Morgunblaðið - 24.02.1991, Qupperneq 8
8'
'MO'RGUNBLA'ÐÍÐ
DAGBOKs&ííNUbAGUR
/Sfeg gf_f
24. FEBRÚAR 1991
*
IT\ \ f~^ev sunnudagur 24. febrúar, 2 sd. í föstu.
±J±\.VJ 55. dagur ársins 1991. Konudagur. Góa
byijar. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 2.08 og síðdegisflóð kl.
14.59. Fjara kl. 8.44 og kl. 21.08. Sólarupprás í Rvík kl.
8.54 og sólarlag kl. 18.29. Myrkurkl. 19.18. Sólin er í hádeg-
isstað í Rvík kl. 13.41 og tunglið í suðri kl. 22.17. (Alman-
ak Háskóla íslands.)
Alla þá sem ég elska, tyfta ég og aga. Ver því heilhuga
oggjör iðrun. (Opinb. 3,19.)
ÁRNAÐ HEILLA
O fT ára afmæli. Á morgun,
O O 25. febrúar, er 85 ára
Þórður Elisson, fyrrum út-
gerðarmaður, Þórustíg 9,
Njarðvík. Hann verður að
heiman á afmælisdaginn.
f"J |\ára afmæli. Á morgun,
C U 25. febrúar, er sjötug
Elísabeth Vilhjálmsson,
Reykjahlíð 12, Rvík. Hún
er fædd í Þýskalandi. Hún
varð ísl. ríkisborgari 1942 er
hún giftist Óskari Björgvin
Vilhjálmssyni. Þau bjuggu í
Berlín. Hann var handtekinn
á dögum nasista og lést í
fangabúðum þeirra árið 1944.
Seinni maður hennar var
Magnús Guðmundsson, er
lést árið 1983.
Hún hefur opið hús á heimili
sínu afmælisdaginn eftir kl.
16. Sýnir þar og næstu daga'
tölvuteiknaðar myndir m.m.
eftir sjálfa sig.
7Oara a^mæ^- Næstkom-
I V/ andi þriðjudag, 26.
þ.m., er Vigfús Þráinn
Bjarnason í Hlíðarholti,
Staðarsveit, Snæf. sjötugur.
Hann tekur á móti gestum á
heimili sínu afmælisdaginn
eftir kl. 18.
febrúar, er sextug Engilráð
(Stella) Óskarsdóttir, Lauf-
vangi 12, Hafnarfirði. Hún
tekur á móti gestum á heim-
ili sínu að kvöldi afmælis-
dagsins. Maður hennar var
Guðmundur Erlendsson rann-
sóknarlögreglumaður sem
látinn er fyrir nokkrum árum.
HRAUNGERÐISHREPP-
UR í Árnessýslu. Sýslumað-
urinn á Selfossi auglýsir í
nýlegum Lögbirtingi lausa
stöðu hreppstjórans í Hraun-
gerðishreppi. Umsóknarfrest-
inn setur sýslumaður til 10.
næsta mán.
KROSSGATAN
LÁRÉTT: — 1 láta staðar
numið, 5 lítil eyja, 8 notaleg,
9 afkvæmis, 11 ala afkvæmi,
14 keyri, 15 gerðin, 16 nem-
ur, 17 reið, 19 fyrr, 21 veisl-
an, 22 koma nær, 25 eyða,
26 fljótið, 27 leðja.
LÓÐRÉTT: - 2 borða, 3
málmur, 4 svaraði, 5 aftur-
fótaskanki, 6 mannsnafn, 7
virði, 9 rúmábreiðu, 10 kind-
ina, 12 djöful, 13 ákveður,
18 eldur, 20 slá, 21 guð, 23
sjór, 24 flan,
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: - 1 ösnum, 5 stika, 8 neita, 9 holdi, 11 rusls,
14 tjá, 15 fífli, 16 kárna, 17 lóa, 19 Eden, 21 endi, 22 rýt-
ings, 25 tíð, 26 ána, 27 agn.
LOÐRÉTT: — 2 svo, 3 und, 4 meitil, 5 stráka, 6 tau, 7 kol,
9 hófiegt, 10 lofgerð, 12 strunsa, 13 svalinn, 18 ólin, 20 ný,
21 eg, 23 tá, 24 Na.
Þetta þýðir ekkert, Pálmi minn. Honum verður ekki þokað. Þetta eru hans heimkynni...
FRÉTTIR/MANNAMÓT
GÓA byijar í dag. „Fimmti
mánuður vetrar að fornís-
lensku tímatali, hefst í 18.
viku vetrar (18.-24. febr.)
Nafnskýring er óviss,“ segir
Stjömufræði/Rímfræði.
Fyrsti dagur góu er konu-
dagur. „Sagt er, að húsfreyj-
ur hafi átt að „fagna góu“
þennan dag og bændur hafi
átt að gera húsfreyjum eitt-
hvað vel til. Þess munu dæmi
að hlutverk hjónanna í þess-
um sið hafi verið hin gagn-
stæðu,“ segir í sömu heimild-
um. Þennan dag árið 1924
var stofnaður íhaldsfiokkur-
inn, forveri Sjálfstæðis-
flokksiris. Og þetta er
stofndagur Sjómannasam-
bands Islands, árið 1957.
MÁLSTOFA í guðfræði.
Næstkomandi þriðjudag, 26.
þ.m., verður haldin málstofa
í guðfræði. Þá fiytur Einar
Pálsson fyrirlestur sem hann
nefnir: Staðsetning Péturs-
kirkjunnar í Skálholti í önd-
verðu. Málstofan er haldin í
Skólabæ, Suðurgötu 26, og
hefst kl. 16.
AGLOW, kristileg samtök
kvenna, halda fund mánu-
dagskvöldið í kaffisal Bú-
staðakirkju og hefst hann kl.
20 og lýkur kl. 22. Sólveig
Traustadóttir verður gestur
fundarins og mun hún flytja
prédikun. Fundurinn er opinn
öllum konum.
FÉL. eldri borgara. í dag
er opið hús í Risinu kl. 14.
Nk. þriðjudag verður þar bók-
menntakynning, Heimir
Pálsson flytur þá erindi um
Þorgils gjallanda. Baldvin
Halldórsson les úr verkum
höf.
FORNIR jöklar og fjöru-
mörk á Norðausturlandi heitir
fræðslufyrirlestur sem
Hreggviður Norðdahl jarð-
fræðingur heldur á vegum
Hins ísl. náttúrufræðifélags í
stofu 101 í Odda, annað
kvöld. Fyrirlesarinn mun gera
grein fyrir þeim rannsóknum
sem fram hafa farið á þessum
fyrirbærum. Þær varpa ljósi
á atburði ísaldarloka hér
landi, segir m.a. í fréttatilk.
HÍN um þennan fræðslufund,
sem hefst kl. 20.30. Er hann
öllum opinn og enginn að-
gangseyrir.
KVENFÉL. Hreyfils efnir
til fundar fyrir félagsmenn
og gesti þeirra í Hreyfilshús-
inu nk. þriðjudagskvöld og
verður m.a. spilað bingó.
KVENFÉL. Kópavogs.
Mánudagskvöld verður vinnu-
kvöld í herbergi félagsins kl.
20. Unnið við ungbamafatnað
fyrir Rauða kross íslands.
Næstkomandi þriðjudags-
kvöld verður spiluð félagsvist
í félagsheimili Kópavogs kl.
20.30 og er öllum opin.
HÓLMAVÍK. Norður á
Hólmavík er laus staða lækn-
is við heilsugæslustöðina og
tekið fram að hún sé laus nú
þegar. Framkvæmdastjóri
heilsugæslustöðvarinnar set-
ur umsóknarfresttil 28. þ.m.
KIRKJUSTARF
ÁRBÆJARKIRKJA: FéT
lagsstarf aldraða: Fótsnyrt-
ing á mánudögum, tímapant-
anir hjá Fjólu. Leikfimi
þriðjudaga kl. 14. Hárgreiðsla
þriðjudaga hjá Hrafnhildi.
Opið hús í Safnaðarheimilinu
miðvikudag kl. 13.30. Fyrir-
bænastund í Árbæjarkirkju
kl. 16.30. Opið hús fyrir
mæður og feður ungra barna
í Ártúnsholti og Árbæ í safn-
aðarheimili Árbæjarkirkju
þriðjudagkl. 10-12. Sr. Krist-
inn Ágúst Friðfinnsson ijallar
um trúarþroska bama.
BÚSTAÐAKIRKJA: Æsku-
lýðsfundur í dag, sunnudag,
kl. 17.
GRENSÁSKIRKJA: Æsku-
lýðsfundur í kvöld kl. 20.
HALLGRÍMSKIRKJA:
Kvöldbænir með lestri Passíu-
sálma mánudagskvöld kl. 18.
NESKIRKJA: Æskulýðs-
starf unglinga mánudags-
kvöld kl. 20. Þriðjudag:
Mömmumorgunn. Opið hús
fyrir mæður og börn þeirra
kl. 10-12. Æskulýðsstarf 12
ára og yngri kl. 17.
FELLA- og Hólakirkja:
Fundur í Æskulýðsfélaginu
mánudagskvöld kl. 20.30.
Fyrirbænir í kirkjunni þriðju-
daga kl. 14.
SELJAKIRKJA: Mánudag:
Fundur KFUK, yngri deild
kl. 17.30, eldri deild kl. 18.
Æskulýðsfundur kl. 20.
SELTJARNARNES-
KIRKJA: Æskulýðsfundur í
kvöld kl. 20.30. Opið hús fyr-
ir 10-12 ára mánudag kl. 17.
SKIPIN
REYKJAVÍKURHÖFN:
í gær fór Esja á ströndina
og erl. skip með ammoníak
kom og lagðist að bryggju í
Gufunesi. Togarinn Ögri er
væntanlegur inn í dag til
löndunar. Þýskur togari er
væntanlegur. Á morgun er
Brúarfoss væntanlegur að
utan. Togararnir Jón Bald-
vinsson og Ásbjörn koma
þá inn til löndunar og Valur
fer á ströndina. Á mánudag
fer danska eftirlitsskipið
Vædderen og mun það ekki
koma afur til hafnar hér og
á að Ijúka þjónustu í danska
flotanum í aprílmánuði nk.
Það var Vædderen sem flutti
handritin heim frá Kaup-
mannahöfn fyrir um 20 árum
og komst skipið þar með á
blöð Islandssögunnar. Skipið
var smíðað fyrir um 30 árum
í skipasmíðastöðinni í Ála-
borg.
ORÐABÓKIN
írak-
Ofangreind nöfn sjást
nú á hveijum degi í fjöl-
miðlum af ástæðum, sem
öllum eru kunnar. Ymsir
hafa verið að velta fyrir
sér rithætti lo. íraskur.
Enginn vafi leikur á, að
orðið skal rita með litlum
staf. Hins vegar hefur
mönnum fundizt eitthvert
ósamræmi í því að fella
niður A-ið úr landaheitinu
írak og skrifa ekki fullum
stöfum írakskur. Þetta er
auðvitað hárrétt, ef farið
er eftir upprunasjónar-
miði, svo sem víða er gert
í stafsetningu okkar. Þeg-
ar ég fór að læra stafsetn-
ingu fyrir um 60 árum,
var einmitt sú tilhneiging
að rita lo., sem leidd eru
af no. með endingunni
-vík með k-i. Má þar
íraskur
minna á lo. eins og reyk-
víkskur af Reykjavík,
enda má í OM (1983) sjá
þar k-ið í vík haft innan
sviga. Mér var t.d. sjálfum
um eitt skeið kennt að
rita svo. Á þeim tíma mun
lo. eins og írakskur lítt
hafa þekkzt í orðaforða
okkar. Nú er það svo, að
k-ið í ofangreindum dæm-
um og vitaskuld fjölda
annarra dæma hverfur í
eðlilegum framburði. Sú
stefna varð því almennt
ofan á að sleppa /c-inu úr
stofni orðsins og rita ein-
ungis reykvískur, bolvísk-
ur o.s.frv. í samræmi við
það er þá einnig ritað
íraskur. Á sama hátt er
farið með no. eins og
reykvfska og keflvíska.
- JAJ