Morgunblaðið - 24.02.1991, Síða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1991
ERLENT
INNLENT
Islendingar
leiti sátta í
málum Ey stra-
saltsríkja
Edgar Savisaar, forsætisráð-
herra Eistlands, og Lennart Meri,
utanríkisráðherra, komu í heim-
sókn til Islands á miðvikudag.
Fóru þeir fram á við íslensk stjóm-
völd að þau leituðu sátta milli
Eystrasaltsþjóðanna og Sovétríkj-
anna og lýstu þeir Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra,
og Jón Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, yfír vilja sínum
til að verða við þeirri ósk.
Mannbjörg er Steindór GK
strandaði
Þyrla Landhelgisgæslunnar
bjargaði átta skipvetjum Steind-
órs GK eftir að báturinn stran-
daði undan Krýsuvíkurbergi á
miðvikudagsmorgun. Var bátur-
inn lagstur á hliðina er þyrluna
bar að og gekk sjórinn yfír skip-
verjana sem allir voru staddir í
brúnni.
Virkjunarframkvæmdum
frestað
Landsvirkjun hefur ákveðið að
fresta opnun tilboða í fram-
kvæmdir við Fljótsdalsvirkjun og
stækkun Búrfellsvirkjunar í tæpa
tvo mánuði. Þýðir þetta að orku-
sala til nýs álvers getur ekki byij-
að fyrr en fyrri hluta árs 1995.
Landsvirkjun ætlar ekki að hefja
virkjunarframkvæmdir fyrr en
fýrirvaralaus rafmagnssamningur
liggur fyrir við Atlantsál hf. sem
verður líklega ekki fyrr en í haust
Skattaafsláttur lækkaður
Skattaafsláttur vegna hlutaf-
járkaupa verður lækkaður um
rúman þriðjung á þessu ári sam-
kvæmt frumvarpi sem nú er til
meðferðar í þingflokkum ríkis-
stjórnarinnar. Einnig er gert ráð
fyrir að menn verði að eiga hluta-
bréf í fímm ár til að njóta skatta-
afsláttar.
Síðari umræða um
fjárhagsáætlun
Niðurstöðutölur fjárhagsáætl-
unar Reykjavíkurborgar hækkuðu
um 96 m.kr. við síðari umræðu á
fímmtudaginn. Mest er hækkunin
frá fyrri umræðu til íþrótta-, tóm-
stunda- og æskulýðsstarfsemi og
verður alls 253 m.kr. varið til
þeirra mála. Heildartekjur borgar-
innar eru áætlaðar 12,1 milljarður
króna á árinu. Atkvæðagreiðslu
um fjárhagsætlun var frestað til
næsta fundar borgarstjómar.
Mikil loðnuveiði
Mokveiði hefur verið hjá loðnu-
skipunum undanfarna daga. Er
rannsóknarskipið Ámi Friðriks-
son farið til loðnuleitar við suð-
austanvert landið. Fiskifræðinga
og skipstjóra loðnuskipanna hefur
greint á um mælingamar og vilja
þeir síðamefndu að mæld verði
stór loðnuganga sem þeir telja sig
hafa orðið vara við út af Reykja-
nesi.
ERLENT
Bush setur
Saddam úr-
slitakosti
George Bush
Bandaríkjafor-
seti setti írök-
um úrslitakosti
á föstudag.
Hann gaf þeim
frest til kl.
fjögur í gær,
laugardag, að
íslenskum tíma Tareq Aziz-
til að hefja tafarlaust brottflutn-
ing íraskra hersveita frá Kúveit
án nokkurra skilyrða og ljúka
honum innan viku. Ella yrðu Irak-
ar að taka afleiðin'gunum og líða
enn meiri þjáningar. Skýrt hafði
verið frá því í Moskvu á fímmtu-
dagskvöld að írákar og Sovét-
menn hefðu náð samkomulagi um
leiðir til að binda enda á Perasaf-
lóastyijöldina. Talsmaður
Míkhaíls S. Gorbatsjovs, forseta
Sovétríkjanna, kvað Tareq Aziz,
utanríkisráðherra íraks, hafa fal-
list á tillögu Sovétleiðtogans sem
væri í átta liðum. Bush sagði
friðammleitanir Gorbatsjovs allra
góðra gjalda verðar en þær dygðu
ekki vegna þeirra skilyrða sem
írakar settu fyrir friði. Saddam
Hussein íraksforseti yrði að hlýta
öllum samþykktum Sameinuðu
þjóðanna. Bush gaf í skyn að
hann hefði haft samráð við leið-
toga annarra ríkja í bandalaginu
gegn Saddam áður en hann setti
fram úrslitakosti sína.
Hertar stórskotaliðsárásir
bandamanna
Bandamenn hertu mjög stórskota-
liðsárásir sínar á stöðvar íraka í
vikunni og voru þær taldar til
marks um að sókn inn í Kúveit
væri yfírvofandi. Þá bárust af því
fréttir að tæplega 500 írakar
hefðu verið teknir til fanga í árás
fjögurra þyrlna á stöðvar nærri
landamærum Saudi-Arabíu og
þótti það til gefa til kynna að
baráttuþrek óbreyttra íraskra
hermanna færi ört dvínandi.
Harðlínumenn sameinast
gegn Jeltsín
Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
lýsti því yfir í sjónvarpsviðtali á
þriðjudag að Míkhaíl S. Gor-
batsjov hefði tekið sér einræðis-
vald í sovésku samfélagi og að
honum bæri að segja af sér án
tafar. Harðlínukommúnistar í
Æðsta ráði Sovétríkjanna for-
dæmdu þessa yfírlýsingu Jeltsíns,
vændu hann um stjómarskrárbrot
og sökuðu hann um að hafa með
þessu lýst yfír borgarastríði í Sov-
étríkjunum. í Rússlandi kröfðust
harðlínukommúnistar þess að full-
trúaþing lýðveldisins yrði kallað
saman til fundar til að ræða til-
lögu um vantraust á Jeltsín.
Ummæli Jeltsíns og viðbrögð
harðlínuaflanna þóttu gefa til
kynna að þáttaskila væri að vænta
í valdabaráttunni í Sovétríkjun-
um.
Vaxandi spenna í Albaníu
Tugþúsundir
manna komu
saman í Tir-
ana, höfuðborg
Albaníu, á mið-
vikudag og
mótmæltu
kommúnískum
stjómarháttum
valdhafa.
Mannfjöldinn felldi styttu af En-
ver Hoxha, fyrrum leiðtoga
landsins, ög kvað hana vera tákn
um harðstjórn albanskra stalín-
ista. Ramiz Alia, forseti lýsti yfír
því sama kvöld að hann hefði tek-
ið alla stjóm landsins í sínar hend-
ur auk þess sem stjómvöld hertu
mjög alla öryggisgæslu í Tirana.
Ramiz Alia.
Kúveitar fluttir nauð-
ugir landleiðina til Iraks
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
SENDIHERRA Kúveits hjá Sameinuðu þjóðunum, Mohammad Abul-
hasan, sagði á föstudag að iraska hersetuliðið í Kúveit hefði þann
sama dag safnað saman Kúveitum og flutt þá nauðuga landleiðina
til Iraks.
Abulhasan setti ásakanir þessar
fram í bréfí til framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, Perez de Cuell-
ars, en hann sagði ekki hversu margt
fólk væri um að ræða.
„Ég vil upplýsa ykkur um að í
dag, föstudag, safnar íraska herliðið
saman öllum Kúveitum, karlmönn-
um, konum og börnum, sem það hitt-
ir fyrir á götu, bindur fyrir augu
þeirra og flytur þá í bifreiðum til
Iraks," sagði sendiherrann. Abulhas-
an, sem vildi ekki segja hvaða heim-
ildir hann hefði fyrir upplýsingum
sínum, sagði að farartækjunum væri
lagt fyrir utan moskur og þar væri
„beðið eftir þeim sem væru við föstu-
dags-bænir“.
Abulhasan sagði að jafnvel nú,
þegar samningaumleitanir væru á
viðkvæmu stigi, væri framkoma ír-
askra hermanna við óbreytta borgara
í Kúveit „níðingsleg".
Engin viðbrögð bárust frá sendi-
herra íraks hjá Sameinuðu þjóðun-
um, Abdul Amir al-Anhari, en á
föstudag var hann í Moskvu þar sem
hann tók þátt í samningu áætlunar
um hvernig binda megi enda á Persa-
flóastríðið.
Kína og Tævan sameinist
Tæpei. Reuter.
STJORNVÖLD og sljórnarandstæðingar á Tævan hvetja nú til þess
að Kína og Tævan verði sameinuð í eitt ríki með friðsamlegum
hætti. Ríkin tvö hafa formlega átt í styrjöld áratugum saman.
því að skipst verði á heimsóknum
háttsettra embættismanna. Talið
er að yfírlýsingin sé aðallega tákn-
ræn um bætt samkipti en líklegt
að mörg ár líði þar til komið verði
á samruna ríkjanna.
Flokkur kínverskra þjóðernis-
sinna hefur farið með völd á Tævan
síðan kommúnistar hröktu flokkinn
og leiðtoga hans, Tsjankæ Tsék, frá
völdum á meginlandi Kína 1949. í
yfirlýsingunni er m.a. mælt með
George Bush krefst skilyrðis-
lausrar uppgjafar Saddams
GEORGE Bush og Saddam Huss ein hafa til þessa oftast látið
nægja að skiptast á herskáum yfirlýsingum og gagnkvæmum
svívirðingum. Þegar þetta er skrifað bendir hins vegar allt til
þess að nú láti bandamenn til skarar skríða gegn landherjum
Saddams og fylkingum ljósti saman. Stríðið fyrir botni Persaflóa
hefur hingað til verið nánast barnaleikur miðað við þær skelfing-
ar sem virðast yfirvofandi. Því hefur verið haldið fram í hálfkær-
ingi að fyrir bandamenn hafi stríðið fram til þessa í raun aðeins
verið dýrasti tölvuleikur sögunnar. Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleið-
togi hefur reynt að sjá virðingu sinni borgið eftir ýmsa erfiðleika
heima fyrir með friðarumleitunum en þeir úrslitakostir sem Bush
setti Saddam á föstudag eru í reynd snoppungur í andlit Sovétfor-
setans. Bush vill ekki aðeins brottflutning íraskra hermanna frá
Kúveit heldur skilyrðislausa uppgjöf Saddams.
íraksforseti hefur að undanf- að baki írösku hersveitunum og
ömu reynt að finna leið út úr stríð-
inu án þess að verða auðmýktur.
I síðustu viku kynnti hann og
byltingarráð Ba’athflokksins til
að mynda „friðartilboð“, sem
reyndist vægast sagt óraunsætt,
bókstaflega út í hött. Tareq Aziz,
utanríkisráðherra íraks, hefur síð-
an boðað frekari tilslakanir í við-
ræðum við sovéska ráðamenn í
Moskvu en gekk þó ekki nógu
langt. Ef líkja má Aziz við arabí-
skan teppasala, sem vill pranga
vöru sinni í bandamenn, hefur
hann slegið 75% af verðinu. Aziz
er slyngur samningamaður en
bandamenn eru ekki ginnkeyptir
fyrir vörunni. Þeir vilja að írakar
láti Kúveit strax af hendi og greiði
skaðabætur að auki.
Þungavopnin skilin eftir?
Gorbatsjov hefur lagt til að ír-
akar flytji hersveitir sínar frá
Kúveit á þremur vikum en banda-
menn vilja gefa þeim mun
skemmri tíma, eða eina viku.
Embættismenn í bandaríska vam-
armálaráðuneytinu sögðu í gær,
laugardag, að vika ætti að nægja
til að ljúka brottflutningnum. lr-
akar ættu einnig að geta flutt
skriðdreka sína og önnur þunga-
vopn ásamt
sprengjugildr;
um heim til ír-
aks á þessum ___________________________
tlma' eftir Boga Þ. Arasort
eyðileggja flutningatæki þeirra.
Ef fullyrðingar bandaríska varn-
armálaráðuneytisins nú eru réttar
virðast loftárásir bandamanna
draga úr hemaðarmætti íraka og
refsa þeim. í ávarpinu herskáa
sem hann flutti á föstudag lagði
hann ríka áherslu á að takmark
bandamanna væri að tortíma írak.
Treystir ekki Saddam
Ástæðan fyrir því að Bush gef-
ur Saddam svo skamman frest er
einföld. Hann treystir ekki Sadd-
am enda má draga þann lærdóm
af Persaflóastríði íraka og írana
að íraski einræðisherrann svífst
einskis. Tveimur árum eftir að
hann hafði komið stríðinu af stað,
eða árið 1982, lýsti hann þvi yfir
að íraskar hersveitir yrðu fluttar
frá íran en stóð ekki við orð sín.
Hann beitti sér fyrir vopnahléi en
ekki hafa borið jafn mikinn árang-
ur og bandamenn hafa látið í veðri
vaka.
í nýjasta hefti Newsweek er
hins vegar haft eftir embættis-
mönnum í bandaríska varnar-
málaráðuneytinu að írakar þurfi
fjórar til sex vik-
BAKSVID
Breska dag-
blaðið The Daily Telegraph telur
hins vegar að erfítt verði fýrir
Saddam að flytja hermenn sína á
brott á svo skömmum tíma. „ír-
ösku hermennimir verða að
klöngrast upp í allt sem hreyfst
getur,“ hefur blaðið eftir hem-
aðarsérfræðingum í Lundúnum
og Washington. Þeir telja til að
mynda alls ekki raunsætt að ír-
ösku hermennimir í Kúveit-borg
geti farið úr henni á tveimur sólar-
hringum eins og bandamenn hafa
krafíst.
Blaðið bendir á að fjölþjóðaher-
inn hefur að undanfömu lagt ríka
áherslu á að sprengja allar brýr
ur til að flytja
herafla sinn úr
Kúveit. Tíma-
ritið hefur einnig
eftir hernað-
arsérfræðingum að af um 500.000
íröskum hermönnum í Kúveit séu
um 200.000 án flutningatækja.
Það taki að minnsta kosti mánuð
að flytja þá alla heim - jafnvel
þótt írakar skilji vopn sín eftir.
Til að koma þeim á brott þurfi
herflutningabílar að fara 10.000
ferðir yfír landamærin til íraks.
Loftbrú þurfi til að ljúka brott-
flutningum en það taki sinn tíma.
Ljóst er af framansögðu að ír-
akar þyrftu að skilja megnið af
stríðstólum sínum eftir í Kúveit.
Saddam Hussein hlýtur því að líta
á úrslitakosti Bush og banda-
manna hans sem tilraun til að
eftir að íranir höfðu fallist á það
árið 1988 gerðu írakar árás á
yfírráðasvæði óvinanna. Auk þess
hefur Saddam margoft gerst sek-
ur um brot á alþjóðalögum.
George Bush hafnaði friðartil-
lögum Gorbatsjovs vegna þess að
hann vill ekki að Saddam geti
staðið uppi sem sigurvegari jafn-
vel þótt hann neyðist til að kalla
hersveitir sínar í Kúveit heim.
Gorbatsjov lagði tillögur sínar
fram meðal annars til að sýna að
hann væri verðugur friðarverð-
launa Nóbels þrátt fyrir mann-
drápin í Litháen. Einnig vill hann
tryggja hagsmuni Sovétmanna í
Miðausturlöndum og friða harð-
línukommúnista og yfirmenn
Rauða hersins, sem eru andvígir
stuðningi hans við bandamenn.
Bush taldi hins vegar meiri nauð-
syn á því að neyða Saddam til
uppgjafar en að bjarga Gor-
batsjov. Bandaríkjaforseti þakk-
aði Sovétleiðtoganum fyrir friða-
rumleitanirnar en kvaddi hann
síðan með eyrnafíkju „að sjó-
mannasið".