Morgunblaðið - 07.04.1991, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 07.04.1991, Blaðsíða 45
teei JiaqA .v auoAauviMua nUDÖ3ACII/IYM UIQAjaWUOflOM MOKGUNBLAIMD SUNNUDAUUlt 7. APRÍU1991- 44 Opna motið í New York; Sterkasta helg- armót söguimar ___________Skák_______________ Margeir Pétursson ÞRÁTT fyrir að opna mótið í New York hafi nú mjög sett niður hvað varðar verðlaun og þrönga dagskrá var það engu lakar skipað að þessu sinni en undanfarin ár. Verðlaunasjóð- urinn í efsta flokki var helm- ingi rýrari en áður og umferð- imar átta vom tefldar á aðeins fjórum dögum, þannig að um hálfgert helgarmót var að ræða. En heimsborgin héfur greinilega mikið aðdráttarafl, fjölmargir stórmeistarar voru á meðal þátttakenda, þar af nokkrir af þeim öflugustu í heimi. Þrátt fyrir þetta var það einu sinni enn fremur lítt þekktur Rússi sem stal sen- unni. Það var Alexander Gold- in, sem hefur aðeins verið stór- meistari í tvö ár, en er með 2.565 skákstig. Þrettán skákmenn deildu öðru sætinu, þar á meðal undirritaður. Fyrstu verðlaunin á mótinu voru allgóð, eða tíu þúsund dalir, en næstu verðlaun þynntust mjög út þar sem margir voru um hituna. Þótti mörgum býsna hart að það dygði tæplega fyrir útgjöldum að deila öðru sætinu, en á New York Open-mótinu verða jafnvel öflu- gustu stórmeistarar að leggja sjálfir út fyrir öllum kostnaði. Það er hætt við að ef ekki verði ráðin bót á þessu muni mótið fljótlega missa stöðu sína í skákheiminum. Ströng dagskrá þýddi það að mótið var afar erfitt, í versta falli gátu menn lent í að tefla heila fjórtán tíma á dag. Úthald kepp- enda hafði því miklu meiri þýð- ingu en á venjulegum mótum. Lokastaðan varð þessi: 1. Alexander Goldin, Sovétríkjun- um 6V2 v. af 8 mögulegum 2. -14. Margeir Pétursson, Ehlvest, Eistlandi, Dreev, Nov- ikov, og Epishin, Sovétríkjunum, Gata Kamsky, Wolff, Uya Gurevich, Sergei Kudrin, deFirmian og Remlinger, Banda- ríkjunum, Lautier, Frakklandi og Adianto, Indónesíu 6 v. Tvö undanfarin ár hefur Helgi Ólafsson náð mjög góðum árangri á mótinu, en hann var að þessu sinni fjarri sínu bezta, hlaut fimm vinninga. Benedikt Jónasson hef- ur undanfarin tvö ár verið búsett- ur vestanhafs og varð nýlega skákmeistari Minnesotafylkis. Hann átti góða möguleika á að hljóta verðlaun fyrir að ná bestri frammistöðu skákmanna með 2.400 skákstig og minna, en tap- aði í síðustu umferð fyrir Helga og endaði með fjóra vinninga, sem var þó ágætis árangur, því mót- heijar hans voru flestir honum hærri á stigum. Mér tókst að vinna þijár fyrstu skákir mínar á mótinu og í fjórðu umferð mætti ég undrabarninu Gata Kamsky og átti lengst af í vök að veijast, en slapp með jafn- tefli. Þriðja keppnisdaginn náði ég að spara nokkuð kraftana er ég gerði í báðum skákunum jafn- tefli með svörtu í 21 og 27 leikj- um. Ég var því með óþreyttari keppendum lokadaginn og náði að leggja Boris Gulko að velli í næstsíðustu umferð. Goldin tók þá forystuna með því að sigra Bandaríkjamanninn Ilya Gurevich, heimsmeistara ungl- inga, sem hafði þar áður óvænt náð að sigra Gata Kamsky. í síðustu umferð hafði ég svart gegn Goldin, en tókst ekki að sækja gull í greipar hans, svo hann stóð uppi sem sigurvegari. Hvítt: Margeir Pétursson Svart: Gulko, Bandaríkjunum Nimzoindversk vörn 1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rc3 — Bb4 4. Dc2 — c5 5. dxc5 — 0-0 6. a3 - Bxc5 7. Rf3 - b6 8. Bg5 - Bb7 9. e4 - Be7 10. Hdl - Rc6 11. Be2 - a6?! Svartur hyggst stilla upp svo- kallaðri broddgaltarstöðu með peðum á a6, b6, d6 og e6, en fær ekki frið til þess. Venjulega er hér leikið 11. — Hc8 eða 11. — h6 12. Bh4 — Rh5. Ekki er gott að leika 11. — d6 strax vegna 12. e5. 12. 0-0 - Dc7 13. Rd5! — exd5 14. cxd5 — Hac8 Eftir þetta lendir svartur í mjög erfiðri stöðu, svo hann hefði e.t.v. átt að leika 14. — Hfc8 15. dxc6 — Dxc6 16. Dxc6 — Bxc6, þótt möguleikar hvíts verði greinilega betri. 16. — dxc6? gekk hins veg- ar alls ekki vegna 17. e5 — Rd5 18. Hxd5! - Bxg5 19. Hd7. 15. dxc6 — dxc6 16. e5 — Rd5 17. De4! Hvítur hefur tryggt sér yfir- burðastöðu. Hann á meira rými og sóknarfæri á kóngsvæng, en svartur á hins vegar ekkert mót- spil. 17. - Hfe8 18. Bc4 - Bf8 19. Hfel - h6 20. Bcl - Hcd8 21. Rd4! Hvítur hefur haldið svarti í klemmu með því að gefa honum ekki kost á að leika c6-c5, en þvingar hann nú til þess, með því að hóta 22. e6. 21. - c5 22. Rf5 22. - Rf6? Tapar strax, en það er ekki að sjá a_ð svörtu stöðunni verði bjarg- að. Ég átti fyrst og fremst von á 22. — Re7, en þá vinnur hvítur einkar skemmtilega með 23. Bxf7+! - Kxf7 24. Rd6+! - Hxd6 25. exd6! — Bxe4 26. dxc7 - Bb7 27. Hd8 og svartur er í hrikalegri klemmu. Annar mögu- leiki er 22. — Dc6 en þá virðist einfaldast að leika 23. Bd3 — Rf6 24. Dxc6 — Bxc6 25. exf6 — Hxel+ (25. — Hxd3 er vitanlega svarað með 26. Re7+) 26. Hxel - Hxd3 27. fxg7 - Bd6 28. Bxh6 með unnu endatafli. 23. Rxh6n— gxh6 24. Dg6n— Kh8 25. Dxf6+— Bg7 26. Dxf7 - Dxf7 27. Bxf7 - Hxdl 28. Hxdl - Hxe5 29. Hd8+ - Kh7 30. Bg8+! - Kg6 31. Hd6+ - Bf6 32. Bd2! - He8 33. Bc3 - Hxg8 34. Hxf6+— Kh5 35. f3 og svartur gafst upp. Jazztónleikar Tónleikar tríós Niels-Hennings Örsted Pedersens í Hóskólabíói kl. 20 í kvöld. Miðasala í bíóinu frá kl. 14 Jazzvakmng I 8 9 I - I 9 9 I Verzlunarmannafélag Reykjavíkur 99I — Auglýsing frá Orlofssjóði VR ORLOFSHÚS VR Dvalarleyfi Auglýst er eftir umsóknum um dvalarleyfi í orlofshúsum VR sumarið 1991. Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum þurfa að berast skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 8. hæð í síðasta lagi 19. apríl 1991. Orlofshús eru á eftirtöldum stöðum: 1 hús í Ölfusborgum 6 hús í Húsafetli í Borgarfirði 1 hús í Svignaskarði í Borgarfirði 2 hús á lllugastöðum í Fnjóskadal 1 hús í Vatnsfirði, Barðaströnd 2húsá Einarsstöðum, Suður-Múlasýslu 3húsá Flúðum 10 hús f Miðhúsaskógi, Biskupstungum 3 íbúðirá Akureyri Aðeins fullgildir félagar hafa rétt til dvalarleyfis. Þeir sem ekki hafa dvalið sl. 5 ár í orlofshúsum á tíma- bilinu 1. júlí til 23. ágúst sitja fyrir dvalarleyfum. Hafi ekki verið gengið frá leigusamningi fyrir 17. maí n.k. fellur úthlutun úr gildi. Dregið verður milli umsækjenda ef fleiri umsóknir berast en hægt er að verða við. Verður það gert á skrifstofu félagsins laugardaginn 11. maí n.k. kl. 14 og hafa umsækjendur rétttil að vera viðstaddir. Sérstök athygli er vakin á því að umsóknir verða að berast skrifstofu Verzlunarmannafélags Reykjavíkur í síðasta lagi föstudaginn 19. apríl n.k. Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, 8. hæð. Ekki verður tekið á móti umsóknum símleiðis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.