Morgunblaðið - 26.02.1991, Side 16

Morgunblaðið - 26.02.1991, Side 16
Y f • I<!(! I MA'i'líiaa'l ,as flUOACltJUiL'M QIQ/UaiAUOflOM líj----------------------------------------------- MÖRGUNBtSÐIÐ l>KlÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1991 Evrópumál og- menning eftir Þorvald Gylfason I. Viðskipti Margt bendir til þess, ~að Svíar, Norðmenn, Finnar, Austurríkismenn og jafnvel Svisslendingar gangi í Evrópubandalagið á næstu árum, hvort sem samningar takast um stofnun evrópsks efnahagssvæðis (EES eða EEA) í vor eða ekki. Þess- ar samstarfsþjóðir okkar í EFTA líta yfirleitt ekki á evrópska efnahags- svæðið sem takmark í sjálfu sér, heldur sem eins konar þiðstofu í heimkynnum Evrópubandalagsins. Svíar og Austurrikismenn eru búnir að vega og meta kosti þess og galla að ganga í bandalagið og hafa gert upp hug sinn. Austurríkismenn sóttu Um inngöngu í hitteðfyrra. Svíar eru búnir að ákveða að sækja um aðild á þessu ári. Það er líklegt, að Norð- menn og Finnar fylgi þeirp. Og þá þurfa Svisslendingar að gera það upp við sig, hvort þeir vilja vera ein- ir eftir í EFTA ásamt okkur íslend- ingum eða slást í hópinn með öllum hinum Vestur-Evrópuþjóðunum auk Pólveija, Tékka og Ungveija, sem hafa nú formlega lýst áhuga á aðild að bandalaginu fyrir aldamót. Eftir hveiju eru allar þessar þjóð- ir að slægjast? Efnahagslegum ávinningi einum saman? Peningum? Svarið er nei, alls ekki. Þær eru ekki síður að sækjast eftir margvís- legum ávinningi af öðru tagi; í menn- ingarmálum, umhverfismálum og stjórnmálum. Með þessum orðum er þó ekki verið að gera lítið úr væntan- legum efnahagsávinningi af mark- aðssameiningu Evrópubandalags- ríkjanna á næsta ári, 1992. Hann er að sönnu verulegur. Framleiðsla og tekjur í álfunni munu trúlega aukast smám saman um 4-5% í skjóli aukinnar samkeppni og sérhæfingar í landamæralausri Evrópu umfram þann hagvöxt, sem ætti sér stað ella. Sams konar búhnykkur myndi skila okkur íslendingum um 240.000 krónum á hveija fjögurra manna gölskyldu í landinu á hveiju ári til frambúðar, ef hann félli okkur í skaut. Verðlag í álfunni er jafnframt talið munu lækka smátt og smátt um 6% að öðru jöfnu. Það væri dá- góður skerfur til baráttunnar gegn verðbólgunni hér heima. Og þetta er ekki allt; atvinna mun aukast verulega í Evrópu, utanríkisverzlun mun dafna, og fjárhagur bandalags- ríkjanna mun batna. Það er til mik- ils að vinna. Samt er það engan veginn víst, að vonin um að hreppa þennan efna- hagsávinning, þótt mikill sé, dygði til þess ein sér að laða Evrópubanda- lagsþjóðimar til þess víðtæka sam- starfs, sem nú er í vændum. Nei, hér er meira í húfi. Sameining Evr- ópu er sprottin af einlægum áhuga aimennings í álfunni á nánara sam- starfí Evrópuþjóðanna á sem flestum sviðum mannlegra samskipta. Fyrir- hugað afnám landamæra í Evrópu Meðal þeirra tillagna sem fram komu um skólamál voru tillögur frá Sigrúnu Magnúsdóttur, Framsókn- arflokki, um að keyptar yrðu 4 færanlegar kennslustofur til að setja upp við skóla í borginni, að stofnaðar yrðu sérstakar starfs- deildir við grunnskóla, skólaathvörf og dagdeildir. Hún lagði jafnframt til að borgin beitti sér fyrir skoðun- arferðum grunnskólabarna í sveit og á sjó. Elín G. Ólafsdóttir, Kvennalista, helgast að sumu leyti af sömu hug- sjón og hrun Berlínamiúrsins. Gaddavírinn var rifinn niður eftir miðri Evrópu endilangri í hitteðfyrra ekki aðeins vegna þess, að Austur- Evrópuþjóðirnar kusu frelsi og lýð- ræði í stað kúgunar í krafti einræð- is, um leið og færi gafst. Nei, múrarnir voru felldir líka vegna þess, að Austur-Evrópuþjóðirnar þrá al- hliða framfarir í efnahags- og menn- ingarmálum í skjóli fjölræðis og fijáls markaðsbúskapar að vestur- evrópskri fyrirmynd í stað áfram- haldandi hnignunar á öllum sviðum undir ægishjálmi einræðisstjórnar kommúnista. Evrópuþjóðirnar þekkja kosti fijáls markaðsbúskapar af eigin raun frá fyrri tíð. Fyrir heimsstyij- öldina fyrri var Evrópa einn vett- vangur. Fríverzlun blómstraði. Vel- megun var mikil á mælikvarða þess tíma. Markaðssameining Evrópu á næsta ári boðar að nokkru leyti aft- urhvarf til þess tíma, en þó með einni mjög mikilvægri undantekningu. Ágreiningur Frakka og Þjóðveija á öldinni sem leið, og langt fram á þessa um yfirráð yfir kola- og stál- framleiðsluhéruðum nálægt landa- mærum ríkjanna, var leystur eftir lok heimsstyijaldarinnar síðari með stofnun Kola- og stálbandalagsins. Upp úr þeim jarðvegi spratt Evrópu- bandalagið. Þessi lausn hefur stuðl- að að friði, frelsi og framförum í Evrópu allar götur síðan. í ljósi þess- arar reynslu virðist það ekki líklegt, að varanlegur friður geti náðst í Austurlöndum nær, fyrr en olíulind- irnar þar eru færðar undir fjölþjóð- lega stjóm að evrópskri fyrirmynd, en hér er þó hvorki ráð né rúm til að fara nánar út í þá sálma. II. Fullveldi Það er eitt höfuðeinkenni þeirra tíma, sem við lifum nú, að þjóðríkin eru ekki jafnmikilvægar stjórnmála- einingar og þau voru áður. Ástæðan til þess er fyrst og fremst sú, að mörg þeirra vandamála, sem stjóm- völd þurfa að glíma við í nútímasam- félagi, eru alþjóðleg í eðli sínu og kalla þess vegna á alþjóðleg við- brögð. Einmitt þess vegna sjá Evr- ópubandalagsþjóðirnar sér hag í því að deila sjálfsákvörðunarrétti sínum með öðmm bandaíagsþjóðum. Umhverfismál em ágætt dæmi. Súrregn, sem á upptök sín í einu landi, getur komið niður í öðm og valdið umhverfisspjöllum þar. Loftmengun virðir engin landamæri. Land, sem verður fyrir loftmengun erlendis frá, getur engum vemlegum vörnum' við komið á eigin spýtur. Samstarf margra þjóða er nauðsyn- legt til að leysa slíkan vanda með viðunandi hætti. Sameiginlegt um- hverfisvemdarátak er einmitt meðal brýnustu verkefna Evrópubanda- lagsins á næstu ámm. Þetta skiptir Svía miklu máli til dæmis, því að loftmengun frá meginlandi Evrópu veldur spjöllum í Svíþjóð. Innan lagði fram tillögur um fjárveitingar til að unnt yrði að koma á einsetn- ingu í skólum borgarinnar. Hún kom einnig með tillögur um að stofna skólabúðir í nágrenni borg- arinnar og að stefnt yrði að því að reka dagvist og skóla saman í Húsa- skóla í Grafarvogi, svokallaðan samskóla. Þá lagði Kristín Á. Ólafs- dóttir, Nýjum vettvangi, fram ítar- lega tillögu um skólabyggingar, sem fól í sér að stefnt yrði að því að þær yrðu fullbúnar þegar flutt bandalagsins væru Svíar í aðstöðu til þess að hafa áhrif á reglur banda- lagsins um mengunarvarnir.'en utan bandalagsins eru þeir áhrifalausir. Svipuðu máli gegnir í auknum mæli um ýmis önnur viðfangsefni, til dæmis á vettvangi efnahagsmála. Hæðir og lægðir í efnahagslífi ber- ast auðveldlega á milli landa vegna náinna viðskiptatengsla. Efnahags- lægð á meginlandi Evrópu myndi til dæmis draga úr útflutningi okkar íslendinga þangað að öðru jöfnu og myndi rýra þjóðartekjur okkar að því skapi. Aukin verðbólga í Evrópu myndi líka berast hingað heim með hækkandi innflutningsverðlagi. Með sívaxandi viðskiptum sín í milli hafa Evrópuþjóðirnar tengzt sterkari böndum smám saman. Aukin við- skipti eru að sönnu forsenda batn- andi lífskjara, og þau krefjast nán- ari samvinnu á ýmsum öðrum svið- um. Tökum dæmi. Úr því að verð- bólga í Frakklandi er háð því meðal annars, að peningamálum sé vel stjórnað í Þýzkalandi, þá er það eðli- iegt og æskilegt, að Frakkar geti haft áhrif á stjórn þýzkra peninga- mála og öfugt. Þess vegna stefna Evrópubandalagsþjóðirnar nú að stofnun evrópsks seðlabanka undir sameiginlegri stjórn allra þjóða bandalagsins. Nánu samstarfi af þessu tagi þarf ekki endilega að fylgja miðstýring ásamt meðfylgjandi skriffinnsku í höfuðstöðvum bandalagsins í Bruss- el, þótt nokkur hætta sé á því, ef menn gæta ekki að sér. Sameigin- legar ákvarðanir bandalagsins, lög þess og reglur eiga að varða umgerð efnahagslífsins í víðum skilningi, grundvallarreglur réttarríkisins og annað eftir því, en þverri þjóð á þó að vera í sjálfsvald sett, hvernig hún hegðar sér innan þess rúma ramma. Aðild að bandalaginu er því fyllilega samrýmanleg aukinni-valddreifingu innan hvers aðildarlands. Við íslend- ingar gætum til dæmis hagað verka- skiptingu á milli ríkis og sveitarfé- laga hér heima eftir vild alveg eins og nú, þótt við gengjum í Evrópu- bandalagið. EFTA-þjóðirnar eru mjög háðar viðskiptum við Evrópubandalagið. Þær eiga tveggja kosta völ í þeirri stöðu, sem nú er komin upp í Evr- ópu. Þær geta haldið áfram að vera utan bandalagsins, og það þýðir, að þær verða þá að sætta sig við og semja sig að þróun mála innan band- alagsins án þess að geta haft áhrif á hana. Þær geta ekki farið sínar eigin leiðir til lengdar að öllu leyti án tillits til framvindunnar innan bandalagsins. Tökum landbúnað- arstefnuna til dæmis. Sameiginleg landbúnaðarstefna Evrópubanda- lagsins (CAP) er komin að þrotum. Henni hlýtur því að verða breytt á næstu árum á þann veg, að markað- söflunum verði gefinn lausari taum- ur á búvörumarkaði eins og á öðrum mörkuðum. Við þetta mun matar- kostnaður í álfunni lækka verulega væri í hverfin, yrðu minni en nú tíðkast og að einsetningu yrði kom- ið á í grunnskólunum. Siguijón Pétursson, Alþýðubandalagi, lagði til að hafín yrði undirbúningur að stofnun framhaldsskóla í Grafar- vogi. Árni Sigfússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lagði til að til- lögum minnihlutans yrði vísað frá, að undanskyldum tillögum Kvenna- lista um samskóla í Húsahverfi og tillögu Alþýðubandalags um fram- haldsskóla í Grafarvogi. Sagði hann að þau mál, sem fjallað væri um í tillögunum væru ýmist óþörf eða væru nú þegar til umfjöllunar hjá skólayfirvöldum í borginni. í skjóli aukinnar samkeppni. Þá munu EFTA-þjóðirnar sjá sig knún- ar til að breyta landbúnaðarstefnu sinni til samræmis. Þeim væri ekki stætt á því til lengdar að halda matarkostnaði heima fyrir langt yfir markaðsverði á bandalagssvæðinu í næsta nágrenni. Sama máli gegnir um stefnu stjórnvalda á mörgum öðrum sviðum. Hinn kostur EFTA-þjóðanna er að ganga í bandalagið til þess að geta þá haft áhrif á ákvarðanir þess, lög og reglur. Innan Evrópubanda- lagsins gætu EFTA-þjóðirnar haft áhrif á endurskoðun landbúnaðar- stefnu bandalagsins til dæmis. Á þeim vettvangi myndi EFTA-þjóð- unum trúlega reynast það auðveld- ara en ella að færa landbúnaðar- stefnuna heima fyrir í viðunandi horf. Smáþjóðir hafa tiltölulega meiri áhrif en stórþjóðir innan Evr- ópubandalagsins miðað við fólks- fjölda. Norðurlönd sem heild hefðu til dæmis mun meiri áhrif en Þýzka- land, þótt Þjóðveijar séu næstum fjórum sinnum fleiri en Norður- landabúar. Þegar þessir tveir kostir eru born- ir saman ætti það að vera ljóst, að aðild að Evrópubandalaginu þarf ekki að fela í sér eiginlegt fullveldis- afsal, eins og stundum hefur verið haldið fram. Sjálfsákvörðunarrétti EFTA-þjóðanna getur þvert á móti stafað meiri hætta af því að standa utan við bandalagið og verða að sætta sig við ákvarðanir þess án þess að geta haft áhrif á þær. Þessu hafa Svíar og Austurríkismenn áttað sig á. Þess vegna stefna þeir nú hraðbyri inn í Evrópubandalagið. Það ætti að segja sig sjálft, að hvor- ug þessara þjóða hefur fullveldisaf- sal í hyggju. Winston Churchill orðáði svipaða hugsun með ögrandi hætti fyrir mörgum árum, þegar hann sagði eitthvað á þá leið, að bezta leiðin til þess að tiyggja fullveldi þjóðar væri að fóma því. Þetta var auðvitað of- sagj; og olli misskilningi. Hann átti einfaldlega við það, að einangrun og sjálfsþurftabúskapur geta haft háskaleg áhrif á efnahag þjóðar og um leið á velferð hennar í víðari skilningi. Það er til dæmis engin til- viljun, að Albanía er mesta fátæktar- bæli í allri Evrópu. Þar í landi hafa ókostir tilskipanabúskapar og ein- angrunarstefnu verið sameinaðir í skjóli einræðis með skelfílegum af- leiðingum. Hvílíkt fullveldi! III. Menning Hvemig skyldi verða umhorfs á íslandi árið 2001? Við íslendingar eigum tveggja kosta völ fram til aldamóta eins og samstarfsþjóðir okkar í EFTA. Annaðhvort tökum við ákvörðun um að vera einir á báti utan Evrópubandalagsins og reynum að gera eins gott úr því og við getum með því að framlengja núgildandi viðskiptasamning okkar við bandalagið eða gera nýjan, víð- tækari samning — eða þá við ákveð- um að verða fullgildir aðilar að band- alaginu ásamt öllum öðrum þjóðum álfunnar með þeim réttindum og skyldum, sem því fylgja. Við eigum ekki annarra kosta völ. Við vitum nokkurn veginn, hvaða efnahagsá- vinnings við getum vænzt af aðild að bandalaginu. Reynslan af sam- starfi bandalagsríkjanna fram til þessa varðar veginn. Og við þurfum ekki að óttast um fullveldi okkar ef við kunnum fótum okkar forráð, ekki frekar en til dæmis Danir og írar, sem hafa verið aðilar að banda- laginu í næstum 20 ár og ætla sér að vera það áfram. í þessu viðfangi vaknar önnur spurning. Hvað yrði um þjóðmenn- ingu okkar og tungu? Væri þeim óhætt í ólgusjó evrópskrar menning- ar? Tökum tunguna fyrst. Tungumál- akunnáttu þjóðarinnar hefur fleygt fram síðustu ár, sem betur fer, eink- um enskukunnáttu. Sjónvarp og kvikmyndir hafa stuðlað að þessu að sínu leyti, en ýmislegt fleira hef- ur lagzt á sömu sveif. Enska er heimsmál. Stúdentar við Háskóla íslands og aðrir framhaldsskólanem- Þorvaldur Gylfason „Aðild að bandalaginu er því fyllilega samrým- anleg aukinni vald- dreifingu innan hvers aðildarlands. Við ís- lendingar gætum til dæmis hagað verka- skiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga hér heima eftir vild alveg eins og nú, þótt við gengjum í Evrópuband- alagið.“ endur um allt land lesa reiðinnar býsn á ensku. Lestur erlendra blaða og bóka hefur líka færzt í vöxt yfir- leitt. Aukið úrval erlends lestrarefn- is í búðum hér heima ber vitni um það. Og það er líka eftirtektarvert, að áhugi framhaldsskólanemenda á kennslu í þýzku og frönsku hefur aukizt síðustu ár í bjarma atburðar- ásarinnar í Evrópu. Sama máli gegn- ir reyndar á öðrum Norðurlöndum. Hefur íslenzkukunnáttu okkar hrakað við þetta? Ég sé engin merki þess, öðru nær. Sá, sem kann góð skil á ensku eða öðrum málttm, hef- ur engan áhuga á því að slá slöku við móðurmálið. Aukin rækt við er- lend mál ætti heldur að styrkja stöðu íslenzkrar tungu, ef eitthvað er. Ekkert bendir til þess, að við mynd- um tala og skrifa betri íslenzku, ef við værum mállaus í útlöndum. Ýmsir þeirra, sem virðast nú óttast mest um afdrif tungunnar með vax- andi samskiptum á milli íslands og Evrópu höfðu líka áhyggjur af stofn- un íslenzka sjónvarpsins á sínum tíma og báru því við meðal annars, að bóklestur myndi dragast saman eða jafnvel leggjast af: Ef þjóðin ánetjaðist sjónvarpi yrði hún bóklaus smám saman, bökaþjóðin sjálf. Hvað gerðist? Útlán almenningsbókasafna tóku kipp, því að fólkið þusti á söfn- in til að afla sér frekari fróðleiks um ýmislegt efni sjónvarpsins. Nei, við munum áreiðanlega tala íslenzku á næstu öld og áfram, hvort sem við göngum í Evrópubandalagið eða ekki. Ég trúi því reyndar, að við munum tala betri og fallegri íslenzku þá en nú, því að við munum leggja meiri rækt við móðurmálið í hringiðu heimsmenningarinnar en við mynd- um gera ella í einangrun og sinnu- leysi hér heima. Sama máli gegnir í mínum huga um þjóðmenningu okkar yfírleitt. Aukin tengsl okkar við aðrar Evr- ópuþjóðir myndu brýna okkur til þess að leggja sem mesta rækt við sérkenni íslenzkrar menningar. Evr- ópubandalagið leggur reyndar mikla áherzlu á að stuðla að slíkri ræktar- semi meðal smáþjóða. Við gætum notið góðs af því. Enginn í Evrópu hefur hug á því að steypa allar þjóð- ir álfunnar í sama mót, öðru nær. Þjóð er þjóðar gaman, alveg eins og maður er manns gaman. Undir lok þessa langa máls langar mig að árétta þá skoðun, sem ég hef lýst áður hér í Morgunblaðinu og annars staðar af öðru tilefni, að við Islendingar verðum að fara að öllu með gát í samskiptum okkar við Evrópubandalagið. Það er engan Borgarstjórn Reykjavíkur: Hafin verði hönnun íþrótta- húss við Artúnsskóla SJÁLFSTÆÐISMENN í borgarstjórn Reykjavíkur lögðu til við um- ræður um fjárhagsáætlun borgarinnar á fimmtudag að hafínn yrði undirbúningur að smíði íþróttahúss við Ártúnsskóla og til hönnunar verði varið I milljón króna á þessu ári. Við umræðuna lögðu sjálf- stæðismenn hins vegar til að flestúm tillögum minnihlutaflokkanna um skólamál yrði vísað frá.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.