Morgunblaðið - 20.03.1991, Blaðsíða 39
ieei shaw .02 >rjOAau>jr/QiM qiöajíiviuohom
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1991
Rautt ljósþýð-
ir rautt ljós
7.000 krónur getur kostað að virða það ekki
eftir Óla H.
Þórðarson
Þann 1. mars sl. þyngdust sektir
fyrir umferðariagabrot og varð
hækkun allveruleg við alvarleg brot.
Með grein þessari fylgir listi yfir
sektarfjárhæðir fyrir nokkur umferð-
arlagabrot sem Umferðarráð vill
vekja sérstaka athygli á.
Af hálfu Umferðarráðs er listinn
fyrst og fremst birtur til þess að
benda fólki á hvaða fjárhagslega
áhætta fylgir því að brjóta gegn
ákvæðum umferðarlaga. Sú hætta
er þó í raun lítilfjörleg miðað við þá
ógnarhættu sem ökumenn setja sam-
borgara sína í með því að virða ekki
eðlilegar og sjálfsagðar leikreglur
umferðarinnar. Sambærileg ógn
steðjar reyndar að ökumönnum sjálf-
um og farþegum þeirra.
Lögreglan og Umferðarráð reyna
sífellt með störfum sínum að bæta
umferðarmenningu, þ. á m. að auka
virðingu fyrir lögum og reglum sem
vegfarendum ber að fara eftir. Á
nsætunni verður höfuðáhersla lögð á
umferðarljósin og skorin upp herör
gegn þeim sem virða ekki 5. grein
umferðarlaga. Þar segir m.a. að
„vegfarandi skuli fara eftir leið-
bciningum um umferð“ þ. á m.
umferðarljósum. Ökumaður sem
ekur yfir gatnamót á móti rauðu ljósi
virðir svo sannarlega ekki þessa
reglu. Komist hann upp með að
bijóta þannig af sér stríðir hann
gegn betri vitund. Refsing hans er
að verða að viðurkenna fyrir sjálfum
RAlfTT
L/ÓSf
Óli H. Þórðarson
sér að hann sé ekki vandaður öku-
maður. Slæmur er slikur dómur. En
standi lögreglan hann að verki, verð-
ur hann að auki að vera borgunar-
maður fyrir 7.000 krónum í ríkis-
sjóð. Valdi hann slysi með háttemi
sínu bætist við þetta allt nagandi
samviskubit, enn meiri fjárútlát og
sektarkennd í réttu hlutfalli við
mannkosti hans.
Umferðarráð og lögreglan mælast
til og mæla með að ökumenn virði
umferðarlögin og losni þar með við
hvers konar sektir — fjársektir og
sektir á sál. Rautt ljós þýðir rautt
ljós og ekkert annað. Virðum það
og höldum sjálfsvirðingunni.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Umferðarráðs.
SEKTIR
fyrir nokkur
umferöarlagabrot:
Umferöarráö vekur athygli á
nokkrum neöangreindum sektarfjárhaeöum,
sem eru samkvæmt leiöbeiningum rikissak-
sóknara til lögreglustjóra fró 22. febrúar 1991.
IAkstur gegn rauðu Ijósi
Ðiöskylda ekki virt
Ekiö gegn einstefnu
Ekiö hraöar en leyfilegt er
Framúrakstur viö gangbraut
Framúrakstur þar sem bannaö er
„Hœgri reglan“ ekki virt
Lögboöin ökuljós ekki kveikt
Stöövunarskyldubrot
Vanrækt aö fara meö ökutæki
til skoöunar
Öryggisbelti ekki notuö
allt aö
allt aö
7000
7000
7000
9000
5000
7000
7000
1500
7000
4500
3000
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
MJÖG ALVARLEG OG ÍTREKUÐ BROT
SÆTA DÓMSMEÐFERÐ.
Verðlaunaþvottavélar
frá BLOMBERG
Blomberg hlaut hin eftirsóttu IF hönnunarverðlaun
fyrir glæsilega og trausta hönnun á þvottavélum.
Enn á ný ryður Blomberg brautina í hönn-
un heimilistækja.
1989 hlaut Blomberg alþjóðlegu
IF verðlaunin fyrir mjúku eldhúslínuna.
1990 fékk Blomberg hin eftirsóttu IF verð-
laun einir framleiðenda fyrir þvottavélar.
Þú getur eignast háþróaða verðlauna
þvottavél frá Blomberg.
Verið velkomin.
Við aðstoðum af fagmennsku.
8 gerðir. Verð frá kr. 56.900 stgr.
Blomberg þvottavélin -
Euro - Visa kjör.
Blomberg þvottavélarnar eru fullar
af tækninýjungum:
1. Sjálfvirk magnstilling á vatni.
2. Sparnaðarkerfi.
3. Áfangavinding.
4. Sjálfvirk jafnvægisstilling.
5. Fllífðarþvottur.
6. Yfirúðun.
7. Allt að 1.400 sn. vinding.
8. Tölvustýring á mótor.
9. 5 kg.
10. Flæðiöryggi.
trausty örugg, glæsileg.
Einar Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28, símar: (91) 622900 og 622901 - Næg bílastæði
r
james WímhIi jonn Litk^ow
Arti« li.is a nastv liahit...
.. .Waltcr can't iivc witlj itl
Komið út
Ný myndbönd
Komið út
Útgúfudagur 26/3 Útgáfudagur 26/3
CIC myndbönd.
simi 679787.