Morgunblaðið - 20.02.1991, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVlKUDÁGUR 20. FEBRUAR 1991
t
Móðir mín,
RAGNHILDUR JÓNSDÓTTIR,
Njálsgötu 75,
andaðist í Landspítalanum 19. febrúar.
Ingibjörg Ingadóttir.
t
Móðir okkar,
ÓLÍNA MARTA ÞORMAR,
Sólheimum 23,
Reykjavík,
lést á heimili sínu að morgni 19. febrúar.
Guttormur, Halldór og Hörður.
t
Maðurinn minn,
VALDIMAR BJÖRNSSON
frá Gafli,
til heimilis í Eskihlíð 10,
lést í Borgarspítaianum 19. febrúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hulda Vigfúsdóttir.
t
Astkær móðir mín, fósturmóðir mín og tengdamóðir mín,
SIGRÍÐUR JENNÝ SKAGAN,
andaðist aðfaranótt 19. febrúar á hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Man'a Skagan,
Sigriður Lister,
Kenneth Lister.
t
Móðir okkar,
guðri'ður guðlaugsdóttir,
Hátúni 10,
Reykjavfk,
er lést 13. þ.m., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 21. febrúar kl. 13.30.
Grétar Bergmann,
Guðlaugur Bergmann.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, fósturfaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN KNUDSEN,
Ölduslóð 12,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá-Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 21. febrú-
ar kl. 15.00.
Svala S. Guðmundsdóttir, Jóhann L. Gunnarsson,
Ragnhildur Aðalsteinsdóttir, Sigurður Jakobsson,
Hlöðver S. Aðalsteinsson,
Árni Aðalsteinsson,
Sesselja M. Kjærnested, Einar H. Árnason,
Rannveig Kjærnested, Guðni Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaöur minn og faðir okkar,
FRIÐGEIR GÍSLASON,
verður jarðsunginn frá Fella- og Hóla-
kirkju, fimmtudaginn 21. febrúar
kl. 13.30.
Sigurbjörg Unnur Óskarsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Systir okkar og vinkona,
SIGRÍÐUR J. KJERÚLF
sjúkraliði,
Samtúni18,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 21. ferbrúar
kl. 15.00.
Eiríkur J. Kjerúlf,
Jóhanna Kjerúlf,
Droplaug Kjerúlf,
Una Kjerúlf,
Hrönn Jónsdóttir.
Jón Kjerúlf,
Herdís Kjerúlf,
Hulda Johansen,
Regína Kjerúlf,
Viðar Sigurðs-
son - Kveðjuorð
Fæddur 23. ágúst 1951
Dáinn 9. febrúar 1991
Okkur langar að minnast vinar
okkar Viðars Sigurðssonar er tek-
inn var frá okkur svo skyndilega
að kvöldi laugardagsins 9. febrúar.
Árla sunnudagsins 10. febrúar kom
þessi símhringing sem enginn vill
fá, manni fallast hendur, af hvorju
Viddi? Hann sem var að byrja lífið
upp á nýtt, allt virtist ætla að ganga
vel, nýbúinn að koma sér vel fyrir
í nýrri fallegri íbúð með Gunnu sinni
og bömunum.
Viddi var rólegur og yfirvegaður
maður en aldrei fór það svo að
hann sló ekki á létta strengi er við
hittumst. Viddi var alinn upp í
Hafnarfirði og sonur hjónanna Sig-
ríðar Rósmundsdóttur og Sigurðar
Sigurjónssonar og komu þau til
manns fjórum börnum.
Vinskapur okkar hófst á 'ungl-
ingsárunum og hefur staðið allar
götur síðan. Viddi hefur alla tíð
unnað tónlist og á unglingsárunum
stofnaði hann og nokkrir vinir hans
hljómsveitina Bendix, meðal þess-
ara vina var Gunnar Ársælsson
æskuvinur hans sem lést fyrir ör-
fáum árum, þeir eru því saman á ný.
Viddi hefur starfað í ýmsum
hljómsveitum, alveg fram á síðasta
dag.
25. nóvember 1972 giftist hann
Guðrúnu Sæmundsdóttur, dóttir
hjónanna Guðlaugar Karlsdóttur og
Sæmundar Þórðarsonar. Viddi og
Gunna eignuðust tvö börn, Sonju
Yr sem er nítján ára og Karl Dan
sem er tólf ára. Viddi var lærður
prentari og starfaði við það síðan.
Ung að árum fóru þau á vit ævin-
týranna og fluttust til Svíþjóðar
með litlu dótturina en sonurinn
fæddist í -Svíþjóð. Voru þau þar í
fimm ár. Viddi var mikill áhuga-
maður um handbolta og stuttu eft-
ir heimkomuna frá Svíþjóð stofnaði
hann ásamt nokkrum félögum
íþróttafélag Hafnarfjarðar eða ÍH.
í fyrstu var það meira í gamni en
er nú orðið löggilt félag sem hann
hefur sinnt alla tíð síðan bæði sem
leikmaður og í stjórn. Síðastliðið
sumar urðum við þeirrar ánægju
njótandi að fara saman í sumarfrí
til Mallorca með fjölskyldur okkar
og nutum við þess að geta farið
saman í sumarfrí og þökkum við
það.
Elsku Gunna mín, Sonja og Kalli,
megi Guð vera með ykkur og
styrkja í sorg ykkar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Fúsi, Guðbjörg og börnin
Fimmtudaginn 7. apríl 1983
komu saman nokkrir ungir menn í
Hafnarfirði og stofnuðu með sér
félag sem fékk nafnið Iþróttafélag
Hafnarfjarðar. Fyrsti formaður fé-
lagsins var kjörinn Viðar Sigurðs-
son og sat hann í öllum stjórnum
félagsins þar til 1990, ýmist sem
formaður eða stjómarmaður.
Þegar okkur barst til eyrna
fregnin af hinu hörmulega slysi sem
orðið hafði hinn níunda þessa mán-
aðar urðu viðbrögð okkar eins og
margra annarra við slík tíðindi.
Undun, vantrú og skilningsleysi á
ráðstöfunum almættisins er það
ákveður að hrífa burt mann í blóma
lífsins með slíkum hætti.
Við minnumst Viðars sem kraft-
mikils athafnamanns sem lagði sig
alltaf allan fram við það sem hann
var að gera og ófáar eru þær stund-
irnar og ófáir dagarnir sem hann
Margrét Stefáns-
dóttir - Kveðjuorð
Fædd 18. september 1932
Dáin 11. febrúar 1991
Hún var fyrsta vinkonan sem ég
eignaðist á Islandi. Það var árið
1942 í Reykjavík. Ég var úti að
leika mér, þegar allt í einu var gef-
ið loftvarnarmerki. Ég flýtti mér
að hlaupa heim, en þegar ég stóð
í gættinni heima sá ég hvar hún
stóð úti og kallaði til hennar að flýta
sér í húsaskjól. Hún skildi ekkert í
þessum viðbrögðum mínum, en ég
hafði kynnst loftárásum í Kaup-
mannahöfn og vissi hvernig átti að
bregðast við. Upp frá þessu vorum
við Maggý vinkonur. Við vorum
nágrannar, hún var tveimur árum
eldri en ég og ég dáði hana tak-
markalaust. Hún var svo kát og
skemmtileg og mér fannst hún vita
allt betur en ég.
Seinna þegar við vorum báðar
orðnar fullorðnar var ekki síðra að
eiga hana fyrir vinkonu og heim-
sækja þau Óla Hauk á fallega heim-
ilið þeirra. Hún var svo myndarleg
húsmóðir og bjó til svo góðan mat
og ég man að pabbi minn þáði oft
íslenskan mat hjá henni meðan þau
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
GOTTSKÁLK Þ. GÍSLASON
húsgagnasmíðameistari,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, miðvikudaginn
20. febrúar, kl. 13.30.
Þórheiður Sigþórsdóttir,
Bergþóra Gottskálksdóttir,
Júiíana Gottskálksdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SAMÚEL BJÖRNSSON
bifreiðastjóri,
Dalbraut 21,
verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 21. febrúar
kl. 13.30.
Margrét Bjarnadóttir,
Sigurður Bjarnason, Helga Eyjólfsdóttir,
Marin Samúelsdóttir, Jón Kristófersson,
Bjarni Samúelsson, Guðrún Leifsdóttir,
Kristín Samúelsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
helgaði íþróttafélagi Hafnarfjarðar
krafta sína og víst er að oft hefur
þetta bitnað á fjölskyldunni. Viðar
hafði loksins ákveðið að draga sig
í hlé frá félagsstörfunum og sinna
öðru um sinn. Samt var hann núver-
andi stjórn innan handar og fylgd-
ist vel með framvindu mála.
Jafnframt því að sinna stjórnar-
störfum fyrir félagið æfði Viðar
einnig handknattleik með meistara-
flokki félagsins og lék með A- og
B- liðum félagsins til þess síðasta.
Á velli var hann prúður og félagi
góður.
Þegar við félagamir lítum til
baka yfir farinn veg og minnumst
liðinna tíma við leik og gleði kemur
fyrst og fremst upp í hugann sökn-
uður og sorg yfír því að slíkir at-
burðir skuli eiga sér stað í okkar
nútímaþjóðfélagi með öllum sinum
þægindum.
Viðar lætur eftir sig konu og tvö
börn og er missir þeirra mikill. Til
þeirra leitar hugur okkar og samúð
svo og annarra aðstandenda. Elsku
Guðrún, Sonja og Kalli, megi góður
Guð gefa ykkur styrk á þessum
erfíðu tímum og létta ykkur fram-
tíðina og það sem hún ber í skauti
sér.
F.h. íþróttafélags Hafnarfjarðar,
Pétur D. Vilbergsson form.
Óli Haukur bjuggu í Reykjavík.
Eftir að þau fluttu á írafoss var
yndislegt að koma og dvelja hjá
þeim nokkra daga í senn þegar telp-
umar okkar voru litlar, alltaf vorum
við Gréta velkomnar, þó að húsið
væri oft fullt af gestum. Oft dáðist
ég að því hvað Maggý var fljót að
töfra fram góðgerðir handa öllum.
Það var góður andi á heimilinu og
oft glatt á hjalla, svo að maður
sneri alltaf heim í dagsins önn hress
og endumærður af fundi þeirra
hjóna.
Það er svo margs að minnast
þegar æskuvinkona kveður, hún
sem var svo lifandi og lífsglöð, það
er erfitt að sætta sig við að nú sé
hún farin í ferðina sem við öll fömm
að lokum. Á þessari kveðjustund
er mér efst í huga hjartans þakk-
læti fyrir samvemstundimar með
henni, Óla Hauki og dætmnum
þeirra þremur. Þær stundir eru sem
perlur í minninganna sjóði.
Við Gréta og mamma sendum
Óla Hauki, Önnu Maríu, Geiru og
Hafdísi innilegar samúðarkveðjur.
Guð blessi Maggý mína á nýrri
vegferð.
Birgitta Engilberts