Morgunblaðið - 07.04.1991, Blaðsíða 17
I
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. APRÍL 1991
C 17
Aiþj óðaheilbrigðisdagurinn:
Vertu viðbúinn ef
vá ber að dyrum
í TILEFNI Alþjóðahéilbrigðis-
dagsins, sunnudagsins 7. apríl,
sem helgaður verður almanna-
vörnum efndu Almannavarnir
ríkisins og landlæknir, í samvinnu
við hópslysancfnd, til kynningar-
fundar um skipulag almanna-
varna í landinu og þátt heilbrigðis-
þjónustunnar á föstudaginn.
Ólafur Ólafsson, landlæknir, setti
fundinn en á eftir honum talaði Guð-
jón Petersen, framkvæmdastjóri Al-
mannavarna ríkisins, og benti á að
heildarskipulag almannavarna
byggði á tveimur höfuðþáttum sem
væru skipulag og uppbygging neyð-
arviðbúnaðar í landinu annars vegar
og framkvæmd og samhæfing
neyðaraðgerða á viðsjár- og hætt-
utímum hins vegar. Báðir þessir höf-
uðflokkar heildarskipulagsins deild-
ust síðan í fjóra undirflokka: vitn-
eskju, viðbúnað, varnir og viðbrögð.
Þá talaði Gunnar Már Hauksson,
rekstrarstjóri Landakotsspítala, um
móttöku siasaðra á spítalanum. í
máli hans kom meðal annars fram
að ef hópslys bæri að höndum yrði
göngudeild spítalans breytt í grein-
ingarstöð. Þaðan yrðu sjýklingarnir
fluttir á röntgendeild, skurðstofur,
gjörgæslu og legudeildir. Ingólfur
Þórisson, framkvæmdastjóri tækni-
sviðs ríkisspítalanna, fjallaði um inn-
ara öryggi sjúkrahúsanna en með
því er átt við hamfarir sem valda
stórslysi og skaða byggingar eða
tæki á Landsspítala eða veitukerfi
Reykjavíkur auk slysa innan Lands-
spítala.
Brynjólfur Mogensen, forstöðu-
maður slysadeildar Borgarspítalans,
talaði um greiningarsveitir frá
sjúkrahúsunum og forgangsröð slas-
aðra á slysstað. Lögð væri áhersla á
að sinna þeim sem væru lífshættu-
lega slasaðir en næst kæmu þeir sem
væru minna slasaðir og síðast látnir.
Frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri talaði Ingi Björnsson, forstjóri
FSA, og frá Sjúkrahúsi Akraness
Guðjón Guðmundsson, yfirlæknir
sjúkrahússins.
Guðjón Petersen, framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins, fjallar
um viðbrögð á slysstað. Vinstra megin á myndinni fylgist Olafur
Ólafsson, landlæknir, með.
Grunn-, framhalds-, háskólanemar !
NÁMSAÐSTOÐ
á lokasprettinum fyrir vorprófin
Innritun í síma 79233 kl. 14.30 - 1830 virka daga
Nemendaþj ónustan sf. Mjódd
VZterkurog
KJ hagkvæmur
auglýsmgamiöill!
Macintosh fyrir byrjendur
Works - ritvinnsla, gagnasöfnun, töflureiknir og stýrikerfi á ^
© 15 klst námskeiði fyrir byrjendur! Fáiö senda námsskrá.
Œp
Tölvu- og verkfræöiþjónustan ^
Grensásvegi 16 - fimm ár í forystu
Nýkominn
matinbfeu
UTIUF
i
ENN FJOLHÆFARI...........
...ENN BETRA VERÐ
Glæsilegur staðalbúnaður m.a.:
Vökvastýri, rafdrifnar rúður
fjarstýrðar samlæsingar
o.fl.ofl. ...
Verð frá 1.595 þús. st.gr.
SYNING:
í DAG KL. 13.00 -17.00
Lágmúla 5. simi 681555