Morgunblaðið - 17.03.1991, Page 18

Morgunblaðið - 17.03.1991, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MARZ 1991 eftir Guðmund Löve Um mánaðamótin nóvember-desember síðastliðinn var í París undirritaður sáttmáli um verulegar takmarkanir á hefðbundnum herafla Atiantshafsbandalagsins og Varsjárbandalagsins í Evrópu. Margir urðu til að fagna þessu sem skrefi í átt til slökunar spennu og varanlegs friðar í álfunni. En fleira þarf að taka með í reikning- inn. Er Gorbatsjov búinn að vera og íhaldssamari öfl að ná völdum í Sovétríkjunum? Er hætta á að staða NATO veikist þegar síst má við? Er í rauninni allt með felldu í öryggismálum Evrópu í dag? MBL/Guömundur Löve Rætt við Thomas Ries hjá Institutt for forsvarsstudier í Noregi um friðarhorfur og öryggismál í Evrópu Kalda stríðið" er það tímabil í sögunni kallað er náði frá Iokum heimsstyijaldarinnar síðari og fram á síðasta ár, er það endaði á eftirminnilegan hátt með hinum stórfelldu breyting- um í Austur-Evrópu. Endahnútur- inn var að margra mati sleginn þegar HVE-sáttmálinn um tak- mörkun hefðbundinna vopna í Evr- ópu var gerður milli Bandaríkjanna, Sovétríkjanna og hinna 34 aðildar- landa ROSE (Ráðstefna um öryggi og samvinnu í Evrópu) auk Kanada. Kalda stríðið voru 40 ár friðar í Evrópu, og í sögulegu samhengi er þetta mikið afrek. Á sjötta áratugn- um var hins vegar hættulegt tíma- bil óöryggis þegar Bandaríkin og Sovétríkin héldu enn að annað þeirra gæti unnið kjarnorkustríð. Þetta náði hápunkti sínum í Kúbu- deilunni 1962 þegar heimurinn rambaði á barmi kjamorkustríðs. Fljótlega varð stórveldunum þó ljóst að þau yrðu fyrir alla muni að kom- ast hjá beinum átökum sín á milli, og menn fóru að tala um „ógnar- jafnvægið". Þetta ógnaijafnvægi stuðlaði hins vegar að miklu jafn- vægi í Evrópu þó austantjaldslöndin yrðu að gjalda fyrir það með frelsi sínu, og það er einmitt þetta jafn- vægistímabil sem nú kann að vera að renna sitt skeið á enda. Það er verið að leggja niður kerfi sem hef- ur virkað vel hingað til, og við stöndum nú frammi fyrir hinu óþekkta. Hvað gerist í Sovétríkjunum? Stærsta vandamálið hvað þetta varðar er hvað kemur til með að gerast í Sovétríkjunum á næstu mánuðum og árum. Sovétríkin eiga yfir óhemjumiklum hergögnum að ráða sem geta skipt sköpum fyrir framtíð Evrópu, en hvað á að taka til bragðs þegar þetta stórveldi virð- ist vera að hrynja saman? Tomas Ries, B.sc., sem hefur beitt sér í rannsóknum á öryggismálum í Evr- ópu við Institutt for forsvarsstudier í Noregi, hefur kynnt sér það mál, en Tomas þessi hefur meðai annars komið hingað til Islands, en hér hélt hann fyrirlestur í boði Sam- taka um vestræna samvinnu og Varðbergs hinn 13. október sl. Að sögn hans var Sovétmönnum ljóst þegar í byijun síðasta áratugar að eitthvað þyrfti að gera til að kom- ast hjá algjöru hruni sovésks efna- hagskerfis. Þar hefur sennilega staðið að baki hópur .manna úr kommúnistaflokknum auk forystu- manna í sovésku leyniþjónustunni KGB, sem voru meðal þeirra örfáu sem höfðu undir höndum upplýsing- ar um hið raunverulega ástand í landinu: meðalaldur fór Iækkandi, ungbamadauði jókst, sjálfsvígstíðni var mjög há og tala áfengissjúkra og eiturlyfjaneytenda var ógnvekj- andi samtímis því að þjóðarfram- leiðsla var á sífelldri niðurleið. Á valdatíma Júríjs Andrópovs, fyrrum formanns KGB, notaði þessi hópur framfarasinna tækifærið og reyndi að fá málum sínum fram- gengt. En Andrópov sat skamma hríð, og við lát hans komst hinn íhaldssami Konstantín Tsjernenko til valda og tilraunir í umbótaátt féllu niður. Eftirmanni hans, Mik- haíl Gorbatsjov, hefur hins vegar tekist að setja í gang miklar umbæt- ur eins og heimurinn hefur mátt merkja undanfarin ár. Til að fá vinnufrið til að sinna hinum aðkallandi innanríkismálum hefur Gorbatsjov orðið að minnka þrýstinginn á landið utanfrá og það var best gert með því að minnka spennuna í öryggismálum. í tíð Gorbatsjovs var soyéska herliðið kallað heim frá Afghanistan, sam- skiptin við Kína betrumbætt og það sem mikilvægast er, sambandið við Vestur-Evrópu og Bandaríkin var stórlega styrkt. Þetta olli því líka að Sovétríkin áttu auðveldara með að fá efnahagslega aðstoð frá Vest- urlöndum, auk þess sem nú var unnt að skera niður útgjöld til her- mála (í samræmi við HVE-samn- inginn) og létta þannig fyrir upp- byggingu nýs sovésks hagkerfis. Nýfengið frelsi austantjaldsþjóð- anna og afvopnun Evrópu hefur þannig gerbreytt öryggispólitískum forsendum í þessum heimshluta. Nýjar forsendur bera rneð sér óvissu, og þegar við bætist ótrygg útkoma umbótaþreifinganna í Sov- étríkjunum þar sem ýmsum öflum er gefinn laus taumurinn, er vissara að fara með öllu með gát að mati Tomasar Ries. Hinar „nýju“ þjóðir sem vaknaðar eru til lífs í Austur- Evrópu eru bæði fátækar og pólit- ískt óstöðugar auk þess sem þær eiga við þjóðernisvanda að etja, og eru þetta allt hlutir sem taka verð- ur með í. heildarmyndina. Vestur-Þýskaland var þegar fyrir sameininguna við nafna sinn í austri þriðja stærsta efnahagsveldi heims á eftir Bandaríkjunum og Japan. Nú er endurfætt nýtt stórveldi í miðri Evrópu, og eykur það enn á öryggispólitíska óvissu í framtíð- inni. Þeir eru þó ekki margir sem spá nýjum Hitler í bráð. Thomas telur slíkt afar ólíklegt og bendir á að Þýskaland virðist vera vel sam- hæft vesturevrópskri pólitík og efnahagskerfi. Stoðunum svipt undan NATO? Ástæðan fyrir tilvist Atlantshafs- bandalagsins hefur hingað til aðal- lega verið talin vera mótvægið við hina stöðugu hótun frá Sovétríkjun- um. í bandaríska varnarmálaráðu- neytinu Pentagon er því hins vegar haldið fram að það tæki Sovétmenn minnst tvö ár að undirbúa árás á Vestur-Evrópu, og segja má að stoðunum hafí að miklu leyti verið svipt undan NATO um leið og Sov- étríkin draga herlið sitt til baka frá Austur-Evrópu. Nokkur óvissa ríkir um hvort NATO getur aðlagað sig hinum breyttu aðstæðum og hvort það fyrirfinnist yfirleitt pólitískur vilji í Evrópu og/eða Bandaríkjunum fyr- ir áframhaldandi tilvist þess. Auk þess hefur síðastliðin 10-15 ár ver- ið nokkur spenna í sambandinu milli Vestur-Evrópu og Bandaríkj- anna, þar sem vissir hópar bæði innan bandaríska þingsins og meðal almennra borgara telja Evrópu og Japan njóta góðs af bandarískum hervörnum án þess að láta nóg í staðinn. Evrópa er einnig að verða æ meiri keppinautur Bandaríkjanna á efnahagssviðinu og verður það einnig til að kynda undir skoðunum þessara hópa í Bandaríkjunum. Tomas Ries sér fyrir sér þann mög- uleika að ef bilið miili Evrópu og Bandaríkjanna gleikki á pólitísku plani, til dæmis með mismunandi skoðunum á lausn mála í Austurl- öndum nær í framhaldi af Persaf- lóastríðinu, geti útkoman orðið auk- ið fylgi við „aðskilnaðarsinna" í Bandaríkjunum með tilheyrandi vandamálum fyrir öryggiskerfi Vesturlanda. „Ég tel að það sé nauðsynlegt að viðhalda NATO,“ segir Tomas. „Möguleikarnir á stríði í Evrópu eru meiri nú en á síðari hluta kalda stríðsins og auk þess sé ég enga aðra jafngóða leið til að tryggja öryggi Vestur-Evrópu í framtíðinni. RÖSE getur sennilega ekki orðið sterkara afl í Evrópu en Sameinuðu þjóðirnar eru í heiminum og það dugir ekki til að komast alfarið hjá ófriði þó það sé góður vettvangur fyrir fyrirbyggjandi aðgerðir. Lítill vafi er á því 'að Atlantshafsbanda- lagið verði að laga sig að breyttum aðstæðum þar sem áhersluatriðin verða kannski fremur að komast hjá staðbundnum eijum en að veij- ast stórstríði.“ Er afvopnunin afvopnun? Þó NATO og Varsjárbandalagið hafi gert samning um minnkun á herafla og jafnvægi í Evrópu virðist sem öfl innan sovéska hersins séu leynt og ljóst að reyna að koma sér undan ýmsum ákvæðum hins 200 blaðsíðna langa HVE-samnings. Bandaríska þingið hefur að vonum tekið þessu illa, svo í augnablikinu er framtíð HVE-samningsins ekki of björt. Mikið af því sem hefur gerst í afvopnunarmálum af hálfu Sovétríkjanna eigum við hins vegar að þakka þróun í innanríkismálum. Það að Sovétmenn minnki her- afla sinn í Mið-Evrópu, bæði vegna þess að þeir séu að losa um takið á austantjaldslöndunum og vegna HVE-samningsins, þýðir hins vegar að heraflinn í norðri er að aukast, bæði hvað varðar magn og gæði. Þó við lifum nú á tímum tilslakana og spennufalls í vamarmálum er ekki hægt að segja fýrir um hvað næstu 5-10 ár bera í skauti sínu, og ef allt fer á versta veg í Sov- étríkjunum gætum við setið uppi með hættulegan og árásargjarnan nágranna í norðri. Niðurskurður á hefðbundnum herafla í Evrópu tryggir ekki frið- inn. Ógnarjafnvægið hefur verið sett úr jafnvægi með INF-samning- unum sem settu meðaldræg kjarna- vopn úr Ieik, og svo aftur með HVE-samningnum sem óbeint gerir a.m.k. Vesturlöndum ókleift að halda skammdrægum kjarnavopn- um sínum. Kjarnorkukapphlaupið í Evrópu hefur á þennan hátt verið stöðvað að mestu leytu og það eitt sér gerir það á ný fræðilega mögu- legt að heyja stríð í álfunni og er það að mati Thomasar lykilatriði í framtíðarþróun afvopnunarmála í Evrópu. Sovétmenn hafa einnig reynt að koma hernaðartækjum sínum og vopnum undan áhrifasviði HVE- afvopnunarsáttmálans. Sem dæmi má nefna að miklir liðsflutningar hafa verið austur fyrir Úralfjöllin, því Asía er ekki innifalin í sátt- málanum. Þaðan er að sjálfsögðu ekki ómögulegt að hreyfa lið ef nauðsyn skyldi krefja. í öðru lagi tók HVE-sáttmálinn ekki til sjó-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.