Morgunblaðið - 20.02.1991, Qupperneq 46
-46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1991
------------------------------——.—;----------------
FRJALSARIÞROTTIR / ISLANDSMOT FATLAÐRA
Góður árangur á
meistaramótinu
Islandsmót íþróttasambands Fatl-
aðra í fijálsum íþróttum innanliúss
fór fram um sl. helgi, 16. og 17. fe-
brúar. Formleg mótssetning var laug-
ardaginn 16. febrúar kl. 10 og var
það Magnús P. Korntopp, sem er
þroskaheftur, sem setti mótið.
Keppt var í flokkum þroskaheftra,
1. og 2. flokki, flokki sjónskertra og
flokki hreyfihamlaðra, sitjandi og
standandi flokki. Þessi röðun í flokka
er ekki sambærileg við það sem ger-
ist erlendis því vegna fámennis þarf
t.d. að sameina alla flokka hreyfí-
hamlaðra í tvo, sitjandi og standandi
flokk. Mikilvægt er að gera sér grein
fyrir þessu þegar árangur er skoðað-
ur. Þar sem mjög fáir keppa enn hér
á landi í flokki hreyfihamlaðra í frjáls-
um iþróttum, hreyfihamlað er besti
árangur hvers einstaklings oft ís-
landsmet samkvæmt norrænu og al-
þjóðlegu flokkunarkerfi.
Arangur varð ágætur á mótinu og
komu fram efnilegir íþróttamenn úr
röðum þroskaheftra og hreyfíhaml-
aðra sem þarna tóku þátt í íslands-
móti í fyrsta skipti.
Þáttakendur á mótinu voru 53 frá
átta félögum. Fulltrúar Kiwanis-
klúbbsins Esju afhentu verðlaun í
mótslok, en klúbburinn hefur styrkt
Islandsmót Í.F. í mörg ár.
Morgunblaðiö/Bjarni
Steinunn Indriðadóttir úr Suðra
á Selfossi í kúluvarpskeppninni. Hún
varð sigurvegari í 50 m hlaupi og
kúluvarpi í 2. flokki.
■ 22. UMFERÐ ■
■ ■
Laugardagur 23.02.
■ KR - Víkingur ■
Kl. 16:30
■ Laugardalshöll ■
■ Laugardagur 23.02. FH - Fram ■
Kl. 16:30
■ Kaplakriki, Hafnarfirði ■
Laugardagur 23.02. ■
ÍR - Valur
■ Kl. 16:30 Seljaskóli ■
■ Laugardagur 23.02. ■
Grótta - KA
■ Kl. 16:30 ■
Seltjarnarnes
Laugardagur 23.02.
■ Haukar - Stjarnan Kl. 16:30 s ■
Strandgata, Hafnarfirði 1
í ■
■ Laugardagur 23.02. ÍBV - Selfoss ■
Kl. 16:30
Vestmannaeyjar ■
■
■ VÁTitVCCINGAFÉLAG ISLANDS HF
Morgunblaðið/Bjami
Sigrún H. Hrafnsdóttir úr Ösp í Reykjavík, sem sigraði í hástökki í 1. flokki.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Boston óstöðvandi
Larry Bird og félagar í Boston
hafa gert það gott síðustu vikur.
Liðið hefur sigrað í sjö leikjum í röð
og komið sér vel fyrir í efsta sæti
austurdeildarinnar.
Frá Gunnari Allt tal um aldur há-
Valgeírssyni an leikmanna hefur
/ Bandaríkjunum þagnað, að minnsta
kosti í bili, og Larry
Bird hefur átt hvern stórleikinn á
fætur öðrum.
Liðið vann ij'óra heimaleiki og
bætti svo þremur útileikjum við.
Sætasti sigurinn var gegn Lakers,
98:85, en iiðið hafði ekki unnið í Los
Angeles í fimm ár. Robert Parish
átti stórleik og gerði 21 stig í fyrri
hálfleik. Bird var hinsvegar maðurinn
á bakvið sigurliðsins á Denver,
126:108, og gerði 17 stig í fyrsta
hlutanum. Þessir sigrar koma reynd-
ar nokkuð á óvart þarsem Kevin
McHale hefurekki leikið með liðinu.
Meistararnir í Detroit eru vart
svipur hjá sjón. Þeir hafa tapað 17
leikjum og eru í 3. sæti austurdeildar-
innar. Isiah Thomas er meiddur og
liðið má illa við því. Það sást best
er liðið tapaði fyrir New York,
88:116, sem er stærsta tap liðsins í
fjögur ár.
Portland er enn í efsta sæti vestur-
deildarinnar, hefur aðeins tapað 10
KNATTSPYRNUMAÐUR ÓSKAST
Sænska knattspyrnufélagið Husqvarna FF, sem leikur í 3. deild í Svíþjóð,
leitar að snjöllum miðherja.
Husqvarna FF hefur efnilega leikmenn í sínum röðum og stefnir markvisst
að því að komast upp um deild ó þessu óri, en í fyrra munaði aðeins 1 marki!
Fyrirtækið Husqvarna styrkir félagið fjórhagslega.
Leikmenn sem éhuga hafa eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við
Arne Carlson, formann félagsins og framkvæmdastjóro hjó Husqvarna Sew-
ing Machines AB i síma 90-46-36-146452 eða í faxi 90-46-36-141185.
Larry Bird hefur átt frábæra leiki
með Boston eftir langvarandi meiðsli.
af 51 leik sínum. Liðið tapaði þó fyr-
ir Lakers um helgina, 96:106 og jafn-
aði það aðeins stöðuna. James Wort-
hy var bestur í liði Lakes og gerði
32 stig.
Ellis til Milwaukee
Milwaukee og Seattle ákváðu að
skipta á tveimur sterkum leikmönn-
um. Ricky Pierce fór frá Milwaukee
til Seattle og í hans stað kom Dale
Eilis, einn besti skotbakvörður deild-
arinnar.
ÚRSLIT
íslandsmót ÍFR
Keppt var í 1. og 2. flokki:
50 m hlaup karla:
1. fl Aðalsteinn Friðjónsson, Eik . 7,3
2. fl .Jón Guðvarðarson, Ösp . 8,0
50 m hlaup kvenna:
1. fl. Bára B. Erlingsdóttir, Ösp . 8,3
2. fi. Steinunn Indriðadóttir, Suðra .... 8,8
200 m hlaup karla:
Aðalsteinn Friðjónsson, Eik ....... 30,4
200 m hlaup kvenna:
Bára B. Erlingsdóttir, Ösp ........ 38,0
Langstökk karla:
1. fl. AðalsteinnFriðjónsson, Eik . 4,84
2. fl. Jón E. Guðvarðarson, Ösp ... 3,74
Langstökk kvenna:
1. fl. Bára B. Erlingsdóttir, Ösp . 3,77
2. fl. Anna Ragnarsdóttir, Eik .... 3,09
Langstökk karla án atr.:
1. fl. KristóferÁstvaldsson, Viljanum 2,4
2. fl. Sævar Bergsson, Eik ........ 2,10
Langstökk kvenna án atr.:
1. fl. Bára B. Erlingsdóttir, Ösp . 2,19
2. fl. Guðrún Ólafsdóttir, Ösp .... 1,81
Hástökk karla:
1. fl. Aðalsteinn Friðjónsson,Eik . 1,38
2. fl. ValdimarSigurðsson, Eik .... 1,15
Hástökk kvenna:
l.fl. Sigrún H. Hrafnsdóttir, Ösp . 1,25
Kúluvarp karla, (4 kg):
1. fl. Haukur Stefánsson, Ösp .... 10,55
2. fl. Gunnar J. Halldórsson, Suðra . 10.50
Kuluvarp kvenna, (3 kg):
1. fl. BáraB. Erlingsdóttir, Ösp .. 7,81
2. fl. Stcinunn Indriðadóttir, Suðra .. 4,80
Hreyfihamlaðir:
50 m hiaup karla:
Geir Sverrisson, UMFN .............. 6,5
50 m hjólast.ólaakstur karla:
ArnarKlemensson, Vilja ............. 10,5
Kúluvarp karla, standandi, (4 kg):
Geir Sverrisson, UMFN ............. 11,95
Kúluvarp karla, sitjandi, (4 kg):
Reynir Kristófersson, iFR .......... 7,35
Sjónskertir:
50 m hlaup kvenna:
Svava Sigurðardóttir ÍFR ............ 7,9
200 m hlaup kvenna:
Svava Sigurðardóttir, ÍFR .......... 35,7
Langstökk án atr.:
Svava Sigurðardóttir, ÍFR .......... 1,89
Golf
Ástralska meistaramótið
Haldið í Melbourne. (Keppendur ástralskir
nema annað sé tekið fram):
278 Peter Senior..........68 71 69 7Ö
279 GregNorman...........70 67 71 71
281 Peter O’Malley........72 68 71 70
Michael Clayton......67 71 74 69
282 Ian-Baker Finch.......74 70 69 69
RodgerDavis..........71 68 72 71
David Delong (Bandar.)71 70 73 68
283 Jeff Woodland.........71 67 73 72
285 Robert Allenby.......74 70 70 71
' John Morse (Bandar.).71 74 72 68
287 Fran Nobilo (N. Sjál.)73 68 71 75
WayneRiley...........74 72 71 70
I Peter Senior stal sigrinum af Greg
Norman á síðustu holunum. Norman virtist
öruggur með sigur en lék síðustu fjórar
holurnar á þremur yfir pari. Fyrir siðustu
holuna voru þeir jafnir en teighögg Norm-
ans á 18. holunni var hræðilegt og lenti á
æfingavellinum. Þaðan sló hann ofan á
sjúkratjald og í glompu. Senior gerði hins-
vegar engin mistök og lék holuna á pari.
„Ég get ekki annað en vorkennt Norman.
Ég var alltaf rétt á eftir honum og náði
að setja pressu á hann í lokin," sagði Senior.
Tennis
Belgíska innanhússmótið
Undanúrslit:
Andrej Tsjerkasov—Boris Becker ...2:6 6:3 2:2
(Becker hætti vegna meiðsla.
Guy Forget—Stefan Edberg....3:6 6:0 6:3
Úrslit:
Guy Forget—A. Tsjerkasov....6:3 7:5 3:6 7:6
■ Stefan Edberg náði efsta sæti heimslist-
ans af Boris Becker, þrátt fyrir tapið í und-
anúrslitunum. Becker lék mjög vel gegn
Tsjerkasov en varð að hætta vegna meiðsla
í læri. „Það er erfitt að halda efsta sætinu
og maður þarf að .keppa á 18-19 mótum.
Þá má búast við meiðslum," sagði Becker.