Morgunblaðið - 24.02.1991, Page 33
MORGUNBIjAÍÐIÐ ATVMNA/RABISMÁ' s£nWdáV!»9i . FEBRÚÁR 1991-
33
RAD.A UGL ÝSINGAR
TILSÖLU
Hlutabréf til sölu
Til sölu eru þrír hlutir í Alpan hf., Eyrar-
bakka, samtals að nafnverði kr. 408.000,- á
útgáfudegi, þann 2. maí 1988.
Tilboð sendist Elvari Unnsteinssyni hdl.,
Suðurlandsbraut 4a, 108 Reykjavík, fyrir 5.
mars nk.
Alþingishátíðarstell 1930
Tilboð óskast í 12 manna matar- og kaffi-
stell. Möguleikar á að selja stellið í tveimur
hlutum.
Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Mbl.,
merkt: „A - 6850“, fyrir 2. mars.
Línubeitingavél til sölu
Lítið notuð (2 ár), nýyfirfarin beitingavél, árg.
1978/79, til sölu. Með vélinni fylgir uppstokk-
ari og 21 magasín ca. 30.000 króka.
Vateik hf., sími 91-679308.
Til sölu offset-plöturammi
Ultra-plus - Flip-Top. Stærð 84x 106 cm.
4000W, metal Halide ásamt góðu punktljósi.
Upplýsingar í síma 680500.
Til sölu „penthouse“íbúð
135 fm „lúxus penthouse" íbúð í hjarta borg-
arinnar til sölu. Allar innréttingar og tæki af
vönduðustu gerð. Veðbandalaus eign. Skipti
möguleg. Einstakt tækifæri.
Lysthafendur sendi nafn og símanúmer í
pósthólf 1100, 121 Reykjavík, merkt:
„Penthouse“íbúð.
ÓSKAST KEYPT
Innflutningsfyrirtæki
Rótgróið innflutningsfyrirtæki óskar eftir að
kaupa innflutningsfyrirtæki.
Þeir sem hafa áhuga sendi upplýsingar til
auglýsingadeildar Morgunblaðsins merktar:
„G - 8663“ fyrir 8. mars nk.
Ullarvörur
Ódýrar ullarvörur óskast keyptar.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„U-788“.
ÞJÓNUSTA
Skattframtöl og bókhald
Skattframtö! og bókhald fyrir einstaklinga
og smærri fyrirtæki. Sé um kærur og sæki
um frest ef með þarf.
Ódýr, örugg og góð þjónusta.
Hafið samband sem fyrst.
Upplýsingar í síma 641554.
ÝMISLEGT
Parket
Óska eftir parketi, ca 40 fm.
Verðtilboð sendist auglýsingadeild Mbl.,
merkt: „Parket - 6847“, fyrir 27. febrúar.
Sumarfrí
48 ára þýsk hljómlistarkona, sem spilar á lág-
fiðlu og fiðlu, langar til að eyða sumarfríi sínu
í Reykjavík í ágúst, leitar eftir gistingu og morg-
unverði hjá fjölskyldu, sem hefur gaman af að
æfa kammertónlist á kvöldin.
Vinsamlegast hafið samband við Heide Det-
hloff, Nikolausstr. 48, 5000 Köln 90, Þýskalandi.
KRINGHN KRINGWN
KKtHeNM KKIHeNH
Markaðstorg Kringlunnar
Við höfum nú starfað í 3 ár á 3. hæðinni í
Kringlunni. Markaðstorgið er nú í vetrarfríi í
3 vikur en tekur til starfa í byrjun mars eftir
að bókamarkaðinum lýkur, en hann er nú til
húsa hjá okkur.
Við höfum selt vörur frá verslunum, heild-
verslunum og einstaklingum. Við höfum
bæði tekið á móti nýinnfluttum vörum og
eldri lagerum. Mest allt er tekið í umboðs-
sölu, einnig kemur til greina að kaupa vörur.
Það er möguleiki að fá leigt pláss fyrir fólk,
sem vill versla þarna sjálft.
Ef áhugi vaknar við lestur þessarar auglýs-
ingar, hafðu þá samband í síma 642425 eða
678011 í dag og næstu daga.
KRINGMN KRINGWN
KKIMeNM KKIMeNH
KENNSLA
I . . V ....
Auglýsing vegna prófs
fyrir skjalþýðendur
og dómtúlka
Hér með er minnt á að frestur til innritunar
í prófið, sem hefst 18. mars nk., rennur út
1. mars 1991.
Próftökugjald er kr. 40.000, sem er óendur-
kræft.
Dóms- og kirkjumálaráðuuneytið,
20. febrúar 1991.
Slökunar-leiðbeinandi
í Danmörku býðst þriggja ára opinberlega
viðurkennt nám sem veitir réttindi til kennslu
í ýmiskonar hreyfiþjálfun og til einstaklings-
bundinnar líkamsmeðhöndlunar. Námið
byggist á aflsálarfræðilegum grunni og sál-
fræði er samofin kennslu í líkamsfræðunum.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 1991.
Biðjið um námsskrá og umsóknareyðublöð hjá:
Skolen for Kropsdynamik, Strandboulevard-
en 92, 2 DK-2100 Kaupmannahöfn 0, Dan-
mörk. Sími 90 45 31 426099, þriðjudag bg
föstudag kl. 9-14.
Arkitekt-háskólinn í Osló
Inntaka 1991
íslenskir stúdentar, sem vilja stunda nám í
Arkitekt-háskólanum í Ósló, geta þreytt fyrsta
hluta inntökuprófsins, sem er heimaverkefni,
og er unnið á tímabilinu 15. mars til 1. maí.
Þeir, sem áhuga hafa og senda skriflega
beiðni, fá send umsóknareyðublöð frá Arki-
tekt-háskólanum.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 1991.
Nánari upplýsingar um inntöku eru sendar
með heimaverkefninu.
Arkitekthogskolen i Oslo,
P.b. 6768 St. Olavs Plats,
0130 Osló 1.
Samvinnuháskólinn
- rekstrarfræði
Samvinnuháskólapróf í rekstrarfræðum
miðar að því að rekstrarfræðingar séu und-
irbúnir til forystu-, ábyrgðar- og stjórnunar-
starfa í atvinnulífinu.
Inntökuskilyrði: Stúdentspróf af hagfræði-
eða viðskiptabrautum eða lokapróf í frum-
greinum við Samvinnuháskólann eða annað
sambærilegt nám.
Viðfangsefni: Öll helstu svið rekstrar, við-
skipta og stjórnunar, s.s. markaðsfræði, fjár-
málastjórn, starfsmannastjórn, stefnumót-
un, lögfræði, félagsmálafræði samvinnumál
o.fl.
Námsti'mi: Tveir vetur, frá september til maí.
Frumgreinadeild til undirbúnings
rekstrarfræðanámi.
InntÖkuskilyrði: Þriggja ára nám á fram-
haldsskólastigi án tillits til námsbrautar.
Viðfangsefni: Bókfærsla, hagfræði, tölvu-
greinar, enska, íslenska, stærðfræði, lög-
fræði og félagsmálafræði. Einn vetur.
Aðstaða: Nemendavist og fjölskyldubústaðir
á Bifröst í Borgarfirði ásamt vinnustofum,
bókasafni, tölvubúnaði o.fl. Barnaheimili og
grunnskóli nærri.
Kostnaður: Fæði, húsnæði og fræðsla áætl-
uð um 38.000 kr. á mánuði fyrir einstakling
næsta vetur.
Umsóknir: Með bréfi til rektors Samvinnu-
háskólans á Bifröst. Umsókn á.að sýna per-
sónuupplýsingar, upplýsingar um fyrri skóla-
göngu með afriti skírteina og um fyrri störf.
Tvenn skrifleg meðmæli fylgi. Veitt er inn-
ganga umsækjendum af öllu landinu. Þeir
umsækjendur ganga fyrir, sem orðnir eru
eldri en 20 ára og hafa öðlast starfsreynslu
í atvinnulífinu. Námið hentar jafnt konum
sem körlum.
Umsóknir verða afgreiddar 25. apríl og síðan
eftir því sem skólarými leyfir.
Samvinnuháskólanám er lánshæft.
Samvinnuháskólinn á Bifröst,
311 Borgarnesi - sími 93-50000.
Frá Ljósmæðraskóla
íslands
Kennsla hefst í Ljósmæðraskóla íslands
mánudaginn 9. september 1991.
Inntökuskilyrði er próf í hjúkrunarfræðum og
að umsækjandi hafi hjúkrunarleyfi hér á landi.
Umsóknir sendist Ljósmæðraskóla íslands,
kvennadeild Landspítalans, 101 Reykavík,
fyrir 1. júní nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar,
m.a. um kjör á námstímanum, eru veittar í
í skólanum á mánudögum og miðvikudögum
milli 09.00 og 15.00 í síma 601396.
Reykjavík, 24. febrúar 1991.
Skólastjóri.
LIS TMUNA UPPBOÐ
Klausturhólar
Guðrún Guðmundsdóttir,
sími 19250
Listmunauppboð
nr. 165
málverk
sunnudaginn 3. mars 1991, kl. 20.30, á Hótel
Sögu (Súlnasal).
Ath.: Söluþóknum 10%.
X