Morgunblaðið - 24.02.1991, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1991
ATVIN N %3AUGL YSINGAR
Fangelsismála-
stofnun ríkisins
auglýsir eftir starfskrafti til að annast félags-
lega þjónustu við fanga og sjá um eftirlit
með þeim, sem dæmdir eru skilorðsbundið,
fá skilorðsbundna reynslulausn, náðun eða
frestun afplánunar. Æskilegt er að viðkom-
andi hafi félagsráðgjafamenntun eða sam-
bærilega menntun. Nánari upplýsingar eru
veittar í síma 623343.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist Fangelsismálastofnun
ríkisins, Borgartúni 7, 150 Reykjavík, eigi
síðar en 1. mars nk.
Fangelsismálastofnun ríkisins,
12. febrúar 1991.
SKRIFSTOFUVÉLAR sund hf
eru leiðandi fyrirtæki í sölu og þjónustu á
skrifstofutækjum, staðsett á Nýbýlavegi
14-18 í Kópavogí. Fyrirtækið byggir á göml-
um grunni og er í mikilli sókn.
Rafeindavirki
- rafvirki
Vegna aukinna umsvifa við þjónustu á
Konica U-bix, Xerox og Rex Rotary
Ijósritunarvélum leitum við að drífandi og
hæfum viðgerðarmanni til starfa á Ijósritun-
arverkstæði fyrirtækisins. Starfsreynsla á
þessu sviði er æskileg. Góð laun í boði fyrir
réttan einstakling.
Farið verður með allar fyrirspurnir og um-
sóknir sem algjört trúnaðarmál.
Umsóknum skal skilað til Ráðningarþjón-
ustu Guðna Jónssonar, Tjarnargötu 14, fyr-
ir 2. mars nk.
(tI JÐNf ÍÓNSSON
RÁÐCJÖF & RÁÐN I N CARhJÓN Ll STA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMl 62 13 22
Bókasaf nsf ræðing u r
Laus er til umsóknar staða bókasafnsfræð-
ings við Amtsbókasafnið á Akureyri.
Ráðið verður í starfið frá 1. júní nk. eða eft-
ir nánara samkomulagi.
Laun samkvæmt kjarasamningi STAK og
Akureyrarbæjar.
Upplýsingar um starfið gefa amtsbókavörður
í síma 96-24141 og starfsmannastjóri í síma
96-21000. Umsóknareyðublöð fást í starfs-
mannadeild Akureyrarbæjar.
Umsóknarfrestur er til 8. mars nk.
Bæjarstjórinn á Akureyri.
Þjónustumiðstöð
- matreiðslumaður
Kf. Borgfirðinga og Olíufélagið hf.
opna í vor 900 m2 þjónustumiðstöð við þjóð-
veginn í Borgarnesi. Þar verður m.a. bensín-
og olíusala, veitingasala og almenn ferða-
mannaverslun.
Leitað er að matreiðslumanni til að sjá um
daglegan veitingarekstur. Starfsreynsla er
nauðsynleg. Viðkomandi mun taka þátt í
undirbúningsstarfinu. Til greina kemur að
ráða tímabundið í starfið, t.d. til 6 mánaða.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar.
Gudni Tónsson
RÁÐCJÖF &RÁÐN1 NCARMÓNUSTA
TIARNARGÖTU 1.4, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Félagsráðgjafi
óskast í hlutastarf á Landakotsspítala, helst
frá 1. apríl nk.
Nánari upplýsingar gefa félagsráðgjafar,
Karin og Sigurlaug, í símum 604341,604342
eða 604300.
Reykjavík, 21. febrúar 1991.
St. Jósefsspítali, Landakoti.
Laus staða
Við norrænudeild Háskólans í Bergen er laus
staða lektors („amanuensis") í íslensku.
Lektorinn verður ráðinn í 3 ár og hefur mögu-
leika á að sækja um ráðningu í 3 ár til viðbót-
ar. Hafi viðkomandi ekki doktorsgráðu á
hann/hún að vinna að því samkvæmt áætlun
heimspekideildar.
Umsækjandi skal hafa íslenskt cand.mag.
próf eða samsvarandi menntun, góða mála-
þekkingu og hann/hún verður að hafa góða
íslenskukunnáttu. Lektorinn er með kennslu-
skyldu í íslensku máli og bókmenntum, með
aðaláherslu á kynningaráfanga í íslensku.
Honum/henni kann einnig að verða falið að
kenna og vera leiðbeinandi framhaldsnema
á sérsviði sínu. Lektornum er skylt að taka
þátt í prófstarfi auk þess sem æskilegt er
að viðkomandi geti lagt sitt af mörkum í
þágu kynningarstarfsemi fyrir íslenska menn-
ingu og þjóðfélag. Umsækjendur verða að
geta kennt á öllum sviðum fagsins eftir þörf-
um, hvort sem um framhalds- eða byrjun-
arnám er að ræða. Kennsluskylda er allt að
10 stundir í viku. Sá, sem verður ráðinn,
skal hafa undirstöðuréttindi í kennslu- og
uppeldisfræði. Umsækjendur geta fengið að
taka undirstöðunám í uppeldisfræði á fyrsta
starfsári.
Við heimspekideild („Det historisk-filosofiske
fakultet") Háskólans í Bergen er hægt að fá
stöðulýsingu sem gerð hefur verið vegna
þessa starfs. Ráðning miðast við launaþrep
31 í Noregi og ákveðst við doktorsgráðu eða
samsvarandi menntun. Umsækjandi, sem
ekki stenst þær kröfur, verður ráðinn sem
„amanuensis" í launaþrep 23/30.
Konur eru sérstaklega hvattar til að sækja
um. Verði umsækjendur álitnir jafn hæfir til
stöðunnar, mun verða farið eftir sérsamningi
um jafnrétti við Háskólann í Bergen.
Sá, sem verður ráðinn, verður að fylgja þeim
fyrirmælum, sem um stöðuna gilda.
Umsókn með vottorðum um menntun og
fyrri störf í þremur eintökum, vísindarit og
yfirlit yfir þau, allt í þremur eintökum, sendist
heimspekideild Háskóla íslands fyrir 22.
mars 1991.
RADAUGí YSINGAR
ATVINNUHÚSNÆÐI
í aðal Kringlunni
Til leigu/sölu
glæsilega staðsett húsnæði á 3ju hæð, sem
hentar vel fyrir þjónustu og verslunarrekst-
ur, s.s. tannlæknastofu, prentstofu, hann-
yrðaverslun, gullsmíði, fasteignasölu, skó-
vinnustofu og fleira.
Nánari upplýsingar í síma 10293 alla virka
daga.
Til leigu á Hverfisgötu 4 í næsta nágrenni við
nýtt Dómhús Reykjavíkur
Húsnæðið, sem er um 185 fm, skiptist í sjö
skrifstofuherbergi, auk tveggja rúmgóðra
skrifstofu- og/eða fundarherbergja, móttöku,
skjalageymslu, kaffiaðstöðu o.fl. Allt hús-
næðið er nýmálað.
Mjög hentugt fyrir lögfræðistofur.
Nánari upplýsingar í síma 680450 á skrif-
stofutíma.
Til leigu
um 250 fm verslunarhúsnæði á jarðhæð í
Borgartúni 31 .
Hugsanlegt að leigja lagerhúsnæði á sama
stað.
Upplýsingar í síma 627222.
Bankastræti
Til leigu verslunarhúsnæði við Bankastræti,
1. og 2. hæð ásamt kjallara.
Upplýsingar í símum 20947 og 22429.
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
Til leigu skrifstofuhúsnæði á 2. hæð í nýju
húsi í Mjódd. 40-600 fm einingar. Hentugt
fyrir skrifstofur, heildsölur, læknastofur og
fleira. Möguleiki á lageraðstöðu. Lyfta er í
húsinu og næg bílastæði.
Upplýsingar í síma 76904.
Skrifstofuhúsnæði óskast
Félagasamtök óska eftir að taka á leigu ca
60 fm húsnæði á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Upplýsingar í síma 612087.
200 fm - Tangarhöfði
Til leigu 200 fm atvinnuhúsnæði á jarðhæð
með stórri innkeyrsluhurð.
Lofthæð 3,5 metrar.
Upplýsingar í síma 611619 eftir kl. 17.00.
HÚSNÆÐIÓSKAST
w
Islensk-ensk
fjölskylda óskar eftir að leigja íbúð eða lítið
einbýíishús með húsgögnum á Reykjavíkur-
svæðinu frá miðjum júlí til 7. ágúst nk.
Upplýsingar í símum 612177 og 693830.