Morgunblaðið - 26.02.1991, Side 28
MORGUNBEAÐIÐ ;ÞRIÐJUDAGURÍ26.. FEBRÚAR. 1991
IKILOAPAKKNINGUM LÆKKARUM:
w
i
=3
DINERS — íslandsbanki og greiðslukortafyrirtækið Diners Club hafa undirritað samkomulag um að
bankinn annist þjónustu og greiðslumiðiun fyrir Diners hér á landi. Á myndinni eru fulltrúar bankans og
Diners f.v. Kristín L. Steinsen, forstöðumaður þjónustudeildar, Jóhannes Siggeirsson, framkvæmdastjóri,
Tryggvi Pálsson, bankastjóri, Jakob Havsteen, forstjóri Diners Club Danmark A/S og Örn Petersen forstöðu-
maður þróunarsviðs Diners Club.
Greiðslukort
Islandsbanki semur við Diners
GREIÐSLUKORTAFYRIRTÆK-
IÐ Diners Club International og
Islandsbanki hafa gert með sér
samkomulag um að bankinn
muni framvegis annast ýmsa
þjónustu og greiðslumiðlun fyrir
Diners Club hér á landi. Samn-
ingurinn felur í sér að Islands-
banki skuli annast móttöku og
skráningu sölunótna sem útgefn-
ar eru innanlands svo og
greiðslumiðlun til söluaðila Din-
ers Club á íslandi. Þá annast
bankinn ennfremur athugun á
greiðslugetu og áræðanleika
umsækjenda fyrir hönd Diners
Club.
íslandsbanki mun ennfremur
annast móttöku greiðslna frá kort-
höfum Diners Club hér á landi og
verður viðskiptamönnum boðin bein
skuldfærsla af viðskiptareikningi,
að því er fram kemur í frétt frá
Islandsbanka. Þeim viðskiptavinum
sem verið hafa með föst viðskipti í
SÍÐASTLIÐIÐ haust var stofn-
aður PC-tölvuklúbbur fyrir not-
endur einmenningstölva. Stofn-
þtjú ár stendur til boða Diners Club
kort á afsláttarkjörum. Erlendir
korthafar munu geta tekið út
reiðufé í öllum útibúum bankans.
andi PC-tölvuklúbbsins er Bene-
dikt Sæmundsson sem ásamt föð-
ur sínum, Sæmundi Bjarnasyni,
sér um starfsemina. Hún er að
sögn þeirra aðallega fólgin í
dreifingu deiliforrita til félags-
manna sem fá einnig aðstoð við
lausn hvers kyns tölvuvanda-
mála.
í dag eru meðlimir PC-tölvu-
klúbbsins rúmlega hundrað. Bene-
dikt sagði að það væri áberandi hve
íbúar Stór-Reykjavíkursvæðisins
væru í miklum meirihluta meðal
félagsmanna. „Við höfum áhuga á
að ná betur til tölvuáhugafólks utan
af landi því að okkar mati gæti það
haft mikinn hag af því að vera fé-
lagar í klúbbnum," sagði Benedikt.
Forrit fyrir einmenningstölvur
eru dýr og oft er erfitt fyrir fólk
að gera sér fyrirfram grein fyrir
því hvernig forritin muni henta. Það
hefur því færst mjög í vöxt á und-
anförnum árum að forritum sé
dreift sem deiliforritum („public
domain“ eða „shareware"). Þannig
forritum er dreift án þess að greiða
þurfi nema dreifinga- og disklinga-
kostnað í upphafi. Síðan er gert ráð
fyrir að viðkomandi móttakandi
sendi greiðslu til rétthafa ef hann
hyggst halda áfram að nota forritið.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna
sér starfsemi PC-tölvuklúbbsins
geta sent fyrirspurnir í Pósthólf
3362, 103 Reykjavík.
Að sögn Sæmundar fá þeir þá
senda upplýsingadisklinga þar sem
kynnt er starfsemi félagsins ásamt
því efni sem þegar hefur verið
dreift. „Við höldum kostnaði niðri
með því að senda fólki upplýsingar
á disklingi,“ sagði Sæmundur og
bætti við að í júni yrði dreift til
félaga upplýsingum um áframhald-
andi starfsemi PC-tölvuklúbbsins.
Meðal efnis á disklingunum er mik-
ið úrval leikja ásamt ritvinnslufor-
ritum og öðru efni sem tölvuáhuga-
menn geta nýtt sér.
Vaskhugi
Vaskhugi erforrit sem nýtur mikilla vinsælda vegna einfald-
leika í notkun. Fjárh.bókhald, viðskm.bókhald, sölukerfi,
birgðir, uppgjör vsk., jafnvel einföld ritvinnsla... allt í einu
kerfi á mjög hagstæðu verði.
Fáðu frekari upplýsingar hjá okkur í síma 656510.
íslensk tæki, Garðatorgi 5, Garðabæ.
EIGENDUR
Rex*Rotary
. VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
Sérfræðingui frá REX ROTARY
verður staddur hér á landi næstu
daga.
Þeir sem óska eftir þjónustu hans,
vinsamlegast hafið samband sem
allra fyrst.
OPTÍMA
Ármúla8 a 67 90 00
Tölvur
Félag fyrir notendur
einmenningstölva