Morgunblaðið - 24.02.1991, Qupperneq 2
ÍÍ2 FRÉmR/INNLENT
ieei HAúaaara ,t>s auoAouviviuft araAjavruaaoM
MORGUNBLAí>IÐ SUNNUÐAGUR 24. FEBRÚAR 1991
EFNI
Virkjanir vegna álvers:
Ekki þörf á
ágreiningi
- segir Þorsteinn Pálsson
„ÞAÐ hefur verið ljóst um nokk-
urn tíma að framkvæmdir myndu
dragast vegna þess að samningum
er ekki lokið. Eins og Landsvirkj-
un hefur bent á hafa ýmis atriði
ieitt til þess endurmeta þarf arð-
semisútreikninga. Afstaða Lands-
virkjunar kemur því ekki á óvart.
Hins vegar er eðlilegt að afgreiða
þær heimildir sem nauðsynlegar
þykja til áframhaldandi samn-
ingagerðar. Ég sé því ekki að það
eigi að þurfa að vera mikill
ágreiningur um meðferð málsins,"
sagði Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, aðspurður
um viðbrögð við því áliti stjórnar
Landsvirkjunar að fyrirvaralaus
rafmagnssamningur við Atlantsál
sé skilyrði þess að í virkjanir verði
ráðist; nauðsynlegar lagaheimild-
ir séu til staðar.
„Menn vona að viðræðurnar geti
leitt til ásættanlegrar niðurstöðu,
þótt auðvitað sé ekkert hægt að full-
yrða um það á þessu stigi, en við
hljótum að halda á málinu þannig
að samningar megi takast og fram-
kvæmdir geti hafist,“ sagði Þor-
steinn. „Aðalatriðið er að menn komi
sér saman um að fara þá leið sem
líklegust er til farsællar niðurstöðu
og ég sé ekki ástæðu til annars en
að menn reyni að mynda um það sem
breiðasta samstöðu."
Morgunblaðið/Þorkell
Brumhnapparnir þegar komnir
Gróðurinn í höfuðborginni hefur ekki farið varhluta
af hinni mildu veðráttu að undanförnu og eru brum-
hnappar víða komnir á tré og runna eins og sjá má
á þessari mynd sem tekin var í Lækjargötu í gær-
morgun. Hafa margir haft af þessu áhyggjur enda
víst að ófáir frostakaflar eru eftir áður en vora tek-
ur. Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skóg-
ræktarfélags Islands, segir veðráttuna vissulega
hafa verið mjög óvenjulega en gróðrinum stafi hins
vegar ekki mikil hætta af því þó að fijósa fari á
ný. „Það er ákveðið ónæmiskerfí í gangi í tijánum
á vetuma þó ónæmið gagnvart frostinu minnki eitt-
hvað þegar er svona hlýtt. Þetta er ekkert hættu-
ástand og ef frost haldast væg ætti mest allur gróð-
ur að sleppa óskaddaður," segir Brynjólfur. Á mynd-
inni sést ung Reykjavíkurmær, Una Jóhannesdóttir,
heldur áhyggjufull vegna brumhnappa á trjánum
við Lækjargötu.
Stuðningur íslands við Eystrasaltsríkin:
Engin áform eru um að slíta
stíómmálasambandi við Island
segir Janajev, varaforseti Sovétríkjanna
Á FUNDI fulltrúa norrænna verkalýðssamtaka og Gennadijs
Janajevs, varaforseta Sovétríkjanna, í Moskvu síðastliðinn þriðjudag,
sagði Janajev að sovésk stjórnvöld hefðu ekki í hyggju að slíta stjórn-
málasambandi við ísland né að stöðva viðskipti þjóðanna þrátt fyrir
að sovéski sendiherrann á Islandi hafi verið kallaður heim. Ásmund-
ur Stefánsson, forseti ASI, sat fundinn fyrir hönd íslenskra verkalýðs-
samtaka.
Meginefni fundarins, sem stóð í
eina og hálfa klukkustund, var af-
staðan_ til Eystrasaltsríkjanna, að
sögn Ásmundar. Janajev sagði að
stjórnmálasamband milli Eystra-
saltsríkjanna og erlendra ríkja
kæmi ekki til greina fyrr en sam-
skiptum Eystrasaltsríkjanna og
Sovétríkjanna hafi verið komið á
hreint. Hann ítrekaði að málefni
Eystrasaltsríkjanna væru innanrík-
ismál Sovétríkjanna.
Ásmundur sagði að Janajev teldi
ákvörðun íslendinga um stjórn-
málasamband við Eystrasaltsríkin
ótímabæra. Hins vegar væru engin
áform uppi um að slíta stjómmála-
sambandi við ísland þó sovéski
sendiherrann á íslandi hefði verið
kallaður heim til skrafs og ráða-
gerða. Ekki væru heldur uppi áform
um að stöðva viðskiptin á milli land-
anna en áframhald samskiptanna
hlyti að ráðast af gerðum íslenskra
stjórnvalda. Hann sagði að íslend-
ingar gætu verið stoltir af því að
hafa konu í forsetaembætti og
hlaupa hratt í „jafnréttismaraþon-
Fjórtán innflyljendur kvarta til samgönguráðuneytis:
Telja farmgjöld Flugleiða
hafa hækkað um tugi prósenta
Flugleiðir segja almennar hækkanir hafa numið 8-9%
FJÓRTÁN innflytjendur hafa sent kvartanir til samgönguráðuneytis-
ins vegna hækkana sem þeir telja að hafi orðið á fraktflutningum
með Flugleiðum að undanförnu. Segja þeir að orðið hafi 40% hækk-
un á farmgjöldum og um 80% hækkun á þjónustugjöldum frá í ágúst
á síðasta ári. Að sögn Einars Sigurðssonar, upplýsingafulltrúa Flug-
ieiða, er fráleitt að slíkar hækkanir hafi orðið á farmgjöldum félags-
ins. Segir hann að á síðasta ári hafi að jafnaði orðið 8-9% hækkun
á gjaldskrám og almennum samningum við viðskiptaaðila.
Einar Sigurðsson sagði Flug-
leiðamenn ekki vita hvaða aðilar
hefðu sent inn þessa kvörtun né
um hvað hún væri en félagið gerði
afsláttarsamninga við íjölda fyrir-
tækja og á hvetju ári væru eldri
samningar endurskoðaðir með hlið-
sjón af öðrum samningum og því
hvort breytingar hefðu orðið á við-
skiptunum.
Flugeftirlitsnefnd hefur íjallað
um málið en ekki afgreitt það end-
anlega, að sögn Halldórs Kristjáns-
sonar, skristofustjóra í samgöngu-
ráðuneytinu og eins nefndarmanna.
Hins vegar hefur nefndin einnig
fjallað um kvörtun vegna útflutn-
ings á físki og komst hún að þeirri
niðustöðu að frakthækkanir væru
innan heimilda. „Við ætlum að
skoða mál innflytjendanna betur,“
sagði Halldór.
Leitað hefur verið skýringa hjá
Flugleiðum að sögn Birgis Þorgils-
sonar, formanns flugeftirlitsnefnd-
ar. Vildi hann ekki tjá sig um álit
nefndarinnar fyrr en málið er fullaf-
greitt í ráðuneytinu.
Halldór Kristjánsson sagði að um
væri að ræða.einstaklinga og fyrir-
tæki í innflutningi. Vildi hann ekki
veita frekari upplýsingar fyrr en
niðurstaða liggur fyrir.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins telja innflytjendurnir í
kvörtun sinni til ráðuneytisins að
hækkanir á taxta farmgjalda hafi
numið um 40% og afgreiðslugjöld
og akstur hjá Flugleiðum hafi
hækkað um 80%. Félag stórkaup-
manna er ekki aðili að þessum
kvörtunum.
Einar Sigurðsson sagði að gjald-
skrárbreytingar væru aðeins gerðar
með samþykki stjórnvalda. Hins
vegar gerði félagið samninga við
fleiri þúsund viðskiptavini og af-
sláttarsamningar breyttust stöðugt
til hækkunar eða lækkunar í ljósi
viðskiptanna hveiju sinni.
hlaupinu" en hins vegar mætti ekki
fara of geyst í pólitík.
Janajev sagði að sovésk stjóm-
völd vissu af þeirri umræðu sem
færi fram á Norðurlöndunum um
málefni Eystrasaltslandanna ogþau
væru tilbúin að hlusta á sjónarmið
þeirra. Sovésk stjórnvöld vildu frið-
samlega lausn á þessum málum en
Ieggðu áherslu á og mótmæltu því
að utanaðkomandi aðilar hefðu af-
skipti af innanríkismálum sínum .'
Janajev sagði að ekki væri hægt
að líta fram hjá þeirri staðreynd
að Eystrasaltsríkin hafi verið hluti
af Sovétríkjunum í yfir 45 ár og
búið við stjórnarskrá Sovétríkjanna.
Litháen hafí lýst yfir sjálfstæði 11.
mars 1990 án samráðs við Sovét-
ríkin og án þess að réttindi minni-
hlutahópa hafi verið tryggð.
Hann sagði að lýðveldin ættu
þess kost að ganga úr ríkjasam-
bandinu ef meirihluti væri fyrir því
í þjóðaratkvæðagreiðslu og sú nið-
urstaða yrði virt af Sovétríkjunum.
Slíkri niðurstöðu íylgdi þó óhjá-
kvæmilega umfangsmiklir samn-
ingar um sameiginlegar eignir og
ekki síst stöðu minnihlutahópanna
sem í lýðveldunum búa. Janajev
kvaðst ekki óttast um allsheijar-
upplausn Sovétríkjanna þótt ein-
hver lýðvéldanna óskuðu að ganga
úr ríkjasambandinu. Hann sagði að
slíkar hræringar væru ekki einka-
mál Sovétríkjanna, þau bæru
ábyrgð gagnvart heiminum öllum,
því hver gæti hugsað sér að skyndi-
lega yrðu til 15 ný kjarnorkuveldi?
Loðna til Siglufjarðar
ÞÓRÐUR Jónasson EA landaði í gær 600 tonnum af loðnu hjá Síldar-
verksmiðjum ríkisins á Siglufirði og fjögur skip voru á leiðinni til
Siglufjarðar með afla. Hilmir SU var á leið til lands með 1.300 tonn,
Bjarni Ólafsson AK með 1.000 tonn, Húnaröst RE með 700 tonn og
Höfrungur AK með 900 tonn.
Fyrstu loðnunni var landað á
Siglufirði á föstudag og hefur því
lifnað yfir atvinnulífinu á staðnum
en ekki hafði SR þó tekist að fá
alla starfsmenn verksmiðjunnar,
sem sagt var upp í janúar, aftur
til starfa því sumir voni komnir í
vinnu annars staðar. Á Siglufírði
bjóða SR 4.300 krónur fyrir tonnið
af loðnu, en það er um 70% af skila-
verði.
Bændur taki ábyrgð á
kjötsölunni
►Róttækartillögur liggja nú fyrir
um upptokkun á sauðfjárbúskapn-
um og miða að því að draga úr
kjötframleiðslu. Hér er gerð grein
fyrir þessum tillögum og rætt við
stjómmálamenn og bændur um
þetta mál sem á áreiðanlega eftir
að setja mikið mark á þjóðmálaum-
ræðuna á næstunni /10
Fór þrjátíu sinnum til
Síberíu — í fyrsta
skiptið nauðugur vilj-
ugur
►Frásögn af Þingvallaferð með
Lennart Meri, utanríkisráðherra
Lettlands. Ráðherrann er ekki ein-
ungis virtur stjómmálamaður
heldur og þekktur rithöfundur og
kvikmyndagerðarmaður.
16
Draumur hins dáða
manns? ►Eða martröð land-
krabbans, spyr Agnes Bragadóttir
eftir að hafa brugðið sér í veiði-
ferð með frystitogaranum Frera.
/18
Bheimili/
FASTEIGNIR
► l-32
Ört vaxandi áhugi hér
á fasteignum í Fiórída
►Rætt við Sigríði Guðmundsdótt-
ur í fasteignasölunni Laufási/16
C Isuugj
Leyndardómurinn um
Akureyrarveikina
►Seint á fimmta áratugnum varð
vart sjúkdóms hér á landi sem
veldur mönnum heilabrotum enn
þann dag í dag. Sjúkdómsins varð
aðallega vart á Akureyri og fljót-
lega kenndur við bæinn. Hann
barst þó víðar og fór svo hratt
yfír að líkja má við faraldur. Menn
tengdu Akureyrarveikina í upphafi
lömunarveiki en þykir nú um
margt líkjast fyrirbæri sem vart
hefur orðið erlendis og þar stund-
um kölluð „uppa“-veikin. Hér seg-
ir fráþessum sjúkdómi, rætt er
við nokkur fórnarlömb hans og við
dr. Sverri Bergmann lækni sem
er manna margfróðastur hér á
landi um fyrirbærið /1
Að eignast fjöEI á Is-
landi
►Rætt við ölgerðarmeistarann
Kláus Scheider sem bruggar nú
öl ofan í landsmenn en hefur farið
víða um lönd /6
Hvað er svona merki-
legt við Kúveit?
►Jóhanna Kristjónsdóttir fjallar
um landið sem nú er mest í fréttum
.og er þó með minnstu ríkjum að
flatarmáli og íbúatölu, eða rétt
eins og Vestfíarðakjálkinn og íbúar
um650þúsund/12
Persónulegur biús
►Derrick Big Walker munnhörpu-
leikari segir frá blúsferli sínum en
hann var hér á ferð ekki fyrir alls
löngu /14
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Útvarp/sjónvarp 40
Dagbók 8 Gárur 43
Hugvekja 9 Mannlífsstr. 8c
Leiðari 22 Fjölmiðlar 18c
Helgispjall 22 Kvikmyndir 20c
Reykjavíkurbréf 22 Dægurtónlist 21c
Myndasögur 26 Menningarstr. 22c
Brids 26 Minningar 24c
Stjörnuspá 26 Bíó/dans 26c
Skák 26 Velvakandi 28c
Fóik í fréttum 38 Samsafnið 30c
Karlar 38