Morgunblaðið - 26.02.1991, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1991
ATVIN N MMAUGL YSINGAR
Hárgreiðslustofan
Tinna, Furugerði 3
Óskum eftir áhugasömum sveini eða meist-
ara til starfa eftir um það bil tvo mánuði.
Upplýsingar eftir kl. 19.00 á kvöldin í síma
76221.
Fiskvinnsla
Vant fólk óskast til starfa í snyrtingu, pökkun
og almenna fiskvinnslu.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 98-11084.
Fiskiðjan hf.,
Vestmannaeyjunn.
LANDSPITALINN
Hjúkrunarfræðingar óskast í eftirtaldar
stöður á öldrunarlækningadeild
Landspítalans í Hátúni 10b:
Hjúkrunardeildarstjóri
Hjúkrunardeildarstjóri óskast á deild 3 frá
1. apríl eða síðar eftir samkomulagi. Um er
að ræða 23 rúma sjúkradeild, sem er með-
ferðardeild fyrir aldraða með ýmiskonar elli-
og hrörnunarsjúkdóma. Umsóknarfrestur er
til 10. mars nk.
Aðstoðardeildarstjóri
Aðstoðardeildarstjóri óskast á sömu deild
sem allra fyrst. Gott tækifæri fyrir tvo sam-
henta hjúkrunarfræðinga, sem fellur vel að
vinna saman, að taka að sér hjúkrunarstjórn-
un á deild þar sem ríkir góður starfsandi.
Hjúkrunarfræðingur KII
Hjúkrunarfræðingur óskast í K II stöðu. Ath.
laun er tveimur launaflokkum hærri en al-
mennar hjúkrunarfræðingastöður. Verkefni
valið í samráði við hjúkrunarframkvæmda-
stjóra og deildarstjóra.
Staðan er laus nú þegar.
Hjúkrunarstjóri
Hjúkrunarstjóri óskast á næturvaktir. Einn
hjúkrunarfræðingur er með 3 deildir (63 sjúkl-
inga). Vaktir eru frá kl. 23.00 til 9.00 og vinnu-
hlutfallið er 31,5% sem gerir 5 vaktir á 4
vikna tímabili. Laus nú þegar.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast á ýmsar vaktir.
Vinnuhlutfall eftir samkomulagi. Til greina
kemur t.d. að vinna frá kl. 8.00 til 13.00,
einnig fastar kvöldvaktir o.fl.
Allir nýráðnir hjúkrunarfræðingar fá einstakl-
ingsbundna aðlögun, sem skipulögð er af
deildarstjóra í samvinnu við hjúkrunarfræð-
inginn sjálfan.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Karlsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 602266
eða 601000.
Blaðberi - Selfoss
Blaðberi óskast í austurhluta bæjarins.
Upplýsingar í síma 21966 eftir kl. 18.00.
Vélvirki
Vil ráða vélvirkja eða mann vanan vélsmíðum.
Upplýsingar í símum 96-62525 og 96-62391.
Framtíðarstarf
Reglusamur og stundvís maður um þrítugt
óskar eftir framtíðarstarfi.
Er vanur útkeyrslu og sölustörfum.
Upplýsingar í síma 651941.
yyx
/MIKUG4RÐUR
Garðabæ
Starfsmaður óskast til að sjá um fiskborð.
Upplýsingar hjá verslunarstjóra á staðnum.
Mikligarður, Garðabæ.
RAÐ
ATVINNUHUSNÆÐI
Vatnagarðar 6
(Matkaupshúsið)
er til leigu í hlutum eða í einu lagi. Frysti-
og kæliklefar eru í húsinu. Sala á húsinu
kemur einnig til greina.
Upplýsingar gefa Gunnar Snorrason í síma
672700 og Jón Júlíusson í síma 26205 á
skrifstofutíma.
Til leigu
Glæsilegt skrifstofuhúsnæði á besta stað.
Tilvalið fyrir þjónustufyrirtæki. Laust 1. apríl.
Stærð 135 m2, sem má skipta í minni einingar.
Kerfisþróun hf.,
Skeifunni 17.
Símar 688055 og 687466.
Hafnarfjörður -
iðnaðarhús - fiskverkun
Tilboð óskast í 1000 fm iðnaðarhúsnæði
(5745 rúmm.). í húsinu var fiskverkun og
fylgir um 40 fm þurrkklefi. Húsið þarfnast
nokkurrar lagfæringar. Hornlóð um 3.560 fm.
Góður staður.
Upplýsingar milli kl. 13 og 17 næstu daga.
, . Fasteigna- og skipasala
Eignahollm 2S5S222?
Hilmar Victorsson viöskiptafr.
KVOTI
Þorskkvóti óskast
Óska eftir þorskkvóta í skiptum fyrir rækju-
kvóta.
Svör leggist inn á auglýsingadeild Mbl.,
merkt: „Þ - 6853“.
KENNSLA
ÍfmÉ HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
LAUFÁSVEGUR 2 - PÓSTHÖI.F 29 - 101 REYKJAVlK
Námskeið sem byrja
í mars
Tóvinna
Jurtalitun
Prjóntækni
Fatasaumur
Dúkaprjón
Þjóðbúningasaumur
Knipl
Útsaumur
Leðursmíði
Myndvefnaður
2. mars-13. apríl
6. mars-24. apríl
6. mars-10. apríl
4. mars-29. apríl
2. mars-13. apríl
5. mars- 7. maí
2. mars-27. apríl
2. mars-23. mars
7. mars- 4. apríl
4. mars-29. apríl
,Athygli skal vakin á því, að skráning á önnur
námskeið er einnig í gangi. Vinsamlegast
hringið í skrifstofu skólans til að fá frekari
upplýsingar.
Skrifstofan er opin sem hér segir:
Mán.: 9.30-12.00, þri.: 16.30-19.00.
Mið.: 9.30-12.00, fim.: 15.30-18.00.
TILBOÐ - UTBOÐ
Steypuviðgerðir
Óskum, fyrir hönd húsfélagsins Þangbakka
8-10, eftir tilboðum í steypuviðgerðir á hús-
inu. Yfirborðsflatarmál er um 5.600 m2.
Útboðsgögn verða, afhent á skrifstofu vorri,
Þórsgötu 24, 1. hæð, gegn kr. 5.000,- skila-
tryggingu, í dag, þriðjudaginn 26. febrúar.
Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudag-
inn 7. mars 1991 kl. 16.00.
V
VERKVANGURhr
HEILDARUMSJÓN
BYGGINGAFRAMKVÆMDA
Þórsgötu 24, 101 Reykjavik, sími 622680.
Rafmagnsgufukatlar
Verkfræðistofan Vista óskar eftir tilboðum í
rafmagnsgufukatla í stærðunum 100-500 kW
ásamt tilheyrandi búnaði til söfnunar gufu
að nóttu.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar.
Verkfræðistofan Vista,
Flöfðabakka 9c, 112 Reykjavík,
sími 686740.
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
Verkfræðingar og aðrir áhugamenn .
Hvað verður
um hringveginn?
Fundur um landbrotið á Breiðamerkursandi
og hugsanlega hálendisvegi verður haldinn
í Verkfræðingahúsinu, Engjateigi 9, miðviku-
daginn 27. febrúar kl. 17.00.
Frummælendur:
Eymundur Runólfsson, Vegagerð ríkisins,
Helgi Jóhannesson, Vegagerð ríkisins, og
Trausti Valsson, arkitekt.
Fundurinn er öllum opinn.
VFÍ/BVFÍ.
LlS TMUNA UPPBOÐ
Málverkauppboð
Höfum hafið móttöku á málverkum fyrir
næsta uppboð, sem haldið verður sunnudag-
Inn 10. mars.
BÖRG
Pósthússtræti 9, 101 Réykjavík, sími 91-24211