns eigin; hann reiðist ekki, tilreiknar ekki hið illa; hann gleðst ekki yfir óréttvísihni, en samgleðst sannleikanum; hann breiðir yfír allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. — Mér fínnst þessi orð lýsa honum vel. Nú þegar ég lít til baka 22 árum síðar og orðin þroskuð kona, met ég það mikils að hafa fengið að kynnast Ágústi. Ég á margar góðar minningar frá fyrri tíma sem koma nú upp í hugann. Hann innleiddi hjá mér bílaáhugann og kenndi mér að keyra vel, enda var ég oft einkabílstjóri hans hér á árum áð- ur. Það var mikill heiður og jafn- framt lærdómsfíkt. Þá féllu mörg, gullkornin, sem seint gleymast. Ofáar voru sumarbústaðaferðirnar austur í Hlíðarból. Þar leið öllum vel. Ég á góðar minningar þaðan. Hann var rausnarlegur heim að sækja og var alltaf gott að koma á Hringbrautina. Þar var alltaf opið hús fyrir alla og allir velkomnir. Bubba átti einnig stóran þátt í því. Þau hjónin voru mjög samhent og var svo með fjölskylduna alla. Það verður erfítt fyrir litlu Rakel að skilja að afi Ágúst er ekki lengur til staðar á Hringbrautinni. Ég harma það að hafa ekki feng- ið tækifæri til að fylgja honum síðustu ævisporin nema í fjarlægð. Ég kveð Ágúst með þessum orðum og þakka honum samfylgdina: Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir ljðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V.Jr.) Elsku Bubba. Við Rakel biðjum góðan Guð að styrkja þig og þína fjölskyldu í ykkar miklu sorg. ker heldur stendur hátt á ljósasti- kunni og lýsir fram í nóttina sem hábjartur dagur væri. Agnes Sigrún Þórðardóttir fæddist á Torfastöðum, Vestur- Húnavatnssýslu, 27. september 1947. Foreldrar hennar voru Þórð- ur Jónsson og Skarpheiður Gunn- laugsódttir. Agnes flutti til Akra- ness með foreldrum sínum 1948. Dóttir hennar er Anna, fædd 13. mars 1970. Mikið og gott samband höfðu þær mæðgur sín í milli og alla tíð var Agnesi mjög umhugað um velferð dóttur sinnar og taldi ekkert eftir sér í því efni og veit ég að það var gagnkvæmt. — Hinn slyngi sláttumaður hefur nú vegið í sama knérunn í hið annað sinn og það í einum og sama mánuðin- um. Hinn 19. janúar var faðir Agnesar til moldar borinn á Mel- stað í Miðfírði. Daginn áður fór kveðjuathöfn fram á Akranesi. Þennan sama dag sem kveðjuat- höfnin fór fram var Agnes flutt helsjúk í Sjúkrahús Akraness. Þeir sem til, sáu og vottuðu kom ekki fyril huganað hún kæmist tihvitund- .JJssJaéinním m •uió'iov tavöliM'n Eg var ung og óþroskuð, aðeins Valgerður Kristjánsdóttir Agnes S. Þórðar- dóttir - Minning Fædd 27. september 1947 Dáin 27. janúar 1991

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.