Morgunblaðið - 04.05.1991, Page 20
20
H>QL IAJ/S A ÍTlJDAdflAOUAJ aiQJwiaKUDHOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAI 1991
Réttarhöld vegna bílslyss í Florida:
Sýknaður af ákæru
um að hafa valdið
dauða dóttur sinnar
Miami. Reuter.
SYDNEY Shapiro, dómari í Florida í Bandaríkjunum ákvað í gær
að láta lausan Kamiro de Jesus Rodriguez sem ákærður var fyrir
að hafa valdið dauða þriggja ára gamallar dóttur sinnar með því
að leyfa henni að silja í fangi móður sinnar í bíl þeirra í stað þess
að hafa hana í öruggum barnastól. Verjandi Rodriguez hafði ekki
leitt eitt einasta vitni fyrir réttinn þegar dómarinn ákvað að sýkna
hann. Dóttir Rodriguez, Veronica, dó í bílslysi 3. ágúst sl. Foreldr-
ar hennar voru á leið í lyfjabúð til að kaupa lyf handa Veronicu
og leyfðu henni að sitja í fangi móður sinnar vegna þess að hún
var veik.
Shapiro sagði að ekki væri hægt
að sakfella Rodriguez sem sækj-
endum málsins hefði ekki tekist
að sanna á hánn meint gáleysi eða
óvirðingu fyrir lffl barnsins. Rodr-
iguez átti fimm ára fangelsisdóm
yfir höfði sér en sækjendur málsins
viðurkenndu að vegna þjáninga
föðurins hefðu þeir einungis farið
fram á skilorðsbundinn dóm ef
hann hefði verið sakfelldur.
Rodriguez, sem er 30 ára mat-
reiðslumaður, fluttist til BandaríkJ-
anna frá Nicaragua fyrir þremur
árum. Hann leit aldrei upp og brast
hvað eftir annað í grát þegar lög-
reglumenn og lögfræðingar, sem
báru vitni fyrir málsækjendur, sök-
uðu hann um að hafa valdið dauða
Veronicu. Rodriguez talar ekki
ensku og voru réttarhöldin túlkuð
fyrir hann jafnóðum. Hann tók af
sér heyrnartólin þegar sérfræðing-
ur lýsti í smáatriðum litmyndum
af höfuðáverkum þeim sem leiddu
dóttur hans til dauða vegna þess
að hann treýsti sér ekki til að
hlusta.
Færeyjar:
Frystihús
boðin upp
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jargen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
TVO frystihús voru seld á nauð-
ungaruppboði í Færeyjum í vik-
unni og kostaði þetta færeyska
ríkissjóðinn meira en 40 miiljónir
DKR (360 milljónir ÍSK).
Útvegsbankinn færeyski hafði
krafíst uppboðs á frystihúsinu Solar-
is á Sandey. Krafa bankans nam
52,6 milljónum DKR og þar af hafði
ríkissjóður veitt tryggingu fyrir 23
milljónum auk þess sem hann hafði
lánað frystihúsinu 6,6 milljónir
króna. Útvegsbankinn keypti stöðina
fyrir eina milljón danskra króna.
Frystihúsið í Halldórsvík var einn-
ig boðið upp í fógetarétti. Færeyja-
banki keypti frystihúsið fyrir
100.000 DKR (um 920.000 ÍSK).
Rodriguez átti að bera vitni síð-
degis í gær en eftir að málsækjend-
ur höfðu lokið vitnaleiðslum fór
lögfræðingur hans fram á að mál-
inu yrði vísað frá. Eftir að Shapiro
hafði vísað kviðdómi út úr réttar-
salnum komst hann að þeirri niður-
stöðu að ákæran væri ekki studd
nægjanlegum sönnunargögnum og
sýknaði Rodriguez. Hann faðmaði
lögfræðing sinn og yfirgaf yfirfull-
an réttarsalinn til að komast í
kirkju.
Námsmaður kveikir
Reuter
sér
Suður-kóreskur námsmaður lést í gær eftir að hafa
kveikt í sér til að mótmæla drápi óeirðalögreglunnar
á mótmælanda fyrir um viku. Námsmaðurinn hellti
yfir sig bensíni og stökk af heimavist háskóla í
Seoul. Þetta er í þriðja sinn í vikunni sem námsmað-
ur kveikir í sér í borginni.
Saddam hættir við að láta
sprengja höll sína í loft upp
Nikosíu, Genf, Silopi í Tyrklandi. Reuter.
VESTRÆNAR hersveitir héldu í gær áfram framrás sinni í norður-
hluta Iraks til að stofna griðasvæði fyrir hundruð þúsunda kúrd-
ískra flóttamanna og komu að sumarhöll Saddams Husseins íraks-
forseta á svæðinu. Saddam afturkallaði fyrirskipun til íraskra
hermanna um að sprengja höllina í loft upp, en hún er á hæð
skammt frá bænum Sarsank.
Erlendir fréttamenn á svæðinu
sögðu að koma hersveitanna til
hallarinnar hefði ráðið mestu um
að Saddam hætti við að láta
sprengja hana í loft upp. Forsetinn
hafði fyrirskipað hersveitum sín-
um að leggja höllina í rúst til að
koma í veg fyrir að Bandaríkja-
menn og bandamenn þeirra gætu
notað hana sem herstöð. Banda-
ríkjamenn vísuðu því á bug að það
væri ætlunin, heldur að leita
þungavopna í henni, og sögðu að
liðsmönnum Lýðveldisvarðarins,
úrvalssveita Saddams, yrði leyft
að vera áfram á lóðinni.
Sjónvarpsmyndir sýndu mikla
liðsflutninga bandarískra,
franskra og breskra hermanna
fram hjá höllinni. Flugvélar og
þyrlur flugu fyrir ofan þá. Banda-
ríski höfuðsmaðurinn Bob Flocke
sagði að vestrænu hersveitirnar
væru þegar komnar til bæjarins
Amadiya, um 120 km austur af
Zakho og myndu halda áfram til
bæjarins Suriye, um 10 km austur
af Amadiya.
Talsmaður Flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna (UNHCR)
sagði í gær að stofnunin gæti
ekki ábyrgst öryggi Kúrda sem
færu til norðurhluta íraks og vara-
samt væri að leggja of hart að
þeim að snúa aftur. Kúrdar væru
vamarlausir á stórum landsvæð-
um í Norður-írak. Neyðarhjálp
Sameinuðu þjóðanna (UNDRO)
varaði við því að allt að 600.000
shítar kynnu að flýja til írans en
þegar hefur um milljón íraskra
flóttamanna komið þangað.
Skýrt var frá því í gær að kúr-
dísk sendinefnd færi til Bagdad í
næstu viku til viðræðna við írösk
stjómvöld um sjálfstjóm Kúrda.
Fyrir nefndinni fer Massoud Barz-
ani, leiðtogi Kúrdíska lýðræðis-
flokksins, sem hefur barist fyrir
sjálfstjórn Kúrda í áratugi. För
hans bendir til þess að Saddam
sé alvara með að semja við Kúrda.
Spenna rikir milli yfirvalda í
Tyrklandi og vestrænu hersveit-
anna. Tyrkir lokuðu til að mynda
helstu flutningaleiðinni frá landinu
til norðurhluta íraks í tvær og
hálfa klukkustund í gær. 30 bresk-
um landgönguhermönnum var
einnig fyrirskipað að fara úr
landinu innan 72 stunda og vom
þeir sakaðir um að hafa ráðist á
tyrkneskan embættismann. Þá var
Rcbert Fisk, fréttaritara breska
blaðsins The Independent vísað
úr landi vegna greinar, þar sem
hann sakaði tyrkneska hermenn
um að hafa látið greipar sópa um
birgðir sem ætlaðar vom Kúrdum.
Bandaríkjastjóm lagði til í gær
að írakar yrðu neyddir til að greiða
fyrir aðstoð erlendra ríkja við
Kúrda. Hjá Sameinuðu þjóðunum
var rætt hvemig tryggja mætti
að írakar greiddu stríðsskaðabæt-
ur sínar og var meðal annars lagt
til að olía yrði tekin frá þeim og
hún seld.
Þýskaland:
Mannskæð-
ur eldsvoði
íáburðar-
verksmiðju
Átta manns biðu bana og
123 urðu fyrir meiðslum
er sprenging varð í
áburðarverksmiðju í
bænum Sterlington í Lou-
isiana-ríki í Bandaríkjun-
um á miðvikudag. Eldur
braust út í verksmiðjunni
og grípa varð til þess ráðs
að flytja alla íbúa bæjar-
ins í burtu. Ekki var vitað
í gær hvað olli slysinu. Á
myndinni standa slökkvi-
liðsmenn við verksmiðj-
una eftir að þeir slökktu
eldinn.
Reuter
Vaxandi krytur innan rík-
isstjórnar Kohls kanslara
Bonn. Reulor.
MIKIL spenna ríkir nú í þýsku stjórninni vegna þess að Helmut
Kohl, kanslari og leiðtogi Kristilegra demókrata (CDU), aflýsti
nýlega morgunverðarfundi með leiðtogum systurflokks CDU,
Kristilega sósíalsambandinu (CSU). Hinir síðarnefndu höfðu áður
hvatt hann ákaft til að standa vörð um hefðbundin gildi ihalds-
manna og mun kanslarinn hafa litið á áskorunina sem óbeina
gagnrýni. „Þetta eru ekki beinlínis góðir mannasiðir, enginn nær
árangri í stjórnmálum með því að aflýsa fundum,“ sagði Edmund
Stoiher, innanríkisráðherra Bæjaralands þar sem CSU fer með
völd, um ákvörðun Kohls.
Kohl skýrði frá ákvörðun sinni
í símtali frá Kanaríeyjum þar sem
hann átti viðræður við Felipe
Gonzales, forsætisráðherra Spán-
ar. Ráðuneytisstjóri kanslarans
sagði CSU-menn hafa átt upptök-
in; gagnrýni þeirra hefði verið
„óréttlát og óviðunandi... Það er
ekki hægt að ræða málin þegar
annar aðilinn setur skilyrði fyrir-
fram.“ Deilumar eru taldar sýna
vaxandi óeiningu í stjómariiðinu
en helsti stjómarflokkurinn, CDU,
beið nýlega afhroð í þingkosning-
um í Rheinland-Pfalz og fylgi hans
hefur hrapað í skoðanakönnunum.
Stjómin hefur einnig misst meiri-
hlutann í efri deild þingsins, sam-
bandsráðinu, og geta stjómarand-
stæðingar því stöðvað lagafrum-
vörp.
CSU, sem er lengst til hægri
af stjórnarflokkunum, óttast að
glata áhrifum á landstjómina.
Flokkurinn hefur að undanfömu
reynt að hefja gagnsókn með því
að þvinga CDU til að leggja meiri
áherslu á stefnumál eins og frek-
ari takmarkanir á fóstureyðingum,
strangari reglur um landvist til
handa pólitískum flóttamönnum
og öflugri utanríkisstefnu.
- Formaður þriðja stjómarflokks-
ins, Fijálsra demókrata (FDP), er
Otto Lambsdorff greifl. Hann lýsti
stuðningi við Kohl og gágnrýndi
Bæjarana fyrir að efna til ófriðar.
Leiðtogar CSU saka á hinn bóginn
FDP um að stefna að því að mynda
samsteypustjom með jafnaðar-
mönnum (SPD) eftir næstu þing-
kosningar sem verða 1994.
Kohl hefur ákveðið að ræða við
forystumenn CSU þ.á m. Theo
Waigel fjármálaráðherra á þriðju-
dag.