Morgunblaðið - 20.02.1991, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRUAR 1991
35
Þegar Omar Sliarif hitti ís-
lenska hryðjuverkamanninn
_________Brids__________
GuðmundurSv. Hermannsson
íslandsheimsókn Omars
Sharifs á örugglega eftir að
verða honum minnisstæð. Hann
vann Flugleiðamótið í sveita-
keppni, en þrátt fyrir að hann
taki þátt í fjölda bridsmóta
vinnur hann þau sjaldan. Þá
smakkaði hann kæstan hakarl
og fryst brennivín hjá Úlfari
Eysteinssyni veitingamanni og
lifði það af. Og loks spilaði
hann heilan tvímenning við Jón
Baldursson.
„Jón spilar ekki brids heldur
fremur hryðjuverk,“ sagði Sharif
þegar hann lýsti þessari reynslu
sinni. „Ef hann gæti bara sagt
pass einstöku sinnum. Hann opn-
ar á 2 spöðum með ásinn fimmta.
Þetta eru hryðjuverka 2 spaðari"
„Ég átti nú ás, gosa, tíu fimmtu,"
mótmælti Jón og þá glotti Sharif
enda var honum varla eins leitt
og hann lét. Því sjálfur spilar
hann fast ef svo ber undir og á
þessu umrædda spili græddu þeir
félagar vel.
N/NS
Norður
♦ 953
¥G74
♦ KG10
♦ KG5
Vestur Austur
♦ KD8 ♦ ÁG1072
¥ K983 ¥2
♦ 84 ♦ 9632
♦ D532 ♦ 1098
Suður
♦ 64
¥ ÁD1065
♦ ÁD7
♦ Á64
tíunni og nú var Sharif kominn
með 2 trompslagi.
Sharif lét vel af verunni hér
og Bridshátíð og hafði sérstaklega
orð á því hvað andrúmsloftið í
spilasalnum væri afslappað. Spil-
arar leyfðu sér að brosa og jafn-
vel hlæja en slíkt sæist varla í
svipuðum mótum í Evrópu þar
sem samkeppnin er miklu meiri.
Þegar Helgi Jóhannsson forseti
Bridgesambandsins sagði Sharif
frá því að íslendingar vildu fá að
halda heimsmeistaramót í brids
1995, fannst honurn það strax hin
besta hugmynd og hét því að tala
máli okkar við æðstu menn Al-
þjóðabridgesambandsins.
Oruggur sigur
fjölþjóðaliðsins
Sveit Zia Mahmood, með þá
Omar Sharif, Paul Chemla og
Schmuel Lev innanborðs, vann
Flugleiðamótið í sveitakeppni
nokkuð örugglega, vann 9 leiki
Morgunblaðið/Arnór
Fjölþjóðaliðið ber saman. Þeir Lev, Sharif, Chemla og Zia eru
frekar daufir í dálkinn enda var þessi mynd tekin eftir eina tap-
leik þeirra í Flugleiðamótinu.
Austurríska sveitin varð í 2. sæti á Flugleiðamótinu. Frá vinstri eru Wolfgang Meinl, Heinrik Ber-
ger, Franz Terraneo og Alfred Kadlek.
Jón og Sharif voru að spila við
Aðalstein Jörgensen og Helga
Jóhannsson og eftir pass í norður
opnaði Jón á 2 spöðum veikum.
Aðalsteinn sagði 3 hjörtu, Sharif
3 spaða og Helgi 4 hjörtu sem
voru pössuð út.
Omar spilaði út spaðakóng og
drottningu og Jón yfirdrap með
ás og spilaði spaðagosa. Aðal-
steinn hefur sjálfsagt haft illan
bifur á opnun Jóns, þar sem þeir
spila venjulega saman, en hann
taldi samt líklegra að spaðinn
lægi 6-2. Hann trompaði því með
af 10 og flesta stórt. Þó fengu
þeir einn stóran skell, þegar þeir
töpuðu 6-24 fyrir sveit Sameind-
ar, sem skipuð var Hjalta Elías-
syni, Eiríki Hjaltasyni, Hrannari
Erlingssyni, Páli Hjaltasyni og
Oddi Hjaltasyni. Sú sveit átti góða
möguleika á 3. sæti en tapaði
síðasta leiknum og endaði í 5.-6.
sæti. Austurríkismennirnir Ter-
raneo, Kadlek, Berger og Meinl
voru í öruggu 2. sæti en sveit
Landsbréfa hirti 3. sætið með
stórum sigri í síðustu umferð. Þá
sveit skipa Aðalsteinn Jörgensen,
Jón Baldursson, Sigurður Vil-
hjálmsson, Rúnar Magnússon, Jón
Þorvarðarson og Magnús Olafs-
son.
Sigursveitin er skipuð Pakist-
ana, Egypta, Israelsmanni og
Frakka, sannkallað fjölþjóðalið.
Zia sagði við verðlaunaafhending-
una, að brids væri eina íþróttin
þar sem menn af þessum þjóðern-
um gætu verið saman í liði, og
ísland væri eina landið þar sem
slíkt væri hægt.
Röð efstu sveita varð þessi: Zia
Mahmood 205,. Austria 192,
Landsbréf 178, Polowan 177,
Sameind 174, Björgvin Þorsteins-
son 174, Hótel Esja 170, Mats
Kröjgaard 168, S. Ármann Magn-
ússon 167, Tryggingarmiðstöðin
163, Bifreiðatryggingar 162, Ib
Lundby 162.
Svefnlausir næturverðir
Það er nokkur huggun okkur
venjulegum spilurum, að þeir
bestu geta á stundum líka spilað
eins og svefnlausir næturverðir.
Kandadíska parið Mark Molson
og Boris Baran vann tvímenning
Bridshátíðar með fáheyrðum yfir-
burðum enda toppspilarar þar á
ferð. En síðar í sveitakeppninni
urðu spilarar í lokaða salnum vitni
að því þegar þeir félagar ærðust
hreinlega og kölluðu hvorn annan
öllum illum nöfnum. Þetta var
eftir leik þeirra við Zia Mahmood
og þar kom þetta spii m.a. fyrir:
Vestur
♦ 5
¥ Á832
♦ K85
♦ ÁKG97
Norður
♦ G103
¥ K9754
♦ D74
♦ 85
Austur
♦ D864
¥6
♦ Á10962
♦ D32
Suður
♦ ÁK972
¥ DG10
♦ G3
♦ 1064
Þetta spil var á sýningartöflu
og sagnirnar tóku sérkennilega
stefnu:
Vestur Norður Austur Suður
Baran Lev Molson Zia
1 lauf pass 1 tígull 1 spaði
pass pass 2 lauf pass
pass 2 spaðar dobl a. pass
Hvernig Baran datt í hug að
passa fyrst 1 spaða og síðan 2
lauf er óskiljanlegt enda eru 5
lauf nánast á borðinu. Hins vegar
virtist hann ætla að sleppa með
þetta, þegar NS börðust í 2 spaða
og fengu dobl í hausinn, því það
ævintýri átti að kosta 500.
Baran spilaði út laufaás og nú
kemur til greina að spila hjartaás
og meira hjarta enda er ekki ólík-
legt að austur eigi þar einspil eft-
ir sagnir. Þá er einnig hægt að
spila tígli, þar sem austur á vænt-
anlega ásinri fyrir doblinu, og
austur getur þá spilað hjarta til
baka ef hann á einspil. En Baran
tók fyrst laufakóng og spilaði svo
litlu hjarta frá ásnum.
Zia tók slaginn heima, tromp-
aði lauf með tíunni og spilaði
spaðagosanum úr borði. Og nú
var komið að Molson að láta ljós
sitt skína. Hann hefur sennilega
verið hræddur um að Baran ætti
stakt háspil í spaða, og lét því
lítinn spaða. Tían átti slaginn,
næst kom spaði á níuna og Zia
lagði upp, gaf aðeins tvo slagi á
tígul og einn á hjarta í viðbót. 670.
Björn Jónsson að verki VÍð SUndlaug. Morgunblaðið/Jón Gunnar Gunnarsson
Höfn:
Sundlauffaframkvæmdir
HBfn. C'>
ÞAÐ var upplýst á borgarafundi í Sindrabæ að rekstur sundlaugar
bæjarins hefði aldrei gengið eins vel og á síðasta ári. Sturlaugur
Þorsteinsson bæjarstjóri hvatti menn nú til að stunda sundmennt
af miklurn dug á komandi sundvertíð.
Fyrir dyrum stendur að stækka
rými innan girðingar við laugina
og vonir standa til að hún verði
opnuð í byijun apríl. Daginn eftir
fundinn var Björn Jónsson gröfu-
stjóri bæjarins kominn til jarðvegs-
vinnu fyrir þær framkvæmdir. Það
eru rétt 40 dagar í það að sund-
þyrstur almúginn komist í laugina
sem verður að líkum enn meira
aðlaðandi en verið hefur.
-JGG
Hyggjast kaupa búgarð í
Þýskalandi fyrir hestaheildsölu
Hestamenn stofna hlutafelag:
NOKKRIR landskunnir hestamenn eru að undirbúá stofnun hluta-
félags til útflutnings á hrossum. „Það er mikið framboð á hestum
hér á landi, en sölukerfið erlendis er ekki nógu gott og ætlum við
að virkja það betur,“ sagði Viðar Halldórsson, einn þeirra sem
undirbýr stofnun hlutafélagsins.
Viðar sagði að þeim hafi boðist
búgarður til kaups við Hamborg
í Þýskalandi og væri hann mjög
vel staðsettur upp á dreifingu.
„Við hugsum okkur að þetta verði
einskonar heildsala á hrossum þar
sem við sjáum hestakaupmönnum
vítt og breitt um Evrópu fyrir
hestum."
Hann segir að mikið sé um að
bændur séu að temja, en hafi síðan
setið eftii' og verið sambandslausir
við markaðinn. „Við hugsum okk-
ur þetta fyrirtæki þar sem bændur
og aðrir geti gerst hluthafar sem
síðan sér um dreifinu á hrossum
fyrir þá. Ef vel tekst til í Þýska-
landi liggur ekkert annað fyrir en
fara í önnur lönd og fjölga stöðun-
um til að auka útflutninginn,“
sagði Viðar.
Viðar sagði að áætlað yrði að
flytja út um 30 hesta að minnsta
kosti í hverjum mánuði, eða um
300-400 hesta á ári. Á síðasta ári
voru alls 1.600 hestar fluttir út.
Undirbúningsnefnd hlutafé-
lagsins hefur starfað í tvo mán-
uði. í nefndinni eru auk Viðars:
Einar Bollason, Kjartan Georgs-
son, Reynir Aðalsteinsson og Guð-
mundur Jón Viðarsson. Þeir félag-
ar ætla að kynna fyrirtækið fyrir
hrossabændum og öðrum um
landið á næstunni og byija í Bor-
garnesi næsta föstudag.
★ GBC-lnnbinding
Fjórar mismunandi
gerðir af efni og tækjum
til innbindingar
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 ' 105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699