Morgunblaðið - 26.02.1991, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ. ÞraÐÆUDAíGUIR 26. EEBRÚAR 39D1
29
Auglýsingar
Gottfólkfékk
Samskip
SKIPAFÉLAGIÐ Samskip hf.
hefur gengið til samstarfs við
auglýsingastofuna Gott fólk
varðandi auglýsinga- og kynn-
ingarmál félagsins. Samskip hf.
var áður Skipadeild Sambands-
ins en var gert að hlutafélagi
um áramótin síðustu og fékk
þá nýtt nafn.
Gott fólk hefur einnig fengið fleiri
fyrirtæki til samstarfs um auglýs-
ingamál. Má þar nefna Össur hf.
en það fyrirtæki sérhæfir sig í
smíði stoðtækja af ýmsu tagi
handa fötluðum bæði fyrir inn-
lendan og erlendan markað. Þá
hefur Asiaco hf., eitt stærsta fyrir-
tæki landsins á sviði veiðarfæra,
útgerðar- og rekstrarvarafyrir
sjávarútveg falið Góðu fólki um-
sjón með auglýsingamálum fyrir-
tækisins, að sögn Helga Helgason-
ar hjá Góðu fólki.
Fræðsla
Námskeið í
fjármálum
STJÓRNUNARFÉLAG íslands
býður 33 tíma námskeið í fjár-
málum, sem stendur yfir frá 5.
mars til 11. apríl nk. Kennt verð-
ur tvisvar í viku frá kl. 16-19.
Er námið ætlað stjórnendum og
öðrum, sem ekki hafa sérmennt-
un á sviðið fjármála, en vilja fá
betri innsýn í fjárhagshlið fyrir-
tækis eða stofnunar.
Fer kennslan fram í formi fyrir-
lestra og útreikninga raunhæfra
dæma, en farið verður yfir upp-
byggingu og túlkun rekstrar- og
efnahagsreiknings, núvirðisút-
reikninga, þjóðhagfræði, lestur árs-
reikninga oggerð fjárhagsáætlana.
Leiðbeinendur eru Agúst Val-
geirsson hagverkfræðingur frá
Eimskip og Svanbjörn Thoroddsen
hagfræðingur hjá VÍB.
Athugasemd
í tilefni viðtals við Örn Petersen
í viðskiptablaði Morgunblaðsins
síðastliðinn fimmtudag hefur
Böðvar Valgeirsson, forsfjóri
ferðaskrifstofunnar Atlantik
óskað eftir að koma eftirfarandi
athugasemduin á framfæri:
„Ferðaskrifstofan Atlantik tók við
umboði fyrir Diners Club árið 1984.
Á þeim tíma voru örfá hundruð
korthafa Diners Club á íslandi.
Þessi tala jókst á nokkrum árum
og komst í tæp 2.000 þegar mest
var. Síðustu árin hefur svo korthöf-
um fækkað aftur og má alfarið
rekja það til stjórnunarlegra vanda-
mála Diners Club í Danmörku. Á
þeim tíma, sem við störfuðum með
Diners Club voru mjög tíð manna-
skipti hjá fyrirtækinu, bæði á
toppnum og neðar. Núverandi for-
stjóri þess er sá fjórði í röðinni síðan
1984. Mikið var um vitleysur í inn-
heimtukerfi fyrirtækisins, sem lýstu
sér meðal annars í því, að korthafar
fengu hótanir um kortasviftingu,
þó þeir gætu sýnt fram á að hafa
staðið í skilum. Um þetta geta fjöl-
margir fyrrverandi korthafar Din-
ers Club vitnað, sem hreinlega gáf-
ust upp og skiluðu kortum sínum.
Auk þess hefur notkun Diners Club
korta kostnað í för með sér fyrir
korthafa, þar sem um erlent kort
er að ræða.“
VZterkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Morgunblaðið/Þorkell
INTERGRAPH —— Þeir voru meðal stofnenda Intergraph
notenda á íslandi, f.v. Stefán Guðlaugsson, verkfræðingur frá Verk-
fræðistofunni Hniti hf., Guðmundur Gunnarsson, Ragnar Jón Gunnars-
son og fyrir framan þá situr Pétur Þ. Gunnlaugsson.
EFTIRMENNTUN
BILGREINA
Bensíninnsprautun
ATHYGLISVERÐUSTU
AUGLÝSINGAR ÁRSINS 1990
VERÐLAUNAAFHENDING
'MARK
ÍSLENSKI MARKA0SKLÚ8BUR1NN
Ármúla 23, sími 83636.
TILBOÐS-
DAGAR
Nýborg;#
Ármúla 23, sími 83636.
SKRIFSTOFUVELAR sundhf
NÝBÝLAVEGI16 - SÍMI 641222
-lu'kni «»f* |>jónuslu ú truuHluiu gi iiimi
omRon
SJÓDSVÉLAR
Gera meira
!en að uppfylla
kröfur
fjármálaráðuneytisina.
Yfir 15 gerðir fyrirliggjandi
Verð frá kr. 29.800.-
Tölvur
Félag Intergraph not-
enda á Islandi stofnað
STOFNFUNDUR Félags Int-
ergraph notenda á íslandi var
haldinn í fyrri viku. Er tilgangur
félagsins að miðla upplýsingum
og reynslu milli félaga og að
vera vettvangur fyrir kynningar
á búnaðinum.
Intergraph er hug- og vélbúnað-
arframleiðandi fyrir grafísk tölvu-
hönnunarkerfi, sem eru aðallega
notuð fyrir arkitekta, verkfræðinga
og sveitarfélög. Meðal þeirra sem
nota Ingergrap eru Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins, Raf-
magnsveitur ríkisins, Skógrækt
ríkisins, Ræktunarfélag Norður-
lands og Skipulag ríkisins. Á stofn-
fundinn mættu félagar frá Akur-
eyri, Stykkishólmi, Egilsstöðum,
auk Reykjavíkur.
Ragnar Jón Gunnarsson, sem
sæti á í stjórn félagsins, sagði að
stefnt yrði að því að halda félags-
fundi um ákveðin efni sem tengd-
ust notkun búnaðarins á einhvern
hátt. „Við reiknum með að fá inn-
lenda fyrirlesara, sem hafa notað
hugbúnaðinn, en einnig leggjum við
áherslu á að fá erlenda fyrirlesara.
Þá fara væntanlega fram umræður
og skoðanaskipti,“ sagði hann.
I stjórninni sitja Pétur Þ. Gunn-
laugsson, verkfræðingur hjá LH-
tækni hf. (ICE-consult), Guðmund-
ur Gunnarsson arkitekt hjá Arki-
tektaþjónustunni sf. og Ragnar Jón
Gunnarsson arkitekt hjá Skipulagi
ríksins.
Kynning á kostum bensíninnsprautunar og ástæö-
um fyrirvaxandi notkun hennar. Kynning á uppbygg-
ingu og virkni þriggja mismunandi kerfa, þýsks,
amerísks og japansks. Farið verður nákvæmlega í
gegnum LE (LH)-Jetronic og Motronic kerfi með lit-
skyggnum til undirbúnings notkunar á Horstman-
bretti.
Þátttakendur:
Bifvélavirkjar með góða þekkingu á rafkerfi, sem
hafa sótt námskeið þar um.
Lengd námskeiðs: 25 tímar.
BENSÍNINNSPRAUTUN
verður haldið fimmtudaginn 7. mars, föstudaginn 8.
mars frá kl. 9-18 og laugardaginn 9. mars frá kl. 9-13.
Þeir, sem koma utan af landi fá ferða- og dvalarstyrki.
Þátttaka tilkynnist í síma 91-83011 eða 91-681551.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn kr. 6.500,-, utanfélags-
menn kr. 26.000,-