Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
97. tbl. 79. árg.
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tævan:
Neyðarlög-
um aflétt
Taipei. Reuter.
FORSETI Tævans, Lee Teng-
hui, aflétti í gær neyðarlögum
sem gilt höfðu í landinu i 43 ár.
Er þetta talið vera stórt skref í
átt til aukins lýðræðis í Tævan
en einnig til bættra samskipta
við Kínverska alþýðulýðveldið.
Neyðarlögin voru sett af
kínversku stjórninni árið 1948, ári
áður en hún beið ósigur í barátt-
unni við kommúníska uppreisnar-
menn og flúði til Tævans. Lee lýsti
því einnig yfir að Tævanir myndu
héðan í frá líta á kínverska komm-
únista sem „stjórnvöld“ á megin-1
landinu en ekki sem „skæruliða-
samtök“ eins og gert hefur verið
hingað til.
Fellibylur í
Bangladesh:
Ottastað
þúsundir
hafifarist
Gorbatsjov fellst á þjóð-
kjör til embættis forseta
Borís Jeltsín bjartsýnn á að verkföllunum í Síberíu ljúki senn
Moskvu, Novokúznetsk. Reuter.
Dhaka. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 1.200 manns
fórust af völdum fellibyls, sem
gekk yfir Bangladesh í fyrrinótt,
og raunar er óttast að tala lát-
inna geti numið þúsundum. Var
bylurinn sá mesti i tvo áratugi
og öflugri en fellibylurinn, sem
kostaði 100.000 manns lífið árið
1970.
Vindhraðinn í fellibylnum var
235 km á klukkustund og þegar
hann kom inn yfir landið utan af
Bengalflóa var ölduhæðin sex metr-
ar. Bangladesh er mjög láglent og
því_ gekk sjórinn langt inn í land.
í hafnarbænum Chittagong
sukku 10 skip og hundruð fiskibáta
ýmist sukku eða brotnuðu við
ströndina. Með þeim er saknað 500
manna. Er ástandið verst á eyjunum
meðfram ströndinni og jafnvel talið
að á sumum hafi enginn komist af.
Fyrirhugað er að viðræðumar
standi í 10 vikur en dagblaðið Irísh
Times sagði í gær að sjónarmið
viðmælendanna virtust harla ólík.
Sagði blaðið einnig að fulltrúar
kaþólskra manna og mótmælenda
gerðu sér þó fulla grein fyrir að
færu viðræðurnar út um þúfur liði
á löngu þar til annað tækifæri
BORÍS Jeltsín, leiðtogi Rúss-
iands, hélt áfram viðræðum
sínum við kolanámamenn á Kúz-
bass-svæðinu í Síberíu í gær og
hann gaf til kynna að unnt yrði
að binda enda á tveggja mánaða
verkfall þeirra á næstu dögum.
Jeltsín skýrði ennfremur frá því
gæfist.
Frumkvæði Brookes er að því
leyti ólíkt fyrri tilraunum að hann
leggur enga lausn á borðið sjálfur
en lætur fulltrúum trúarhópanna
eftir að koma með tillögur. Þeir eru
annars frá írsku stjórninni, samtök-
um mótmælenda, sem eru í meiri-
hluta á Norður-írlandi, frá Jafnað-
að hann og Míkhaíl Gorbatsjov
Sovétforseti hefðu samið í
síðustu viku um að forseti Sov-
étríkjanna yrði kjörinn í beinum
kosningum þjóðarinnar eftir að
nýr sambandssáttmáli sovétlýð-
veldanna gengi í gildi.
Eftir fyrsta fund Jeltsíns og
ar- og verkamannaflokknum á
Norður-írlandi og Bandalags-
flokknum.
írland varð sjálfstætt árið 1921
en þá var landinu jafnframt skipt
pg réðu Bretar áfram yfir Norður-
Irlandi. Mótmælendur eru þar um
ein milljón að tölu, helmingi fleiri
en kaþólskir, og þeir geta ekki
hugsað sér að sameinast írska lýð-
veldinu þar sem þeir yrðu minni-
hlutahópur. Eins og að líkum lætur
er þessu öfugt farið með kaþólikk-
ana en þeir segjast þó geta fallist
á einhvers konar samstjórn með
mótmælendum fyrst um sinn.
námamanna á mánudagskvöld
sögðust verkfallsmennirnir ekki
ætla að hefja vinnu að nýju fyrr
en undirritaður yrði samningur um
að stjórnvöldum í Rússlandi yrði
falin yfirstjórn kolanáma í lýðveld-
inu. Jeltsín lét svo ummælt að ekk-
ert væri því til fyrirstöðu að gera
írski lýðveldisherinn og pólitískur
armur hans, Sinn Fein, taka ekki
þátt í viðræðunum vegna þess, að
Sinn Fein vildi ekki fordæma of-
beldisverk en vopnaðar sveitir mót-
mælenda ætla að hafa hægt um sig
meðan á þeim stendur. Samkvæmt
bresk-írska samkomulaginu frá
1985 hefur stjórnin í Dyflinni ráð-
gefandi rétt í málefnum Norður-
Irlands en mótmælendur eru því
mjög andsnúnir. Þeir krefjast þess
einnig að írska stjórnin láti af til-
kalli til héraðsins. Hafa sumir írskir
þingmenn gefið í skyn að um það
megi semja.
slíkan samning. Rússneski þing-
maðurinn Bella Denísenko sagði að
sovéskir og rússneskir embættis-
menn kynnu að ganga frá samn-
ingnum á næstunni. „Samningavið-
ræðurnar eru komnar á lokastig.
Við teljum að náðst hafi samkomu-
lag um flest af helstu ágreinings-
málunum" sagði þingmaðurinn.
Hún bætti við að helsti ásteytingar-
steinninn nú væri krafa hluta verk-
fallsmannanna um að Gorbatsjov
segði af sér forsetaembætti. Full-
trúaþing Sovétríkjanna, æðsta lög-
gjafarsamkunda landsins, kaus
Gorbatsjov í embættið árið 1988.
Flestir foringjar námamanna voru
í gær vongóðir um að málamiðlun
fyndist.
Átök hafa blossað á ný upp í
deilu Armena og Azera. Stjómvöld
í Armeníu, sem er eitt af sex lýð-
veldum er neita að fallast á nýjan
sambandssáttmála Gorbatsjovs,
sökuðu í gær hermenn frá Az-
erbajdzhan og sovéskt lierlið um
að hafa fellt yfir 20 manns í smábæ
sem er byggður Armenum þótt
hann sé í Azerbajdzhan. Óháða
fréttastofan Interfax sagði ar-
menska þingið hafa komið saman
á lokuðum fundi til að ræða ástand-
ið. „Almennt herútboð kemur til
greina,“ var haft eftir Vazgen
Manukian forsætisráðherra.
Norður-Irland:
Tímamótaviðræður hafnar um frið
Belfast. Reuter.
LEIÐTOGAR kaþólskra ntanna og mótmælenda á Norður-írlandi
komu í gær saman til yiðræðna um framtíð héraðsins og hvernig
unnt er að binda enda á óöldina, sem staðið hefur í tvo áratugi og
kostað 3.000 manns lífið. Er hér um tímamótaviðburð að ræða og
fyrst og fremst að þakka skeleggri framgöngu Norður-írlandsmála-
ráðherra bresku stjórnarinnar, Peter Brooke.