Morgunblaðið - 24.02.1991, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1991
21
Á frívaktinni er bridds vinsæl afþreying. Þessir þrír, Skari, Siggi Jóh og Siggi ísaks voru i hópi þeirra
sera tóku blaðamann Morgunblaðsins í nokkrar briddskennslustundir.
Hann Guðmundur Valdimarsson aðstoðarkokkur er með brosmildari mönnum. Hann er eini maðurinn
í áhöfn, sem ekki er á hlut, hefur reyndar smánarlaun fyrir þá tíu tíma á dag, sem hann er á þönum.
Veislukosturinn um borð væri efni út af fyrir sig í aðra grein. Olafur Jóhannsson var í þessari för
fyrsti kokkur og matreiddi af sannri snilld. Reyndar var það blaðamanni mikil huggun að heyra að til
sjós brennir maður 30% meira en í landi, meira að segja í koju!
þeir miklu. Þeir lifi ekki hefðbundnu
fjölskyldulífi lungann úr árinu og
missi af uppvexti og þroska bama
sinna. Börnin séu þeim oft á tíðum
ókunn og séu fyrst að jafna sig á
feimninni, þegar fríi er lokið og
haldið er til hafs á ný. Þá segja
þeir að í umræðum um launakjör
þeirra gleymist sú staðreynd alla
jafna, að krónutalan sem þeir hafa
út úr hverri milljón aflaverðmætis
sé hin sama og hún var árið 1986.
Hæst var talan síðastliðið vor,
vegna lágs olíuverðs, en þá var
krónutalan um 11.700 krónur út
úr milljóninni, eða um 1,17%.
Lífið liðið hjá
„Ég man ég fór til sjós frá ungri
konu og og litlum börnum. Heim-
komur mínar voru til konu og
ókunnugra barna. Nú kem ég heim
og hitti ókunnugt fólk og konan
situr og hossar á hné sér ókunnum
smábörnum sem kalla hana ömmu.
Svona hefur lífið liðið hjá, án þess
að maður tæki beinlínis eftir því.“
Þetta er dapurleg lýsing á lífshlaupi
manns sem fór kornungur til sjós
og ekki að efa að hún á við um
fjölda sjómanna.
Meirihluti áhafnarinnar er ungir
menn, svona 25 til 37 ára, nokkrir
eru miðaldra, en enginn roskinn.
Flestir hafa þeir verið sjómenn um
langt skeið. Segjast sumir vera á
leiðinni í land, en eru ekki teknir
ýkja alvarlega. Eru sagðir hafa
sagt þetta svo oft áður. Launanna
vegna eru skipspláss á frystitogur-
um eftirsótt, og hásetarnir á Frera,
sem á öðrum frystitogurum hugsa
sig ugglaust tvisvar um, áður en
þeir gefa pláss sitt eftir, enda hafa
þeir margir verið árum og áratug-
um saman til sjós.
„Þetta er einfalt mál. Maður
kann ekkert annað en sjómennsku.
Að hveiju ætti maður að hverfa í
landi? Nú, svo kann það ekki góðri
lukku að stýra að ætla eftir margra
ára sjómennsku. að hverfa í land
og reyna að taka völdin á heimil-
inu. Konurnar okkar eru vanar því
að vera skipstjórar heimilanna. Þær
sjá um allt, fjármál, rekstur, fram-
kvæmdir, uppeldi og allt sem nöfn-
„Auðvitað lýgur maður stundum, svona innan hóflegra
marka!“ segir Hannes Einarsson, „kallinn í brúnni“ í
þessari veiðiferð Frera.
um tjáir að nefna. Þessu unum við
á meðan við stundum sjóinn og er-
um reyndar hæstánægðir með
dugnað kvennanna, en ég á bágt
með að sjá mig eða aðra félaga
mína hér um borð una sér í landi
til lengdar sem óbreyttur háseti
undir skipstjórn eiginkonunnar!"
Eins og ég gat um hér í upphafi
fannst mér dáðadrengirnir um borð
í Frera vera fráhrindandi við fyrstu
kynni, en eftir níu daga samvistir
við þá var það sem í upphafi virk-
aði fráhrindandi og kuldalegt orðið
karlmannlega „sjarmerandi". Það
er um margt ólíkt að ræða við sjó-
menn og stjórnmálamenn, en ég
hef mun meiri reynslu að samræð-
um við þá síðarnefndu. Flest i
slíkum samanburði er sjómönnun-
um í hag. Þeir koma til dyranna
eins og þeir eru klæddir og segja
sína meiningu án vífilengja og silki-
umbúða og án þess að taka sjálfa
sig og aðra allt of hátíðlega. Fyrir
þeim þvælist hvorki tepruskapur
né stofnanamál og fyrir bragðið
varð þessi för með Frera mér góður
skóli og andleg endurhæfing, en
alls ekki sú refsivist sem ákveðnir
„spámenn“ höfðu spáð. Það var því
með söknuði sem ég kvaddi þá
Freramenn, er þeir létu mig síga í
böndum niður í Vestmannaeyjalóðs-
inn, suður af Vestmannaeyjum og
héldu síðan áfram austur fyrir land,
þar sem enn skyldi leitað þess gula.
Stelpan, sem var
alein heima
Sakamálagetraun í fjórum
köflum í þessari viku
áRás2
Fylgist með hrollvekjandi máli
í litlu, íslensku sjávarþorpi.
Fyrsti kafli á Rás 2 á morgun
eftirkl. 15.
Hlustendur finna lausnina í lok
vikunnar. Lundúnaferð fyrir
- tvo í verðlaun.
- spennandi útvarp -
allan daginn