Morgunblaðið - 01.05.1991, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1991
23
Launamiðarnir
með lágu tölunum
eftir Árna
Gunnarsson
i
Fátt snerti mig eins illilega og í.
nýliðinni kosningabaráttu og að
kynnast stórum hópum láglauna-
fólks í ýmsum starfsgreinum, sem
á í miklum erfiðleikum með að
framfleyta sér og sínum af ótrúlega
lágum launatekjum. Mér er ljóst,
að launataxtar í mörgum atvinnu-
greinum eru lágir, en ég hafði ekki
gert mér grein fyrir því hve útborg-
uð laun eru smánarleg.
Einn föstudagsmorgun, skömmu
fyrir kosningar, kom ég í fiskvinnsl-
ustöð til að ræða við fólkið í „salt-
inu“. Þarna var fólk á öllum aldri;
fjölskyldufeður, einhleypingar, ein-
stæðar mæður og unglingar. Vinn-
an er erfið og óþrifaleg og vinnu-
dagurinn oft mjög langur. Um það
leyti sem ég var að fara kom verk-
stjórinn með launamiða vikunnar.
Fólkið spurði hvort ég vildi ekki líta
á miðana og mér brá í brún, þegar
ég sá niðurstöðutölurnar, þ.e. út-
borguð laun.
Eg fékk að taka ljósrit af nokkr-
um launamiðum og vil koma upplýs-
ingum, sem þar birtust, á framfæri.
1. dæmi: Einhleypur ungur mað-
ur. Hann hafði unnið 40 tíma í
dagvinnu og 24,5 klukkustundir í
yfirvinnu. Launin fyrir tæplega 65
klukkustunda vinnuviku reyndust
29.992 krónur. Þegar búið var að
draga frá staðgreiðslu, lífeyrissjóðs-
gjald, stéttarfélagsgjald, skyldu-
sparnað og fleiri liði, voru eftir í
umslaginu 10.646 krónur.
2. dæmi: Einstæð móðir með tvö
börn. Hún hafði unnið rúmlega 23
klukkustundir í dagvinnu og 3 og
hálfa í yfirvinnu. Hún fékk einnig
greidda 16 og hálfan veikindatíma
í dagvinnu og 7,20 í eftirvinnu.
Þetta gerði samtals 24 þúsund
krónur, en útborguð laun urðu
12.630.
3. dæmi: Fjölskyldufaðir með 3
börn. Hann fær skráða 46 tíma í
„Það er frumskylda
nýrrar ríkisstjórnar að
taka strax á þessum
málaflokkum o g draga
þar með úr þeirri miklu
spennu og óánægju,
sem er af eðlilegum
ástæðum meðal lág-
tekjufólksins. Kjör þess
eru til skammar, en það
er einmitt þetta fólk,
sem hefur borið byrðar
þjóðarsáttarinnar.“
dagvinnu og 25 tíma í yfirvinnu.
Bónus er rúmlega 10 þúsund krón-
ur og premía rösklega 9 þúsund.
Heildarlaunin eru 50.301 króna.
Af þessari upphæð fara 14.700
krónur í staðgreiðslu, 2.000 krónur
Árni Gunnarsson
í lífeyrissjóð og 4.600 krónur í orlof
og eru útborguð laun tæplega 26
þúsund kr.
4. dæmi: Einstæð kona um sjö-
tugt. Hún vinnur langa vinnuviku,
eða 40 klst. I dagvinnu og rúmlega
22 klst. í yfirvinnu. í premíu fær
hún 9.600. Heildarlaunin eru rúm-
lega 36 þúsund krónur. Tæplega
10 þúsund krónur eru dregnar af
henni vegna staðgreiðslu og 3.400
kr. fara í orlof. Frádrátturinn er
rúmlega 15 þúsund krónur og út-
borguð laun 21.248 krónur.
5. dæmi: Gift kona með uppkom-
in börn. Hún vinnur tæpa 30 tíma
í dagvinnu og tæpa 2 tíma í yfir-
vinnu. Premía er rúmlega 4 þúsund
krónur og laun samtals 14.499.
Þegar staðgreiðsla og önnur gjöld
hafa verið dregin frá, eru útborguð
laun 9.695 krónur.
En það ekki aðeins fólkið í fisk-
vinnslunni, sem býr við þessi kjör.
Það er hægt að finna lægri laun,
sem greidd eru konum, er annast
aldraða og sjúka, hjá fólki í verslun-
um, konum á saumastofum og svo
mætti lengi telja. Launakjör af
þessu tagi, ef þau verða ekki snar-
lega bætt, kalla vafalítið á harðar
aðgerðir verkalýðshreyfingarinnar
í næstu samningagerð.
Fulltrúar allra stjórnmálaflokka
lýstu því yfir í kosningabaráttunni,
að þeir vildu bæta kjör láglauna-
fólksins. Mest var rætt um hækkun
skattleysismarka, fulla nýtingu per-
sónuafsláttar og hækkun barna-
bóta. Það er frumskylda nýrrar rík-
isstjórnar að taka strax á þessum
málaflokkum og draga þar með úr
þeirri miklu spennu og óánægju,
sem er af eðlilegum ástæðum með-
al lágtekjufólksins. Kjör þess eru
til skammar, en það er einmitt þetta
fólk, sem hefur borið byrðar þjóðar-
sáttarinnar.
Höfundur er fyrrverandi
alþingismaður.
Búðu sjálfum þér og fjölskyldunni
sælureit í garðinum
Húsasmiðjunni færðu allt efni í sólpalla, Ef þú þarft á að halda útvegum við einnig
skjólveggi og girðingar. Og í bæklingi
góða fagmenn sem koma á staðinn.
Húsasmiðjunnar um þessi efni er að finna meta verkið, hefjast handa - og Ijúka því
hugmyndir um útlit, vinnuteikningar og fljótt og vel.
efnisstærðir sem henta best.
Komdu eða hringdu í Húsasmiðjuna og við hjálpum þér að njóta sumarsins.
HUSASMIÐJAN
Súðarvogi 3-5 • 104 Reykjavík ■ Simi 91-687700