Morgunblaðið - 24.02.1991, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1991
Öll stig veiða og vinnslu fara fram um borð í frystitogara. Eftir að aflinn kemur í vinnslusal (ef sal
skyldi kalla) er fiskurinn blóðgaður, slægður, hausaður, flakaður, snyrtur, honum pakkað og hann fryst-
ur. Þeir Hafþór Júlíusson (Haffi), Hinrik Halldórsson (Hinni) og Sigurður Isaksson (Siggi) stiga hér
ölduna við snyrtinguna.
urinn er meira en tvisvar sinnunr
verðmeiri en ufsinn og karfinn. Sjó-
mennirnir gleðjast því þegar uppi-
staðan í hali er þorskur.
Skipstjórnarmenn á veiðum hafa
nokkuð mikið samband sín á milli
við veiðarnar. „Hvar ertu núna?“
„Hveijir eru að veiða á sömu slóð-
um?“ „Ertu að fá hann?“ „Er rauð-
ur pungúr?" „Er þetta þorskur eða
kaifi?“ Svona hljóma spurningarnar
í talstöðinni og ekki stendur á svör-
um. Það vekur undrun mína að
heyra hversu vinsamlegar samræð-
ur manna eru og þeir fúsir til þess
að skiptast á upplýsingum. Land-
krabbinn hafði ímyndað sér að skip-
stjórarnir væm þöglir sem gröfin
um staðsetningu og aflabrögð við
keppinauta sína — einkum ef vel
fiskaðist. Ég spurði Hannes hvort
samskiptin væru alltaf með þessum
hætti: „Já, já. Blessuð vertu. Þetta
fer allt fram í hinu mesta bróðerni,
en auðvitað lýgur maður stundum,
svona innan hóflegra marka!“ segir
Hannes og hlær strákslega.
Orðaforðinn sem fer um talstöð-
ina er landkrabbanum einnig fram-
andi. Þeir nefna ákveðna staði á
miðunum eigin nöfnum, sem ekki
finnast á neinum sjókortum. Torgið
er til dæmis stytting fyrir Hamp-
iðjutorgið, þar sem togarar hafa svo
oft fest troll sín þar og rifið. Við
það verður mikið að gera hjá Hamp-
iðjunni. Reyndar hefur Torgið feng-
ið aðra skýringu og nýlegri: Torg
hins himneska friðar, sem er aldrei
til friðs. Þeir tala einnig um að toga
á Bjargvættinum, sem er líka nýleg
nafngift.
Lífið um borð
Dagur og nótt eru eiginlega ekki
til um borð í frystitogara, heldur
fjögur sex stunda tímabil sem skipt-
ast í vakt, frívakt, vakt, frívakt,
þannig að tólf vinnustundum er
skilað á hveijum sólarhring alla
úthaldsdagana, sem yfirleitt eru 24
til 26, en geta farið yfir 30 þegar
lítið veiðist. Helsta óánægja sjó-
mannanna beinist að löngu úthaldi.
Þeir segja að túrar sem séu um og
yfir 30 dagar séu allt of langir og
að andrúmsloftið um borð síðustu
vikuna eða svo í löngu túrunum
geti orðið æði rafmagnað. Þá séu
menn svo pirraðir og uppstökkir að
fjandinn geti orðið laus af minna
en engu tilefni. „Við værum áreið-
anlega verðugt rannsóknarefni fyrir
sálfræðinga á fimmtu vikunni,"
segir einn og glottir. Annar segir
að deilur manna á milli á síðustu
dögum langs úthalds geti dregið
slíkan dilk á eftir sér að menn tal-
ist ekki við túrum saman.
Einangrað karlasamfélag
„Shipohoj“-textarnir sem Bubbi
vitnaði til koma mér oft í huga
þessa daga um borð. Lífið um borð
í þessu fljótandi frystihúsi er ijarri
því að vera fyrirmyndin að slíkum
textum. Reyndar hallast ég að því
að lífið um borð í frystitogara sé
ekki ósvipað fangelsislífi. Þetta er
þröngt, einangrað karlasamfélag,
þar sem fátt er hægt að gera sér
til dægrastyttingar. Auðvitað hefur
sjómaðurinn sjálfur valið sér vist-
ina, en ekki verið dæmdur til henn-
ar, eins og fanginn.
Að fijálsa valinu undanskildu,
hugsa ég að hliðstæðumar séu ótrú-
lega margar: Einangrunin frá um-
heiminum er mikil. Það er bara
gamla Gufan og Rás tvö sem heyr-
ast í útvarpinu, meira að segja get-
ur það verið með höppum og glöpp-
um. Og sömu sögu er að segja um
símasamband í land. Satt best að
segja tel ég mig hafa fengið nokk-
urra ára skammt af dagskrá
Ríkisútvarpsins beint í æð í þessarn
ferð, alveg óumbeðið. Fréttum vilja
allir um borð fylgjast með og sjó-
mennimir virðast nokkuð ánægðir
með fréttastofu útvarpsins. En þeir
eiga bágt með að skilja hvers vegna
ekki má útvarpa veðurfregnum á
Rás tvö, sem þeir vilja miklu frekar
hlýða á en Gufuna. Sjómönnum
getur orðið heitt í hamsi þegar þeir
ræðá ýmsa þætti útvarps, og þá
beinist pirringur þeirra einkum að
dagskrárgerðarmönnum og „öllum
þessum Þjóðarsálar-erkifíflum".
Ferðafrelsi er ekkert — þú ferð
ekki lengra en út að borðstokknum.
Þú ferð ekki á tónleika, í bíó, í
bíltúr með íjölskyldunni, í leikhús,
í kaffiboð, á krá, á skíði, á hestbak
- þú ferð ekki neitt.
íslenski hesturinn í hávegum
Það sem þú getur gert á frívakt-
inni, þegar þú ekki sefur er að glápa
á myndband, sem ákveðinn hluti
áhafnar gerir óspart, grípa í spil,
tefla eða lesa. Það er rétt að lýsa
því yfir hér og nú að enginn fótur
er fyrir sögusögnum þess efnis að
sjómenn hangi yfir svokölluðum
„bláum myndum" eða klámmynd-
um á frívaktinni, samkvæmt því
sem ég sá og heyrði. Bandarískar
spennumyndir eru sennilega það
sem mest er horft á, auk þess sem
íslenskt sjónvarpsefni, sem er tekið
upp fyrir áhöfnina í landi, nýtur
mikilla vinsælda. Allra vinsælasta
myndbandið var þó um íslenska
hestinn! Af 27 manna áhöfn Frera
eru 8 í hestamennsku og mér fannst
það bókstaflega hlægilegt að sjá
þessa togarajaxla liggja yfir sama
myndbandinu frívakt eftir frívakt
og dásama allt sem eina truntu má
prýða.
Launin á frystitogurum eru góð,
enda myndu sjálfsagt fæstir halda
frystitogaravistina út til lengdar,
ef launin væru ekki góð. Freri var
með flesta úthaldsdaga allra frysti-
togara á síðastliðnu ári, eða 318
og túrarnir voru 12. Meðallengd
hvers túrs var því 26,5 dagar. Há-
setahluturinn sl. ár miðað við að
háseti tæki sér ekkert frí var um
4,6 milljónir króna. Það eru há laun,
en að baki er líka mikil vinna og
langt úthald — lauslega áætlað
voru nálægt 4.000 vinnustundir í
vinnuári slíks háseta. Samkvæmt
samningum eiga sjómennimir rétt
á að taka sér frí þriðja hvern túr.
Fæstir virðast fara svo oft í frí, en
algengt er að menn taki sér frí tvo
til þijá túra á ári. Miðað við þriggja
túra frí í fyrra má því áætla að
árslaun háseta á Frera hafi verið
um 3,6 milljónir króna.
Sjómennimir em ekkert að draga
úr því í samræðum sínum við mig,
að þeir hafí góð laun, en þeir benda
réttilega á, að fyrir þessi laun fómi
PASKAFERÐ
27/3 - 9/4
(ÍÍSTÁ)
Fæst á öllum bensínafgreiöslum
Nýbýlavegi 18,
sími 641988 OLÍUFÉLAGIÐ HF.
—-
broit FARAR-
DAGAR:
1991
26.5 4.6
11.6 18.6
26.6 2.7
9.7 16.7
23.7 30.7
6.8 13.8
20.8 27.8
3.9 10.9
17.9 24.9
1.10 22.10
Verð frá:
39.600,-4 [ búö
FERÐASKRIFSTOFA. HALLVEIGARSTÍG 1. SÍMAR 28388-28580.
—