Morgunblaðið - 24.02.1991, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.02.1991, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1991 29 M*. ■ ■ a i jrzii Y^lhJC^AR Næst... Graffsk hönnun Næst er auglýsingafyrirtæki sem vinnur að ýmiskonar grafískri hönnun. Fyrirtækið starf- rækir einnig setningarþjónustu og útprentun frá Macintosh tölvum. Næst vantar starfs- mann til að hafa umsjón með tölvusetningu og sjá um ýmis hönnunarverkefni. Þekking á letri og útlitshönnun er nauðsynleg. Umsóknir sendist til Næst, Skipholti 50b, 105 Reykjavík, fyrir 1. mars nk. Hárgreiðslustofan Tinna, Furugerði 3 Óskum eftir áhugasömum sveini eða meist- ara til starfa eftir um það bil tvo mánuði. Upplýsingar eftir kl. 19 á kvöldin í síma 76221. Smiður, sem starfar sjálfstætt, óskar eftir vinnu við tamningar og smíðar á Stór-Reykjavíkur- svæðinu eða í næsta nágrenni. Upplýsingar í síma 10628. Veitingahúsið Strandgötu 30, Hafnarfirði óskar eftir plötusnúðum. Þeir þurfa að: - hafa reynslu, - búa yfir stundvísi, - vera eldri en 22 ára. Ekki er tekið á móti umsóknum í síma, en þeir, sem hafa áhuga, mæti í viðtal miðviku- daginn 27. febrúar frá kl. 20.00 til 22.00. Sjúkraþjálfarar Sjúkrahúsið á Patreksfirði vantar sjúkraþjálf- ara til starfa sem fyrst. Á staðnum er nýleg endurhæfingaraðstaða, vel búin tækjum. Góð starfskjör í boði. Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í vinnu- síma 94-1110 og í heimasíma 94-1543. Atvinna óskast Óska eftir útkeyrslu hálfan eða allan daginn. Hef sendibíl til umráða. Er vanur umsjón með tollvörugeymslu og sölumennsku. Margt kemur til greina. Upplýsingar í síma 673998 eða 985-21073. Blaðberi - Selfoss Blaðberi óskast í austurhluta bæjarins. Upplýsingar í síma 21966 eftir kl. 18.00. Tannsmiður óskast í gull- og postulínsvinnu. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „T - 8661“. Framreiðsiunemi óskast á Hótel Óðinsvé strax. Upplýsingar á staðnum milli kl. 14.00 og 17.00 25. og 26. febrúar. Barnagæsla Barngóð manneskja óskast til að gæta þriggja mánaða snáða í Vesturbæ, frá kl. 8-16, frá miðjum mars. Upplysingar í síma 20347. „Au pair“ óskast frá 1. júní til dansk-íslenskrar fjöl- skyldu í Kaupmannahöfn til að gæta tveggja barna. Eidra barnið er í leikskóla. Falleg sér- íbúð, reglulegur vinnutími og góð laun í boði. Umsækjendur verða að hafa náð 20 ára aldri. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. eigi síðar en 1. mars merktar: „S - 6787“. Læknaritari Læknaritari óskast í 60% starf á læknastof- ur. Reynsla í læknaritarastörfum skilyrði auk samviskusemi, stundvísi og áreiðanleika. Umsóknir, ertilgreini aldur, menntun og fyrri störf, skal skilað til auglýsingadeildar Mbl. eigi síðar en 28. febrúar merktar: „Reyklaus vinnustaður - 12066.“ Húsmóðir Lítið ráðgjafafyrirtæki vill ráða traustan starfskraft til að „vera á skrifstofu" þegar ráðamaður þess, þarf að vera á fundum „úti í bæ“. Alltaf eitthvað í hverjum mánuði. Öllum umsóknum svarað. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl., merktar: „A - 6851“, fyrir 27. febrúa'r. Framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Staða framkvæmdastjóra heilbrTgðiseftirlits Vestfjarðasvæðis er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 24. mars nk. Nánari upplýsingar í síma 94-7287. Formaður svæðisnefndar. Tölvunarfræðingur Hugbúnaðarfyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að ráða tölvunarfræðing/verkfræðing til starfa sem allra fyrst. Viðkomandi þarf að hafa gott vald á VAX/VMS umhverfi og samskiptum við aðrar vélar, sérstaklega á Etherneti. Áhugasamir skili umsóknum á auglýsinga- deild Mbl. merktum: „VAX/VMS" fyrir viku- lok. Sjófang hf. vantar strax vélstjóra eða mann, vanan frysti- vélum og almennu viðhaldi. Upplýsingar í síma 624980. Skrifstofustarf Hafnarfjarðarbær óskar að ráða í hálfa stöðu ritara á skrifstofu bæjarverkfræðings. Um er að ræða afgreiðslu ásamt vélritun og almennum skrifstofustörfum. Vinnutími er síðdegis. Nánari upplýsingar veita starfsmannastjóri og bæjarverkfræðingur og taka þeir við um- sóknum til mánudags 4. mars nk. Bæjarverkfræðingur. Orðabók Háskólans óskar að ráða skrifstofustjóra til starfa sem fyrst. Sóst er eftir starfsmanni, sem hefur reynslu af bókhaldi og getur starfað sjálf- stætt. Hlutastarf kemur til greina. Launakjör skv. kjarasamningum ríkisstarfsmanna. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður Orðabókarinnar, Jörgen Pind, í síma 694435 kl. 11-12 næstu daga. Umsóknum ber að skila fyrir 4. mars á eyðu- blöðum, sem fást hjá Orðabókihni í Árna- garði. Ríkistollstjóri auglýsir Staða fulltrúa í endurskoðunardeild embætt- is ríkistollstjóra er laus til umsóknar. Umsóknarfestur er til 15. mars 1991. Laun skv. launakerfi starfsmanna ríkisins. Frekari upplýsingar gefur starfsmannastjóri í síma 600447. Ríkistollstjóri, 15. febrúar 1991. Amma á besta aldri Bamgóð, reyklaus kona óskast til að annast þrjú börn, 14 mánaða, 8 og 10ára, auk léttra heimilisstarfa. Vinnutími frá 8.30-17.00. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir miðvikudagskvöldið 22. febrúar, merktar: „Laugarás - 6848“. Fiskeldi Fiskeldisfræðing vantar til starfa við eldis- stöð Silfurstjörnunnar hf. í Öxarfirði. Nánari upplýsingar gefur Benedikt eða Erla í síma 96-52318 á daginn og 96-52226 á kvöldin. Atvinna óskast 21 árs norsk stúlka óskar eftir vinnu á bóndabæ sem þjálfari. Hefur reynslu af hest- um, kindum, kúm og svínum. Vinsamlegast skrifið til: Gerd Iren Aamodt, Aamodt, 1892 Degernes, Noregi. Fiskvinnsla Vant fólk óskast til starfa í snyrtingu, pökkun og almenna fiskvinnslu. Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 98-11084. Fiskiðjan hf., Vestmannaeyjum. SVÆÐISSTJÓRN SUÐURLANDS —-um málefni fatlaðra EYRAVEGI37 - 800 SELFOSS - SÍMAR 99 1839 & 99-1922 Svæðisstjórn Suðurlands um málefni fatlaðra auglýsir nýtt starf Starfið felst í ráðgjöf og stuðningi við íbúa og starfsfólk á sambýlum og vernduðum vinnustað. Menntun og reynsla á sviði félags-, skóla- eða heilbrigðismála áskilin. Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Svæðisstjórnar, Eggert Jóhannesson, í síma 98-21839.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.