Morgunblaðið - 01.05.1991, Side 68
Fylgstu með hverrí krónu í rekstrínum! - svo vel
jS&BÚSTJÓRI VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR ^91t/
STRENGUR, sími 91-685130 sjováoPaimennar
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Sovétmenn
greiða Ala-
_ fossi hf. 134
milljónir
SOVÉTMENN ætla að greiða í
byrjun næstu viku 2,2 milljónir
Bandaríkjadala, eða um 134
milljónir króna, sem þeir skulda
Alafossi hf. vegna ullarkaupa
héðan í fyrra. Sovétmenn skuld-
uðu Alafossi hf. tæpar 5 miiyón-
ir Bandaríkjadala með áföllnum
vöxtum en siðustu daga hafa
þeir greitt tæplega 900 þúsund
dali af skuldinni.
Ólafur Egilsson, sendiherra í
r Moskvu, og Stefán L. Stefánsson
sendiráðsritari, gengu á fund Júrí
S. Noskovskíj, aðalforstjóra ut-
anríkisviðskiptabanka Sovétríkj-
anna, 23. apríl síðastliðinn. Á
fundinum var lagt fram bréf frá
dr. Jóhannesi Nordal seðlabanka-
stjóra en Seðlabankinn og Lands-
bankinn hafa þrýst á um uppgjör
og Bjöm Tryggvason aðstoðar-
seðlabankastjóri og Barði Áma-
son, deildarstjóri alþjóðadeildar
Landsbankans, hafa hvað helst
unnið að þessu máli.
Tíu reið-
hjólum
var stolið
TÍU reiðhjólum var stolið
í Reykjavík á síðasta sól-
arhring. Meðal annars
var tveimur hjólum stolið
frá sama húsi í Hlíðunum.
Að sögn Ómars Smára
Ármannssonar aðstoðar-
yfirlögregluþjóns er það ár-
visst í sumarbyijun að reið-
hjólaþjófnuðum fjölgi ört og
jafnan er hundraðum reið-
hjóla stolið á hveiju sumri.
Hann sagði að lögreglan
vildi hvetja hjólreiðamenn
til að auðvelda þjófunum
ekki verkið með því skilja
reiðhjól eftir ólæst eða í
reiðuleysi.
Morgunblaðið/Sverrir
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar á fyrsta ríkisráðsfundi sínum á Bessastöðum í gær. Frá vinstri eru Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, Sighvatur Björgvinsson heilbrigðis- og tryggingaráðherra, Halldór Blöndal landbúnaðar- og samgönguráðherra, Eiður Guðnason
umhverfisráðherra, Davíð Oddsson forsætisráðherra, Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands, Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra,
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra, Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra og Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegs-, dóms- og kirkjumálaráðherra. Fyrir aftan situr Guðmundur Benediktsson ríkisráðsritari.
Davíð Oddsson forsætisráðherra:
Vextir munu hækka á næst-
unni en lækka síðan á ný
Fjármálaráðherra segir að allur nýr innlendur sparnaður dugi varla ríkissjóði
RIKISSTJORN Davíðs Odds-
sonar tók við völdum á ríkis-
ráðsfundi á Bessastöðum klukk-
an 14 í gær. Áður hafði ríkis-
stjórn Steingríms Hermanns-
sonar farið frá á ríkisráðs-
fundi. Fyrsti fundur nýju ríkis-
stjórnarinnar verður á fimmtu-
dag og segir Davíð Oddsson
forsætisráðherra að þar verði
væntanlega helst fjallað um rík-
isfjármál.
Davíð Oddsson sagði eftir ríkis-
ráðsfundinn að búast mætti við að
vextir hækkuðu á næstunni. Hann
sagðist í raun telja, að vextir hafi
þegar hækkað, þótt það hafi verið
falið, þar sem ríkisskuldabréf hefðu
íslendingar hætta þátttöku
í samningafundum um EES
Evrópubandalagiö krafioum viðunandi tillögur í sjávarútvegsmálum
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
AÐALSAMNINGAMAÐUR Is-
lands í samningaviðræðunum um
Evrópska efnahagssvæðið (EES)
gekk út af óformlegum samninga-
fundi á föstudag í mótmælaskyni
við áherslur samningamanna Evr-
ópubandalagsins (EB) í sjávarút-
vegsmálum. Horst Krenzler, aðal-
samningamaður EB, ítrekaði á
fundinum að framkvæmdastjórn
EB hefði ekkert umboð til að
semja um tollaívilnanir nema í
staðinn komi aðgangur að fiski-
miðum aðildarríkja Fríverslunar-
bandalags Evrópu (EFTA). _ í
framhaldi af útgöngunni hafa ís-
lendingar ákveðið að taka ekki
þátt í sameiginlegum fundum með
fulltrúum EB og jafnframt að
silja fundi EFTA-fuIltrúa um
samningana sem áheymarfulltrú-
ar.
Samningafundurinn á föstudag
var haldinn í kjölfar sameiginlegs
fundar yfirsamninganefnda EFrA
og EB á fimmtudag. Á fundinum
þótti ljóst að ekkert þokaði í viðræð-
unum um sjávarafurðir en fram-
kvæmdastjóm EB hefur átt í miklum
erfíðleikum með sum aðildarríkja
bandalagsins og þá sérstaklega
Spánverja sem hafa verið ósveigjan-
legir í kröfum sínum um fiskiveiði-
heimildir í fískveiðilögsögum aðild-
arríkja EFTA. Samkvæmt heimild-
um í Brussel kemur þessi ákvörðun
íslendinga ekki á óvart en yfírgnæf-
andi hagsmunir þeirra í sjávarútvegi
eru almennt viðurkenndir. Talið er
líklegt að ákvörðun íslendinga geti
auðveldað framkvæmastjórn Evr-
ópubandalagsins að ná fram mála-
miðlun við aðildarríkin um sjávarút-
vegsmál.
Engin ákvörðun hefur verið tekin
af hálfu íslendinga um að hætta
þátttöku í samningaviðræðunum en
sennilegt þykir að fulltrúar íslands
sæki ekki fundi fyrr en framkvæmd-
astjórn EB leggur fram viðunandi
tilboð um sjávarafurðir. Samkvæmt
heimildum innan framkvæmda-
stjórnar EB er litið svo á að til þess
að unnt verði að miðla málum í deil-
unni þurfi annars vegar að fá Spán-
veija til að láta af kröfum sínum
um veiðiheimildir og hins vegar
Norðmenn til að falla frá kröfunum
um að þeir fái sömu kjör og íslend-
ingar. Það liggi þess vegna fyrir að
hvort bandalag um sig nái samstöðu
um þessi atriði áður en hægt verði
að koma til móts við íslendinga.
Næsti sameiginlegi samninga-
fundur EB og EFTA verður á morg-
un, fímmtudag, í samningahópi þeim
sem fjallar um frjálsa vöruflutninga
þ.m.t. sjávarafurðir.
legið óseld og fyrri ríkisstjórn ekki
viljað hækka vexti á þeim á það
stig sem þeir í rauninni væra. „Ég
býst við því að vextirnir muni fara
í það sem þeir era, nú þegar stjórn-
in fer frá, en síðan, eftir að ríkisút-
gjöldum verður mætt, þá ættu vext-
ir að ganga niður á nýjan leik,“
sagði hann.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra sagði, að ekki yrði hægt að
mæta allri lánsfjárþörf ríkisins á
innlendum markaði það sem af
væri ársins, þar sem allur nýr inn-
lendur sparnaður dygði ekki til þess.
Rætt hefur verið um það milli
formanna stjórnarflokkanna, að
færð verði verkefni til umhverfis-
ráðuneytis þannig að það fái meira
vægi. Ekki hefur verið fastsett enn
hvaða verkefni það eru.
Steingrímur Hermannsson frá-
farandi forsætisráðherra sagði að
engar bölbænir fylgdu nýju ríkis-
stjórninni frá sér. „Ég vona að
henni takist að byggja á þeim góða
arfi sem hún tekur við og glati þar
engu niður. Ég legg sérstaka
áherslu á að það takist breitt og
gott samstarf við aðila vinnumark-
aðarins og að það takist að hefja
framfarasókn á þessum grundvelli,"
sagði Steingrímur lagði og áherslu
á að stjómarandstaða sín yrði mál-
efnaleg.
Sjá fréttir og viðtöl á bls. 30-31
og 34-37.