Morgunblaðið - 31.01.1991, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1991
4$
IÞROTTIR UNGLINGA / KARATE
Skúli Guðmundsson:
ÓlafurH. Hafsteinsson:
„Heftekið
miklum
framförum"
m
Eg er búinn að æfa í tvö ár
og fjóra mánuði og hef tekið
miklum framförum. Ég fékk
áhuga á íþróttinni eftir að hafa
séð karatemyndir og síðan hefur
hann aukist eftir _að ég bytjaði
að æfa,“ sagði Ólafur Halldór
Hafsteinsson sem náði að vinna
til silfurverðlauna í Kata unglinga Morgunbiaðið/KGA
fæddum 1976-7. Olafur Halldór náði silfri f kata.
Búin að æfa
íheiltár
Kristín Björnsdóttir, átta ára
tókst á við kataæfingar af
mikilli innlifun þegar blaðamann
og ljósmyndara Morgunblaðsins
bar að garði. „Ég er búin að æfa
í heilt ár og finnst mjög gaman."
- Áttu vini og vinkonur sem
æfa?
„Já, Ester vinkona mín er að
æfa en ég kynntist henni eftir að
ég byrjaði og svo er bróðir minn
líka að æfa en hann er mikið betri
en ég.“
- Eru foreldrar þinir ekki
hræddir um að þið verðið fyrir
meiðslum?
„Jú, þau segja það stundum en
þá segi ég bara við þau: „Nei,
nei, við meiðum okkur ekkert!“
Morgunblaðið/KGA
Kristín Björnsdóttir í kataæf-
ingum.
„Finn mig ágæt-
lega í karate“
Það verður að viðurkennast
að ég hafði vitlausar hug-
myndir um karate áður en ég
byijaði og karatemyndirnar höfðu
þar mikið að segja,“ sagði Skúii
Guðmundsson, sem keppir fyrir
Þórshamar í Áokki pilta sem eru
fæddir 1974-5. Hann komst úrslit
í kata og hópkata en féli út í
fyrstu umferð í kumite.
„Eftir að maður byijaði að æfa
sá maður að þetta snerist ekki
um slagsmál og þeir sem að halda _ _ Morgunbiaðið/júiíua
áfram gera það vegna áhugans á Skúll Guðmundsson komst í
fþróttinni, engu öðru. Ég var í úrslit 1 kata °g hópkata.
ix)ltaíþróttunum í gamia daga en náði aldrei neinum árangri þar, en
finn mig ágætlega í karate. Svo hefur maður iíka kynnst mjög mörg-
um á æfingum og það er engin spurning að ég ætla að halda áfram.“
íúrslit
íöllum
greinum
ÆT
Eg er búin að vinna fimm
'bardaga og kominn í úr-
slit,“ sagði Lárus Jónsson, 12
ára, eftir að hafa lagt einn kepp-
anda sinn að velii í kumite. Lár-
us, sem æfir með Baldri frá
Hvolsvelli, vegnaði mjög vel á
mótinu og hann komst í úrslitin
í öllum þremur greinunum, kum-
ite, kata og hópkata í aldurs-
flokknum 10-13 ára. Hann náði
þó ekki titli en fékk verðlaun
fyrir allar greinarnar, silfur fyr-
ir kumite og kata og brons fyrir
hópkata.
„Ég fékk áhuga á karate þeg-
ar ég sá karatesýningu á 17.
júní fyrir sex árum og stuttu
síðar dreif ég mig á æfingu og
sé ekki eftir því. Þetta er mjög
skemmtilegt, bæði kumite og
kata.“
Lárus Jónsson náði góðum árangri á mótinu og hér hefur hann betur í
viðureign í undanúrslitunum.
vonbrigðum með æfingarnar í Kata
þar sem mér gekk ekki nógu vel.“
„Ég var áður í handbolta og fim-
leikum en hef alfarið snúið mér að
karate og er búin að æfa það í þijú
og hálft ár. íþróttin hefur margt
til að bera; Góðan félagsskap og
sjálfsaga, því að þú þarft að æfa
mikið sjálf í kata til að ná árangri.
Það veitir líka visst öryggi að geta
varið sig. Því miður eru ekki nógu
margar stelpur sem æfa, ég er til
dæmis ein frá Breiðablik á þessu
móti.“
Fyrsti sigur Þorbjargar
orbjörg Tryggvadóttir, tíu ára
frá Karatedeild Baldurs frá
Hvolsvelli, gerði sér lítið fyrir og
vann í sínum flokki í Kata og skaut
þar með strákunum í flokknum aft-
ur fyrir sig.
„Þetta er fyrsti sigur minn á
karatemóti, ég átti eina medalíu
fyrir en það var brons. Ég er búin
að æfa í þijú ár og æfði vel fyrir
þetta mót. Bæði systkinin mín æfðu
og þess vegna ákvað ég að byija í
karate,'“ sagði Þorbjörg Tryggva-
dóttir.
Ekkert frekar
. strákaíþrótt
Laufey Einarsdóttir, Steingerður
Kristjánsdóttir og Fanney
Karlsdóttir voru saman í liði í hópk-
ata og komust í úrslit. „Það fer
mikill tími í æfingar en þetta er vel
þess virði. í hópkata þurfum við
að æfa vel og reyna að vera sam-
taka og svo reynum við hittast öðru
Fjölmennasta mótið
í karate frá upphafi
Unglingameistaramótið í kar-
ate var haldið síðastliðinn
sunnudag í íþróttahúsi Haga-
skólans og voru keppendur
fleiri en nokkru sinni.
Alls tóku 177 keppendur á aldr-
inum sjö til nítján ára þátt í
mótinu og komu þeir frá ellefu fé-
lögum. Þórshamar átti flesta sigur-
vegara annað árið í
Frosti röð en karatefólk frá
Eiðsson Stjörnunni, Breiða-
blik, Baldri og
Haukum eru einnig
með efnilega keppendur sem eiga
eftir að láta meira að sér kveða.
Greinilegt er að karate nýtur nú
skrifar
vaxandi fylgis á meðal ungu kyn-
slóðarinnar hér á landi en karate-
deildir félaganna hafa unnið gott
starf og kappkostað við að bjóða
færa erlenda þjálfara.
Á mótinu var keppt í þremur
greinum, kata, hópkata og kumite.
Kumite er bardagi á milli tveggja
andstæðinga og reynir hvor um sig
að beita mótheijann brögðum. I
kata er hins vegar einn keppandi
sem sýnir ýmis þrögð að eigin vali
og í hópkata eru það þrír keppend-
ur keppendur sem að sýna æfingar
sínar í einu. í þeirri grein er nauð-
synlegt að keppendur hafi mikla
samæfingu og geri sömu æfingar
á sama tíma.
Oddbjörg best í kumite
Oddbjörg Jónsdóttir úr Breiða-
blik varð hlutskörpust í eldri
flokki stúlkna í kumite, en hún sigr-
aði Laufeyju Einarsdóttir í úrslita-
viðuréign. „Ég er ánægð með ár-
angurinn í kumite en varð fyrir
hveiju utan æfinga.“
- Eru kvenmenn ekkert litnir
hornauga á æfingum?
„Nei, alls ekki. Það eru miklu
fleiri strákar í þessu en þetta er
samt ekkert frekar strákaíþrótt,“
sögðu þær stöllur sem æfa með
Þórshamri.
- En ertu ekki hræddur við
að meiða þig?
„Nei, þetta er ekkert hættu-
legt, því að þetta er hrein tækn-
iíþrótt. Það er þó alltaf mögu-
leiki að menn meiðist ef að þeir
hafa mjög litla tækni.“
Laufey Einarsdóttir, Fanney Karlsdóttir og Steingerður Kristjánsdóttir teygja sig fyrir átökin
í
Morgunblaðið/KGA
hópkata.