Morgunblaðið - 31.01.1991, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 31.01.1991, Blaðsíða 20
20 ' M0RCíUNBLAÐIÐ ÉlMMTÍ'DAÓUR'iD. JANÖÁR 1§9Í .)i; Jarðskjálfti með upptök í Skjaldbreiði: 100 km Biiftardalur 60 km laugarvaln REVKJAVÍK JOOkm Veatmarmaeyjar 120 km Eins og Þingvallabær- inn réri fram í gráðið - segir séra Heimir Steinsson þjóðgarðsvörður Próftónleikar í Háskólabíói Einleikarar með Sinfóníuhyómsveit íslands. Frá vinstri: Sif Tuli- nius, fiðla, Sigfurbjörn Bernharðsson, fiðla, Arinbjörn Árnason, píanó og Sigurjón Halldórsson, klarinett. mundir sextíu ára afmæli. Framundan er fjöldi tónleika með Hljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík ásamt einleikurum í Há- skólabíói og í apríl og maí verður röð tónleika í íslensku óperunni þar sem hinir ungu einleikarar halda sjálfstæða tónleika. JARÐSKJÁLFTI sem mældist 4,6-4,8 á Richter-kvarða sem átti upptök sín í suðurhlíðum Skjald- breiðar reið yfir stórt svæði á suðvesturhluta landsins þegar klukkuna vantaði stundarfjórð- ung í átta í gærmorgun og varð fólk hans vart allt frá Vík í Mýr- dal í austri og Búðardals i vestri. Kippurinn fannst einnig í Reykjavík, Reykjanesi og í Vest- mannaeyjum. Annar smærri skjálfti, um 3,5 á Richter sigldi í kjölfar hins fyrri og um 300 eftirskjálftar komu fram á mæl- um Veðurstofunnar í gær. Ekki er vitað til að neinar skemmdir hafi orðið af völdum skjálftanna. Benjamín Halldórsson húsvörður í Menntaskólanum á Laugarvatni, sem hefur búið alla sína tíð á Laug- arvatni, kvaðst ekki hafa fundið sterkari jarðskjálfta síðustu 30 ár. Upptök skjálftans eru í aðeins 20 km fjarlægð frá Laugarvatni. Kári Jónsson, kennari í sama skóla, tók undir þau orð að skjálftinn hefði verið harður. „í fyrstu heyrðum við háan hvin og síðan nötraði allt hús- ið. Þetta ágerðist og varð ansi hark- alegt en þetta stóð ekki yfir nema í örfáar sékúndur. Það var eins og einhver tæki óþyrmilega í húsgarm- inn,“ sagði Kári. Hann sagði að heimilisfólkið hefði verið að fara á fætur þegar skjálftinn reið yfir. Hann sagði að eldingu hefði slegið niður um leið og skjálftinn reið yfír og urðu smávegis truflanir á raf- magni við það. Hann hafði heyrt að hrunið hefði úr hillum og mynd- ir dottið af veggjum hjá sveitungum sínum en það virtist mjög fara eftir staðsetningu og jafnvel undirlagi húsa. í kaupfélaginu á Laugarvatni hrundi dósastæða og glös brotnuðu í heimahúsum þegar þau féllu af borðum. Bylgjugangxir Séra Heimir Steinsson þjóðgarðs- Ragnar Stefánsson jarðeðlis- fræðingur við strimil úr jarð- skjálftamæli sem sýnir jarð- skjálftann í gærmorgun. Einar H. Einarsson með mælinn í svefnherbergi sínu. Sá skjálftann á mælin- um í svefnherberginu EINAR H. Einarsson, fyrrum bóndi að Skammdalshóli Mýrdal, hefur um langt árabil haft umsjón með einum jarðskjálftamæla Veðurstof- unnar. Hann býr nú á dvalarheimili aldraðra að Hjallatúni í Vík en hefur mælinnn sér við hlið í svefnherberginu. Einar er mikill áhugamaður um náttúrufræði og hefur skrifið grein- ar um hugðarefni sín. „Skjálftinn kom heldur betur fram á. mælin- um,“ sagði Einar. „Mælirinn flaut- aði rétt um kl. 8, skjálftinn er leng- ur á leiðinni hingað. Þetta var skjáifti upp á um fímm stig sem er æði hressilegur skjálfti," sagði Einar. Hann sagði að margir aðrir skjálftar hefðu komið fram á mæl- inum eftir þann stóra, jafnvel tug- ir. „Það var frostleysa og einhver krabbaljós á himni. Ég heyrði þó engar skruggur. Nálægt 1960 reið önnur ansi mikil hrina sem fannst vel á Laugarvatni, en þá voru upp- tökin norðantil i Skjaldbreið. Þá held ég að sigið hafí orðið til á Þing- völlum. Ég reikna með að það geti hafa orðið eitthvað sig þar núna,“ sagði Einar. Tónlistarskólinn í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveit íslands halda tónleika í Háskólabiói í kvöld, fimmtudaginn 31. janúar, og hefjast þeir kl. 20.00. Tónleik- ar þessir eru fyrri hluti einleik- araprófa fjögurra nemenda sem útskrifast munu frá skólanum í vor. Á efnisskrá tónleikanna er Kon- sert fyrir klarinett og hljómsveit op. 57 eftir C. Nielsen, einleikari Sigur- jón Halldórsson, Fiðlukonsert op. 47 í d-moll eftir Sibelius, einleikari Sigurbjörn Bernharðsson, Fiðlukon- sert í a-moll op. 53 eftir Dvorák, einleikari Sif Tulinius, og Píanókon- sert nr. 1 í Es-dúr eftir Liszt, ein- leikari Arinbjörn Ámason. Stjórn- andi er Bemharður St. Wilkinson. Aðgöngumiðar verða seldir við inn- ganginn. Tónlistarskólinn í Reykjavík út- skrifar á þessum vetri 10 einleik- ara, sem er mesti fjöldi einleikara á einum vetri frá því skólinn tók til starfa, en hann á um þessar 120km Stærsti skjálftinn í Skjaldbreiði í hrinunni í gær- morgun var 4,6- 4,8% á Richter. Annar skjálfti, 3,5 stig, kom réttáeftir. ( "] Svæöi þar sem vænta má aö vægir skjátftar eigl upptök __ \ v. J Svæöi þar sem vænta má aö sterkir skjálftar eigi upptök vörður á Þingvöllum sagði að skjálftans hefði orðið vel vart á Þingvallasvæðinu. Hann var ný- kominn frá ráðherrabústaðnum og kirkjunni en hafði ekki orðið var við neinar skemmdir á húsum eða munum. „Ég hef einu sinni áður lent í jarðskjálfta svo ég hafí tekið eftir honum og það var í Reykjavík. Verkaði hann á mig eins og högg undir fætur. Þetta var nú ekkert þvílíkt, ég fór eiginlega að brosa með sjáifum mér og segja að það væri líkast því sem Þingvallabærinn réri fram í gráðið. Bærinn hreyfðist að því er mér fannst en það hrundi ekkkert úr hillum. Þetta var fremur eins og bylgjugangur en högg,“ . sagði Heimir. Hann kvaðst hafa séð eldgæringu á himni skömmu eftir • skjálftann. Auknar líkur á frek- ari j arð hræringnm -segir Ragnar Stefánsson jarðeðlisfræðingnr RAGNAR Stefánsson, jarðeðlisfræðingur, segir að jarðskjálftinn í Skjaldbreiði auki heldur líkurnar á frekari jarðhræringum næstu daga. Ragnar telur líklegt að Heklugosið hafi orsakað þessar jarð- hræringar. Síðast varð vart við jarðskjálfta af svipaðri stærð sem átti upptök sín á sömu slóðum 1936, eða fyrir 51 ári. Hann sagði að eldingar í kjölfar skjálftans, sem margir urðu varir við, tengdust á engan hátt jarðskjálftanum. Ragnar sagði að skjálftavirkni hefði verið í allan vetur í Skjald- breið en þó ekkert meiri en sést hefði fyrr á árum. Skjálftavirknin þar hefði hins vegar aukist í kjölfar Heklugossins. Hann sagði að upphaf þessara hræringa núna hefði verið um kl. fimm aðfararnótt miðviku- dagsins þegar skjálfti mældist sunn- anvert í Skjaldbreið 3,5 á Richter. Það. hefði komið í ljós þegar menn mættu til vinnu sinnar í Veðurstof- unni. „Um þessar mundir virðist ríða spennusveifla yfír þetta svæði sem kemur fram í Heklugosinu og þess- um jarðskjálftum. Allir slíkir atburð- ir ýta undir líkur á öðrum atburðum á þessu svæði, en þess að við höfum séð nokkur merki þess að stór Suður- landsskjálfti sé í nánd. Þessir atburð- ir sem gerðust við Heklu breyta spennuástandinu á svæðinu og þá getur það gerst næst að spenna sem er komin að því að bresta leysist úr læðingi. Það er ekki hægt að segja að Heklugosið valdi þessum skjálft- um en þær spennubreytingar sem verða við gosið ýta undir að þetta leysist úr læðingi. Það er því nokkur aukning á líkum á því að eitthvað meira gerist án þess að nokkru sé hægt að spá fyrir um það. Ragnar sagði að jarðskjálfti með upptök á svipuðu svæði í Skjaldbreið sem náði nálægt 6 stigum á Richter séu þekktir frá síðustu öld, eða 1868. Morgunblaðið/Kári Jónsson Hópur nemenda í Menntaskólanum á Laugarvatni við mæli sem þar er staðsettur. Stöðugur órói var á mælinum í gær. Morgunblaðið/Rax

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.