Morgunblaðið - 24.02.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.02.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1991 vita einfaldlega ekki um hvað þeir eru að tala. Þeir eru ekki með okk- ur hér úti á sjó og sjá ekki hvað gerist eða getur gerst. Þetta hefur stórversnað með tilkomu kvótakerf- isins, sem beinlínis býður upp á að físki sé hent,“ segir háseti. Annar segir: „Hvaðan er svo umræðan um smáfiskadrápið komin? Hún er komin frá okkur sjómönnum sem horfum upp á drápið. Þú færð eng- an til þess að segja þér frá þessu undir nafni, því hvaða skipstjóri eða útgerðarmaður heldur þú að vilji hafa slíka menn í áhöfn sinni?“ Afli okkar samanstendur af þorksi, ufsa og karfa. Ég verð vitni að því að við þurfum að fleygja nokkru magni a.f dauðum smákarfa aftur í sjóinn úr nokkrum hölum, allt upp í nokkur hundruð kíló í hali. Sjómennirnir skýra fyrir mér að það sé ekkert annað að gera í svona tilvikum, þar sem smákarfinn sé ónýtanlegur, nema í bræðslu, sem ekki er fyrir hendi um borð. Helsta vömin við slíku sé að toga ekki á sama stað í nýju togi. „Blessuð vertu! Ef við værum á togara sem veiddi fyrir frystihús í landi væri miklu meira af afla kast- að en gert er um borð í frystitogur- unum — svokölluðum undirmáls- fiski. Þennan fisk vinnum við í stór- um stíl og fáum gott verð fyrir. Frystihúsin vilja hann ekki og því er honum bara hent. Þetta vitum við vel, því við höfum stundað svona veiðar,“ segir einn úr hópnum. Þeir segja að undirmálsþorskur miðist nú við allt undir 50 sentimetra að lengd, og undirmálsýsa við 45 senti- metra. Hér áður fýrr hafi viðmiðun- in í þorsknum verið 40 sentimetrar. Staðreyndin sé sú að frá því það var hafí fískurinn á íslandsmiðum ekkert stækkað, heldur hafi reglu- gerðir sjávarútvegsráðuneytisins breyst. Rétt er í þessu sambandi að benda á að á sama tíma hafa möskvastærðir neta einnig breyst EEVS OG KRÆKIBER í HEIVÍTI ÞEIR sögðu mér á Frera að aldrei hefði nokkur maður drepist úr sjóveiki. Þetta var við upphaf ferðar og égtrúði þeim fyrstu klukkustundirn- ar, en síðan ekki söguna meir, því hafi ég nokkurn tíma kom- ist í hann krappan, þá var það einmitt þennan fyrsta sólar- hring minn um borð í Frera. * g var hin rólegasta fyrstu stundimar og fór að dæmi skipveija og úðaði í mig glæsilegum kvöldkræsingunum, kökum, rækjusalati og öðru gúmmilaði. Upp úr miðnætti fór véltingurinn að aukast til muna og í réttu hlutfalli við það jókst óróleikinn í eigin maga. Auðvitað harkaði ég af mér og reyndi að halda andlitinu gagnvart rannsak- andi augnaráði ákveðinna háseta. Loks var mér nóg boðið og ég varð að spyijast til vegar. Hvern- ig kemst ég út í frískt loft? Ein- hver sá aumur á mér og ég skjögr- aði á eftir honum út. Settist í stiga og hugsaði örvingluð: 0, Guð! Lifi égþetta af? Ég staulaðist því næst upp stig- ann, hengdi hausinn út fyrir borð- stokkinn og Ægir fékk kvöld- kræsingarnar eins og þær lögðu sig til ráðstöfunar. Eftir það hálf- skreiddist ég niður sama stigann aftur og inn á gang, þar til ég fann klósett, þar sem ég gat lokað mig inni með eymd minni._ Það skyldi ég aldrei gjört hafa! Ég sá sjálfa mig í spegli og hvílík hryggðarmynd. Náfölt fésið, með grænleitu ívafi, augun blóðhlaup- in og fljótandi, hárið úfið og klepr- að og sjávarseltan sest að á gler- augum sem annars staðar. Ó, mig auma! Ég þurfti ekki meira, svo ólystaukandi var eigin spegilmynd og barátta innyfla og viljastyrks hófst á nýjan leik, þar sem styrk- ur viljans var enginn en goskraft- ur innyfla á við meðal Heklugos. Næsta þrekvirki var að finna eigin káetu, búa um og skreiðast í koju. Frelsandi engill, öðru nafni Lilja Kristjánsdóttir, háseti um borð og klefafélagi minn, kom mér til bjargar og gerði allt nema að hátta mig og leggja mig í koju. Mér finnst enn að ég eigi henni líf mitt að launa. Komin í koju með allar þessar raunir að baki, en píslarsagan vart hafin enn. Veltingurinn er nú slíkur að ég samanhnipruð í fósturstellingum, kastast til í koj- unni eins og krækiber í helvíti. 'Þetta sama krækiber reynir að hafa stjórn á rykkjóttu ferðalagi sínu með þeim hætti að það heng- ir hausinn öðru hvoru út fyrir kojubríkina og lætur hann hanga yfir æludalli nokkrum, sem er svo viðbjóðslegur að ég segi ekki orð um hann meir. Er ég gengin af göflunum? Hvað er ég að gera hér af fúsum og fijálsum vilja? Ég hlýt að vera masókisti að leggja þessar þján- ingar á mig sjálfviljug. Þetta er eins og allsheijar hanastél af heimsins verstu timburmönnum og mannskæðri innflúensu: höfuð- þyngsl, ekkert jafnvægisskyn, heiftarleg ógleði, slen og doði. Verð ég svona allan túrinn? Á ég að guggna og biðja skipperinn ásjár? Nei, slíkt er víst andskotans aumingjaskapur, og þá verð ég frekar að mæta ömurlegum örlög- um mínum, ekki af karlmennsku, því hún er ekki fyrir hendi, en alla vega af sýndar-æðruleysi. Þetta eru hugsanirnar sem flökta um dofinn kollinn þegar hann á annað borð virkar, en þess á milli húki ég í éinum keng, svo dofin og sljó að ég finn ekki fyrir því þegar ég kastast frá veggnum í kojubríkina og aftur til baka. Ég er ekki bara sjóveik, heldur fárveik, gul, blá og marin. . Þegar aðeins rofar til fer ég að hugsa um hetjur þær sem sjálf- viljugar sækja sjóinn allan ársins hring. Vá! Klikkaðir menn! Auð- vitað eigum við landkrabbarnir að vera þessum undirstöðukörlum þakklátir fram í rauðan dauðann. En svo með aukinni vanlíðan og ógleði, hugsa ég að ég bókstaflega þoli ekki þessi andskotans hreysti- menni — karladjöfla sem ýmist glottu þegar þeir sáu hryggðar- myndina mig, eða hlógu hrossa- hlátri beint upp í opið geðið á mér. Allan næsta dag eru þjáningar mínar slíkar að ég er þess fullviss að ég er við dauðans dyr. Spurn- ingin er miklu fremur hvenær heldur en hvort. Um kvöldmatar- leytið tek ég mig saman í andlit- inu og mæti í kvöldmat og það sem meira er borða! Átið tekst með slíkum sóma að ég get setið í heilar 40 mínútur á eftir og rabb- að við strákana á frívaktinni. Fæ meira að segja gullhamra eins og „Þú ert að fá roða í vanga á ný“! Yndislegir strákar og ég er stein- hætt að hata þá fyrir hetjuskap- inn. Legg mig samt aftur til þess að hafa vaðið fyrir neðan mig og viti menn! Mín leikflétta gengur upp og ég er farin að þola velting- inn, dýfurnar og djöfulganginn sólarhring eftir að við látum úr Reykjavíkurhöfn. 19 úr 120 millimetrum í 145 milli- metra. Netaveiðar hvað hættulegastar stofninum Þá telja þeir Freramenn að neta- bátasjómenn eigi inni hjá þeim svör, sem hér með er komið á framfæri: „Þá má nú hrista svolítið upp í þess- um netapungum sem drepa hvað mest. Þeir hafa jafnan hæst um smáfiskadráp togskipanna, en drepa sjálfir og henda í stórum stíl. Uppistaðan í vertíðarafla báta fyrir sunnan land, allt frá Víkurál austur fyrir Hornafjörð, er hrygningarfisk- ur. Það er stóri glæpurinn í öllu helvítis svínaríinu að netabátarnir drepa allan þennan hrygningar- fisk.“ Er á þeim Freramönnum að heyra að þeir telji sem ekki þyrfti að hafa miklar áhyggjur af þorsk- stofninum ef allar netaveiðar væru bannaðar. Auk þess sem vart sé hægt að hugsa sér ógeðslegra hrá- efni en meira en næturgamlan neta- fisk. „Ef það kemur bræludjöfull og netin þurfa að liggja, þá er ónýtt í netunum og öllu hent.“ Gera lítið úr vinnuþrælkun Hásetarnir gera lítið úr meintri vinnuþræikun um borð í frystitog- urum. „Auðvitað vinnum við mikið, eða tólf tíma á hveijum sólarhring. Maður gerir andskotann ekkert annað en vinna og sofa, en það heyrir undantekningum til að við þurfum að standa frívaktina og þegar það gerist þá er það til þess að bjarga verðmætum, sem eru ekki bara'verðmæti útgerðarinnar heldur einnig okkar eigin verð- mæti. Það drepur engan,“ segir reyndur togarajaxi. Aðrir taka í sama streng, en segj- ast þó gjarnan vilja fá aukalega greitt fyrir frívaktimar, þá sjaldan þeir þurfi að standa þær, eða öllu heldur hluta þeirra. Þeir segja að það megi útgerðarmenn hins vegar ekki heyra nefnt, og segi einfald- lega að ef álagið sé svona mikið, þá verði bara að fjölga í áhöfninni. Á því hafa sjómenn hins vegar tak- markaðan áhuga, því við það myndi hlutur þeirra skerðast. Þetta telja sjómennirnir ekki sanngjarnt, þar sem þeir segja að hásetar á stóru ísfisktogurunum fái greiddar þær frívaktir sem þeir þurfi að standa. Skýring þess mun vera sú að aðrir samningar eru á ísfisktogurunum og þar getur fastakaupið numið allt upp í 50% launa. Reyndar munu hásetar á frystitogurunum Örvari, Júlíusi Geirmundssyni og Sigur- björgu fá greitt aukalega, þegar þeir þurfa að standa frívaktir, en slíkar greiðsiur eru fyrir utan samn- inga. Á hleri í brúnni „Kallinn í brúnni“ er Hannes Einarsson sem er alla jafna fyrsti stýrimaður á Frera, en hann leysir Brynjólf Halldórsson skipstjóra af þegar hann fer í frí. Hannes er reyndar enginn „kall“ heldur ungur maður á besta aldri, rétt orðinn fertugur, en það fylgir nú einu sinni því að stýra skipi að vera nefndur „kallinn". Hásetarnir höfðu það í flimtingum við mig að Brynjólfur hefði flúið í land þegar hann frétti af væntanlegum gesti Frera! Á daginn held ég oft til uppi í brú og fylgist þaðan með veiðunum og því sem fram fer. Við erum að toga suður á Grindavíkurdýpi og það er bræla — lítið að hafa, en rætist þó úr strax á öðrum degi og við fáum þetta 3-8 tonn í hali, sem sjómennirnir kalla „sæmilegt kropp“. Sjómennirnir eru ánægðir þegar aflaverðmæti eins sólar- hrings nær einni og hálfri milljón króna, en þá er hásetahluturinn um 15 þúsund krónur, eða um 1% afla- verðmætis. Við erum nálægt því að afla fyrir um milljón á dag og þeirra hlutur því um 10 þúsund krónur. Hannes segir mér að vinnsl- an um borð gangi best og sé livað jöfnust þegar 4 til 10 tonn eru í liali. Ef hölin eru mjög stór, er hætt við að mikið af fiski meijist og hann sé ekki nógu nýr, þegar hann er unninn. Það er ekki að furða, að sá guli njóti mikilla vin- sælda hjá sjómönnunum, því þorsk-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.