Morgunblaðið - 31.01.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1991
17
trauðla verður séð hvernig við ís-
lendingar ætlum að ná okkur uppúr
núverandi öldudal, eða halda í við
efnahagslega þróun í nágranna-
löndum okkar, ef ekki verður gjör-
breyting hér á.
III.
Þrátt fyrir glæsileika á yfirborð-
inu þá hafa stoðir íslensks efna-
hagslífs fúnað undanfarna áratugi.
Stöðnun hefur einkennt allt hag-
kerfið. Tekjur launafólks hafa stað-
ið í stað eða dregist saman. Skuld-
setning atvinnulífsins hefur aukist.
Hagvöxtur hefur staðið í stað.
Engin greinileg sóknarfæri eru
sjáanleg í atvinnulífinu, ef horft er
framhjá stóriðjuframkvæmdum.
Kvótakerfið mun færa til fjármuni
og völd innan sjávarútvegsins á
næstu 2-3 árum í meira mæli en
dæmi eru um.
Gera má ráð fyrir að þetta muni
bæta stöðu greinarinnar þótt margt
geti breytt þeim tilgátum. Heildar-
afli mun þó nær örugglega dragast
saman.
Þeir brestir sem sjáanlegir eru í
íslensku atvinnulífi eru alvarlegir
en ekki ólæknandi. Orsakir þessara
bresta eru almenns eðlis og má
rekja þá til tveggja langvarandi
sjúkdóma sem íslenskt efnahagslíf
hefur þjáðst af. Annarsvegar var
það verðbólgan sem heijaði á at-
vinnulífið í aldarijórðung, hinsvegar
byggðastefnan sem enn er í fullu
fjöri.
Ekki ætla ég að gera verðbólg-
unni skil hér. Það verður að bíða
betri tíma. Báðir þessir sjúkdómar,
sem ég kýs að nefna svo, þótt ann-
ar sé ómeðvituð afleiðing rangra
ákvarðana en hitt yfirlýst pólitísk
stefna, hafa valdið alvarlegri skaða
á íslensku efnahagslífi en nokkur
önnur efnahagsleg eða pólitísk ólög
sem á okkur hafa dunið.
Við verðbólguna mátti glíma.
Með pólitískum vilja mátti ganga
milli bols og höfuðs á henni.
Þetta var ekki hægt með byggða-
stefnuna, því hún var sjálf pólitísk
stefna þriggja stjórnmálaflokka.
Aðeins Alþýðuflokkurinn stóð einn
utan þessarar samstöðu dreifbýlis-
flokkanna.
Verðbólgan og byggðastefnan
skekktu eðlileg hlutföll í hagkerfinu
og nánast allar viðmiðanir. Póli-
tískar fyrirskipanir leiddu til efna-
hagslega rangra ákvarðana. Skila-
boðin sem bárust atvinnulífinu voru
því misvísandi og niðurstöður urðu
þar af leiðandi rangar.
Viðbrögð við þessum skekkjum
sem mynduðust í hagkerfinu voru
með þeim hætti, að í stað þess að
glíma við vandann, var reynt að
laga efnahagslífið að skekkjunum.
Sjúkdóm sem sjálfur var stefna var
ekki hægt að lækna. Hagkerfið var
sett í spennitreyju sem sniðin var
að „þörfum“ verðbólgunnar og
byggðastefnunnar.
Það var ekki fyrr en peninga-
kerfi þjóðarinnar var að brotna nið-
ur að tekin var upp verðtrygging
ijárskuldbindinga, eftir að verð-
trygging hafði verið í mörg ár á
flestum öðrum efnahagsþáttum.
Með Ólafslögum 1979 urðu mikil
umskipti til hins betra, þótt þar
hefði ýmislegt mátt betur fara. Þá
fyrst var fyrir einhveija alvöru far-
ið að takast á við verðbólguna.
Pólitískan heiður þeirrar lagasetn-
ingar má ekki hvað síst þakka Vil-
mundi heitnum Gylfasyni og Al-
þýðuflokknum.
Ekki var hinsvegar hróflað við
þeim miklu skekkjum sem byggða-
stefnan leiddi yfir okkur, enda ekki
hægt um vik því skekkjan sjálf var
pólitísk stefna.
Því er það svo, að nú þegar verð-
bólgan er orðin viðráðanleg þá er
það núverandi byggðastefna sem
er mesti skekkjuvaldurinn í íslensku
efnahagslífi, og þá gleymi ég hvorki
kvótakerfinu né landbúnaðarstefn-
unni, enda hvort tveggja meiður af
því fyrrnefnda.
Höfundur er hagfræðingur.
... plastkassar
sem þjóna þér
í öllum greinum
atvinnulífsins
viðurkennd gæbaframleibsla frá
PERSTORP FORM
HGEIRI
Skeifan 13 -108 Reykjavík Simi: 91-679355
EINSTAKT TILBOÐ!
ALLTAÐ
AFSLÁTTUR
Lítið
útlitsgallaðir
fataskápar
með miklum
afslætti.
Seljum næstu
tiaga skápa og
húsgögná
stórlækkuðu
verði.
Landsbyggðarþjónusta:
Tökum við símapöntunum og
sentium um land allt
VISA
Opið: 9-18 virka tiaga
10-16 laugardaga
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR
Dæmi um einstök tilboð:
Áður NÚ
Bókahillur: b. 50 h. 160 cm -MOfrr 2.900,-
b. 90 h. 150 cm 44rB00r- 4.290,-
Hjónarúm -MMOr 23.000,-
Svefnbekkur -4é,W0r 11.500,-
Einstaklingsrúm J42M0-,- 9.900,-
Vegghilla -9M9^ 4.950,-
Hringborð 130 x 130 cm -25.560^ 7.660,-
Fataskápur 80 x 210 cm -25r79h- 16.546,-
BaOskápur 40 x 210 cm -22r2Ur 11.500,-
AXIS
AXIS HÚSGÖGN HF.
SMIÐJUVEGI9, KÓPAVOGI
SÍMI: 43500