Morgunblaðið - 31.01.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANUAR 1991
19
ekkert með leikhús að gera. Ég
nefni bara Holland. Leikhúsið er
bara eitt birtingarform mannlegrar
reynslu. Hins vegar held ég að hið
ósættanlega sé það að leikhúsin
þurfa á svona stórum áhorfendahóp
að halda til að hægt sé að reka þau
sem atvinnuleikhús. Þess vegna
getum við ekki búist við því að allur
sá hópur sem. við þurfum að fá í
leikhúsið, líti á leikhúsið sem þann
stað er hann sækir til hin þýðingar-
meiri verðmæti.
íslensk leikritun og
samtíminn?
Sp.: Hvernig metur þú leikritun
hér í samahburði við aðrar listgrein-
ar? Hvað um nýsköpun og nýja
hugsun?
Kjartan: Ég held að leikhúsið
hafi að mörgu leyti sterkari stöðu
gagnvart öllum almenningi en aðrar
listgreinar, en það er þyngra í vöfum
í allri nýsköpun. Þar ræður mestu
um formið og svo hversu mikið bákn
stjórnun þess er. Fyrir mér er leik-
húsið staður þar sem nýsköpunin
fer hægt í gegnum. Það liggur
beinna við og er léttara að koma
nýrri reynslu í gegn í formum sem
eru smærri og léttari í eðli sínu.
Sp.: Hvað segir það um mat á
íslenskri leikritun að Borgarleikhús-
ið er opnað með 2 leikgerðum á
skáldsögu, en ekki með nýjum leik-
ritum?
Kjartan: Það segir ekki allt. Á
sama leikári voru færð upp 3 önnur
verk sem voru allt ný íslensk
frumsmíði. Ég held að það segi allt
um matið á leikrituninni. En það
voru færðar upp leikgerðir, það snýr
fyrst og fremst að því að okkur
þótti alveg nauðsynlegt að við opnun
á nýju íslensku leikhúsi, sem gerist
kannski bara tvisvar á þessari öld,
að þá yrði risinn í íslensku menning-
arlífi — Halldór Laxness — þar í
öndvegi.
Heldur leikhúsið vöku sinni?
Sp.: Heldur leikhúsið vöku sinni
eða hefur; púðrið blotnað?
Kjartan: Á meðan við erum
hrædd um að leikhúsið sé að gleyma
sér, þá hefur púðrið ekki blotnað.
Um leið og við erum orðin ánægð
með það sem við erum að gera þá
erum við á mjög alvarlegri braut.
Halldór Laxness sagði einu sinni:
Listamaður verður ævinlega og allt-
af að vera að leita að púðrinu, en
guð hjálpi honum .ef hann finnur
það.
Sp.: í hvers þágu er leikhúsið?
Kjartan: Listin verður alltaf að
vera í þágu listamannsins sjálfs. En
öll listsköpun er form af samtali
þannig að það sem þú segir er allt-
af fyrir þann sem þú ert að tala
við. Það er mótað af því hver hans
heimur er. Ég tala öðruvísi við þig
um leikhús heldur en við son minn
eða við mann sem hefur starfað í
finnsku leikhúsi. En samt er ég allt-
af fyrst og fremst að taia við sjálfan
mig þegar ég tala. Listamaðurinn
er að vinna með sjálfan sig þegar
hann er að skapa.
Sp.: Hvað er æðsta valdið í leik-
húsinu?
Kjartan: Við höldum að það séu
áhorfendur, en það ætti að vera við.
Listin. Þetta samtal. Styrkur leik-
listarinnar er sambandið við áhoitf-
andann og heiðarleiki í því sam-
bandi.
Viðtal: Guðmundur Steinsson
og Sigrún Valbergsdóttir
★ Pitney Bowes
Frímerkjavélar og stimpilvélar
Vélar til póstpökkunar o. fl.
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 • 105 Reykjavík
Símar 624631 7 624699
Léleg aflabrögð ög magur
fiskur á Vestfjarðamiðum:
Þorskurinn finnur
oft ekki loðnuna
- segir Jakob Jakobsson
„VIÐ erum búnir að vera í þrjár vikur hér út af Vestfjörðum og
aflabrögðin hafa verið hörmuleg;“ sagði Guðjón Ebbi Sigtryggs-
son, skipstjóri á frystitogaranum Orvari, á þriðjudag. „Menn kvört-
uðu undan óskaplega miklu tregfiski í allt haust en samt var aflinn
í desember mjög mikill,“ sagði Jakob Jakobsson forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar. Eitthvað hefur fundist af loðnu út af Vestfjörðum
en Guðjón Ebbi sagði að þorskurinn virtist ekki vera í henni. Jak-
ob sagði að oft hafi komið fyrir að þorskurinn fyndi ekki loðnuna.
„Menn voru. að kvarta undan Guðjón Ebbi sagði ástandið á
því í sumar að þorskurinn fyndi Vestfjarðamiðum óeðlilegt: „Það
ekki loðnu, sem var við Víkurál-
inn,“ sagði Jakob Jakobsson.
Guðjón Ebbi Sigtryggsson segir
að þorskurinn á Vestfjarðamiðum
sé nú óvenju magur og það eigi
einkum við um þorsk á Kögur-
grunni og Strandagrunni. Annars
staðar virðist þorskurinn betri, það
litla, sem sé af honum. „Þorskur
í utanverðum Faxaflóa var troð-
fullur af smásíld fyrr í þessum
mánuði, þannig að þetta getur
verið misjafnt," sagði Jakob Jak-
obsson.
er svo skrýtið að hér er smáfiskur
á 200-250 faðma dýpi alla leið
vestur undir Víkurál. Við munum
ekki eftir að hafa séð það áður.
Kannski þetta sé Grænlandsþorsk-
urinn? Ég hef haft spurnir af einum
merktum Grænlandsþorski í Hún-
aflóa,“ sagði Guðjón Ebbi. Jakob
Jakobsson sagði að fundist hefði
merktur Grænlandsþorskur í
síðustu viku en búast megi við að
þorskur gangi hingað til hrygning-
ar frá Grænlandi aðallega í mars
til maí.
Leiklistarþing á laugardag
leiklist. Hvar á að byrja? Sverrir
Ólafsson framkvæmdastjóri fjár-
mála og stjórnunarsviðs IBM: Leik-
húsið og einkafjármagnið. Svigrúm
og fjötrar? Tinna Gunnlaugsdóttir
leikari: Hvaða kröfu á áhorfandinn
á hendur leikhúsinu? Páll Baldvin
Baldvinsson leikhúsfræðiftgur:
Hvað er listræn stefna?
Þinglok verða kl. 18.00. Þátt-
tökugjald 600 kr. sem greiðist við
innganginn.
(Fréttatilkyiining)
LEIKLISTARSAMBAND Islands
efnir til leiklistarþings laugar-
daginn 2. febrúar í Hótel Lind,
Rauðarárstíg 18, kl. 9.30.
Framsögumenn verða: Guð-
mundur Steinsson leikskáld: Hvert
er erindi leiklistarinnar við sam-
tímann? Ása Hlin Svavarsdóttir
leikari: Hvaða hlutverki þjóna
frjálsir leikhópar? Gunnar Árnason
heimspekingur: Hlutverk listarinn-
ar í daglegu lífi fólks. Bára Lyng-
dal Magnúsdóttir leikari: Börn og
Hádegisverður á Hótel Holti
Á Hótel Holti verður áfram tilboð í hádeginu, sem
samanstendur af forrétti, aðalrétti og eftirrétti, sem
hver og einn velur af seðli dagsins.
HOLTSVA GNINN
Holtsvagninn er kominn aftur.
Úr honum bjóðum við heilsteiktan svínahrygg
með puru, ásamt forrétti og eftirrétti.
Verðkr.995,-
Forréttur, aðalréttur og eftirréttur á
viðráðanlegu verði, án þess að slakað sé á í gæðum.
m
Bergstaðastræti 37, Sími 91-25700
CHATEAUX.
■ BÓKAMARKADUR ARNAR OG ÖRLYCS • BÓKAMARKAÐUR ARNAR OG ÓRLYGS • BÓKAMARKAÐUR ARNAR OC ÓRLYCS
S9A1UO OO M VNBVU O qVMMVWVKO8 • S9A1UQ OO MVNMV MnOVMMVWVMQB • SOATMQ OO MVNMV MnOVMMVWVMQ 8 ■