Morgunblaðið - 26.02.1991, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1991
A forsætísráðherra að vera skipu-
lagður eða handahófskenndur?
eftir Halldór Blöndal
Á síðasta þingi var samþykkt,
að ráðist skyldi í jarðgöng í gegnum
Breiðadalsheiði til Flateyrar og um
Botnsheiði til Súgandafjarðar. Rök-
in eru skýr. Þessir ijallvegir eru
þvílíkir farartálmar, að á snjóþung-
um vetrum getur verið nær óger-
legt að halda þeim opnum nema
rétt í svip. Eftir að jarðgöng eru
komin mynda sjávarpíássin eitt at-
vinnusvæði frá Bolungarvík og
Súðavík til Þingeyrar. í sama mund
og forsætisráðherra var að kynna
„skipulagða byggðastefnu", sem
ekki mætti vera „handahófskennd",
lét hann þess getið í DV í sam-
bandi við erfiðleika á Suðureyri, að
það eigi „náttúrlega ekki að bora
ónauðsynleg göt í fjallið“. Það er
vitaskuld sjónarmið út af fyrir sig
að leggja niður byggð við Súganda-
fjörð eftir opinberri forskrift. Hinu
geta menn velt fyrir sér, hvort skýr-
ingin á ummælum ráðherrans sé
sú, að áhugamál kjósenda eru önn-
ur á Reykjanesi en Vestíjörðum,
þar sem hann var áður þingmaður.
Gleymdu degi og gær,
og grænt þitt hjarta slær,
segir Ingimar Erlendur Sigurðsson
í einu af sínum skemmtilegu smá-
ljóðum, en er þó ekki að lýsa forsæt-
isráðherra, en sá skilningur er vita-
skuld nærtækur, ef þessi vísuorð
eru lesin ein og sér.
Sjömannanefnd hefur skilað frá
sér tillögum um það, hvernig tekið
skuli á vanda sauðfjárbúskapar.
Þær fela í sér, að bændum skuli
fækka verulega og er gert ráð fyr-
ir, að fullvirðisréttur gangi kaupum
og sölum. Engin leið er að gera sér
grein fyrir, hvaða sveitir fari í eyði,
heldur mun það fara eftir lögmálum
markaðarins. í sama tölublaði DV
sl. miðvikudag tekur forsætisráð-
herra fram, að hann muni gera sitt
Halldór Blöndal
„Framsóknarmennskan
vill fá að hafa vit fyrir
fólkinu. Þess vegna eru
gefnar út sláturhúsa-
skýrslur og grænar
skýrslur endalaust. Af
því súpa bændurnir
seyðið og af því súpa
Súgfirðingar seyðið.“
besta til þess að tillögur sjömanna-
nefndar nái fram að ganga, og
gerir þær þannig að sérstöku stefn-
umáli Framsóknarflokksins.
„Handahófskennd" markaðshyggja
eða „skipulögð byggðastefna"?
kynni einhver að spyija.
Enn segir forsætisráðherra í DV
næsta dag, að byggðastefnan hafi
brugðist og er ekki að finna á orð-
um hans, að hann hafi komið neins
staðar nærri Hlutabréfasjóði eða
Atvinnutryggingarsjóði útflutn-
ingsgreina. Þó ber enginn meiri
ábyrgð en hann á þeirri opinberu
forsjá, sem þessir sjóðir eru dæmi-
gerðir fyrir. Hann virðistekki skilja,
að fólkið úti á landsbyggðinni bjarg-
ar sér prýðilega, ef fyrirtækjunum
eru búin heilbrigð rekstrarskilyrði.
Framsóknarmennskan vill fá að
hafa vit fyrir fólkinu. Þess vegna
eru gefnar út sláturhúsaskýrslur
og grænar skýrslur endalaust. Af
því súpa bændurnir seyðið og af
því súpa Súgfirðingar seyðið. En
Steingrímur gleymir degi og gær
og segir eins og áður: „Jöfn þróun
byggðar í landinu er hagkvæm en
til að svo geti orðið þurfa að koma
til víðtækar aðgerðir af hálfu stjórn-
valda.“
Baldur Óskarsson kallar lítið
kvæði: Svo kvað Orðgrímur:
... opinberun... hið opinbera... opinber,
o.s.frv. o.s.frv.
Orðanna hljóðan.
Nú er glatt og nú er glatt.
Einnig þú
- gestur vanbúinn -
færð grímu handa þér.
Höfundur er þingmnður
Sjálfstæðisflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra.
★ Pitney Bowes
Frímerkjavélar og stimpilvélar
Vélar til póstpökkunar o. fl.
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33-105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699
SHARP
SJOÐVÉLAR
Æ SKRIFBÆR7
Hverfisgötu 103 - sími 627250
SÆTUNI8 SiMI 691515 ■ KRINGLUNNISIMI6915 20
{/ódt/uwv&Kcfyjiiuéuftruí samKÍn^m
Stef um mannlega þjáningu
Kristín Andrésdóttir: Stef um mannlega þjáningu lífsins.
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Umljöllun um mannlegá bar-
áttu og þjáningu hefur verið einn
mikilvægasti þáttur allra lista í
gegnum alla mannkynssöguna.
Bókmenntir, óperur, tónlist, leik-
rit og myndlist hafa skoðað þján-
inguna frá öllum þeim sjónar-
hornum sem mönnum hefur dot-
tið í hug, og sífellt fleiri listamenn
finna- sig knúna til að takast á
við þetta efni vegna kringum-
stæðna í eigin samtíð, hvort sem
þau eru af efnahagslegum, fé-
lagslegum, trúarlegum eða ein-
faldlega persónulegum toga.
Hvernig til tekst er síðan undir
því komið hversu djúpt listamað-
urinn finnur til þess ástands, sem
hann gerir að viðfangsefni sínu.
Kristín Andrésdóttir er ung
listakona sem hefur í þessum
mánuði haldið sína fyrstu einka-
sýningu í FÍM-salnum við Garða-
stræti. Sýningunni gefur hún
yfirskriftina „Stef um mannlega
þjáningu lífsins". Um er að ræða
tuttugu og þrjár ónafngreindar
myndir sem hún hefur unnið með
akríl á striga, og eru allar unnar
á síðustu þremur árum.
Hið fyrsta sem gestir taka eft-
ir á sýningunni eru litirnir í
myndunum. í mörgum verkanna
hefur Kristínu tekist að setja
saman fjólubláa, bleika, rauða,
gula og brúna liti á afar sterkan
en um leið skerandi hátt, sem
endurspeglar vel þá örvinglan og
það vonleysi, sem skín úr við-
fangsefninu. Þessu litavali fylgir
hún eftir með þéttri málun, sem
gerir allt myndsviðið þungt og
þrúgandi, þrátt fyrir að hin mann-
legu form kalli ekki alltaf á þá
tilfinningu.
Flestar sýna myndirnar nakið
fólk í stellingum hinna þjáðu og
vonlausu; persónur eru álútar,
hnípnar og hreyfingariausar, eða
þá þær hnipra sig saman og rétta
fram hönd eins og til að veijast
utanaðkomandi höggi, sem ríður
af á hverri stundu. Þessir líkamar
endurspegla oft hinn mikla ein-
manaleika og dapurleika, sem
skín út úr myndum bandaríska
málarans Philip Pearlstein, þó svo
tæknin sé þar talsvert önnur.
Umkomuleysið mannanna er
mikið í verkum Kristínar, og þján-
ingar lífsins í samræmi við það.
Mannverurnar fljóta í reiðileysi í
geimnum (nr. 4), eru veiddar í
gildrur og étnar af villidýrum lí-
fríkisins (nr. 6), æpa brostinni
röddu gegn ógninni og reyna að
hylja sig bak við gegnsæjar hend-
ur (nr. 10) eða faðma afkvæmin
að sér og leitast við að skýla
þeim gegn þeim ógnum og eld-
hnöttum, sem steðja að öllu
mannlífi.
Það er athyglisvert, að sú
manniega þjáning lífsins sem
birtist í myndum Kristínar kemur
öli utan frá. Það er umhverfið og
samfélagið, sem maðurinn hefur
skapað og leitast við að hafa
stjórn á, sem ógnar honum. Hér
er ekki um að ræða innri bar-
áttu, heldur örvæntingarfulla
vörn og óhjákvæmilega ósigra
vegna þess mannfjandsamlega
þjóðfélags, sem fyrir kaldhæðni
örlaganna hefur orðið niðurstaða
samfélagstilrauna nútímans. Það
er aðeins í einni mynd (nr. 20)
sem maðurinn virðist hjálpa ná-
unga sínum — annars ber hver
sína þjáningu í einsemd.
Myndir Kristínar Andrésdóttur
eru að sjálfsögðu unnar með lista-
söguna í huga, og má þannig
benda aftur til þýskra expression-
ista sem glímdu við einmanaleik
lífsins, svo og listamenn síðar á
öldinni. Þó er viðfangsefnið henni
greinilega persónulegt, og hún
tekst á við það af djörfung, inni-
leik og krafti. Þetta er sterk
fyrsta sýning, og vei þess virði
að benda iistunnendum á að
kynnast hér nýrri listakonu, sem
væntanlega á eftir að vaxa í
framtíðinni.
Sýningu Kristínar Andrésdótt-
ur í FÍM-salnum iýkur miðviku-
daginn 27. febrúar.
\ýll skrífstofntæknínám
Tölvuskóli Reykjavíkur gerir þér kleift að auka við
þekkingu þína og atvinnumöguieika á skjótan og
hagkvæman hátt.
Þú lærir bæði á Macintosh- og PC-tölvur, auk al-
megnrar skrifstofutækni, bókfærslu, tölvubókhalds,
verslunarreiknings og toll- og verðútreikninga.
Innritun stendur yfir.
Hringið og fáið sendan ókeyþis bækling.
Erum viö til kl. 22
Tölvuskóli Reyhiavíkur
Borgartúni 28, sími 91-687590
Gallerí Borg:
Góð aðsókn á
sýningu Muggs
SÝNING á tuttugu myndum, olíu-
verkum og teikningum eftir Mugg
hefur staðið yfir í Gallerí Borg
síðustu fimm daga.
í frétt frá Gallerí Borg segir að
gífurleg aðsókn hafi verið að sýning-
unni og þúsundir lagt leið sína í Gall-
erí Borg um helgina. Allar myndirnar
voru til sölu og eru aðeins tvær mynd-
ir óseldar.
Síðasti dagur sýningarinn er í dag
þriðjudaginn 26. febr. Gallerí Borg
er opið frá kl. 10.00-18.00 virka daga
og frá kl. 14.00-18.00 um helgar.