Morgunblaðið - 24.02.1991, Síða 39
Mikligarður
• Herra- og kvenna- krumpgallar
kr. 2.900,-
• Kvenna nœrfatasett kr. 295,-
• Barnaúlþur kr. 995,-
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRÉTTUM sunnUdáGur
24. FEBRÚAR 1991
ARGENTINA
Djúpsteikt og meyrt í kryddblönduðu deigi
KARLAR
Fram-
kvæmda...
hvað?
Sigurvegarinn í uppskriftasam-
keppni Argentínu steikhús,
Bylgjunnar og nautgripabænda
var Valgerður Gunnarsdóttir.
Dómnefnd fékk á annað hundrað
uppskrifta úr að moða og verkið
var vandasamt, en réttur Val-
gerðar varð hlutskarpastur.
Morgunblaðið ræddi aðeins við
Valgerði og bað hana að lýsa
verðlaunaréttinum.
Fyrst er að geta 500 gramma
af meiru nautakjöti, lundum,
innanlæri eða file. Kjötið er skorið
í fína strymla og velt upp úr hveiti
eftir létta söltun. Þá er það krydd-
blandan. í hana fara 300 gr af
hveiti, eitt egg, 2 matskeiðar af
matarolíu, 2 matskeiðar af sýrðum
ijóma, 2 matskeiðar af tómatpúrru,
1 teskeið af paprikudufti og þetta
er saltað og piprað eftir smekk.
Einnig er örlítið af cayenne pipar
stráð yfir, en fara verður varlega
með það krydd, því það er feyki-
sterkt. Þessi blanda er síðan þynnt
út með vatni uns þykkt hennar svip-
ar til orly-deigs. Upp úr þessu er
kjötstrimlunum síðan velt og síðan
eru þeir steiktir í djúpsteikingapotti
við góðan hita uns kjötið er aðeins
rautt að innan, sem sagt alls ekki
of lengi. Með þessu ber ég svo fram
sterka kryddsósu og hrásalat,“
sagði Valgerður. Hvort hún hefði
verið lengi að þróa slíkan rétt?
„Nei, ekki get ég sagt það. Hug-
myndin spratt út frá djúpsteiktum
fiskrétti og einn daginn datt mér í
hug að reyna eitthvað sams konar
með meyrt nautakjöt. Ég komst
fljótt niður á þennan rétt og hef
hann öðru hvoru heima. Hann þyk-
ir góður, en enginn verðlaunarétt-
ur, enda heimilisfólkið orðið vant
réttinum,“ svarar Valgerður.
Loks er Valgerður spurð hvort að
hún hafi gert sér sigurvonir í ljósi
hins mikla fjölda uppskrifta? „Nei,
af og frá, enda voru þarna margir
frábærir réttir sem mér fannst
miklu betri en minn. Það var eigin-
lega fikt í mér að senda réttinn í
keppnina. Mér datt bara í hug að
prófa og sjá hvað kæmi út, maður
hafði engu að tapa,“ sagði Valgerð-
ur sem fær að launum-mikla ís-
landsferð á vegum Ferðaþjónustu
HITAMÆLAR
StoFtotLOiXUiir
Jfeira®s®)ini ©@>
Vesturgötu 16,
sími13280.
Framkvæmdastjórar hafa
ávallt verið mér hulin ráð-
gáta. Eiginlega hef ég lengi haft
lúmskan grun um að þeir væru
algjörlega óþarfir, talið að þeir
þvældust bara
fyrir og að fyrir-
tækjum lands-
ins væri mun
betur borgið án .
þeirra.
Eitt helsta
einkenni hins
eftir Jónínu dæmigerða
Leósdóttur framkvæmda-
stjóra — fyrir utan þá sjálfgefnu
staðreynd að vera karlkyns —
er að hann er háll eins og áll.
Þú veist hvað ég á við ef þú
hefur einhvern tímann átt
brýnt erindi við mann í þessari
stöðu. (Láttu það ekki villa þér
sýn þótt sumir þeirra kalli sig^^
forstjóra. Það er bara annað^*
heiti á sömu dýrategund.) Hvort
sem þú ert undirmaður eða
manneskja úti í bæ er ekki
heiglum hent að ná tali af þessu
fyrijbæri.
Árla morguns er fram-
kvæmdastjórinn því miður rétt
ókominn. Þannig gengur það
fram undir klukkan ellefu. Þá
er hann mættur á svæðið en þvi
miður upptekinn í símanum.
Reyni maður um tólfleytið er
framkvæmdastjórinn því miður
nýfarinn í mat og frá eitt til
þrjú er hann þvi miður ekki
kominn úr mat. Upp úr klukk-
an þijú er hann aftur við en þá
eru því miður einhverjir menn
staddir hjá honum. Þér er hins
vegar velkomið að hafa sam-
band eftir smástund og þú gerir
það. Þá er maðurinn hins vegar
því miður nýfarinn á fund. Og
er hann væntanlegur aftur á
skrifstofuna? Nei, því miður.
Þeir bjartsýnustu skilja
stundum eftir skilaboð með
beiðni um að framkvæmda-
stjórinn slái á þráðinn þegar vel
stendur á. Slíkir einfeldningar
vita greinilega ekki að stjórar
hafa mikilvægari verkefnum að
sinna en að eltast við óánægðáV
undirsáta, kvabbara og kverúl-
anta. Þeir þurfa t.d. ógurlega oft
að borða á Grillinu með erlend-
um og innlendum kollegunum.
Það er ansi tímafrekt. Ekki má
heldur gleyma öllum ráðstefn-
unum, innanlands ogutan, sem
þeir verða að sitja. Eða þá Rot-
arý- og Lionsfundunum. Og
þess á milli eru það námskeiðin
hjá Stjórnunarfélaginu og Dale
Carnegie þar sem þeir læra
samskiptatækni a-la-USA og að
skipuleggja tímann. Sumir
framkvæmdastjórar eru lika á
kafi í stjórnmálum og enn aðrir
eiga „góðar vinkonur" sem þeir
þurfa að sinna í vinnutímanum
svo eiginkonan komist ekki að
því og spilli vinskapnum.
Flestir framkvæmdastjórar,
sem ég hef kynnst, hafa verið
bakaðir eftir þessari sömu upp-
skrift — þar til ég kom til starfa
á nýjum vinnustað fyrir nokkr-
um mánuðum. í hvert sinn sem
ég hef þurft að tala við fram-
kvæmdastjórann hefur hann
verið staddur á skrifstofunni og
haft tima til að ræða málin. Og
í hvert sinn sem ég hef beðið
hann um eitthvað hefur það
verið framkvæmt á mettima, án
þess að ég hafi þurft að minna
ótal sinnum á það. Ég hef þvi
neyðst til að endurskoða kenn-
inguna mína um gagnsleysi
framkvæmdastjóra. Það er
greinilega töluverður akkur í
þeim EF ÞEIR ERU EKKIKARL-
AR. Framkvæmdastjóri þess
fyrirtækis, sem ég vinn hjá um
þessar mundir, er nefnilega
kona!
Morgunblaðid/Ámi Sæberg
Valgerður tekur við sigurlaununum úr hendi Inga Björns Alberts-
sonar, alþingismanns.
Þessar tíu konur reyndust vera
með bestu uppskriftirnar að
mati dómnefndar, sigurvegarinn
Valgerður Gunnarsdóttir er
lengst til hægri.
bænda. Valgerður segir það til-
hlökkunarefni að kynnast landinu
með þeim hætti.
Þess má loks geta, að uppskriftas-
amkeppnin var liður í Argentínskri
viku sem í gangi er á Argentínu
steikhúsi. Argentínskur listakokkur
eldar ofan í gesti, m.a. verðlauna-
réttina, allt til þriðjudags, en þá
lýkur þessari uppákomu Argentínu
steikhúss.
• Fataefni frá kr. 200,- þr. m
• Cluggatjaldaefni frá kr. 250,-
þr. m 1,40 cm breitt
• Sængurverasett frá fer^J.,290,-
• Dömuskór frá kr. 990,-
• Herraskór frá kr. 990,-
V
Steinar
ísl. og erlendar þlötur frá
kr. 99,-
ísl. geisladiskar frá kr. 599,-
Erlendir geilsadiskar frá
kr. 499,-
Bombey
Telþnakjálar frá kr. I.500,-
Gallabuxur barna frá
kr. I.300,-
Ungbama fatnaður, mikið úr-
val, gott verð.
Kókó/Kjallarinn
• Buxur frá kr. 500,-
• Pils frá kr. 900,-
• Jakkar frá kr. 2.000,-
Blómalist
• Gjafavörur, _
• Silkiblóm, ^^50% afláttur
• Körfur, '
• Pottaþlöntur, 25% afsláttur
Opn unartími
Föstudaga
kl. 13-19
Laugardaga
kl. 10-16
Aðra daga
kl. 13-18
BlLDSHÖFÐI
STÓRUTSOLU
MARKAÐURINN
VESTURLANDSVEGUR
STRAUMUR
FRÍTT KAFFI — VÍDEÉORN FYRIR 6ÖRNIN - ÓTRÓLEGT VERB
Madam
• Sundbolir kr. 1.500,-
• Toþþar kr. 500,-
• Náttfatnaður frá kr. 1.000,-
Party
• Kjólar kr. 1.890,-
• Blússur frá kr. 1.690,-
• Ullarþeysur frá kr. 2.400,-
Studio
• Bolir frá kr. 450,-
• Gallabuxur frá kr. 1.500,-
• Jakkar frá kr. 1.500,-
Hummel
• Úlþur frá kr. 2.990,-
• Buxur frá kr. 990,-
• íþróttaskór frá kr. 1.990,-
• Skórfrá kr. 600,- til kr. 2.900,
Cara
Peysurfrákr. 3.250,-st. 38-50
Blússur frá kr. 2.250,-
st. 38-50
Pils frá kr. 3.950,- st. 38-50
Vinnufatabúðin
Kuldagallar kr. 4.900,-
Gallajalfkar kr. 990,-
Gallabuxttr kr. 990,-
Karnabær
• \X'a.x jakkar kr. 5.900,-
• Kaðalþrjónþexsur kr. 1,990,-
Bu.vur frá kr. 1.490,-
Fjöldi fyrirtækja — gífurlegt vöruúrval
IIÝTT símanúmer
augúsingadbid^
esnt
BÍLPSHÖrPA 1 O
Gallery skór
Saumalist