Morgunblaðið - 20.03.1991, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1991
0
frá
Opal
Nýtt suöusúkkulabi
Ódýrt og gott
IIÝTT SÍMANÚNAER
auglýsingadeildar^
Afmæliskveðja:
Vigdís Reykdal
Stella er ein af þessum sönnu
Reykjavíkurdætrum sem Tómas
Guðmundsson orti um. Hún er fædd
og uppalin í Reykjavík og hefur
aidrei búið utan gömlu Hringbraut-
ar. Foreldrar hennar, Fanney Valdi-
marsdóttir og Jón Reykdal húsa-
málari, fluttu til Reykjavíkur eftir
áralanga dvöl í Danmörku, þar sem
þau kynntust. Þau byggðu myndar-
legt hús í Miðstræti 4 og Jón vann
við iðn sína. Þau eignuðust tvö börn,
soninn, Kristján, 19. mars 1910,
og dótturina, Vigdísi, sem er alltaf
kölluð Stella, 19. mars 1911.
Jon lést langt um aldur fram
árið 1921. Fanney giftist ekki aftur
en vann fyrir sér og börnum sín
um með því að leigja út herbergi í
húsinu. Sumir leigjendur bjuggu hjá
þeim árum saman, en aðrir skemur
og góð vinátta tókst oft með þeim.
Þannig bjó Anna frá Moldnúpi hjá
þeim part úr vetri og hélt alltaf
góðu sambandi við ijölskylduna upp
frá því. Annar leigjandi var teikni-
kennari við barnaskólann og Stella
heldur því fram að hann hafi alltaf
gefið henni hæstu einkunn í teikn-
ingu bara af því að hann leigði hjá
þeim því að hún hafi aldrei getað
teiknað neitt!
Eftir barnaskólann lá leiðin í
Kvennaskólann. Þá var Stella búin
að eignast flestar vinkonurnar sem
hafa fylgt henni síðan, og ber þar
e.t.v. hæst systurnar Sigríði, sem
er nýlátin, og Venný Helgadætur
og Dóru í Menntó. Stelpurnar halda
því fram að Stella hafi þá þegar
verið skotin í Einari Sveinssyni sem
hún giftist árið 1935. Þegar Einar
gekk framhjá Kvennaskólanum var
Stellu bent á að kíkja útum
gluggann því kærastinn væri að
fara hjá. Einar fór út í nám í arki-
tektúr og var húsameistari
Reykjavíkur frá 1934 til dánardags
1973.
Stella vann hjá Sjóvá í nokkur
ár, og fór stundum í sumarfríum
með Siggu vinkonu að Ásólfsstöð-
um í Þjórsárdal. Þar var gistiheim-
ili og fólk dvaldi allt upp í 2-3 vik-
ur, stundaði útreiðar og skemmti
sér vel. Seinna fóru þau Einar að
Múlakoti í Fljótshlíð eða upp í Borg-
arfjörð og er óvíst hvort fólk sem
leitar riú mun lengra í sumarfríum
sínum skemmti sér öllu betur.
Auðvitað hætti Stella að vinna
þegar hún gifti sig, eins og flestar
konur á þeim tíma. Hún segist hafa
verið svo fegin að hætta að vinna
þó hún geti alls ekki munað núna
hvað hún gerði af sér alla daga.
Jú, auðvitað gaf hún Einari morg-
unkaffi, svo kom hann heim í há-
deisverð og aftur í eftirmiðdag-
skaffi! Vinkonurnar hittust líka
daglega og voru í saumaklúbb viku-
lega fyrstu árin. Reyndar stríða þær
Stellu á því að hún hafi alltaf verið
svo ómyndarleg að hún hafi bara
komið með einn þráð með sér til
að þurfa ekki að sauma mikið!
Eftir giftinguna flutti Stella úr
Miðstræti heim til Einars upp á
Bergþórugötu 55. Hún var lítið
spennt fyrir flutningnum því húsið
var svo langt út úr bænum og mik-
ill sóðaskapur og læti í kringum
mjólkurstöðina sem þá var á horni
Snorrabrautar og Bergþórugötu.
Þau Einar bjuggu alla tíð á Berg-
þórugötunni, í húsi sem faðir hans
byggði. Sagðist Einar hafa búið á
21 stað áður og var búinn að fá
nóg af flutningum og lét sér nægja
að flytja á milli hæða. Þó hann
teiknaði Qöldann allan af einbýlis-
húsum fundu þau aldrei fyrir þeirri
þörf að stækka við sig, enda íbúðin
á Bergþórugötunni einstaklega fal-
HVERJU ÞARFTU A
Efnið og aðstæður hamla því ekki að þú finnir réttu dæluna í Héðni.
Úrvalið, gæðin og verðið gera okkur kleift að bjóða hagkvæma lausn
fyrir ólíklegustu dæluverkefni.
Láttu söludeild okkar leysa dælumál þín.
IRON / EDUR miðflóttaaflsdælur
MONO snigildælur
LOEWE
stimpildælur
T,T. ROTAN tannhjóladælur
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2, SlMI 624260
VERSLUN - RAÐGJOF
leg og vel skipulögð. Ári eftir brúð-
kaupið flutti móðir Stellu til þeirra
því að það þótti ótækt að hún byggi
ein. Faðir Einars bjó einnig í húsinu
sem var sannkallað fjölskylduhús.
Sveinn lést árið 1959 en Fanney
1969 og hafði þá verið rúmliggj-
andi í fjögur ár. Ég man vel eftir
langömmu sem sagði okkur sögur
frá Danmörku og afa og Stellu var
stundum strítt á því að þau hafi
lært að lesa á Familie Journal með
gotnesku letri.
Langamma átti góðar minningar
frá veru sinni í Danmörku og gekk
t.d. alltaf á fortov-inu. Það var
gaman að heimsækja Einar og
Stellu. Hann brá oft á leik við okk-
ur, dulbjóst sem arabi með túrban
á höfði og við undum okkur við að
mæla upp aila íbúðina með forláta
málbandi sem hann átti. Eftir að
við fluttum til Víkur skrifaði hann
Kristínu, sem þá var sjö ára,
skemmtilegt bréf. Ekki var verra
þegar við vorum sendar í bókabúð-
ina til Siggu og máttum kaupa lita-
bók eða dúkkulísur. Okkur var
spillt af eftirlæti og kunnum því vel.
Stella eignaðist engin börn en
hefur.,alltaf haft mikið samband við
börn Kristjáns bróður síns og
barnabörn og afi hefur heimsótt
systur sína á hveijum sunnudags-
morgni í áratugi. Eftir lát Einars
fór Stella að vinna sem sjálfboðaliði
í verslun Rauða krossins á Landa-
koti, en þar var Sigga vinkona versl-
unarstjóri. Þá fór hún einnig í utan-
landsferðir, t.d. með Venný og eig-
inmanni hennar til London og með
„stelpunum" í mikið ferðalag til
Þýskalands og Danmerkur. Ofáar
ferðir voru farnar í sumarbústað
Siggu við Álftavatn og var ég svo
heppin að vera boðin með í eina
slíka ferð í júní sl. með Stellu, Siggu
og Rögnu hans Jóns borgarlæknis.
Veðrið var sérdeilis fallegt og undi
ég mér vel við að hlusta á þær rifja
upp sögur, til dæmis af Borginni á
meðan hún var og hét, en þar voru
þær að sjálfsögðu fastagestir.
Stella er eins og fyrr sagði sann-
ur Reykvíkingur og er gaman að
ganga með henni — eða aka — um
bæinn og hlusta á sögur frá eldri
tíð þegar hestar voru í skúrunum
í portinu milli Bergþórugötu og
Njálsgötu og verkstæði iðnaðar-
manna voru svo að segja í hveiju
porti. Það var í þá daga þegar allir
þekktu alia og bærinn ekki stærri
en svo að eiginmenn komu heim í
hádegismat. Þegar konur voru með
börnin í sumarbústað við Elliðavatn
eða Álftavatn allt sumarið og fengu
eiginmennina í heimsókn um helg-
ar, þegar ekkjur leigðu stúdentum
herbergi eða tóku menn í fæði,
þegar allir dönsuðu á Borginni á
sunnudagskvöldum, þegar óhætt
var að fara í kvöldgöngu um
Reykjavik. „Stelpurnar“ eru nú all-
ar um og yfir áttrætt og flestar
löngu orðnar ekkjur. Vinskapur
þeirra er einstakur og aðdáunar-
verður. Þetta eru konurnar sem
byggðu þennan bæ og vilja hvergi
annars staðar eiga heima.
Ég óska Stellu frænku hjartan-
lega til hamingju með afmælið og
vona að hún og „stelpurnar" eigi
eftir að njóta langra lífdaga.
Ragnhildur Vigfúsdóttir
___________Brids______________
Arnór Ragnarsson
Meisiarastigaskrá
Bridssambands íslands
Meistarastigaskrá Bridssam-
bands Islands er nýkomin úr prent-
un. Hún inniheldur að þessu sinni
auk áunninna stiga síðasta árs, all-
ar upplýsingar um útreikninga stiga
fyrir félög, svæðasambönd og alla
þá sem vilja vita hvernig stigagjöf-
in er.
Einnig er almenna keppnisreglu-
gerð fyrir Islandsmót ásamt lögum
Bridssambands íslands að finna í
þessari bók ásamt ýmsum öðrum
upplýsingum um starfsemi síðasta
árs og fleira. Þetta er því rit sem
allir sem vilja fylgjast með íslensku
bridslífi þurfa að eiga. Félögum
innan BSI verða send 5 eintök af
bókinni ókeypis en umframeintök
eru til sölu á skrifstofunni og kost-
ar eintakið 200 krónur.
Bridssambandið hefur einnig á
boðstólum um þessar mundir nokk-
uð magn af notuðum spilum og
spilabökkum á mjög góðu verði,
einnig er nýkomin sending af brids-
bókum, allar nánari upplýsingar eru
á skrifstofunni.
Heilsuval, Barónssllg 20, S 626275 og 11275
ir Pitney Bowes-
póstpökkun
Mjög hentug fyrirtækjum,
bæjarfélögum, stofnunum
Brýtur blaðið, setur í umslag
og lokar því
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 ■ 105 Reykjavik
Símar 624631 / 624699
(notUTÍCCj
V HRUKKUBANINN V
íslandsmótið í tví-
menning, undanrásir
í opnum flokki 1991
Undanrásir Islandsmótsins í
tvímenning verða 13.-14. apríl
næstkomandi. Mótið er öllum opið
og skráning er hafin á skrifstofu
Bridssambandsins í síma 91-
689361.
Spilaður verður Mitchell-tví-
menningur, 3 umferðir, og verða
tvær umferðir spilaðar á laugardag
og ein á sunnuag.
24 efstu pörin vinna sér rétt til
að spila í úrslitum sem verða spiluð
helgina 27.-28. apríl. Í úrslitum
keppa einnig svæðameistarar sem
hafa unnið sér rétt beint inn í
keppnina heima á sínu svæði, þann-
ig að alls eru 32 pör sem spila ti!
úrslita.
Bridsfélag Siglufjarðar
Siglufjarðarmóti í sveitakeppni er
nú lokið. Alls voru spilaðar 9 umferð-
ir og urðu úrslit sem hér segir: Siglu-
fjarðarmeistari varð sveit Islands-
banka með 186 stig og hana skipa
Sigurður Hafliðason, Sigfús Stein-
grímsson, Valtýr Jónasson og Baldvin
Valtýsson.
Þorsteins Jóhan'nssonar 167
Ingu Jónu Stefánsdóttur 152
Bjarkar Jónsdóttur 147
Birgis Björnssonar 144
Níelsar Friðbjarnarsonar 137
Jónasar Stefánssonar 130
Önnu Láru Hertervig 103
Jóhanns Jónssonar 96
Ingvars Jónssonar 70
Bridsdeild Rangæinga
Eftir þijú kvöid í barómeter-keppn-
inni var staða efstu para þessi:
Danfel Halldórsson — Ragnar Björnsson 117
Árni Guðmundsson — BragiJónsson 108
Bragi Halldórsson — Hreinn Halldórsson 80
Rafn Kristjánsson - Þorsteinn Kristjánsson 72
Aðalbjörn Benediktsson — Jón V. Jónmundsson 70
Staða efstu para eftir fjögur kvöld,
það næstsíðasta:
Aðalbjöm Benediktss. - Jón Viðar Jónmundss. 165
Daníel Halldórsson - Ragnar Bjömsson 145
ÁmiGuðmundsson-BragiJónsson 118
Bragi Halldórsson - Hreinn Halldórsson 109
Lárus Hermannsson - Sigurleifur Guðjónsson 72