Morgunblaðið - 20.03.1991, Blaðsíða 2
28
2... þar var smyglinu
upp í lítinn sendlabíl
sem annar mannanna ók af
stað á...
Vífilsstaða■
vatn
4 Loks króaði Hafnarfjarðarlögreglan
bílinn af við kirkjugarðinn i Hafnarfirði
1 Tveirmenn
sóttu smygiið á
litlum hraðbáti
að 6-bauju um 2
sjómílur NV af
Gróttu og lögðu
uppað í Stálvík..
J' ~C
3 Fljótlega
ók maðurinn á bíl
tollvarða og síðan
á ofsahraða áfram
upp Vífilsstaðaveg
5 Hinn maðurinn héit til Kópa-
vogs á bátnum og var handtek-
inn við bryggjuna í Kársnesi
Morgun blaðið/Júlíus
Sverrir Lúthersson tollvörður
við plastbrúsana þar sem í eru
um 600 lítrar af vodka. Sverrir
heldur um baujuna sem kastað
var út til að auðkenna farminn.
600 lítrar af smygluðum vodka sóttir á haf út:
Sex skipverjar á Lax-
fossi játa að eiga
SEX skipverjar af Laxfossi, skipi Eimskipafélagsins, hafa játað að
vera eigendur rúmlega 600 lítra af vodka, sem rannsóknardeild toll-
gæsiunnar lagði hald á í fyrrinótt eftir eftirför við mann á sendibíl
milli Hafnarfjarðar og Garðabæjar. Tveir hjálparmenn skipverjanna
fóru á yfirbyggðum plastbáti móti Laxfossi út að sexbauju og tóku
áfengið um borð eftir að skipveijarnir höfðu varpað því útbyrðis í
plastbrúsum festum við bauju.
Síðan var plastbátnum siglt að
viðlegu Stálvíkur í Garðabæ og þar
var smyglið flutt í sendibíl sem
annar mannanna ók á brott en hinn
lét úr höfn. Tollgæsla sat þar fyrir
mönnunum en þegar reynt var að
stöðva för sendibílsins vár honum
ekið á bíl tollgæslunnar og síðan á
brott á miklum hraða.
Tollverðir kölluðu til lögreglu og
veittu sendibílnum eftirför að Vífíls-
stöðum og síðan eftir svokallaðri
Flóttamannaleið að Hafnarfírði. Þar
kom Hafnarfjarðarlögregla á móti
smyglið
og var sendibíllinn króaður af við
kirkjugarðinn í Hafnarfírði og mað-
urinn handtekinn. Félagi hans á
bátnum var handtekinn þegar hann
lagði að í Kópavogi.
í sendibílnum voru um 30 plast-
brúsar fullir af vodka. Mennimir
tveir voru í haldi um nóttina en við
rannsókn Rannsóknarlögreglu
ríkisins játuðu sex skipveijar á Lax-
fossi að hafa keypt um 600 lítra-
flöskur af vodka í Hamborg, hellt
áfenginu yfír á plastbrúsa og varp-
að þeim fyrir borð skömmu áður
en skipið kom til hafnar í Reykjavík.
Sæfang hf. og Guðmundur Run-
ólfsson hf. Grundarfirði:
Heimalöndunarálag
og laun fiskverka-
fólks hækka um 10%
HEIMALÖNDUNARÁLAG á
þorski og ýsu var hækkað úr
30% í 40% og laun fiskverka-
fólks um 10% hjá útgerðarfélag-
inu Guðmundi Runólfssyni hf. á
Grundarfirði og fiskvinnslufyr-
irtækinu Sæfangi hf. I gær. Hjá
Sæfangi hf. vinna á milli 55 og
60 manns. Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdasfjóri Vinnu-
veitendasambandsins, segist
ekki hafa áhyggjur þó eitt fyrir-
tæki hækki laun starfsfólks ein-
hliða.
Að sögn Guðmundar Smára
Guðmundssonar, framkvæmda-
stjóra fyrirtækjanna, var þessi
ákvörðun um hækkun byggð á
þeim hækkunum heimalöndunará-
lags, sem útgerðarfyrirtæki á
Eyjafjarðarsvæðinu lögðu til fyrir
síðustu helgi. „Við treystum okkur
hins vegar ekki til þess að setja
þetta á allan fisk, en á móti ætlum
við að bæta kjör fískverkafólksins.
Við settum því nýjan lið inn í launa-
töfluna, sem heitir flæðilínuálag
og hljóðar upp á 10% af grunn-
kaupinu. Sjómenn fengu verulega
hækkun hjá okkur um síðustu ára-
mót, eða 12-15%, og við treystum
okkur ekki til að verja það að sjó-
menn fengju enn og aftur verulega
hækkun og landverkafólkið sæti
eftir. Það er geysilegt vinnuálag á
flæðilínunni, og afköstin hafa auk-
ist gríðarlega, þannig að starfs-
fólkið er í sjálfu sér aðeins að fá
hluta af þessari hagræðingu til
baka,“ sagði Guðmundur Smári.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, segist ekki hafa
áhyggjur þó eitt fyrirtæki hækki
laun starfsfólks einhliða. Hann
sagði rangt að tengja þetta með
einhveijum hætti við flæðilínuna.
Hún hefði skilað mikilli hagræð-
ingu og stærri hluti hennar hefði
komið í hlut starfsmanna en fyrir-
tækjanna.
„Það kann að vera að sá órói
sem nú gerir vart við sig í sjávarút-
veginum sýni að eitthvað mikið sé
að í tekjuskiptingakerfí sjávarút-
vegsins annars vegar og annarra
landsmanna hins vegar. Þetta eru
e.t.v. fyrstu merki þess að kerfið
sem við búum við fái ekki staðist,"
segir Þórarinn.
Vistun Steingríms Njálssonar:
Kröfunni vísað
frá sakadómi
SAKADÓMUR Reylg'avíkur vísaði fyrir kynferðisafbrot gegn ung-
í gær frá ákæru um að Steingrími um drengjum, yrði gert að sæta
Njálssyni, margdæmdum manni hælisvist. Ríkissaksóknari hefur
. skotið málinu til Hæstaréttar.
Kjaradeila flugmanna hjá Flugleiðum:
Yilja hærri greiðslur
fyrir pappírsvinnuna
Sólrún
syngnr í
Miinchen
SÓLRÚN Bragadóttir sópran-
söngkona hefur verið ráðin
til að syngja sem gestur við
ríkisóperuna í Miinchen i maí
næstkomandi, en þar mun
hún syngja hlutverk Paminu
í Töfraflautunni eftir Mozart.
Ríkisóperan í Miinchen er
virtasta óperuhús í Þýska-
landi.
Sólrún sagði í samtali við
Morgunblaðið að það væri mik-
ill heiður að fá að syngja við
ríkisóperuna. Með þvi væri hún
komin í innsta hring óperu-
söngvara í Þýskalandi. Hún er
fastráðin við óperuna í Hannov-
er, en auk þess hefur hún gert
hliðarsamning við óperuna í
Diisseldorf. Samningurinn við
ríkisóperuna í Munchen var
staðfestur í gærmorgun, en að
sögn Sólrúnar á hann sér nokk-
um aðdraganda.
GEIR Garðarsson, formaður
Félags íslenskra atvinnuflug-
manna, segir að flugmenn fari
ekki fram á hækkun grunn-
launa í kjarakröfum sínum
gagnvart Flugleiðum en vilji fá
hærri álagsgreiðslur því
vinnuálag hafi aukist. Geir seg-
ir að pappírsvinna heimavið
hafi einnig aukist en samkvæmt
samningum fá flugmenn greidd
5% af grunnlaunum, sem er
skilgreint í samningum sem
handbókargjald og segir Geir
að megi reikna til mánaðar-
vinnu flugmanna á ári. Hafa
flugmenn farið fram á að
greiðslur fyrir handbókargjald-
ið hækki í 10% og vaktaálag
hækki úr 15% í 33%. „Heima-
vinnan hefur aukist. Það er allt-
af verið að bæta meiri pappírs-
vinnu á okkur,“ segir Geir.
. Auk boðaðs verkfalls flug-
manna hjá Flugleiðum 29. mars
hafa þeir boðað féiaginu sólar-
hrings vinnustöðvun í hverri viku
í framhaldi af því takist ekki samn-
ingar, að sögn Geirs.
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, sagði í gær að málið
væri í algerri biðstöðu. Ekki hefur
verið boðaður sáttafundur í deil-
unni.
Að sögn Geirs lögðu flugmenn
fram þá tillögu á sáttafundinum
sl. laugardag að skipuð verði fjög-
urra manna viðræðunefnd flug-
manna og fulltrúa Flugleiða, sem
hafí sérþekkingu á þessum málum,
en flugmenn vilja ekki ræða við
samninganefnd Flugleiða á meðan
hún er skipuð fulltrúum frá Vinnu-
veitendasambandinu. Telja flug-
menn að fulltrúar VSÍ hafi ekki
AÐFARANÓTT þriðjudags and-
aðist Kári Jónsson fyrrverandi
stöðvarsljóri Pósts og síma á
Sauðárkróki.
Kári var fæddur 27. október
1933, sonur hjónanna Unnar
Magnúsdóttur og Jóns Bjömssonar
verslunarmanns.
Kári stundaði almenn verslunar-
störf á Sauðárkróki, fyrst í verslun
Haraldar Júlíussonar og síðar í
Verslunarfélaginu sf., en árið 1966
gerðist hann starfsmaður Pósts og
síma. Hann gegndi þar fulltrúa-
störfum um árabil, en var stöðvar-
stjóri frá árinu 1983 til 1985 er
hann lét af störfum sökum heilsu-
brests.
Kári var alla tíð virkur félags-
maður í Sjálfstæðisfélagi Sauðár-
næga þekkingu á vinnutímaregl-
um flugmanna. „Við viljum að
teknar verði upp nútímalegri regl-
ur en hér tíðkast meðal annars
um áhafnaskipti í næturflugi. Við
höfum boðið þeim upp á rýmkaðri
vinnutímareglur en þeir vilja ekki
ræða það,“ sagði Geir.
króks og gegndi fyrir það mörgum
trúnaðarstörfum. Hann sat meðal
annars í bæjarstjórn fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn kjörtímabilið
1962-66. Einnig var hann mikil-
virkur félagi Leikfélags Sauðár-
króks, en þar lék hann mörg og
stór hlutverk og leikstýrði einnig
mörgum verkum fyrir félagið á
blómaskeiði þess. Þá var hann um
margra ára skeið fréttaritari Morg-
unblaðsins á Sauðárkróki. Hin
síðari ár lét Kári málefni Sögufé-
lags Skagfirðinga og Safnahússins
til sín taka, og var hann um ára-
bil formaður Safnahússstjómar.
Eftirlifandi eiginkona Kára er
Eva Snæbjamardóttir, og áttu þau
tvo syni, Ola Björn, framkvæmda-
stjóra í Reykjavík, og Guðjón
Andra, nema.
Kárí Jónsson íyrrv.
stöðvarsljóri látinn
Niðurstaða sakadóms var annars
vegar byggð á því að maður yrði
aðeins dæmdur til hælisvistar sam-
kvæmt 65. grein hegningarlaganna
í tengslum við eitthvert ákveðið brot,
en krafa ákæruvaldsins byggðist
ekki á því að maðurinn hefði gerst
sekur um ákveðið brot heldur var
aðeins krafíst öryggisráðstafana
vegna hættu á því að hann fremdi
brot.
Hins vegar byggðist frávísunin á
því að sama krafa hefði áður verið
höfð uppi og þá verið vísað frá í
Hæstarétti á þeim forsendum að
ekki hefði verið sýnt fram á að
gæslan gæti farið fram annars stað-
ar en i fangelsi. Taldi dómurinn að
forsendur væm óbreyttar hvað þetta
varðar frá því að dómur Hæstaréttar
gekk.
Morgunblaðið þakkar Kára
Jónssyni heillarík störf í þágu
blaðsins, og sendir eftirlifandi konu
hans og fjölskyldu innilegar sam-
úðarkveðjur við fráfall hans.