Morgunblaðið - 24.02.1991, Qupperneq 37
MÖRGUNBLÁÐIÐ
n
1991
3f
Joel Alon sendiherra ísrael á íslandi um horfur eftir Persaflóastríð:
Vona að öfl í arabalieim-
inum friðmælist við Israel
JOEL Alon, nýr scndiherra Israel á íslandi og í Noregi, með aðsetur
í Osló, afhenti forseta íslands trúnaðarbréf sitt sl. miðvikudag. Alon
tekur við embætti af Yehiel Yativ sem gegnt hafði stöðu sendiherra
ísraels í Osló undanfarin þrjú og hálft ár. Joel Alon sagði þegar hann
var spurður um hugsanlega þróun í Mið-Austurlöndum að loknu stríð-
inu við Persaflóa að hann vonaði að ef stríðsvél Saddams Husseins
yrði eyðilögð myndu rísa upp öfl í arabaheiminum sem væru reiðu-
búin að semja um friðsamlega sambúð við ísrael.
Alon var áður yfirmaður vestur-
evrópudeildar ísraelska utanríkis-
ráðuneytisins í Jerúsalem en þess
má geta að Yehiel Yativ hefur nú
tekið við því starfi. Alon hefur starf-
að lengi innan ísraelsku utanríkis-
þjónustunnar, hóf störf á sjöunda
áratugnum í sendiráði Israels í Genf
og hefur síðan m.a. verið sendifull-
trúi í sendiráðum landsins í Bruxel-
les og hjá Sameinuðu þjóðunum í
New York.
Joel Alon fæddist í Búdapest árið
1935 og bjó þar til fjórtán ára ald-
urs. Undir lok síðari heimsstytjald-
arinnar var hann ásamt tvíburabróð-
ur sínum fluttur til útrýmingabúða
nasista í Auschwitz í Póllandi. Þang-
að komu þeir bræður í júní 1944 þá
níu ára gamlir. Þar sem þeir voru
tvíburar voru þeir valdir út af hinum
illræmda Josef Mengele til „vísindar-
annsókna". „Þegar við stigum út úr
flutningalestunum fór fyrsta flokk-
unin fram og voru flest börn send
beint í gasklefana. Þjóðveijar spurðu
hins vegar um tvíbura og við gáfum
okkur auðvitað óafvitandi fram. Það
varð okkur hins vegar til happs
hversu skammt var eftir af stríðinu
en í janúar 1945 frelsuðu Sovétmenn
búðimar," sagði Alon.
Hann og bróðir hans lifðu því
dvölina í Auschwitz af sem og móð-
ir þeirra og gátu þau haldið aftur
til Búdapest. Faðir hans lifði einnig
stríðið en ijarskyldari ættingj.ar
týndu flestir lífinu í útrýmingarbúð-
um nasista. „Af þeim 20.000 gyðing-
um sem bjuggu í Búdapest í upp-
hafi stríðsins lifðu einungis um 500
stríðið af. Þó að samfélag gyðinga
í Ungveijalandi hafi orðið fremur
seint fyrir barðinu á útrýmingarher-
ferð nasista tókst þeim að útrýma
mjög háu hlutfalli þess,“ sagði Alon.
Fjórtán ára gamall flúði hann
ásamt bróður sínum yfir járntjaldið
til Austurríkis og dvöldu þeir um
skeið í Vín áður en þeir fengu leyfi
til að fara til Salzburg og flytja
þaðan til ísrael.
Spurður um hvaða áhrif útrým-
ingarherferðar nasista hefði haft á
hans líf sagði Alon það fyrst og
fremst vera sú sannfæring að slíkir
hlutir mættu aldrei endurtaka sig.
„Það er mjög erfitt fyrir manneskju
sem hefur gengið í gegnum þetta
að þurfa að horfa upp á það að ein-
ræðisherra á borð við Saddam Hus-
sein hótar því á ný að útrýma gyð-
ingum með gasi. Það hefur-einnig
mikil áhrif á ísraelsku þjóðina að
það voru þýsk fyrirtæki sem gerðu
þetta að veruleika. Útrýmingarher-
ferð nasista var einstakur viðburður
í mannkynssögunni. Ekkert slíkt
hefur gerst hvorki fyrr né síðar.
Hvernig getur nú ógnarstjórn á borð
við þá í írak hótað því sama og
komist upp með það? Það er okkar
skoðun að Saddam Hussein eigi ekki
að komast upp með það. Sá tími er
iiðinn sem menn geta komist upp
með það órefsað að myrða gyðinga
með eiturgasi."
Þó að Israel hafi orðið fyrir eld-
’flaugaárásum af hálfu Iraka á með-.
an á Persaflóastríðinu hefur staðið
hefur landið ekki svarað þeim árás-
um. „Þetta aðgerðarieysi er vissu-
lega ný og þrúgandi reynsla fyrir
þjóðina en það ber líka að taka fram
að í fyrsta skipti stöndum við ísraels-
menn ekki einir. Ég held að það sé
mjög mikiivægt að virða hagsmuni
bandamanna í þessum átökum. Við
dáumst mjög af Bush Bandaríkjafor-
seta og staðfestu hans í þessu máli
og viljum ekki gera stöðu hans erfið-
ari en hún er. Það er liins vegar
ekki stefnamkkar að sitja aðgerðar-
lausir rétt eins og það er ekki stefna
okkar að gera ávallt gagnárás. Við
fylgjum þeirri grundvallarstefnu að
gera það sem líklegast er til að
vernda ísraelsþjóðina hveiju sinni.“
Aðspurður um hvernig hann mæti
ástandið í Mið-Austurlöndum að lo-
knu Persaflóastríðinu sagði sendi-
herrann að menn yrðu að hafa það
hugfast að það væri Saddam Hus-
sein einn sem bæri ábyrgð á hvernig
komið væri. Það væri hann sem
hefði ráðist inn í Kúveit og það ekki
af nokkurri annarri ástæðu en vegna
þess að hann langaði til þess. Þegar
innrásin var gerð hefði hún ekki
tengst nokkrum öðrum málum í
þessurn heimshluta í hans huga.
„Við teljum að það eigi að vera
eitt af helstu markmiðum banda-
manna að koma frá Saddam Huss-
ein og ógnarstjórn haris sem ógnar
öllum þessum heimshluta. Fái hann
annað tækifæri til þess mun hann
nota vopnabúr sitt á ný og þá gæti
orðið erfitt að ná saman jafn víð-
tækri samstöðu gegn hönum og nú
hefur tekist.“
Hvað varðaði ísrael og samskipti
ríkisins við arabaríkin sagðist Alon
bera þá von í btjósti að ef stríðsvél
Husseins yrði eyðilögð kæmu upp
öfl í Arabaheimin'um sem væru
reiðubúin að feta í fótspor Sadats
og Egypta á sínum tíma og semja
um friðsamlega sambúð við ísraels-
Myndhöfundasjóður
Islands stofnaður
MYNDHÖFUNDASJÓÐUR íslands var stofnaður 11. febrúar síðastlið-
inn. Hlutverk sjóðsins er að gæta höfundarréttar myndhöfunda, segir
í frétt frá stjórn sjóðsins.
Að sjóðnum standa Samband ís-
lenskra myndlistarmanna, Ljós-
myndarafélag íslands, Félag ís-
lenskra teiknara og Félag grafískra
teiknara. Allir félagsmenn þessara
sambanda og félaga verða sjálfkrafa
aðilar að sjóðnum en rétt til inn-
göngu í sjóðinn eiga hagsmunasam-
tök og stofnanir sem fara með höf-
undarrétt að myndverkum svo og
einstaklingar sem fara með og eiga
höfundarrétt að myndverkum.
Hlutverk sjóðsins er að vernda
höfundarrétt félagsmanna vegna
birtingar á verkum til almennings
og vegna annarrar hliðstæðrar notk-
unar og hafa með höndum gerð
gjaldskráa og taxta í því sambandi.
Sjóðurinn mun annast samninga-
gerð f.h. félagsmanna sinna við
opinbera aðila og einkaaðila, um
Vitni vantar
Slysarannsóknadeild lögreglunn-
ar í Reykjavík óskar eftir að ná
tali af ökumanni blárrar Toyota
Corolla bifreiðar, sem talið er að
hafi ekið á gangandi vegfaranda í
Tryggvagötu, skammt vestan Póst-
hússtrætis um klukkan 4, aðfara-
nótt sunnudagsins 17. febrúar. Sá
sem fyrir bílnum varð meiddist
nokkuð á fæti og ríður lögreglu á
að hafa tal af ökumanninum.
þóknun og reglur vegna opinberrar
birtingar og notkunar á myndverk-
um þeirra.
Nokkur dæmi um hagnýta notkun
myndverka sem er gjaldskyld er
birting myndverka í sjónvarpi, blöð-
um og tímaritum, i auglýsingum, á
kortum, plakötum, almanökum og
fleiri prenthlutum. Ennfremur sýn-
ing á myndverkum í stofnunum og
sýningarsölum.
Myndhöfundasjóður mun koma á
samvinnu við systrasamtökin á
Norðurlöndum en þau eru í Finn-
landi Kuvasto, í Danmörku Copy-
Dan Billedsektor, í Svíþjóð BUS og
i Noregi NBK, og ennfremur má
gerá ráð fyrir að sjóðurinn fái aðild
að Fjölís sem fer með höfundarrétt-
armál vegna fjölföldunar efnis í
skójum og á fleiri sviðum.
Á stofnfundinum voru lagðar
fram samþykktar samþykktir fyrir
sjóðinn og voru fundarmenn sam-
mála um að löngu væri tímabært
að taka höfundar- og birtingarétt
að myndverkum föstum tökum, því
væri það fagnaðarefni fyrir mynd-
höfunda að til væri orðið Myndstef.
— Formaður fulltrúaráðs var
kosinn Mats Wibe Lund.
— Stjórn sjóðsins skipa eftirtald-
ir menn: Leifur Þorsteinsson frá
Ljósmyndarafélagi íslands, Gísli B.
Björnsson frá Félagi íslenskra teikn-
ara, Helgi Gíslason frá Sambandi
islenskra myndlistarmanna, Kalman
Fontany frá Félagi grafískra teikn-
ara og Knútur Bruun hrl., fulltrúi
Sambands íslenskra myndlistar-
manna, sem var kosinn formaður
stjórnar.
ríki. „Því miður eru Mið-Austurlönd
átakasvæði en það eru þó einstaka
ljós í myrkrinu eins og friðarsamn-
ingur ísraels og Egyptalands. Við
vonum að svipuðu samkomulagi
verði hægt að ná við araba í öðrum
nágrannaríkjum okkar sem og við
Palestínuaraba á hernumdu svæð-
unum. Það er hægt að semja um
allt.“
Morgunblaðið/KGA
Joel Alori; nýskipaður sendiherra
ísrael á íslandi.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur:
Áform um gisti- og fjöl-
skylduheimili unglinga
SJÁLFSTÆÐISMENN í borgarstjórn lögðu til að tillögum minnihlut-
ans um félagsmái, sem lagðar voru fram við síðari umræðu um fjár-
hagsáætlun.Reykjavíkur, yrði vísað til félagsmálaráðs. Þar á meðal
voru tillögur um gistiheimili fyrir unglinga og um fjölskylduheimili
fyrir unglinga
lagði fram tillögu um að hrinda í
framkvæmd áformum um ferðaþjón-
ustu aldraðra og um eflingu fræðslu
meðal foreldra um vímuefnaneyslu
meðal unglinga.
Guðrún Zoega, formaður félags-
málaráðs, lagði til að þessum tillög-
um yrði vísað til félagsmálaráðs.
Elín G. Ólafsdóttir, Kvennalista,
lagði fram tillögu um kaup á hús-
næði til að nýta sem gistiathvarf
fyrir heimilislausa unglinga. Kristín
Á. Ólafsdóttir, Nýjum vettvangi,
lagði fram tillögu um kaup á tveim-
ur húsum til notkunar sem fjöl-
skylduheimili fyrir unglinga. Sigur-
jón Pétursson, Alþýðubandalagi,
Deilt um suðuræð
Hitaveitunnar
MEÐAL tillagna minnihiutaflokkanna í borgarstjórn við umræður um
fjárhagsáætlun Reykjavíkur á fimmtudag voru tillögur varðandi lagn-
ingu suðuræðar Hitaveitu Reykjavíkur. Vildu fulltrúar Framsóknar-
flokks og Nýs vettvangs flýta þeim framkvæmdum en sjálfstæðismenn
lögðu til að tillögum þeirra þar að lútandi yrði vísað frá, enda væru
breytingar á framnkvæmdaáætlun
stjórn veitustofnana.
Sigrún Magnúsdóttir, Framsókn-
arflokki, lagði til að framkvæmdum
við suðuræð Hitaveitu Reykjavíkur
yrði hraðað 'og sama efnis var til-
laga, sem Ólína Þorvarðardóttir
flutti. Hún lagði líka til, að tvöfalt
veitukerfi Hitaveitunnar yrði stækk-
að verulega og að hafnar yrðu fram-
kvæmdir til að tryggja betur varara-
forku til Hitaveitunnar.
Guðrún Zoega, Sjálfstæðisflokki,
lagði til að þessum tillögum yrði vís-
að frá. Hún sagði að tillaga Sigrún-
ar Magnúsdóttur myndi ekki flýta
ltvað þetta varðar til athugunar í
lagningu suðuræðar Hitaveitunnar
en hefði aukinn fjármagnskostnað í
för með sér. Hún sagði það væri
langtímaverkefni að leggja tvöfalt
dreifikerfi fyrir Hitaveituna og tii-
laga Ólínu Þorvarðardóttur væri
óþörf. Ekki væri heldur skynsamlegt
að samþykkja tillögu hennar um
framkvæmdir til að tryggja varara-
forku til Hitaveitunnar, enda væri
ekki skynsamlegt að eyða eins miklu
fé og þar væri gert ráð fyrir, til að
koma í veg fyrir tiltölulega smávægi-
leg óþægindi.
Parasetamól er hugsan-
legur krabbameinsvaldur
- segir Þorkell Jóhannesson prófessor
NÝLEGAR rannsóknir sýna að lyf er innihalda parasetamól eru hugs-
anlegir krabbameinsvaldar og valda nýrnáskemntdum séu þau tekin
í stóruin skömmtum. Að sögn Þorkels Jóhannessonar, prófessobs við
lyflæknadeild Háskóla íslands, eru litlar líkur á að öll venjuleg notk-
un lyfjanna hafi þessi áhrif, en við langvarandi notkun er þetta mögu-
leiki, sem menn ættu að vita af. Meðal þeirra lyfja sem innihalda
parasetamól eru dolvipar, kódípar, panodil og parkódín.
Phenasetin er gamált lyf sem kom
fram fyrir aldamótin 1900 og var
mikið notað fram til ársins 1950.
Lyfið verkar líkt og magnyl eða
asperín, hefur væga verkjadeyfandi
verkun og lækkar sótthita. „Um
1950 fóru að koma fram upplýsingar
um að mikil og langvarandi notkun
phenasetins gæti valdið nýrna-
skemmdum," sagði Þorkell. „Síðar
þótti það einnig ljóst að það væri
trúlegt að langvarandi taka phena-
setins ylli einnig illkynja frumu-
breytingum í þvagfærum, sérstak-
lega í nýrnaskálum. Þetta leiddi til
þess að fyrir um tíu árum var phena-
setin tekið af markaði. Árið 1949
varð bert að í líkamanum breytist
phenasetin í annað efnasamband
sem heitir parasetamól og í Banda-
ríkjunum er líka nefnt asetóaminó-
fen. Parasetamól kemur nú fyrir í
ýmsum sérlyfjum, erlendis í Tylenól
og hér á landi til dæmis í Panódíl.
Það er einnig notað í samsetningu
með kódeni sem er sambærilegt við
Kódímagnyl. Frekari rannsóknir
leiddu í Ijós að mestan hluta verkun-
ar phenasetins væri hægt að rekja
til parasetamóls. Þegar phenasetin
var tekið af markaði fyrir um tíu
árum lágu ekki fyrir neinar ábend-
ingar í þá veru að parasetamól
mundi geta valdið illkynja frumu-
breytingum eða nýrnaskemmdum.
Síðar er það að segja að á árunum
1984 til 1986 varð ljóst að paraseta-
mól hefur einhver áhrif á arfstofna
eða erfðavísa í frumum og getur
bundist við kjarnaprótein en slík
binding efna kann að vera undan-
fari illkynja fmmubreytinga.
í tilraunum með mýs hefur komið
í ljós að parasetamól í stórum
skömmtum getur valdið æxlismynd-
un í lifur og sama er á teningnum
með rottur. I rottum getur paraseta-
mól einnig valdið æxlum í blöðru.
Það verður þess vegna að teljast
sennilegt að lyfið sé krabbatneins-
valdur hjá tilraunadýrum. Enn er
óvíst hvernig þessu er farið hjá
mönnum, en parasetamól verður þó
að teljast hugsanlegur krabbameins-
valdur hjá mönnum og það liggur
nú fyrir að parasetamól tekið í stór-
um skömmtum getur valdið nýrna-
skemmdum."