Morgunblaðið - 31.01.1991, Blaðsíða 39
39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1991
Mirming:
Kjartan Björnsson
fv. stöðvarsijóri
Fæddur 5. febrúar 1918
Dáinn 17. janúar 1991
Við þráum öll hamingju en ham-
ingjan kemur ekki til okkar. Það
er til einskis að sitja aðgerðarlaus
og bíða hennar eins og óvæntrar
heimsóknar. Hún knýr ekki dyra.
Hún er ennþá síður falinn fjársjóð-
ur sem við getum höndlað ef við
förum nógu langt, leitum nógu
víða, gröfum nógu djúpt. Hamingj-
an verður hvergi sótt. Þeir sem
bíða hennar eða reyna að elta hana
uppi fara á mis við hana. Þeir
kunna að eiga sínar gleðistundir
en líf þeirra tekur ekki á sig það
form sem er áskapað sannri ham-
ingju.
Lífshlaup Kjartans var bundið
þessu formi. Hann hafði þrek og
vilja til að stjórna lífi sínu sjálfur,
vera gerandinn í lífi sínu, og hann
hafði ennfremur til að bera gáfur,
hófstillingu og rósemi til að leiða
það til farsældar. Kjartan beið
hvorki né leitaði hamingjunnar,
hann skapaði hana.
Eitt af því marga sem hann tók
sér fyrir hendur um ævina voru
smíðar og margvíslegur hagleikur.
Hann gerði listileg leikföng, vél-
knúinn bát, reisti sér hús og sól-
stofu. Hann gekk hægt og örugg-
lega til verka, af skipulagni og
með alúð og hugviti. Hann var
sístarfandi en yfir iðju hans var
rósemi. Vinnuferlið virtist bundið
náttúrulegum takti, hlutirnir urðu
til atakalaust, hægt og sígandi.
í þessu endurspeglaðist líf hans:
Það hafði sömu megin einkenni og
góð list, vel unnin verk og náttúru-
leg ferli: það er heildin sem hrífur
skoðandann og allt er undir sam-
ræminu komið, engu ofaukið og
ekkert vantar. Verkin lofuðu
meistarann þegar Kjartan átti i
hlut og vinir og vandamenn dáðust
að handbragðinu. Nú horfa þeir á
líf hans sem streymir um hugann
í björtum myndum og kenna aftur
þetta handbragð, þeim verður ljós-
ari en nokkru sinni fyrr þessi fá-
gæta listasmíð sem hann gerði úr
lífi sínu.
Hanniifði í ástsælu hjónabandi
með Jónínu konu sinni og eignað-
ist með henni fimm mannvænleg
og farsæl börn. Hann sinnti starfi
sínu sem stöðvarstjóri Pósts og
síma á Vopnafirði af alúð og sam-
viskusemi en hafði samt nægan
tíma í tómstundir og samfundi með
vinum og fjölskyldu. Hann átti
gott bókasafn og var víðlesinn í
mörgum greinum. Öllum leið vel í
návist hans. Hann kenndi án orða:
Aldrei heyrði ég hann leggja fólki
lífsreglurnar eða finna að háttum
annarra 'en dygðirnar sem hann
var prýddur lýstu svo af honum í
verki og látlausu fasi að þær
kenndu meira en nokkur orðræða.
Hann kenndi með ómeðvituðu for-
dæmi, af hógværð og hlýju.
Hann veiktist á síðasta ári og
lést eftir um hálfs árs sjúkralegu.
Síðustu vikurnar var hann um-
kringdur ástvinum sínum. Á þess-
um sorgarstundum upplifði hann
þrátt fyrir allt það sem er hið eina
kennimark sannrar hamingju:
Hann horfði til baka yfir lífshlaup
sitt og sá að það var gott. Hann
gat verið sáttur við vegferð sína.
I því liggur hin raunverulega ham-
ingja sem aldrei verður véfengd
og eftir stendur þegar menn hafa
greint hvort frá öðru, hverfula
ánægju og sannleikann í þessu
efni.
Um leið og ég kveð hann með
söknuði, þakka ég þær stundir sem
ég deili með honum og ekki síður
þakka ég öll þau augnablik sem
hann á eftir að birtast í huga mér
hér eftir og gefa hversdagsleikan-
um nýjan lit í vitund minni.
Ágúst Borgþór Sverrisson
ar þessa heims. En þá er eldaði
að morgni þess dags er kveðjuat-
höfn um föður hennar skyldi fara
frafn mátti sjá uppfyllingu þess
kraftaverks sem jafnan hefur sætt
undrun í bók bókanna, frásögn
Bibiíunnar af Lazarusi, og gat nú
hver og einn sannreýnt þessa frá-
sögn bókstaflega. Þennan dag tók
Agnes á móti gestum frá morgni
til kvölds. — Hugrekki Agnesar
gagnvart sjúkdómi sínum og
æðruleysi verður mér minnisstætt.
Árið 1990 hafði um margt gefið
fögur fyrirheit um nýja og betri
tima. Agnes vissi hug sinn og var
þess albúin að takast á_ við verk-
efni morgundagsins. Á þessum
dögum sá ég æ betur hversu mjög
hún líktist ömmu sinni, Soffíu
Jensdóttur, — friðurinn, mildin,
hlýleikinn. — Að leiðarlokum eru
það margir sem eiga þakkir skild-
ar. Aldeilis gleymdi hún ekki
frænku sinni hún Sigrún Hrólfs-
dóttir og sameiginlegur vinur okk-
ar Dagbjartur Guðjónsson sýndi
hug sinn í orði og verki. Einnig
mat hún mikils heimsóknir Hafliða
Kristinssonar. Sérstakar þakkir
eiga skildar Guðjón Guðmundsson
læknir og starfsfólk á Sjúkrahúsi
Akraness sem svo sannarlega
hlúði að Agnesi nú sem fyrr. — í
opinberunarbókinni segir í 21.
kapítula: „Og ég sá nýjan himin
og nýja jörð.“ Flestir kannast'við
ívitnað vers og þá framtíðarsýn
er þar birtist. Skáldið Matthías
Johannessen skrifar i þessum
anda. Og enn skal vitnað í ljóðið
Nýársdagur og um leið og ég kveð
Agnesi og þakka óijúfanlega sam-
fylgd geri ég orð skáldsins að
mínum:
En svo ris aftur sól við nyrstu voga,
af svefni vaknar morgunn, augun loga
af nýjum degi er brennur þér í blóði:
hann ber þér kveðju Guðs og sína i hljóði.
Guðni Björgólfsson
HÆTTU AÐ REYKJA
GRENNAST
MEÐ DALEIÐSLU GETUR ÞU:
• Hætt að reykja
• Losnað við matarfíkn
• Aukið sjálfstraust
• Bætt minnið,
einbeitningu
og lærdómsvenjur
Við ábyrg.jumst
örugga og faglega
þjónustu.
HÆTTU AÐ REYKJA Þrír tímar
+ sjálfsdáleiðslusnælda. Kr. 7.500
GRENNAST Þrír tímar +
sjálfsdáleiðslusnælda. Kr. 7.500
HÆTTU AÐ REYKJA! Námskeið byrjar 12. febrúar og stendur það yfir í þrjár
vikur (tvisvar í viku) þrír tímar í senn, tvær sjálfsdáleiðslusnældur innifaldar.
Verð kr. 7.500 með öllu.
LIFSAFL
AMERICAN GITLD OF HYPNOTHERAPISTS
199
tngoodsbnlmgandBaa*ialk>aUtrpniticgn
T0LVUFAX
NÚ GETA ALLIR* SENT 0G MÓTTEKIÐ TELEFAXSKJ0L
Lítið, ódýrt og einfalt „FaxModem“ sambyggt telefax og Modem fyrir allar tegundir tölva*
• Þú sendir Fax beint af skjánum til viðtakanda og
færð Fax-sendingar beint á skjáinn eða í minni
og prentar síðan út á venjulegan pappír.
• FaxModem gefur þér samband við gagnabanka
og gagnanet Pósts og síma.
• Hægt er að senda sama skjalið á marga
staði með fjölsendingu.
• Innbyggð símaskrá.
• Allar valmyndir á íslensku.
• Gæði sendinga eru meiri þar sem skjal er sent
út milliliðalaust.
*(IBM PC/XT/AT/ TÖLVUR)
Heimilistæki hf
Tæknideild, Sætúni 8 SÍMI6915 00
SCUtUUKgUM,
34580.
Skilafrestur
bifreiðahlunnindamiða
framlengdur til
25. febrúar nk.
Ákveðið hefur verið að framlengja áður
auglýstan frest til þess að skila bifreiða-
hlunnindamiðum, samkvæmt 93. grein
laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignar-
skatt, til 25. febrúar nk.
RSK
RtKISSKATTSTJÓRL