Morgunblaðið - 20.03.1991, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1991
Norræna húsið:
Verk eftir Grieg á
Háskólatónleikum
HÁSKÓLATÓNLEIKAR verða í Norræna húsinu miðvikudaginn
20. mars kl. 12.20. Á tónlcikunum koma fram Guðný Guðmunds-
dóttir fiðluleikari og Ron Levy píanóleikari.
Á efnisskránni eru verk eftir
Edvard Grieg þ. á m. Sonata í
C-moll fyrir fiðlu og píanó en
Guðný Guðmundsdóttir og Ron
Levy fluttu Grieg-sónötuna í
Vermont í Bandaríkjunum síðast-
liðið sumar. Þar hlutu þau frábær-
ar undirtektir og lofsamlega dóma,
segir í fi'éttatilkynningu.
Guðný Guðmundsdóttir er fyrsti
konsertmeistari Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands og hefur verið það
frá 1974. Ron Levy píanóleikari
kom fyrst fram með hljómsveit í
New York árið 1966 þá aðeins 15
ára gamall. Hann er ráðinn tónlist-
arstjóri við Equinox Hotel í Man-
chester í Vermont og eru þar
haldnir reglulegir kammertónleik-
ar árið um kring.
Ron Levy píanóleikari.
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleik-
ari.
41
■Á" GBC-innbinding
Fjórar mismunandi
gerðir af efni og tækjum
til innbindingar
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 • 105 Reykjavík
Simar 624631 / 624699
Þ. Þ0BBBÍMS50IÍI &C0
Ea0EJQHH0.
gólfflísar - kverklistar
ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Eigendur Gesthúsa hf. framan við smáhýsin þar sem þau voru í
byggingu.
Selfoss:
Gesthús hf. reisir níu
smáhýsi fyrir ferðamenn
Selfossi.
NÝTT fyrirtæki, Gesthús hf., hefur verið stofnað á Selfossi og mun
það reka lítil gistihús í tengslum við rekstur tjaldsvæðisins á Sel-
fossi. Hefur fyrirtækið gert samning við bæjarfélagið um uppbygg-
ingu á aðstöðu fyrir ferðamenn á tjaldsvæðinu við Engjaveg.
Fyrsta skrefið ú uppbyggingunni
hjá Gesthúsum hf. er að reisa 9
smáhýsi. í hveiju húsi eru tvö
tveggja manna herbergi með baði.
I tengslum við húsin verður reist
þjónustuhús þar sem verður mót-
tökuaðstaða og aðstaða til að bera
fram morgunverð fyrir gesti. Þá
verður reist baðhús á svæðinu fyrir
tjaldgesti og öll aðstaða fyrir þá
endurbætt.
Gesthús hf. er í eigu Sp eininga-
húsa hf., Samtaks hf., Olafs Auð-
unssonar leiðsögumanns, Hreiðars
Hermannssonar byggingaverktaka
og sænskrar ferðaskrifstofu, Is-
lands resebyra.
— Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Gunnar E. Hauksson
Tveir áhugasamir golfarar að æfa sig í Félagsheimilinu.
Golf æft á Þmgeyri
Þingeyri.
FRÁ áramótum hefur hópur
manna komið saman síðdegis á
sunnudögum í Félagsheimilinu á
Þingeyri til að æfa golf.
Það var að frumkvæði Þrastar
Sigtryggssonar fyrrverandi skip-
herra, sem nú er búsettur á Þing-
eyri, að komið var upp aðstöðu í
Félagsheimilinu, þar sem menn
geta æft sig í golfi. Þar voru settar
upp nokkrar púttbrautir og aðstaða
til að æfa langskot.
Það hefur farið fremur lítið fyrir
golfáhuga á Þingeyri fram að þessu,
enda langt í næsta golfvöll. Með
þessari litlu aðstöðu, sem sett hefur
verið upp, hefur komið í ljós að
áhugi á þessari íþrótt er mun meiri
en menn hugðu. Alls hafa komið
saman fjórtán manns á öllum aldri,
og væntanlega eru það fleiri sem
hugsa sér til hreyfings.
- Gunnar Eiríkur
DAIHATSU
19 9 1
er kominn!
OG NÚ MEÐ
3JA ÁRA ÁBVRGÐ